Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bush segist ætla fara eftir ráðleggingum George W. Bush Bandaríkjaforseti lofaði því í dag að taka ráðleggingar nefndar um stefnuna í Írak mjög alvarlega. 6.12.2006 13:09
Neyðarlög sett á Fídjieyjum Neyðarlög eru í gildi á Fídjieyjum eftir að her landsins rændi þar völdum í gær. Leiðtogar valdaránsins hafa haft hraðar hendur undanfarinn sólarhring, meðal annars leyst upp þingið, sett nýjan forsætisráðherra í embætti til bráðabirgða og rekið lögreglustjóra ríkisins. 6.12.2006 12:56
Farsímanotkun ekki skaðleg Danskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til að notkun farsíma geti valdið krabbameini. 6.12.2006 12:46
Gildi verðlaunaður sem besti lífeyrissjóður landsins í ár Gildi-lífeyrissjóður hefur verið valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi árið 2006 af tímaritinu Investment & Pensions Europe (IPE). Fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum að þetta sé í annað sinn á tveimur árum sem sjóðurinn hlýtur þessi verðlaun. 6.12.2006 12:45
Kampavínið hvarf í göngunum Ekkert varð af því að þyrstir gestir gætu vætt kverkar sínar í kampavíni til að fagna því að síðasta haftið í Kárahnjúkagöngum var rofið í gær því kampavínið var horfið þegar til átti að taka. 6.12.2006 12:30
Búist við tillögum um aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana Nefnd á vegum Bandaríkjaþings sem gera á tillögur um breytingar á stefnunni í Írak skilar niðurstöðum sínum í dag. Aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana og heimkvaðning herliðsins í áföngum er á meðal þess sem búist er við að nefndin leggi til. 6.12.2006 12:15
Kárahnjúkavirkjun á kostnaðaráætlun Stærsta fjárhagslega óvissuþætti Kárahnjúkavirkjunar var eytt með gegnumbroti risaborsins í gær og segja Landsvirkjunarmenn nú að virkjunin verði nokkurn veginn á kostnaðaráætlun. Frávik verði í mesta lagi eitt til tvö prósent. 6.12.2006 12:12
Fjárlög ríkisins fyrir árið 2007 samþykkt á Alþingi Fjárlög ríkisins fyrir næsta ár voru samþykkt frá Alþingi fyrir hálfri klukkustund með 34 atkvæðum stjórnarmeirihlutans en 26 þingmenn stjórnarandstöðu sátu hjá. Fjármálaráðherra sagði fjárlögin markast af hagvaxtarskeiði en stjórnarandstaðan kallaði þau kosningafjárlög. 6.12.2006 12:02
Yfirmenn hjá Ríkislögreglustjóra bera ekki vitni Héraðdómur Reykjavíkur hafnaði fyrir stundu þeirri kröfu fimm manna tengdum Baugi að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. skyldu bera vitni fyrir dómnum í tengslum við ákæru Baugsmanna um að þeir séu vanhæfir til að fara með rannsókn á hendur Baugsmönnum vegna meintra skattalaga brota þeirra. 6.12.2006 11:55
Lugovoi mun tala við breska lögregluþjóna Andrei Lugovoi, lykilvitni í morðinu á rússneska fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko, mun hitta breska lögreglumenn í dag en frá þessu skýrði rússneska ITAR-Tass fréttastofan í dag. 6.12.2006 11:48
Leyniskjöl gerð opinber í tengslum við heimildarmynd í Danmörku Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að birta leynileg skjöl í tengslum við störf danskra hermanna í Afganistan. Í heimildarmynd sem frumsýnd var á mánudag og nefnist Hið leynilega stríð eru danskir hermenn sakaðir um að hafa afhent bandarískum starfsbræðrum sínum 31 stríðsfanga sem síðan sætti pyntingum af hálfu Bandaríkjamanna. 6.12.2006 11:37
Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða Frakkar sögðu í dag að heimsveldin sem nú funda í París, til þess að reyna að ná samkomulagi vegna kjarnorkuáætlana Írans, yrðu að hraða verkinu því annars væri trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða. 6.12.2006 11:34
