Fleiri
Danski sjóliðinn jarðsettur 28.12.2006 16:22 Varað við hundaæði í New York Heilbrigðisyfirvöld í New York hafa ráðlagt fólki að fara varlega í kringum flækingshunda og ketti, og einnig þvottabirni. Ástæðan er ótti við hundaæði. Á Staten eyju utan við Manhattan hafa í ár fundist þrjátíu og fimm dýr sem voru smituð af hundaæði. Það er á móti aðeins einu smituðu dýri á árinum 1997 til 2005. 28.12.2006 15:55 Liechtenstein stækkar Smáríkið Liechtenstein hefur stækkað um hálfan ferkílómetra, eftir nýjar mælingar á landamærum þess. Það þýðir að ríkið er 160 ferkílómetrar. Til samanburðar má geta þess að Ísland er rúmir 104 þúsund ferkílómetrar. 28.12.2006 15:41 Ný stjórn Landsvirkjunar Í morgun var skipuð ný stjórn Landsvirkjunar sem tekur við frá og með næstu áramótum. Fækkað var í stjórninni úr sjö í fimm. Jóhannes Geir verður áfram stjórnarformaður Landsvirkjunar og Ágúst Einarsson situr einnig áfram í stjórninni en þrír stjórnarmannanna eru nýir. 28.12.2006 15:38 Flugeldasýningum frestað á Suðurnesjum Flugeldasýningu björgunarsveitanna sem vera átti í Reykjanesbæ í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs, að sögn Víkurfrétta. Sömuleiðis hefur flugeldasýningunni í Grindavík verið frestað af sömu sökum. Ráðgert er að þær fari fram á sama tíma annað kvöld. 28.12.2006 15:35 Rafræn skýrsluskil hjá Fjármálaeftirlitinu Frá og með ársbyrjun 2007 fer Fjármálaeftirlitið fram á að reglubundum skýrslum verði skilað á rafrænu formi inn á sérstakan vef eftirlitsins. Greint er frá þessu á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. 28.12.2006 15:32 Sjá næstu 50 fréttir
KB banki verður Kaupþing Um áramótin breytist heiti KB banka á Íslandi í Kaupþing, en lögformlegt heiti bankans er Kaupþing banki hf. Breytingin er liður í langtímaáætlun stjórnar bankans um að hann starfi undir sama nafni hvar í heimi sem er. Nú er unnið að því að skipta um merkingar á útibúum og verður því verki væntanlega lokið í fyrstu viku janúar. 29.12.2006 12:30
Ber ekki saman um aftöku Saddams Embættismönnum ber ekki saman um hvenær Saddam Hussein verður tekinn af lífi. Íraska varnarmálaráðuneytið segir að dómnum verði ekki framfylgt næsta mánuðinn en af orðum íraska forsætisráðherrans, gæti það jafnvel orðið á morgun. 29.12.2006 12:30
Fyrrverandi landlæknir, forstöðumaðurinn og geðlæknir bera faglega ábyrgð á Byrginu Guðmundur Jónsson forstöðumaður í Byrginu, Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir og Magnús Skúlason læknir bera faglega ábyrgð á starfsemi Byrgisins. 29.12.2006 12:11
Vaxandi fylgi við Íbúðalánasjóð Vaxandi fylgi er við það meðal almennings, að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd og færri en áður vilja að bankarnir taki við starfsemi sjóðsins. Um það bil 83% landsmanna vilja að sjóðurinn starfi áfram í óbreyttri mynd, samkvæmt nýrri skoðanakönnnun Capacent, og hefur stuðningur almennings við sjóðinn aukist frá því í ársbyrjun. 29.12.2006 12:00
Iðnskólarnir eignast kortaútgáfu Landmælinga Iðnskólar landsins eignast landakortaútgáfu Landmælinga Íslands þegar ný lög um Landmælingar Íslands taka gildi um áramótin og stofnunin hættir útgáfu og sölu landakorta. Iðnmennt ses. átti hæsta tilboðið, tæpar 30 millljónir króna, í landakortaútgáfuna, sem Ríkiskaup auglýsti til sölu fyrir skömmu. 29.12.2006 11:56
