Fleiri fréttir Nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn á Ísafirði Jón Svanberg Hjartarson hefur verið settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2007. Jón er varðstjóri lögreglunnar á Ísafirði en hann mun sinna starfinu á Patreksfirði og gegna því í eitt ár. 28.12.2006 14:22 Skautasvellið á Ingólfstorgi lokar á morgun Skautasvellinu á Ingólfstorgi verður lokað á morgun en Tryggingamiðstöðin setti svellið upp í byrjun desember í tilefni af fimmtíu ára afmæli fyrirtækisins. 28.12.2006 14:12 Fjöldamorðum stjórnað úr fangelsum Að minnsta kosti ellefu manns létu lífið í árásum glæpagengja í Ríó de Janeiro, í Brasilíu, í morgun. Talið er að glæpamenn í Bangu fangelsinu hafi fyrirskipað árásirnar. 28.12.2006 13:45 550 þúsund flugeldum skotið upp Gert er ráð fyrir að 550 þúsundum flugeldum verði skotið á loft upp um áramótin. Flutt hafa verið inn 991 tonn af flugeldum. Ellefu brennur verða um áramótin og sex flugeldasýningar fyrir áramótin. 28.12.2006 13:38 Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél af gerðinni Jetstream 32 til landsins síðdegis. Hún lendir í Reykjavík um kl. 18:00. Nýja vélin verður notuð í áætlunarflug á Höfn í Hornafirði og Sauðárkrók ásamt því að fljúga leiguflug. Hún er búin jafnþrýstibúnaði með auknum þægindum fyrir farþega og tekur 19 manns í sæti, segir í frétt frá félaginu. 28.12.2006 13:33 Kalla þurfti til lögreglu vegna slagsmála systkina Kalla þurfti til lögregluna vegna slagsmála systkina í gær en flytja þurfti stúlkuna undir læknishendur þar sem hún meiddist á baki. Bróður hennar varð hins vegar ekki meint af. Á vef lögreglunnar er einnig sagt frá því að veggjakrotarar hafi verið á ferðinni í Reykjavík í gær en ummerki eftir þá sáust bæði á húsum og bílum. 28.12.2006 13:28 Póstkössum læst yfir áramótin Íslandspóstur ætlar í ár líkt og fyrri ár að læsa póstkössum sem eru utandyra á höfuðborgarsvæðinu yfir áramótin. Skemmdir hafa ítrekað verið unnar á póstkössunum í kringum áramót og því var ákveðið að grípa til þessa ráðs. Verið er nú að vinna í því að læsa kössunum og verða þeir ekki opnaðir aftur fyrr en miðjan janúar. 28.12.2006 13:15 Ungur viðskiptajöfur stöðvaður
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn á Ísafirði Jón Svanberg Hjartarson hefur verið settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2007. Jón er varðstjóri lögreglunnar á Ísafirði en hann mun sinna starfinu á Patreksfirði og gegna því í eitt ár. 28.12.2006 14:22
Skautasvellið á Ingólfstorgi lokar á morgun Skautasvellinu á Ingólfstorgi verður lokað á morgun en Tryggingamiðstöðin setti svellið upp í byrjun desember í tilefni af fimmtíu ára afmæli fyrirtækisins. 28.12.2006 14:12
Fjöldamorðum stjórnað úr fangelsum Að minnsta kosti ellefu manns létu lífið í árásum glæpagengja í Ríó de Janeiro, í Brasilíu, í morgun. Talið er að glæpamenn í Bangu fangelsinu hafi fyrirskipað árásirnar. 28.12.2006 13:45
550 þúsund flugeldum skotið upp Gert er ráð fyrir að 550 þúsundum flugeldum verði skotið á loft upp um áramótin. Flutt hafa verið inn 991 tonn af flugeldum. Ellefu brennur verða um áramótin og sex flugeldasýningar fyrir áramótin. 28.12.2006 13:38
Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél af gerðinni Jetstream 32 til landsins síðdegis. Hún lendir í Reykjavík um kl. 18:00. Nýja vélin verður notuð í áætlunarflug á Höfn í Hornafirði og Sauðárkrók ásamt því að fljúga leiguflug. Hún er búin jafnþrýstibúnaði með auknum þægindum fyrir farþega og tekur 19 manns í sæti, segir í frétt frá félaginu. 28.12.2006 13:33
Kalla þurfti til lögreglu vegna slagsmála systkina Kalla þurfti til lögregluna vegna slagsmála systkina í gær en flytja þurfti stúlkuna undir læknishendur þar sem hún meiddist á baki. Bróður hennar varð hins vegar ekki meint af. Á vef lögreglunnar er einnig sagt frá því að veggjakrotarar hafi verið á ferðinni í Reykjavík í gær en ummerki eftir þá sáust bæði á húsum og bílum. 28.12.2006 13:28
Póstkössum læst yfir áramótin Íslandspóstur ætlar í ár líkt og fyrri ár að læsa póstkössum sem eru utandyra á höfuðborgarsvæðinu yfir áramótin. Skemmdir hafa ítrekað verið unnar á póstkössunum í kringum áramót og því var ákveðið að grípa til þessa ráðs. Verið er nú að vinna í því að læsa kössunum og verða þeir ekki opnaðir aftur fyrr en miðjan janúar. 28.12.2006 13:15
Einn af forstjórum Yukos grunaður Rannsóknin á morðinu á fyrrverandi KGB-manninum Alexander Litvinenko hefur tekið óvænta stefnu eftir að rússneskir saksóknarar greindu frá því að Leonid Nevzlin, einn af forstjórum olíurisans Yukos, lægi undir grun. 28.12.2006 13:00
Bíða í röðum eftir að fá að hengja Saddam Tölvupóstur dynur nú á ríkisstjórn Íraks, frá landflótta Írökum, sem bjóðast til að verða böðlar Saddams Hussein, þegar hann verður hengdur í næsta mánuði. Margir sjálfboðaliðanna misstu ættingja eða vini meðan Saddam stjórnaði landinu. 28.12.2006 13:00
Heather Mills fær ekki eyri Fyrirsætan fyrrverandi Heather Mills mun ekki ríða feitum hesti frá skilnaðinum við Sir Paul McCartney, ef lögfræðingar hans fá einhverju um ráðið. Þeir hafa lagt fram rök fyrir því að Mills eigi ekki að fá eyri við skilnaðinn. 28.12.2006 12:59
Múslimar lagðir af stað í pílagrímsferð Áætlað er að þrjár milljónir múslima séu lagðir af stað frá borginni Mekka í Sádiarabíu í hina árlegu pílagrímsferð Hajj, sem er ein af fimm stoðum íslams. Miklar öryggisráðstafanir eru í kringum gönguna til að reyna að koma í veg fyrir troðning eins og þann sem varð 400 manns að bana í síðustu göngu í janúar. 28.12.2006 12:45
Lík sex manna hafa fundist eftir þyrluslys Óttast er að sjö manns hafi farist í þyrluslysi við Morecambe-flóa í Lancashire-héraði á Englandi í gærkvöldi. Lík sex manna hafa fundist á svæðinu en leit stendur enn yfir af þeim sjöunda. 28.12.2006 12:45
Upplausn í Mógadisjú Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, er stjórnlaus eftir að íslamskir uppreisnarmenn sem ráðið hafa borginni flýðu undan hersveitum ríkisstjórnarinnar í morgun. Hópur sem tengist al-Kaída skorar nú á fylgismenn sína að halda til Sómalíu og aðstoða trúbræður sína í stríðinu. Borgarbúar fagna nú stjórnarhermönnum sem eru að koma inn til borgarinnar. 28.12.2006 12:30
Ráðist á lögreglumenn Tveir lögreglumenn meiddust og voru fluttir á Slysadeild, eftir að þeir urðu fyrir fólskulegri líkamsárás í vesturbæ Reykjavíkur um fjögur leytið í nótt. Þeir höfðu verið kallaðir að fjölbýlishúsi vegna hávaða af skoteldum, sem verið var að skjóta úr einni íbúðinni. Annar þeirra var meðal annars sleginn á barkann. 28.12.2006 12:15