Úrskurðar um vitnisburð að vænta fyrir hádegi Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kveður upp úr um það klukkan 11. 45 hvort Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra skuli bera vitni fyrir dómnum í tengslum við ákæru fimm aðila tengdum Baugi um að þeir séu vanhæfir til að fara með ákærur á hendur Baugsmönnum vegna meintra skattabrota þeirra. 6.12.2006 11:18
Ísraelsher skýtur á Palestínumenn Ísraelskir hermenn skutu á og særðu tvo Palestínumenn sem nálguðust landamæri Ísraels við Gaza svæðið. Palestínskir sjúkraflutningamenn sögðu að mennirnir hefðu verið óvopnaðir en þetta er fyrsta árásin sem ísraelski herinn gerir á svæðinu síðan sæst var á vopnahlé þann 26. nóvember síðastliðinn. 6.12.2006 11:08
Kabila settur í embætti Joseph Kabila, sigurvegari í forsetakosningum í Austur-Kongó, verður settur í embætti í dag. Kabila bar sigur af Jean-Pierre Bemba í einum mikilvægustu kosningum í Afríku undanfarna áratugi. Búist er við fyrirmönnum frá fjölmörgum löndum vegna athafnarinnar en Bemba hefur þó sagt að hann muni ekki vera viðstaddur. 6.12.2006 10:49
Fons kaupir hlut Straums Burðaráss í 365 hf. Straumur Burðarás fjárfestingarbanki hefur selt allan hlut sinn í 365 hf., alls 9,23 prósent. Kaupandi er Fons eignarhaldsfélag sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Eftir kaupin á Fons og tengd félög tæp 15 prósent í félaginu sem m.a. rekur fréttastofu Stöðvar 2 og Vísir.is. 6.12.2006 10:48
Segir orð Royal ekki samræmast kjarnorkusáttmálanum Utanríkisráðherra Frakka, Philippe Douste-Blazy gagnrýndi í kvöld Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista fyrir að orð sem hún lét falla í Ísrael í dag, þess efnis að ef hún verði forseti muni hún beita sér gegn því að kjarnorkuáætlun Írana fái fram haldið, jafnvel í friðsamlegum tilgangi. 5.12.2006 23:30
Farsímar valda ekki heilaæxli Ekkert bendir til þess að farsímanotkun hafi í för með sér aukna hættu á heilaæxli eöa öðru krabbameini. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknarniðurstöðum danska Krabbameinsfélagsins á farsímanotendum. Vísindamenn á vegum félagsins hafa fylgst með farsímanotendum í allt að 21 ár og sjá engin markverð tengsl á milli farsímanotkunar og krabbameins. 5.12.2006 23:15
Engin niðurstaða í Íransviðræðum Viðræður sex valdamikilla ríkja um viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írans enduðu í dag í París án þess að diplómatarnir kæmust að endanlegri niðurstöðu um viðskiptahindranir gegn Írönum, samkvæmt upplýsingum frá franska utanríkisráðuneytinu. Fulltrúar ríkjanna koma næst saman til fundar í New York til að reka smiðshöggið á tillögu sína. 5.12.2006 22:34
Varnarmálanefndin samþykkti Gates Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í dag og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. 5.12.2006 22:13
Mikill reykur í íbúð í Þangbakka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Þangbakka í Mjóddinni í Reykjavík rétt fyrir kl 22 í kvöld þar sem mikill reykur var í íbúð á 8.hæð. Betur fór en á horfðist í fyrstu því enginn eldur var í íbúðinni en slökkviliðsmenn vinna nú að því að reykræsta. Ekki er vitað hvort einhver var inni í íbúðinni eða ekki. 5.12.2006 22:06
Eiður tryggði Barcelona sæti í undanúrslitum Eiður Smári Guðjohnsen átti seinna markið í 2-0 sigri Barcelona á Werder Bremen á heimavelli í Barcelona í kvöld. Börsungar eru því komnir áfram í 16 liða úrslit meistaradeildar Evrópu, ásamt fyrrverandi félögum Eiðs í Chelsea, en þeir unnu riðilinn. Ronaldinho átti leifturskot á mark á þrettándu mínútu og kom liðinu yfir og Eiður gulltryggði síðan sigurinn. 5.12.2006 22:01
Forsætisráðherra Fiji flýr landið Forsætisráðherrahjónin á Fiji flúðu eyríkið flugleiðis fyrir sólarupprás að þarlendum tíma, - Fiji-eyjar eru 12 tímabeltum á undan Íslandi, að sögn þarlendrar útvarpsstöðvar. Ekki hefur verið gefið upp opinberlega hvort, og þá hvert, hjónin flúðu. Hermenn stjórnarhersins höfðu lokuðu Qarase inni á heimili sínu í gærkvöldi. Bainimarama hershöfðingi lýsti því yfir í morgun að herinn hefði tekið völdin á eyjunum. 5.12.2006 21:41