Milljónir í pílagrímsgöngu Áætlað er að um þrjár milljónir múslima séu komnar til Mekka í Sádi-Arabíu í árlega pílagrímsathöfn. Miklar öryggisráðstafanir eru á svæðinu þar sem á fjórða hundrað manna tróðust undir við síðustu athöfn. Áætlað er að Sádi-Arabar hafi eytt meira en 70 milljörðum íslenskra króna í að tryggja öryggi pílagríma. 29.12.2006 11:46
Verður sjónvarpað frá aftöku Saddams? Bandarískar sjónvarpsstöðvar velta nú fyrir sér hvernig þær eigi að haga fréttaflutningi sínum af aftöku Saddams Hussein um helgina. Búist er við því að aftkan verði tekin upp á myndband og hugsanlega sýnd í sjónvarpi í Írak. Fundað var sérstaklega um fyrirhugaðan fréttaflutning hjá að minnsta kosti tveimur bandarísku sjónvarpsstöðvanna í gær. ABC og CBS sögðust ekki ætla að sjónvarpa aftökunni í heild. 29.12.2006 11:17
Neyðarfundur til að semja um gasverð Hvítrússnesk neyðarsendinefnd fer til Moskvu um hádegið í dag, til að reyna að komast að samkomulagi um gasverð fyrir áramót. Ef ekki næst að semja mun rússneska fyrirtækið Gazprom skrúfa fyrir gas til Hvítrússa en þeir munu í staðinn loka leiðslum sem liggja um landið yfir til viðskiptavina fyrirtækisins í Evrópu. 29.12.2006 10:49
Hvít-Rússar búast við lausn á gasdeilunni fyrir 1. janúar Hvíta-Rússland býst við því að deilan við Rússa um verðið á gasi þeim til handa verði leyst fyrir 1. janúar næstkomandi. Rússar hafa sagt að þeir muni skrúfa fyrir gasið ef samkomulag hefur ekki náðst fyrir þann tíma en þeir vilja fá hærra verð fyrir það. Hvít-Rússar hafa á móti sagst ætla að loka flutning gass til Evrópu ef í harðbakkann slær. 28.12.2006 23:30
Lögregla í Rio eykur viðbúnað Lögreglan í Rio de Janeiro munt tvíefla viðbúnað vegna áramótafagnaðar í borginni eftir að glæpagengi réðust á strætisvagna og lögreglustöðvar í borginni í dag og myrtu að minnsta kosti 18 manns. Sjö brunnu til dauða og nærri tveir tugir særðust alvarlega í árásinni en lögreglan kenndi eiturlyfjagengjum um hana. 28.12.2006 23:23
Ekvador deilir á aðgerðir Kólumbíu gegn eiturlyfjaframleiðslu Forseti Ekvadors, Rafael Correa, fór að landamærum Kólumbíu í dag til þess að skoða áhrif eitrana sem Kólumbíustjórn stendur fyrir til þess að drepa kókólaufaræktun en kókaín er unnið úr þeim. Forseti Kólumbíu, Alvaro Uribe, segir aðgerðirnar nauðsynlegar í baráttunni gegn fíkniefnum en Correa segir þær sýndarmennsku eina. 28.12.2006 23:15
Arbour varar við of miklum flýti í máli Saddams Yfirmaður mannréttindamála Sameinuðu þjóðanna, Louise Arbor, sagði í dag að írösk yfirvöld ættu að flýta sér varlega í að uppfylla dauðadóminn yfir Saddam Hússeins þar sem málsmeðferðin hefði ekki verið fyllilega sanngjörn en íraskir embættismenn sögðu í dag að Saddam yrði líklega líflátinn fyrir áramót. 28.12.2006 22:27
Apple í vandræðum vegna kaupréttarákvæða Steve Jobs, forstjóri Apple Computer, fékk kauprétt að hlutabréfum í fyrirtækinu fyrir allt að 7.5 milljónir dollara, eða sem nemur um 535 milljónum íslenskra króna, án þess að hafa tilskilin leyfi frá stjórn fyrirtækisins. 28.12.2006 21:33
365 miðlar selja DV, Hér og Nú og Veggfóður 365 miðlar hafa selt útgáfuréttinn á DV til útgáfufélagsins Dagblaðsins Vísis ehf, sem er að 40 prósentum í eigu 365 miðla, en aðaleigandi er Hjálmur ehf. með 49% og Sigurjón Egilsson fyrrverandi ritstjóri Blaðsins, sem verður ritstjóri DV, og sonur hans eru meðal annarra eigenda. 28.12.2006 21:30
