Fleiri fréttir

Næst lægst verðbólga hér
Pólland er eina ríkið á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem verðbólga er lægri en á Íslandi samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólgan mælist samkvæmt þessu eitt prósent á Íslandi frá desember 2004 til desember 2005 en 0,8 prósent í Póllandi.

Upplýstu sex fíkniefnamál
Sex fíkniefnamál og vopnalagabrot komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt. Við leit í tveimur húsum og á fólki fannst amfetamín, kókaín, hass og marijúana, en lögregla gefur ekki upp hversu mikið. Þá var lagt hald á rafstuðbyssu, hnífa og kylfur.

Haldið í gíslingu í tvo tíma
Tvítugri íslenskri stúlku var haldið í tvo tíma í gíslingu í Naíróbí í Kenýa ásamt fleira fólki á föstudaginn fyrir viku. Fimm vopnaðir ræningjar réðust þá inn í húsið og ógnuðu fólki með skotvopnum meðan þeir hrifsuðu til sín skartgripi og verðmæti, engum skotum var þó hleypt af.

Tildrög slyssins rannsökuð í dag
Rannsóknanefnd bílslysa er væntanleg til Ísafjarðar í dag til að rannsaka tildrög banaslyss, sem varð á Óshlíðarvegi á milli Ísafjarðar og Hnífsdals síðdegis í gær, þegar ung kona missti stjórn á bíl sínum í flug hálku með þeim afleiðingum að bíllinn hafanði ofan í sjó.

Tyrkneskt þorp í sóttkví
Bandarískir sérfræðingar settu tyrkneska þorpið Beypazari í sóttkví til að reyna að hefta útbreiðslu fuglaflensunnar í Tyrklandi. Sérfræðingarnir eru staddir í landinu til að aðstoða tyrknesk yfirvöld að ná tökum á útbreiðslu flensunnar en að minnsta kosti tuttugu og einn maður hefur látist af hennar völdum á þessu ári, þar af fjögur börn.

Sýrlendingar styðja Írana
Bashar Assad, leiðtogi Sýrlendina lýsti yfir stuðningi við kjarnorkutilraunir Írana eftir fund sem hann átti með forsætisráðherra Írana, Mahmoud Ahmadinejad, í gær. Bashar Assad sagði Vesturlandabúa ekki hafa rökstudd nægilega hvers vegna þeir eru andvígir tilraunum Írana.

28 milljarða hagnaður Baugs
Baugur Group hagnaðist um 28 milljarða króna eftir skatta á síðasta ári. Þar af eru fimmtán milljarðar króna í formi innleysts hagnaðar. Eignir Baugs í árslok voru bókfærðar á 145 milljarða króna og eigið fé var 62,9 milljarðar.

44 farast í flugslysi
Einn komst lífs af og fjörtíu og fjórir fórust þegar herflugvél brotlenti í fjalllendi í norð-austur Ungverjalandi í gærkvöldi. Vélin var á leið frá Kosovo til slóvensku borgarinnar Kosice þegar hún brotlenti. Um borð voru 38 farþegar, þar af 28 slóvenskir hermenn sem voru á leið heim eftir að hafa verið við störf á vegum friðargæslusveitar Nató.

Gefur ekki upp hvort fleiri gætu tengst málinu
Lögfræðingur Landspítalans vill ekki tjá sig um það hvort fleiri geti tengst meintu fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild Landspítalans á árunum 2002 til 2004. Málið er til rannsóknar hjá Ríkislögreglustjóra. Upphæðin sem um ræðir hleypur á milljónum króna.

Ný heilsugæslustöð
Ný heilsugæslustöð sem þjónar um níu þúsund íbúum í Voga- og Heimahverfi var vígð í dag. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra afhenti húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar í Glæsibæ að viðstöddu fjölmenni.

Þorrinn hefst með Bóndadegi á morgun
Þorrinn hefst á morgun með tilheyrandi þorramat og þorrablótum. Bóndadagur markar upphaf Þorrans en samkvæmt hefðinni eiga karlmenn að vakna árla morguns og hoppa um hálfnaktir á einum fæti í kringum hús sitt.

