Fleiri fréttir

Stóriðjustefnan heldur áfram

Nýr iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, Jón Sigurðsson, segir komu sína í ráðuneytið ekki marka stefnubreytingu í málefnum stóriðju. "Það er unnið af mikilli varúð. Það má ekki dæma stóriðjustefnuna eftir mestu og stærstu framkvæmdum Íslandssögunnar, sem standa nú yfir. Við þurfum að horfa á þetta yfir lengri tíma."

Braut nef eftir rifrildi á Dalvík

Tæplega nítján ára gamall maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás á Dalvík í október síðastliðnum. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í fyrradag.

Köttur sveltur í nokkrar vikur

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir brot á dýraverndunarlögum í febrúar á síðasta ári.

Bill Gates að hætta

Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, tilkynnti í gær að hann ætli að hætta að sjá um almennan rekstur fyrirtækisins en hann er einn af stofnendum þess. Í staðinn ætlar Gates að nýta tíma sinn í baráttu fyrir bættri heilsu fólks og eflingu menntunar á vegum stofnunar Bill og Melindu Gates. Fyrirtækið tilkynnti að tveggja ára ferli, sem á að tryggja að breytingarnar myndu ganga vel fyrir sig, væri farið í gang.

Barnaníðingurinn ákærður

Lögreglan í Belgíu hefur ákært dæmdan barnaníðing vegna hvarfs tveggja telpna, sjö og tíu ára, en stúlkurnar hurfu á laugardag. Abdallah Ait Oud gaf sig sjálfur fram til lögreglu eftir að lýst var eftir honum í fjölmiðlum. Hann neitar allri aðild að málinu og belgíska lögreglan er vonlítil um að hann játi nokkuð á sig, nema sönnunargögn finnist.

Rokka upp Evrópulagið

Finnskir embættismenn mættu með bunka af dreifimiðum á leiðtogafund Evrópusambandsins og réttu hverjum sem vildi.

Sjö menn dæmdir fyrir skattalagabrot

Þrír dómar vegna vangoldins virðisaukaskatts og brota á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda féllu í Héraðsdómum Reykjavíkur og Suðurlands á miðvikudag og á mánudag. Héraðs­dómur Suðurlands dæmdi mann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu á 25 milljónum fyrir stórfellt skattalagabrot í fyrradag.

Niðurgangspest á skipum

Landlæknisembættinu hafa verið að berast fregnir af svokölluðum nóróveirusýkingum um borð í skemmtiferðaskipum í Norður-Atlantshafi að undanförnu. Í júníbyrjun þessa árs geisaði magakveisa um borð í skemmtiferðaskipi sem kom til hafnar á Akureyri. Skipslæknirinn sendi saursýni úr tveimur sjúklingum um borð við komu til hafnar.

Sátu fyrir framan loftpúða

Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa birt niðurstöður úr árlegri könnun sinni á öryggi barna í bílum.

Kaupa finnska Pizza Hut

Pizza Hut á Íslandi, sem er í eigu Péturs Jónssonar og Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, gekk í gær frá samningum um kaup á Pizza Hut-vörumerkinu í Finnlandi af fjölmiðlafyrirtækinu Rautakirja. Kaupverð fékkst ekki uppgefið.

Bætt þekking er lykilatriði

Sænski lýðheilsuprófessorinn Stig Wall við Háskólann í Umeå hlaut norrænu lýðheilsuverðlaunin þetta árið.

Læknir kvað brotið ólíklegt

Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað dóttur sinni fyrir tæpum tveimur árum, þá tíu ára gamalli.

Kona hætt komin í eldsvoða

Kona var hætt komin þegar nágrannar hennar komu henni til hjálpar í brennandi íbúðarhúsi að bænum Hólmaseli í Villingaholtshreppi, fyrir austan Selfoss laust fyrir miðnætti. Þegar nágrannanrir komu á vettvang heyrðist kallað á hjálp og brutu þeir glugga og hjálpuðu konunni út. Hana sakaði ekki. Þegar slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar var húsið alelda og brann allt sem brunnið gat. Eldsupptök eru ókunn, en ekki er útilokað að kviknað hafi í út frá kerti.