Herlög verða sett í Sómalíu á laugardaginn Forsætisráðherra Sómalíu, Mohamed Al Gedi, skýrði frá því í kvöld að þing landsins myndi lýsa yfir herlögum frá og með laugardeginum og að þau myndu standa í þrjá mánuði. 28.12.2006 21:26
Auglýst eftir ferðafélaga á E-bay Breskur maður hefur auglýst til sölu á Ebay lúxusferð fyrir tvo til Jamaíka og er verðið aðeins brot af upprunalegu verði, eða um 90 þúsund krónur í stað 335 þúsund króna. Sá böggull fylgir þó skammrifi að aðeins konur geta keypt ferðina og þær verða að fara með þeim sem selur hana. 28.12.2006 21:15
Bandaríkin vilja þrýsta á stjórnvöld í Myanmar Bandarísk yfirvöld hafa heitið því að leggja aukinn kraft í að koma á framfæri tillögu innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem mundi setja þrýsting á herstjórnina í Myanmar um að taka upp lýðræðislegri stjórnarhætti og bæta ástand í mannréttindamálum þar í landi. 28.12.2006 21:12
Danskir múslimar berjast í Sómalíu Forsætisráðherra Sómalíu skýrði frá því í dag í viðtali við norska blaðið Nettavisen að fjölmargir stríðsmenn uppreisnarmanna í Sómalíu séu norskir, sænskir eða danskir ríkisborgarar. 28.12.2006 20:55
Guðjón Valur íþróttamaður ársins Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var nú rétt í þessu valinn íþróttamaður ársins. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðjón Valur verður þessa heiðurs aðnjótandi. Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen, sigurvegari síðustu tveggja ára, varð í öðru sæti og handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson þriðji. 28.12.2006 20:29
Tvær milljónir í Mecca Tvær milljónir múslima streymdu út úr borginni Mecca í dag við upphaf Haj pílagrímsfararinnar undir árvökulum augum lögreglu í Sádi Arabíu sem vonast til þess að koma í veg fyrir hvers konar troðning eða ofbeldi. Ferðin til Mecca er samkvæmt Íslam ein af undirstöðum trúarinnar og hana verða allir sem geta að fara. 28.12.2006 20:00
Edwards ætlar í forsetaframboð John Edwards, sem var varaforsetaefni John Kerry í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2004, hefur lýst því yfir að hann muni sækjast eftir tilnefningu demókrata sem forsetaefni flokksins fyrir forsetakosningarnar sem munu fara fram árið 2008. 28.12.2006 19:45
Aftaka Saddams verður tekin upp Síðustu andartök í lífi Saddams Hússeins verða tekin upp á myndband af írösku stjórninni en þetta staðfesti fréttamaður CBS í dag en allt ferlið, frá undirritun dómsskjala til hengingarinnar, verði fest á filmu. Aðalöryggisráðgjafi Íraka sagði að dagsetningin myndi ekki vera gerð opinber til þess að komast hjá óeirðum. 28.12.2006 19:30
Bush segir samráð ganga vel George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri á góðri leið með að undirbúa nýja stefnu fyrir Írak. Bush, sem ætlar sér að kynna hina nýju stefnu í næsta mánuði, hitti í dag Condoleezzu Rice, Dick Cheney, Robert Gates og fleiri háttsetta aðila innan stjórnarinnar til þess að ræða málefni Íraks og hugsanlegar breytingar sem hægt væri að gera á stefnu Bandaríkjanna þar. 28.12.2006 19:04
Afsláttarkort send heim frá áramótum Tryggingastofnun stefnir að því að verða notendavænni og nær nútímanum, og spara þannig sjúklingum sporin, segir forstjóri Tryggingastofnunar. Um áramót mun stofnunin byrja að senda sjúklingum afsláttarkort sjálfkrafa. Um er að ræða gríðarlega mikilvægt réttindamál, segir formaður öryrkjabandalagsins. Hingað til hefur fólk þurft að safna kvittunum og senda Tryggingastofnun til að fá afsláttarkort sem færir því afslátt af lyfjum og þjónustu. 28.12.2006 18:53