Allt að áttatíu tonn af olíu hafa lekið úr Wilson Muuga Nú liggur fyrir að sjötíu til áttatíu tonn af olíu hafa lekið úr flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes. Dæling úr skipinu hefur gengið vel og er henni að ljúka. 28.12.2006 12:04
Erlendum ferðamönnum fjölgar um hátíðarnar Erlendum ferðamönnum sem dvöldu á hótelum í Reykjavík nú um jólin fjölgaði um nær 50% frá jólunum í fyrra. En um 1200 erlendir ferðamenn dvöldu um þessi jól á hótelunum. 28.12.2006 11:31
Gjaldskrár borgarinnar hækka umfram verðbólgu Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýna að hækkanir á verðskrám borgarinnar á nýrri fjárhagsáætlun nemi meiru en verðbólguáætlun sem miðað er við, við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um að ekki mætti hækka gjaldskrár umfram verðbólgu var felld í morgun. 28.12.2006 11:21
Tekinn fyrir hraðakstur á leið í áfengisverslun Allmargir hafa verið teknir fyrir hraðakstur í höfuðborginni síðustu daga. Einn þeirra sem lögreglan hafði afskipti af stöðvaði ekki bifreið sína fyrr en hann kom að áfengisverslun. Þegar þangað var komið tilkynnti hann lögreglunni að hann hefði nauðsynlega þurft að ná þangað fyrir lokun. Maðurinn var sviptur ökuleyfi en við leit í bíl hans fundust fíkniefni. 28.12.2006 11:20
Dæmdur fyrir mörg þúsund nauðganir Norskur maður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fósturdóttur sinni mörgþúsund sinnum. Árásirnar hófust þegar hún var tólf ára og stóðu þartil hún var tvítug. Maðurinn er 46 ára gamall. 28.12.2006 10:59
10 ára bann fyrir skáksvindl Indverskur skákmaður hefur verið dæmdur í tíu ára keppnisbann fyrir að svindla á stórmótum í heimalandi sínu. Hann var kominn alla leið á landsmótið í skák, þegar upp um hann komst. 28.12.2006 10:41
Uppreisnarmenn í Kólumbíu sleppa tveimur gíslum Annar stærsti uppreisnarhópur í Kólumbíu, ELN, sleppti í dag tveimur lögreglumönnum sem þeir höfðu haft í haldi í rúman mánuð. Ástæðan virðist vera til þess að auka góðvild í garð sinn en þeir eru nú í viðræðum við forseta landsins, Alvaro Uribe. 27.12.2006 23:50
Bandaríkjamenn vilja friða ísbirni Stjórn George W. Bush hefur lagt til að ísbirnir verði settir á lista yfir þær dýrategundir sem eru í hvað mestri útrýmingarhættu. Fjöldi þeirra hefur stöðugt minnkað undanfarin ár og gróðurhúsaáhrifin hafa valdið hlýnun sem hefur áhrif á heimkynni þeirra og hreinlega bræðir þau. 27.12.2006 23:30
Hvíta húsið varar við frekari ögrunum Hvíta húsið sagði í dag að frekari óhlýðni af hálfu Írana í garð alþjóðasamfélagsins myndi aðeins gera stöðu þeirra verri og að þeir sem myndu líða væri almenningur. Yfirlýsingin eru viðbrögð við ályktun íranska þingsins í dag um að endurskoða tengsl Íran við Alþjóðakjarnorkustofnunina. 27.12.2006 23:18
Dani pyntaður í fangelsi í Jemen 23 ára dönskum ríkisborgara var haldið í fangelsi í tvo mánuði án ástæðu í Jemen. Hann var handtekinn vegna gruns um að hann væri hryðjuverkamaður og tengdur al-Kaída. Í fangelsinu var hann síðan laminn og pyntaður. 27.12.2006 22:53