Yuschenko býður þinginu byrginn Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn, og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku , sem báðir eru hollvinir forsetanum og appelsínugulu byltingunni sem kom honum til valda. 5.12.2006 21:22
Bretar afhenda Alþjóðabankanum 50 milljón pund Bretar sögðust í dag ætla að greiða Alþjóðabankanum 50 milljón pund, jafnvirði tæplega 6,75 milljarða íslenskra króna, sem Bretar höfðu neitað að greiða bankanum nema stefnu hans gagnvart þróunarlöndum yrði breytt. Bankinn hefur síðan sagst munu breyta stefnu sinni að skilyrða þróunaraðstoð við efnahagsbreytingar í hjálparþurfi landi. 5.12.2006 20:50
Vill sýna börnunum upprunaleg landamæri Ísraels Menntamálaráðherra Ísraels vill að kennslubækur sýni börnum landamæri landsins eins og þau voru fyrir árið 1967 þegar Ísrael lagði undir sig Vesturbakka Jórdanar, Gaza-ströndina, Austur-Jerúsalem og Gólan-hæðirnar. Hægrimenn hafa reiðst mjög þessari tillögu ráðherrans sem segir breytinguna nauðsynlega til að börn skilj sögu landsins. 5.12.2006 20:27
Geislavirkar skyttur á Emirates Stadium Leifar geislavirka efnisins pólons 210 fannst á heimavelli breska fótboltaliðsins Arsenal, á Emirates Stadium í Norður-London. Breskir leyniþjónustumenn reyna nú að rekja slóð morðingja rússneska njósnarans Litvinenkos, sem lést af völdum póloneitrunar. 5.12.2006 20:09
Óblíðar móttökur fyrir nýaðflutta Hornfirðinga Tveir menn hafa lagt fram kæru á Höfn í Hornafirði á hendur hópi unglingspilta vegna ofbeldisárásar aðfaranótt síðastliðins laugardags. Fréttastofa útvarps greindi frá þessu í kvöld. Mennirnir tveir eru nýfluttir til Hornafjarðar og segir lögreglan það því miður ekki einsdæmi að nýbakaðir Hornfirðingar fái óblíðar móttökur við komuna. 5.12.2006 19:56
Mikið mannfall uppreisnarmanna í A-Kongó Rúmlega 150 uppreisnarmenn létust í átökum við friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Austur-Kongó í síðustu viku að því er embættismenn S.þ. greindu frá í dag. Þeir sögðu einnig að fjöldi uppreisnarmannanna hefði gefist upp í kjölfar mannfallsins. Þetta er mesta mannfall sem sést hefur í átökum friðargæsluliða í A-Kongó. 5.12.2006 19:46
Fjórða valdaránið á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Þetta er fjórða valdaránið á eyjunum síðan 1987. 5.12.2006 19:15
Gildir einu hvort skilgreint sem borgarastyrjöld Tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak. Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið þar verra en borgarastyrjöld. En á meðan tekist er á um hvort borgarastyrjöld geisi þar deyja fjölmargir Írakar víðsvegar um landið á degi hverjum og fyrir ættingju þeirra gildir einu hvernig átökin í Írak eru skilgreind. 5.12.2006 19:00
Bóndi ákærður fyrir spjöll við álver á Reyðarfirði Ábúandinn á Kollaleiru í Reyðarfirði, sagði fyrir Héraðsdómi Austurlands í dag, að honum liði eins og flóttamanni í eigin landi. Hann er sakaður um að hafa valdið Bechtel vinnutjóni á álverssvæðinu en sjálfur segir hann að fyrirtækið hafi valdið honum tjóni með ólöglegu athæfi á jörð hans. 5.12.2006 18:49
Vildu hækka eigin kjör um 75% Sjálfstæðismenn í Árborg fullyrða að þeir hafi staðið í vegi fyrir áformum framsóknarmanna í bæjarstjórn um allt að 75% kjarabót til bæjarfulltrúa. Upp úr samstarfinu slitnaði á föstudag með gagnkvæmum brigslyrðum. Eyþór Arnalds vísar því til föðurhúsanna að hans hagsmunir hafi nokkuð með uppslit samstarfsins að gera. 5.12.2006 18:46
Matisse á Íslandi Menning upp á tvo milljarða verður til sýnis í Listasafni Íslands í jólamánuðinum og geta þá landsmenn í fyrsta sinni barið verk eftir sjálfan Matisse augum á íslenskri grundu. 5.12.2006 18:43
