Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rekin fyrir að verða barnshafandi utan hjónabands Kennslukona í Queens í New York hefur kært skólann sem hún kenndi við eftir að hún var rekin þaðan þar sem hún varð ófrísk án þess að vera í hjónabandi. Hin 26 ára Michelle McCusker kenndi við kaþólskan barnaskóla í Queens en var rekin í síðasta mánuði þegar skólayfirvöld komust að því að hún var barnshafandi. 24.11.2005 10:00
Nýtt varðskip væntanlega á árinu 2008 Tilboða verður leitað í nýtt varðskip fyrir Landhelgisgæsluna eftir áramót, að sögn Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, en yngsta varðskipið sem nú er í notkun, er komið á fertugsaldur. Nokkrar skipasmíðastöðvar á Evrópska efnahagssvæðinu fá að bjóða í verkið, að uppfylltum vissum skilyrðum og gangi allt eftir, ætti skipið að komast í þjónustu Gæslunnar árið 2008. 24.11.2005 09:30
ÖBÍ segir vinnureglur Tryggingastofnunar stangast á við lög Forystumenn Öryrkjabandalagsins hyggjast leita á náðir dómsstóla varðandi skerðingu bóta um áttatíu öryrkja hætti Tryggingastofnun ekki við aðgerðir sínar. Þeir segja nýjar vinnureglur stofnunarinnar stangast á við lög. Engin ástæða sé til þess að grípa til jafn harkalegra innheimtuaðgerða og nú er beitt gagnvart fársjúku fólki. 24.11.2005 09:30
Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum nemur 10% af landsframleiðslu Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum nemur nú 10% af landsframleiðslu. Deutsche Bank gaf í vikunni út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir um einn milljarð króna en nokkurt hlé hafði verið á útgáfunni. Á seinni hluta næsta árs koma um fjörtíu milljarðar króna til greiðslu. 24.11.2005 09:15
Þrettán slasast í miklu umferðarslysi í Chicago Að minnsta kosti þrettán manns slösuðust, þar af þrír alvarlega, þegar lest skall á fimm bíla í Chicago í Bandaríkjunum í gærkvöld. Áreksturinn varð þó stærri og meiri því þeir bílar hentust síðan til og á að minnsta kosti tólf bíla til viðbótar. 24.11.2005 09:15
Umfjöllun um Baug í Bretlandi Reuter fréttastofan greindi frá kaupum Baugs á skartgripafyrirtækinu Mappin og Webb. Þar eru reifaðar afleiðingar Baugsmálisins fyrir fyrirtækið. Þar eru taldar upp eignir Baugs í Bretlandi og sagt að Baugur sé nú viðurkennt viskiptaafl þar í landi. Þess er jafnframt getið að vegna Baugsmálsins hafi fyrirtækið þurft að hverfa frá samningum um kaup á Somerfield. Í framhaldinu er sagt að flestum ákærunum hafi verið hafnað af Hæstarétti. 24.11.2005 09:15
Hlaut fangelsisdóm fyrir að selja of mikið áfengi Norskur barþjónn hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir að selja drukknum gesti of mikið áfengi. Gesturinn, sem var á fertugsaldri keypti nítján tekíla drykki á níutíu mínútum á síðasta þjóðhátíðardegi Norðmanna. Hann lést fimm dögum síðar af völdum heilaskaða sem rakinn var til ofdrykkjunnar. 24.11.2005 09:00
Mengun frá efnaverksmiðju berst til Harbin Um áttatíu kílómetra kafli í ánni Songhua í Norðaustur-Kína er nú talinn vera mengaður eftir sprengingu í efnaverksmiðju við ána í síðustu viku. Mengunin hefur nú borist til Harbin, einnar af stærstu borgum Kína, og hafa yfirvöld hvatt fólk til að halda sig frá ánni. 24.11.2005 09:00
Vilja ekki að lögreglan heyri undir Borgarnes Verkalýðsfélag Akranes leggst gegn hugmyndum um að draga úr vægi lögreglunnar á Akranesi en samkvæmt áformum í dómsmálaráðuneytinu á að fella embættið undir lögregluna í Borgarnesi. 24.11.2005 08:45
Víg í Nuevo Laredo í Mexíkó Maður og fjögurra ára frænka hans féllu þegar uppreisnarmenn hófu skothríð á bíl mannsins í borginni Nuevo Laredo í Mexíkó í gærkvöld. Systir mannsins og annað barn hennar, sem einnig voru í bílnum, særðust í árásinni en þó ekki lífshættulega. 24.11.2005 08:30
Hitabeltisstormurinn Delta á Atlantshafi Hitabeltisstormurinn Delta, sem myndaðist í gær á Atlantshafinu, er 25. stormurinn sem nær þeim styrk að hann hljóti nafn á fellibyljatíðinni á þessu ári. Delta kann að ná fellibylsstyrk, en samkvæmt veðurspám er ekki hætta á að hann komi nærri landi. 24.11.2005 08:30
Eftirlit með mannréttindahópum hert í Rússlandi Óttast er að mannréttindahópar í Rússlandi hrekist nú úr landi eftir að rússneska þingið, Dúman, samþykkti ný lög sem virðast eiga að gera mannréttindahópum erfiðara fyrir með að starfa í landinu. Samkvæmt lögunum verða allir slíkir hópar að skrá sig hjá því opinbera og samþykkja eftirlit af hálfu lögreglunnar. 24.11.2005 08:30