Ísbirnir í útrýmingarhættu vegna bráðnunar íss Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur lagt til að ísbirnir verði settir á válista yfir dýr sem eru í útrýmingarhættu. Mikil ísbráðnun við norðurskautið veldur því að heimkynni bjarnanna eru nú óðum að hverfa. 28.12.2006 18:45
Þúsund tonn og hörkusamkeppni Í morgun hófst flugeldasala fyrir áramótin þegar sölustaðir opnuðu víða um land. Tæp þúsund tonn af flugeldum voru flutt til landsins fyrir þessi áramót og má gera ráð fyrir að rúmlega fimm hundruð þúsund flugeldum verði skotið á loft um áramótin. Á fimmta tug smásölustaða eru í Reykjavík fyrir þessi áramót þar af eru einkaaðilar með um tuttugu staði, og samkeppnin er hörð. 28.12.2006 18:43
Kveikt var í skammt frá olíubirgðastöð Eyja Ellefu íkveikjur hafa verið á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum síðustu sex ár. Í gærmorgun var kveikt í geymslugámi sem er skammt frá olíubirgðageymslum Eyjanna. 28.12.2006 18:30
Leikskólagjöld lækkuðu í haust en hækka um áramót Leikskólagjöld í Reykjavík, sem lækkuðu um tuttugu og fimm prósent í haust, hækka um tæp níu prósent um áramótin. Stefnan er tekin frá fjölskylduvænni borg, segir oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ótrúlegur útúrsnúningur, segir oddviti Framsóknarflokksins. 28.12.2006 18:30
Íslendingar með heimsmet í viðskiptahalla Viðskiptajöfnuður Íslendinga við útlönd hefur aldrei verið óhagstæðari en nú. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir slíkan viðskiptahalla ekki geta staðist til lengdar en telur að horfur séu betri á næsta ári. Sérfræðingur í fjármálum telur hins vegar vissa hættu á að efnahagslífið nái ekki lendingu vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda á næstu árum, meðal annars með stækkun álversins í Straumsvík. 28.12.2006 18:30
Engin lög um skilarétt Nokkur fjöldi jólagjafa er á leið aftur í verslanir nú á milli jóla og nýárs. Skilaréttur neytenda er þó eingöngu upp á vilja verslunareigenda kominn þar sem engin lög eru til um slíkt. 28.12.2006 18:30
Eþíópíumenn komnir inn í Mogadishu Stjórnarher Sómalíu, með fulltingi eþíópískra hersveita, gekk fylktu liði inn í Mogadishu, höfuðborg landsins í dag, nokkrum klukkustundum eftir að íslamskir uppreisnarmenn yfirgáfu hana. Upplausn virðist ríkja í borginni og þúsundir landsmanna eru á vergangi vegna átakanna. 140 er saknað eftir að báti flóttamanna hvolfdi í dag. 28.12.2006 18:30
Stórfundur um Byrgið í félagsmálaráðuneytinu Fulltrúar frá Félagsmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Lögreglustjóranum í Reykjavík, Landlækni og Fasteignum ríkissjóðs funduðu í dag um málefni meðferðarheimilisins Byrgisins að Efri-Brú í Grímsnesi. Það var Félagsmálaráðuneytið sem kallaði til fundarins sem lið í upplýsingaöflun sinni um starfsemi Byrgisins og aðstæður skjólstæðinga þess. Í tilkynningu frá ráðuneytinu nú rétt fyrir fréttir kemur fram að Ríkisendurskoðandi skili niðurstöðum um skoðun sína á opinberu fé í rekstri Byrgisins í annarri viku janúar á nýju ári. 28.12.2006 18:00
Sömu áramótaheit um allan heim Betra jafnvægi í leik og starfi, gera meiri líkamlegar æfingar og að forðast stórslysasambönd eru á meðan þeirra áramótaheita sem eru hvað vinsælust um allan heim þessi áramótin. Alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið ACNielsen tók fólk tali í 46 löndum og komst að því að allt frá Bandaríkjunum til Víetnam vildi fólk helst að vinna þess myndi verða í minna hlutverki á komandi ári. 28.12.2006 17:58