Hamas-samtökin tilbúin að endurnýja vopnahléssamkomulag við Ísrael

Hamas-samtökin hafa lýst yfir vilja Palestínumanna til að endurnýja vopnahléssamkomulag sitt við Ísrael. Talsmaður samtakanna sagði í gær að heimastjórn Hamas vildi sem fyrst sjá vopnahlé á öllu heimastjórnarsvæðinu. Fyrst þyrfti þó Ísraelsher að hætta hernaðaraðgerðum sínum á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum. Hamas lýstu því yfir í síðustu viku að sextán mánaða vopnahlé væri fallið úr gildi eftir að átta Palestínumenn létu lífið í sprengingu á baðströnd.

Lofar að fangelsa Taylor

Breska ríkisstjórnin sagði í gær að hún væri tilbúin til að útvega fyrrverandi forseta Líberíu, Charles Taylor, vist í fangelsum Bretlands verði hann fundinn sekur um stríðsglæpi.

Flóttamenn vegna bágrar stöðu sjónskertra á Íslandi

Móðir flúði land til Svíþjóðar vegna bágrar stöðu í skólamálum sjónskertra á Íslandi. Hún segir ótrúlegan mun á stöðu sjónskertra hér og í Svíþjóð og að Íslendinga vanti helst af öllu þekkingarmiðstöð.

Kríuna skortir æti

Krían hefur ekki enn hafið varp sunnan- og vestanlands en það er venjulega hafið á þessum tíma árs. Austanlands hefur þó eitthvað verið um varp, að sögn Kristins Skarphéðinssonar, fuglafræðings hjá Náttúrufræði­stofnun.

Vilja heildarendurskoðun

Stjórnarandstöðuflokkarnir í Reykjavík vilja heildarendurskoðun á hreinsunar- og fegrunarmálum borgarinnar svo að hægt sé að tryggja jafna hreinsun á borginni allt árið um kring. Þetta kemur fram í bókun stjórnarandstöðunnar úr borgarráði í gær.

Stórt skref í aðskilnaðarátt

Líkur eru á því að kjósendur í Katalóníuhéraði samþykki næstkomandi sunnudag áætlun um aukna sjálfstjórn héraðsins. Íhaldsmenn á Spáni leggja þetta að jöfnu við áætlun um sjálfstæði Katalóníu og upplausn Spánar. Upplausn Spánar má reyndar kalla stjórnarskrárbundna, því í stjórnarskrá landsins er kveðið á um að vald ríkisins skuli í áranna rás vera fært æ frekar heim í héruðin.

Formlegt samráð sjálfsagt

Stjórnarandstaða borgarstjórnar telur sjálfsagt að efna til formlegs samráðs við samtök eldri borgara í kjölfar þeirra viðræðna sem átt hefur verið við þau á undanförnum vikum. Ekki sé ástæða til að takmarka samráðið við neina ákveðna þætti enda hafi eldri borgarar lagt áherslu á að geta tekið við hvaða málum sem er sem snúast að hagsmunum þeirra.

Viðurkenna Svartfjallaland

Ríkisstjórn Serbíu viðurkenndi í gær sjálfstæði Svartfjallalands og tilkynnti að komið yrði á stjórnmálasambandi ríkjanna á milli. Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði og sambandsslitum frá Serbíu hinn 3. júní eftir þjóðar­atkvæðagreiðslu.

Umferðarátak heldur áfram

Átak lögreglu í umferðarmálum á landsvísu sem hófst í fyrrasumar mun halda áfram í ár með aukinni fjárveitingu. Í sumar fengust áttatíu milljónir króna frá samgöngumálaráðuneytinu til að halda áfram sérstöku eftirliti á þjóðvegunum með hraðakstri og ölvunarakstri. Þetta kemur ofan á öll hefðbundin löggæslustörf.