5 létust í þyrluslysi í Englandi Bresk þyrla með sjö manns innanborðs hrapaði í sjóinn 40 kílómetrum frá ströndinni við Morecamb flóa. Talið er að fólkið hafið verið starfsmenn á olíupalli í nágrenninu og ekki er vitað á þessari stundu hvort var um að ræða neyðarlendingu eða slys. 27.12.2006 22:36
Saddam kveður þjóð sína Saddam Hússein sendi frá sér kveðjubréf til írösku þjóðarinnar nú í kvöld. Í því biður hann þjóðina um að hata ekki bandaríska innrásarherinn og þá sem tengjast honum. 27.12.2006 22:09
Harry prins á leiðinni til Íraks Harry bretaprins er sagður vera á leiðinni til Írak með herdeild sinni en hún á að fara til Íraks í hálft ár næsta vor. Kærasta Harrys sagði vinum og fjölskyldu sinni frá þessu og tilkynnti um leið að hún myndi ferðast um heiminn á meðan hún biði hans. 27.12.2006 21:51
Hjónabönd samkynhneigðra leyfð áfram Dómstóll í Massachusetts í Bandaríkjunum kvað upp úrskurð sinn í málsókn gegn þingmönnum í Massachusetts og sagði að þeir þyrftu ekki að greiða atkvæði um mál sem þeir vildu ekki greiða atkvæði um. 27.12.2006 21:36
Altalandi kaldhæðinn páfagaukur Færni páfagauks eins til þess að tjá sig hefur gert vísindamennina sem rannsaka hann orðlausa. Páfagaukurinn, sem er af gerðinni Grár afrískur og heitir N'kisi, hefur um 950 orða orðaforða. Hann finnur upp ný orð ef hann þarf og hann býr að auki yfir skyggnigáfu. 27.12.2006 21:09
Bandaríkin segja Ísraela brjóta gegn Vegvísinum Bandarísk yfirvöld segja að ný áætlun Ísraela um að byggja upp hverfi í fyrrum herstöð á Vesturbakka myndi brjóta gegn Vegvísinum svokallaða, en það er samkomulagið sem að bandarísk yfirvöld, Ísrael og Palestína sættust á. 27.12.2006 21:01
Pilla á dag kemur þyngdinni í lag Vísindamenn hafa þróað pillu sem að hjálpar fólki að grennast. Eftir prófanir kom í ljós að fólk sem hafði tekið eina pillu á dag í 48 vikur missti um 12% af líkamsþyngd sinni. Þetta jafngildir því að 100 kílóa maður myndi fara niður 88 kíló bara með því að bryðja eina pillu á dag í eitt ár. 27.12.2006 20:40
Íranska þingið vill endurskoða samskipti við SÞ Íranska þingið greiddi atkvæði um þá tillögu að endurskoða samband ríkisins við kjarnorkustofnun Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Tillagan var lögð fram vegna nýlegra refsiaðgerða SÞ gagnvart Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins. 27.12.2006 20:22
Ísafold útnefnir Ástu Lovísu Íslending ársins Tímaritið Ísafold útnefndi í dag Ástu Lovísu Vilhjálmsdóttur sem Íslending ársins 2006. Ásta Lovísa er 30 ára, einstæð þriggja barna móðir, sem berst við krabbamein sem læknar telja banvænt og greinir hún frá baráttu sinni á bloggsíðu sinni. Ásta er einnig alin er upp í skugga banvæns ættarsjúkdóms sem dró móður hennar og systur til dauða. 27.12.2006 20:00
Bílslys við Þjóðarbókhlöðuna Sjónarvottar segja alvarlegt umferðarslys hafa orðið við hringtorgið við Þjóðarbókhlöðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Svo virðist sem ökumaður hafi keyrt yfir hringtorgið sjálft og keyrt niður ljósastaur. Fram- og afturdekk bílstjóramegin höfðu affelgast í leiðinni og var ökumaður síðan fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. 27.12.2006 19:38