14 milljarða afgangur Borgarsjóður verður rekinn með 14 milljarða afgangi á næsta ári, í stað eins milljarðs halla á þessu ári, segir borgarstjóri sem kynnti fjárhagsáætlun borgarinnar í dag. Bókhaldsleikir, segir oddviti Samfylkingar. Hann segir útgjöld aukast umfram tekjur. 5.12.2006 18:31
Ætluðu að keyra Sigtúnsreitinn í gegn Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins í Árborg segja að sér hafi verið ljóst þegar boðað var til fundar um Sigtúnsreitinn að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að "keyra málið í gegn þrátt fyrir að umbeðin gögn vantaði." Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bæjarfulltrúarnir sendu frá sér nú í kvöld. 5.12.2006 18:12
Serbinn Seselj í lífshættu vegna mótmælasveltis Serbíumenn báðu stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í dag að senda serbneska öfgaþjóðernissinnann Vojislav Seselj á sjúkrahús í Belgrad. Heilsu hans hefur hrakað gríðarlega út af mótmælasvelti. Seselj hefur verið vistaður í Haag síðan hann gaf sig fram árið 2003 en réttarhöldum yfir honum var frestað um óákveðinn tíma á föstudaginn. 5.12.2006 18:04
Nektardansinn er skattfrjáls listviðburður Dómstóll í Noregi úrskurðaði í dag að nektardansstaðir þyrftu ekki að greiða virðisaukaskatt af starfsemi sinni, því hún félli í flokk með listrænum viðburðum og starfsmennirnir væru listamenn. Skattstjóri í Noregi hafði stefnt skemmtistaðnum Blue Engel fyrir að neita að rukka viðskiptavini um 25% skatt á inngöngumiða. 5.12.2006 17:31
Gates vill ekki ráðast á Íran Bandaríkin munu ekki ráðast á Íran nema allt annað hafi verið reynt. Þetta tilkynnti Robert Gates, sem mun taka við embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna af Donald Rumsfeld, í dag. Hann segist þess fullviss að Íranar séu að smíða kjarnavopn en segir að Bandaríkin ættu fyrst að reyna diplómatískar leiðir til þrautar með milligöngu samstarfsríkja. 5.12.2006 17:13
Hæstiréttur verður við kröfu Opinna kerfa um lögbann Hæstiréttur hefur orðið við kröfu Opinna kerfa um lögbann á það að þrír fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins starfi fyrir fyrirtækið Títan fyrr en um áramót. 5.12.2006 17:05
Ákveðið á morgun hvort ríkislögreglustjóri beri vitni Héraðsdómur Reykjavíkur kveður upp úr um það á morgun hvort Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, skuli bera vitni fyrir dómnum, vegna ákæru verjenda Baugsfjölskyldunnar um að þeir séu vanhæfir, til að fara með ákærur á hendur henni. Þinghald í málinu er síðan á dagskrá eftir hádegi á morgun. 5.12.2006 16:50
Hátt í 50 létust í rútuslysi í Perú Að minnsta kosti 45 létust þegar troðfull rúta hrapaði ofan í gljúfur í Andesfjöllunum í suðurhluta Perús seint í gærkvöld. Frá þessu greindi lögregla í Perú í dag. Hún telur líklegast að bílstjóri rútunnar hafi ekið of greitt og misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún steyptist ofan í 500 metra djúpt gljúfur. 5.12.2006 16:29
Laun hækka um 2,9 prósent um áramót Allir almennir kjarasamningar ríkisins við félög opinberra starfsmanna, félög innan ASÍ og fleiri hækka um 2,9 prósent um áramótin í stað 2,25 prósenta samkvæmt kjarasamningum. Er þetta í samræmi við samkomulag forsendunefndar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem gert var í fyrra á grundvelli verðlagsþróunar. 5.12.2006 16:16
Segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak Robert Gates, tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við yfirheyrslur fyrir varnamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að hann teldi ekki að Bandaríkjamenn væru á sigurbraut í Írak. 5.12.2006 16:03
Fær 23 milljónir vegna mistaka í brjóstastækkunaraðgerð Tveir læknar voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða konu rúmar tuttugu og þrjár milljónir króna í bætur vegna mistaka í aðgerð. Konan fór í brjóststækkunaraðgerð en á meðan á aðgerðinni stóð hætti hún að anda og fékk hjartastopp. 5.12.2006 15:56