Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi 19. janúar 2006 19:54
Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi á árunum 1995 til 2004. Þetta sýna skattaskýrslur OECD. Ísland er nú komið í hóp þeirra tíu ríkja þar sem skattbyrði er þyngst. Núverandi stjórnarflokkar settust að völdum árið 1995 og hafa síðan verið iðnir við að halda því fram að þeir væru að lækka skatta. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, mælir skattheimtu meðal iðnríkja heims í hlutfalli af landsframleiðslu, og fær þannig út skattbyrðina, en með henni sést hve mikið hið opinbera, bæði ríki og sveitarfélög, tekur til sín af öllum þeim tekjum sem myndast í samfélaginu. þegar rýnt er í árlega skattaskýrsla OECD, sem birtist í vetrarbyrjun, sést að mestu skattahækkanir á árabilinu 1995 til 2004 voru á Íslandi, en nýjustu tölur frá 2004 eru bráðabirgðatölur. Skattbyrðin jókst hérlendis úr 32,1 prósenti upp í 41,9, prósent eða um 9,8 prósentustig. Næst kom Tyrkland en þar þyngdist skattbyrðin um 8,5 prósentstig. Í Kóreu þyngdist hún um 5,2, í Noregi um 3,8 en síðan koma Spánn, Svíþjóð, Mexíkó, Austurríki, Sviss og Bretland. Athygli vekur hvað Ísland og Tyrkland skera sig úr þegar tölur OECD eru bornar saman um mestu skattahækkanir meðal iðnríkja heims. Þynging skattbyrði hérlendis var þannig tífalt meiri en í Bretlandi sem var í tíunda sæti. Fullyrðingar íslenskra stjórnmálamanna um skattalækkanir stangast á við skattaskýrslur OECD sem sýna Ísland ekki meðal ríkja sem þar sem skattbyrði hefur lækkað. Hún lækkaði mest í Ungverjalandi á þessu árabili, um 4,7 prósentustig, en aðrar ríkisstjórnir sem geta flaggað skattalækkunum með tilvísun í OECD eru í Kanada, Hollandi, Þýskalandi, á Írlandi, í Bandaríkjunum, Finnlandi, Lúxemborg og á Nýja-Sjálandi. Því hefur löngum verið flaggað að skattbyrði sé lág á Íslandi. Það hefur breyst hratt og er Ísland nú komið á topp tíu listann yfir þyngstu skattbyrðina innan OECD. Svíþjóð er á toppnum en þar tekur hið opinbera í skatta meira en helming landsframleiðslunnar. Danmörk eru litlu neðar með rétt tæplega 50 prósent en síðan koma Belgía, Noregur, Finnland, Frakkland, Austurríki, Ítalía, og Ísland, sem er í níunda sæti, en Lúxemborg er svo tíunda landið á lista þeirra ríkja sem þyngstar byrðar leggja á skattþegna sína.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Sjá meira