Bretar borga bandamönnum lánið Bretar skýrðu frá því í dag að næstkomandi föstudag myndu þeir klára að borga þau lán sem þeir hefðu tekið við lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Lánin fengu þeir frá Bandaríkjunum og Kanada á aðeins tvö prósent vöxtum en heildarupphæðin sem Bretar hafa borgað til baka nemur alls 9.5 milljörðum dollara, eða um 678 milljörðum íslenskra króna. 28.12.2006 17:46
Kjöt af einræktuðum dýrum hæft til manneldis Fæðu- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna sagði frá því í dag að það byggist við því að leyfa sölu og neyslu á kjöti úr einræktuðum dýrum. Dýrin sem um ræðir eru naut, svín og geitur en kjöt úr einræktuðu sauðfé er ekki enn talið hæft til manneldis. 28.12.2006 17:14
Pólskur maður úrskurðaður í farbann Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag farbann yfir pólskum manni sem nýlega var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku. 28.12.2006 17:03
Tvær milljónir farþega um Leifstöð Tvær milljónir farþega hafa farið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á árinu 2006 en aldrei hafa jafn margir farþegar farið um flugstöðina á einu ári. 28.12.2006 16:41
Forstjóri IKEA talar af sér Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA talaði af sér þegar hann hélt ræðu á jólahátíð verslanakeðjunnar, í síðustu viku. IKEA hefur það fyrir sið að segja ekki frá hagnaðinum en Kamprad upplýsti að á síðasta ári hefði hann verið um 250 milljarðar króna. 28.12.2006 16:38
Fjórir handteknir vegna ráns í verslun 11-11 Fjórir karlmenn á tvítugsaldri hafa verið handteknir vegna ráns sem framið var í verslun 11-11 í Gilsbúð í Garðabæ í gærkvöldi. Þeir bíða nú yfirheyrslu hjá lögreglunni. 28.12.2006 16:25
Varað við hundaæði í New York Heilbrigðisyfirvöld í New York hafa ráðlagt fólki að fara varlega í kringum flækingshunda og ketti, og einnig þvottabirni. Ástæðan er ótti við hundaæði. Á Staten eyju utan við Manhattan hafa í ár fundist þrjátíu og fimm dýr sem voru smituð af hundaæði. Það er á móti aðeins einu smituðu dýri á árinum 1997 til 2005. 28.12.2006 15:55
Liechtenstein stækkar Smáríkið Liechtenstein hefur stækkað um hálfan ferkílómetra, eftir nýjar mælingar á landamærum þess. Það þýðir að ríkið er 160 ferkílómetrar. Til samanburðar má geta þess að Ísland er rúmir 104 þúsund ferkílómetrar. 28.12.2006 15:41
Ný stjórn Landsvirkjunar Í morgun var skipuð ný stjórn Landsvirkjunar sem tekur við frá og með næstu áramótum. Fækkað var í stjórninni úr sjö í fimm. Jóhannes Geir verður áfram stjórnarformaður Landsvirkjunar og Ágúst Einarsson situr einnig áfram í stjórninni en þrír stjórnarmannanna eru nýir. 28.12.2006 15:38
Flugeldasýningum frestað á Suðurnesjum Flugeldasýningu björgunarsveitanna sem vera átti í Reykjanesbæ í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs, að sögn Víkurfrétta. Sömuleiðis hefur flugeldasýningunni í Grindavík verið frestað af sömu sökum. Ráðgert er að þær fari fram á sama tíma annað kvöld. 28.12.2006 15:35
Rafræn skýrsluskil hjá Fjármálaeftirlitinu Frá og með ársbyrjun 2007 fer Fjármálaeftirlitið fram á að reglubundum skýrslum verði skilað á rafrænu formi inn á sérstakan vef eftirlitsins. Greint er frá þessu á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. 28.12.2006 15:32