Segist vera saklaus af smygli

Þrítugur litháískur karlmaður sagðist fyrir dómi í gær saklaus af því að flytja inn rúma tvo lítra af amfetamínbasa auk tæplega 700 millilítra af brennisteinssýru, til söludreifingar hér á landi. Mál Ríkissaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Mega ekki koma að landi

Ráðherra þjóðar­öryggismála á karabísku eyjunni St. Kitts tilkynnti að ríkisstjórnin hefði ákveðið að banna skipi Grænfriðunga að koma að landi. Hann neitaði að tjá sig um tilefni hafnbannsins en ákvörðunin var líklega tekin í tilefni fundar Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem nú stendur yfir á eyjunni.

Frjálslyndir auglýstu oftast

Frjálslyndi flokkurinn birti flestar dagblaðaauglýsingar fyrir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar, eða 124, en næst á eftir kemur Sjálfstæðisflokkurinn með 113 auglýsingar. Aðrir flokkar eru með mun færri auglýsingar; á milli fimmtíu og sextíu.

Köflótt rigning og hægviðri

Helga Jónsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að höfuðborgarbúar megi búast við "týpísku íslensku" þjóðhátíðarveðri á 17. júní.

Múslimar hertaka aðra borg

Múslimar hafa hertekið Jowhar, síðustu hernaðarlega mikilvægu borgina sem var á valdi bandalags nokkurra stríðsherra sem eru styrktir af Bandaríkjastjórn.

Fá sjaldan þyngri dóm en skilorð

Þeir sem ráðast á lögreglumenn eru sjaldan dæmdir til þyngri refsingar en skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Það er að segja ef málið fer yfirleitt fyrir dóm, en að sögn talsmanns Landssambands lögreglumanna eru 90-95 prósent þessara mála felld niður áður en þau fara fyrir dóm.

Stjórnarskrárdeilu slegið á frest

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 25, sem sitja nú á rökstólum á hálfsárslegum fundi sínum í Brussel, ætla að gefa sér minnst eitt ár til viðbótar til að íhuga hvað gera skuli við stjórnarskrársáttmálann strandaða.

Jafnréttisgleraugu frá Jóni

Jón Kristjánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, afhenti Magnúsi Stefánssyni, eftirmanni sínum, svokölluð jafnréttisgleraugu þegar Magnús tók við lyklum að ráðuneytinu í gær.

Ljótur blettur á bænum

Þegar ekið er inn í Reyðarfjörð má sjá stóran og mikinn ruslahaug sem samanstendur af brotajárni, gömlum dekkjum og ýmsu öðru drasli. Landið, sem er einn hektari að stærð, er í eign Fjarðabyggðar en endurvinnslu­fyrirtækið Hringrás leigir það af bænum.

Hamas vill vopnahlé

Hamas-hreyfingin hefur boðist til að koma aftur á vopnahléi, nokkrum dögum eftir að því var slitið í mótmælaskyni við blóðuga sprengingu í Gazasvæðinu sem varð átta Palestínumönnum að bana.

Á þriðja þúsund fallnir

2.500 Bandaríkjamenn hafa nú látið lífið í Írak. Umræður í Bandaríkjunum um stríðið í Írak hafa þótt á jákvæðari nótunum síðustu daga, en víst er að andstæðingar stríðsrekstursins eiga eftir að vekja mikla athygli í fjölmiðlum á nýrri tölu látinna.

Fljótandi kjarnorkuver

Áform eru uppi í Rússlandi um að búa til fljótandi kjarnorkuver til að þjóna afskekktum svæðum í norðurhluta Rússlands, segir á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Umhverfisverndarsinnar í Noregi hafa gagnrýnt áformin. Þeir telja mikla hættu á því að kjarnorkuverið sökkvi.

Vaxmyndasafnið til sýnis

Vaxmyndasafn Þjóðminjasafnsins verður til sýnis í sumar en það hefur löngum verið sveipað ævintýraljóma. Margir gestir safnsins hafa því hvatt til þess að vaxmyndirnar verði settar fram til að þjóðin fái að berja þær augum.