Viðgerð lokið á ljósleiðara við Hvalfjarðargöng
Internetsamband er komið aftur á til viðskiptavina Og Vodafone á Akranesi og nágrenni en ljósleiðari fór í sundur rétt við Hvalfjarðargöngin á þriðja tímanum í dag.

Beint flug með Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar í sumar
Iceland Express hefur beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar og verður fyrsta ferðin farin 29. maí segir í tilkynningu frá félaginu. Vikulegar ferðir verða fram á haustið og jafnvel lengur.

Ekkert óeðlilegt við viðskipti KB banka með íbúðabréf segir Fjármálaeftirlitið
Fjáramálaeftirlitið telur ekki ástæðu til að skoða frekar viðskipti KB banka með íbúðabréf á degi sem Íbúðalánasjóður var með útboð á íbúðabréfum sínum í lok nóvember á síðasta ári

Meint fjármálamisferli á Landspítalanum í rannsókn
Meint fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild Landspítalans er til rannsóknar hjá ríkislögreglustjóra. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Einum starfsmanni hefur verið vikið úr starfi vegna gruns um að hafa verið viðriðinn málið.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir veikan sjómann
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna veiks skipverja um borð í bát sem staddur var 25 sjómílur vestur af Snæfellsnesi sem er um 2 og ½ tíma siglingu frá Ólafsvík.

Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi
Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi á árunum 1995 til 2004. Þetta sýna skattaskýrslur OECD. Ísland er nú komið í hóp þeirra tíu ríkja þar sem skattbyrði er þyngst. Núverandi stjórnarflokkar settust að völdum árið 1995 og hafa síðan verið iðnir við að halda því fram að þeir væru að lækka skatta.

Frumvarp um Kjaradóm og kjaranefnd verður að öllum líkindum afgreitt á morgun
Frumvarp um Kjaradóm og kjaranefnd verður að öllum líkindum afgreitt óbreytt sem lög frá Alþingi fyrir helgi. Þing kemur saman á morgun en frumvarpið er eina málið á dagskrá.

Ung kona beið bana þegar bíll sem hún ók fór út af Hnífsdalsvegi og hafnaði í sjó
Ung kona, innan við tvítugt, beið bana síðdegis þegar bíll sem hún ók fór út af Hnífsdalsvegi og hafnaði í sjó. Neyðarlínunni barst tilkynning um slysið klukkan rúmlega fjögur í dag. Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir voru sendar á vetvang og voru aðstæður á slysstað erfiðar.

Sparisjóður Hafnarfjarðar dæmdur í Hæstarétti til að greiða manni 33 milljónir
Sparisjóður Hafnarfjarðar var dæmdur í Hæstarétti í dag til að greiða manni skaðbætur uppá tæplega 33 milljónir vegna vanrækslu starfsmanna Sparisjóðsins. Vegna mistaka starfsfólksins féll fullnusturéttur á hendur útgefanda niður og taldi maðurinn sig því hafa orðið fyrir fjárhagstjóni sem upphæðinni nemur.

Ríkisskattstjóri fellst á að einkennisklæðnaður ákveðinna stétta sé skattfrjáls
Ríkisskattstjóri hefur tekið til greina ábendingar BSRB varðandi skattlagningu einkennisfatnaðar sem ákveðnar stéttir þurfa að klæðast vegna starfs síns.

Ljósleiðari fór í sundur
Ljósleiðari fór í sundur rétt við Hvalfjarðargöngin á þriðja tímanum í dag. Viðskiptavinir Og Vodafone á Akranesi og nágrenni eru netsambandslausir vegna þessa og er viðgerð þegar hafin. Ljósleiðarinn fór í sundur vegna jarðvegsvinnu.

Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan í dag
Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan,stærstu borgar Fílabeinsstrandarinnar, í dag, fjórða daginn í röð. Friðargæsluliðar hafa þurft að beita táragasi til að halda aftur af æfum mótmælendum fyrir utan höfðustöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni.

