Innlent

Köflótt rigning og hægviðri

Helga Jónsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að höfuðborgarbúar megi búast við "týpísku íslensku" þjóðhátíðarveðri á 17. júní.

Vindur verður tiltölulega hægur að suðvestan og búast má við rigningu á köflum. "Ætli það fari ekki einmitt að rigna þegar fólk mætir niður í bæ", segir Helga og hlær.

Á Norður- og Austurlandi er líklegast að hátíðarhöldin haldist þurr og jafnvel sjáist til sólar, en mest verður rigningin, að sögn Helgu, á Vesturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×