Biskup býður sig fram til forseta Rómversk-kaþólskur biskup í Paragvæ, Fernando Lugo, hefur sagt af sér og ákveðið að bjóða sig fram til forseta landsins en kosið verður árið 2008. Lugo var biskup á einu fátækasta svæði landsins og talið er að hann njóti töluverð stuðnings meðal kjósenda þrátt fyrir að vera ekki í framboði fyrir stjórnmálaflokk. 27.12.2006 19:23
Í leit að nýjum plánetum Franski gervihnötturinn COROT er nú á leið út í geiminn til að leita að reikistjörnum í myrkviðum himinhvolfanna. Hnettinum var skotið á loft frá Baikonur í Kasakstan nú síðdegis með nýrri gerð af Soyuz-eldflaug og er skemmst frá því að segja að geimskotið gekk að óskum. 27.12.2006 19:00
Ætla að sitja um Mogadishu Sómalski stjórnarherinn, með fulltingi eþíópískra hersveita, nálgast nú óðfluga höfuðborgina Mogadishu þar sem íslamskir uppreisnarmenn hafa bækistöðvar. Í morgun vann stjórnarherinn áfangasigur þegar hann lagði undir sig borgina Jowhar í suðurhluta landsins. 27.12.2006 18:45
Nýr ferðarisi í sókn á næsta ári Hannes Smárason, forstjóri FL Group, boðar enn meiri fréttir á nýju ári af norrænum ferðarisa sem til varð í dag með stofnun Northern Travel Holding. Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Iceland Express, verður stjórnarformaður hins nýja félags sem velta mun 120 milljörðum króna á ári og flytja sjö og hálfa milljón farþega. 27.12.2006 18:30
Landlæknir fékk ábendingu um 3 vistkonur óléttar eftir starfsmenn í Byrginu Landlæknir fékk fyrir fjórum árum ábendingu frá lækni um að þrjár konur sem voru í meðferð í Byrginu væru óléttar eftir starfsmenn þess. Svo virðist sem landlæknisembættið hafi ekkert gert við þær upplýsingar. 27.12.2006 18:30
Einstæð móðir missti allt sitt Fjögurra barna einstæð móðir á Hvolsvelli missti innbú sitt í bruna aðfaranótt Þorláksmessu, en hún var ótryggð. Reykskynjari bjargaði því að ekki færi verr. Vinir og ættingjar hafa komið af stað söfnun. 27.12.2006 18:30
Fengu allir hamborgarhrygg í jólamatinn? Fyrirsjáanlegur skortur var á hamborgarhryggjum í jólamatinn strax í haust, segja forsvarsmenn Bónuss og Nóatúns. Leyfi til innflutnings fékkst - á ofurtollum sem hefðu skilað stórfelldu tapi, segir Jóhannes í Bónus. Framboð á svínahryggjum var meira en í fyrra, segir landbúnaðarráðuneytið. 27.12.2006 18:30
Gerald Ford horfinn á vit feðra sinna Gerald Ford, þrítugasti og áttundi forseti Bandaríkjanna, andaðist í gær, 93 ára að aldri. Ford gegndi þessu valdamesta embætti heims á erfiðum tímum fyrir bandarískt samfélag. Hans er helst minnst fyrir að hafa aldrei verið kosinn af þjóð sinni og gefið forvera sínum, Richard Nixon, upp sakir. 27.12.2006 18:30
Fiskhjallar hrundu eins og spilaborg Hluti fiskhjalla Fisk Seafood í Skagafirði féll eins og spilaborg í óveðrinu á Þorláksmessu. Á annan tug starfsmanna reyndi í dag að bjarga fiski sem fastur er undir rústum hjallanna. 27.12.2006 18:22
SÞ sendir lið til Súdan Súdan leyfði í dag takmörkuðum fjölda starfsmanna Sameinuðu þjóðanna að koma inn í landið og aðstoða hersveitir Afríkubandalagsins við friðargæslu í landinu. 38 munu fara fyrir áramót og 105 bætast við í hópinn í janúar. Auk þess var ákveðið að Sameinuðu þjóðirnar muni styrkja Afríkubandalagið um 21 milljón dollara, eða um einn og hálfan milljarð íslenskra króna. 27.12.2006 18:20