Lykillinn skilinn eftir í bílnum

Héraðsdómur Norðurlands vestra vísaði í fyrradag frá dómi máli konu á hendur eiganda bifreiðaverkstæðis. Konan sakaði eigandann um að bera ábyrgð á því að bíl hennar var stolið fyrir framan verkstæðið eftir að starfsmaður verkstæðisins skildi bílinn eftir þar með lykilinn í svissinum.

Svikahrappar segjast safna fé til góðgerðarmála

Borið hefur á því að svikahrappar hafa undanfarið hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp og sagst munu koma heim til fólks og sækja féð. Fólk er beðið að tortryggja þá sem stunda þessi vinnubrögð því hið rétta er að fjársöfnun Fjölskylduhjálpar fer öll í gegnum banka og það er einungis BM-ráðgjöf sem safnar fé fyrir Fjölskylduhjálp með sölu geisladiska.

10 sjíamúslimar dregnir út úr rútu og skotnir

Byssumenn drógu 10 íraska sjíamúslima út úr rútu sem þeir voru í og skutu þá til bana í íraska bænum Baqouba, um 60 kílómetra norðaustur af Bagdad, ekki langt frá þeim stað þar sem al-Zarqawi, fyrrum leiðtogi al-Qaida samtakanna í Írak var skotinn.

Eldur kviknaði við olíutankana á Akranesi

Slökkvilið Akranes var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds sem logaði við birgðastöð Olís á Akranesi. Allt bendir til að eldurinn hafi verið kveiktur af mannavöldum og að einhver hafi farið inn á lokað svæði en eldurinn logaði í plastgámi sem innihélt tjöruhreinsi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikið mildi þykir að eldurinn náði ekki að breiðast út. Lögreglan á Akranesi fer með rannsókn málsins.

Uppselt á Hróarskeldu

Uppselt er á tónlistarhátíðina vinsælu í Hróarskeldu í Danmörku, sem haldin verður dagana 29.júní til 2.júlí. 75 þúsund miðar voru seldir á hátíðina og þar af rúmlega þúsund á Íslandi og er það sölumet fyrir miða á Íslandi. Þá eru ótaldir miðar Íslendinga sem keyptir eru í útlöndum eða í gegnum netið. Það er því ljóst að það verður talsverður fjöldi Íslendinga á svæðinu.

Verslað með húsbyggingafyrirtæki í Akrahverfi

Phoenix fjárfestingar hafa selt dótturfyrirtæki sitt, Laugarakur, sem hefur séð um rúmlega 70% byggingarframkvæmda í hinu nýja Akrahverfi í Garðabæ. Það er nýstofnað fyrirtæki, Laugarnes hf, sem keypti Laugarakur og með því byggingarverkefnið, sem fullklárað verður ríflega 45 þúsund fermetrar af húsnæði.

Erfitt en ánægjulegt að hjóla í kringum landið

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla í íslenskri veðráttu. Því hafa hjólagarparnir Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir fengið að kynnast en þau hjóla nú hringinn í kringum Ísland.

Skvísa keyrir búkollu

21 árs kona fékk nóg af lágum hárgreiðslunemalaunum, tók meirapróf og keyrir nú vörubíl af stærstu gerð, svokallaða búkollu. Á níu dögum fékk hún rúmlega mánaðarlaun hárgreiðslunemans og sér ekki eftir skiptunum.

Búa í tjaldi

Pólverji sem vinnur á hóteli í Reykjavík hefur þurft að hírast í tjaldi í tvær vikur og sér ekki fyrir endann á því. Nokkrir aðrir Pólverjar sem komu hingað í leit að vinnu eftir fyrsta maí eru nágrannar hans á tjaldstæðinu í Laugardal.

Vísitala íbúðaverðs lækkaði í maí

Vísitala íbúðaverðs lækkaði örlítið í maímánuði, um 0,2 prósent. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Verð á fjölbýli lækkaði meira á milli mánaða en verð á sérbýli. Þetta er fyrsta lækkun fasteignavísitölu síðan í desember síðastliðnum en vísitalan hækkaði talsvert á fyrstu mánuðum ársins.

Sjá næstu 50 fréttir