Samningur um miðlæga stýringu umferðarljósa undirritaður
Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa undirritað samning við Siemens um nýtt vöktunar- og stýrikerfi fyrir umferðarljós í Reykjavík. Samningurinn hljóðar uppá sextíú og fimm milljónir króna og mun kostnaður þessi skiptast jafnt á milli aðila.

Hjálparsveit skáta í Hveragerði fær 1.000.000 kr styrk úr Pokasjóði ÁTVR
Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, og Bjarni Finnson formaður stjórnar Pokasjóðs færðu Hjálparsveitinni í Hveragerði eina milljón króna í styrk til kaup á tækjum fyrir sveitina.

Sjálfsvígsárás í Ísrael
Svo virðist sem palestínskur vígamaður hafi verið sá eini sem lét lífð þegar hann sprengdi sig í loft upp í miðborg Tel Aviv í Ísrael í dag. Fregnir herma að minnst 10 hafi særst.

Lýsa yfir áhyggjum af stöðu leikskólamála í borginni
Samtökin Börnin okkar, sem eru samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík, lýsa yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í leikskólum borgarinnar. Eins og greint var frá í gær komst samráðshópur um kjaramál leikskólakennara, sem skipaður var til að koma með hugmyndir að lausnum fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna á morgun, ekki að neinni niðurstöðu og því er hugsanlegt að margir leikskólakennarar segi upp á næstunni.

Lóðaúthlutun á Akranesi og í Borgarbyggð þrefaldast á milli ára
Lóðaúthlutun undir íbúðir á Akranesi og í Borgarbyggð ríflega þrefaldaðist á milli áranna 2004 og 2005 eftir því sem fram kemur í svari Árna Magnússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Kjartans Ólafssonar þingmanns og Skessuhorn greinir frá. Lóðum undir 86 íbúðir var úthlutað árið 2004 en 279 lóðum í fyrra.

Mannfall í tveimur sprengjuárásum í Írak
Að minnsta kosti 22 létu lífið og 26 særðust í tveimur sprengjuárásum sem gerðar voru nánast samtímis í Bagdad, höfuðborg Íraks, nú í hádeginu.

Reyna að finna starfsfólk með óhefðbundinni leið
Viðvarandi mannekla veldur því að draga ekki er hægt að taka inn nýja vistmenn á dvalarheimilið Hrafnistu í Reykjavík. Forsvarsmenn stofnunarinnar hafa farið heldur óhefðbundna leið til að vekja áhuga fólks á störfum á heimilinu og fólk allt niður í tíu ára hefur sýnt áhuga á störfunum.

Blásýra lak í Saxelfi.
Vélabilun í efnaverksmiðju í Tékklandi er sögð hafa valdið því að töluvert af blásýru lak í ánna Saxelfi fyrir rúmri viku. Tékkar hafa varað Þjóðverja við mögulegri hættu af völdum blásýrunnar.

Allt á uppleið í Kauphöllinni
Lækkun á úrvalsvísitölunni í Kauphöll Íslands í gær, þegar nær öll skráð fyrirtæki þar lækkuðu, virðist hafa verið skot út í loftið, því allt hefur verið aftur á uppleið í morgun.

24 hafa látist úr kulda í frosthörkum í Rússlandi
Að minnsta kosti 24 hafa látist úr kulda í miklum vetrarhörkum sem geisa nú í Rússlandi. Um 30 stiga frost er í höfuðborginni Moskvu og frost fer allt niður í 50 stig í Síberíu.

Ekki jafn kalt í Kína í þrjá áratugi
Miklar vetrarhörkur ógna búfé og villtum dýrum í Norðurvestur-Kína. Frost hefur farið alveg niður í 43 gráður og hefur ekki verið jafn kalt í Kína í þrjá áratugi.

Stjórnvöld bregðast við hruni rækjuveiða
Stjórnvöld reyna nú að draga úr því áfalli að rækjuveiði í íslenskri lögsögu er hrunin og sú litla rækjuvinnsla, sem enn er stunduð í landi, byggir á erlendu hráefni og ber sig varla lengur.

Átök um réttmæti Núpsvirkjunar
Innansveitarátök eru hafin í Gnúpverjahreppi um réttmæti Núpsvirkjunar. Oddvitinn segir að slík virkjun í sveitinni sé ekkert meira en stór fjósbygging meðan aðrir segja virkjunina óverjandi ósóma.

Efnahags- og viðskiptanefnd fundar um Kjaradómslög
Straumur álitsgjafa hefur legið inn á fund Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í allan morgun, þar sem reynt er að komast til botns í því hvort lagasetning til að fella úrskurð Kjaradóms úr gildi, stangist á við stjórnarskrána.

Handteknir á Spáni fyrir að kaupa barnaklám
Athafnamenn, bankamenn og prestur eru meðal þeirra 33 manna sem spænska lögreglan hefur handtekið fyrir að sækja sér barnaklám á Netinu. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC er talið að fólkið hafi greitt fyrir efni á heimasíðum í Hvíta-Rússlandi og Bandaríkjunum, en lögregla hóf rannsókn á málinu eftir ábendingu frá bandarískum yfirvöldum.

Hvalshræ fyrir utan Japanska sendiráðið í Berlín
Grænfriðungar mótmæltu vísindahvalveiðum Japana með sérstökum hætti í gærkvöld. Þeir lögðu dauðan hval fyrir utan japanska sendiráðið í Berlín. Sendiráðsstarfsmenn reyndu að koma í veg fyrir mótmælin en gátu það ekki þar sem þau brutu ekki gegn þýskum lögum.

Sex konum sleppt úr fangelsi í Írak
Yfirvöld í Írak hafa ákveðið að láta sex íraskar konur lausar úr fangelsi þar í landi. Talsmaður íraska dómsmálaráðuneytisins segir þetta ekki tengjast máli bandarískrar blaðakonu sem er í haldi mannræningja í Írak. Þeir hafa krafist þess að allar konur sem hafi verið fangelsaðar í Írak verði látnar lausar ellegar myrði þeir blaðkonuna.

Sigrún Elsa gefur kost á sér í 2.-4. sætið
Sigrún Elsa Smáradóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í annað til fjórða sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer 11. og 12. febrúar næstkomandi. Sigrún Elsa hefur verið varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans síðast liðin tvö kjörtímabil og á sæti í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkurborgar. Ennfremur er Sigrún formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og formaður hverfisráðs Hlíða. Sigrún Elsa er matvælafræðingur að mennt.

Barnaklámsmál á Spáni
Athafnamenn, bankamenn og prestur eru meðal þeirra þrjátíu og þriggja manna sem spænska lögreglan hefur handtekið fyrir að sækja sér barnaklám á Netinu.

Vilja leyfa lítil vændishús í Bretlandi
Breska ríkisstjórnin hyggst leyfa rekstur lítilla vændishúsa í þeirri viðleitni að tryggja betur öryggi þeirra áttatíu þúsund vændiskvenna sem starfa í landinu. Samkvæmt fyrirætlan stjórnarinnar mun tvær til þrjár vændiskonur geta fengið leyfi til að starfrækja vændishús. Samhliða þessu verður ráðist harðar gegn vændi á götum úti þar sem viðskiptavinir vændiskvenna eiga yfir höfði sér sektir.

Nemendur í framhalds- og háskólum aldrei fleiri
42.200 nemar voru skráðir í framhalds- og háskólalandsins í haust samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Í framhaldsskóla eru skráðir 25.093 nemendur og 17.107 nemendur í háskóla.

Reyndu að féfletta skyndibitastað
Hjón sem lögðu á ráðin um að féfletta skyndibitastað í Bandaríkjunum, með afskornum fingri í skál af chili, hafa verið dæmd í 9 og 12 ára fangelsi fyrir athæfið. Það var fyrir tæpu ári sem Anna Ayala sagðist hafa bitið í fingurinn þegar hún fékk sér af chilinu á skyndibitastaðnum Wendy´s.