Slippurinn fer hugsanlega ekki Það kemur til greina að endurskoða áform borgaryfirvalda um að flytja slippinn úr Reykjavík og hefja byggingu íbúðabyggðar á slippssvæðinu, sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, á fundi með útvegsmönnum í gær. 24.11.2005 08:15
Þjóðkirkjan þarf tvö ár til að afgreiða málið Tvö ár eru þangað til þjóðkirkjan sér fram á að afgreiða af sinni hálfu þá ósk að hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. 24.11.2005 08:00
Bolton hótar að Bandaríkjamenn afgreiði ekki fjárlög fyrir SÞ John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur hótað því að Bandaríkin afgreiði ekki fjárlög fyrir Sameinuðu þjóðirnar nema starf samtakanna verði endurskipulagt og það fyrir næstu áramót. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að tillögur um endurskipulagningu muni ekki liggja fyrir fyrr en í febrúar á næsta ári. 24.11.2005 08:00
Lyfjaverð lækkar ekki sem skyldi Samningar ríkisvaldsins við lyfjaframleiðendur og innflytjendur um lækkun lyfjaverðs hefur ekki skilað sér til neytenda að því er fram kemur í könnun Alþýðusambands Íslands. Hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði hefur hækkað í einhverjum tilfellum þar sem hlutur ríkisins hefur lækkað. 24.11.2005 07:45
Varað við hálku og hálkublettum Hálkublettir eru á Hellisheiði samkvæmt Vegagerðinni. Hálka er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku og víða á Vestfjörðum og á Norðulandi. Hálka og skafrenningur er á Norðausturlandi og hálkublettir á fjallvegum á Austurlandi. 24.11.2005 07:42
Pinochet í stofufangelsi vegna skattsvika Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, hefur verið hnepptur í stofufangelsi vegna gruns um skattsvik. Pinochet, sem er 89 ára að aldri, er einnig sakaður um að nota fölsuð opinber skjöl og að veita rangar upplýsingar um eignir sínar, upp á 1,7 milljarða íslenskra króna. 24.11.2005 07:30
Slasaðist þegar bíll valt í Þrengslunum Ökumaður slasaðist þegar bíll hans valt á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar í gærkvöldi. Hann var fluttur á Slysadeild Landsspítalans, en er ekki í lífshættu. Hann var einn í bílnum og er ekki vitað um tildrög slyssins. 24.11.2005 07:15
Öryrkjar ætla alla leið með skerðingarmál Forystumenn Öryrkjabandalagsins hyggjast leita á náðir dómsstóla varðandi skerðingu bóta um áttatíu öryrkja. Þeir segja nýjar vinnureglur Tryggingastofnunar stangast á við lög. Enginn ástæða sé til þess að grípa til jafn harkalegra aðgerða og nú er beitt gagnvart fársjúku fólki. 24.11.2005 07:00
Merkel segir Evrópu þurfa stjórnarskrá Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir Evrópusambandið ekki mega afskrifa stjórnarskrárdrögin sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslum í sumar. Sagði Merkel, er hún heimsótti höfuðstöðvar sambandsins í Brussel í dag, Evrópu þarfnast stjórnarskrár. 24.11.2005 07:00
Fangar pakka inn jólakortum Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og í Fangelsinu á Akureyri hafa unnið að því að pakka inn jólakortum fyrir ABC barnahjálp síðustu daga. Um tímabundið verkefni er að ræða en vinnumöguleikar fyrir fangana eru takmarkaðir í þessum fangelsum sökum aðstöðuleysis. 23.11.2005 22:40
Núverand hækkun vaxta á íbúðalánum leiðir ekki til lækkunar húsnæðisverðs Íbúðalánasjóður og allir bankarnir fyrir utan KB banka hafa hækkað vexti sína af íbúðalánum. Sérfræðingar telja þó að þessi hækkun vaxta muni ekki leiða af sér lækkun húsnæðisverðs. 23.11.2005 22:11
Skráir ættir allra Íslendinga Allir Íslendingar, fyrr og síðar, sem og afkomendur þeirra í útlöndum, eru að eignast samastað. Sá er í Skerjafirði. Þetta varanlega heimili Íslendinga er hjá Ættfræðiþjónustu Odds Helgasonar. 23.11.2005 21:28
20.000 manns eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins Ástæða hárra bakreikninga til öryrkja frá Tryggingastofnun er í flestum tilvikum sú að þeir hafa vantalið tekjur sínar. Það eru hins vegar ekki bara sendir út bakreikningar, 20.000 manns eiga inneign hjá TR sem greidd verður út fyrir jól. 23.11.2005 21:16
Barnamjólk tekin úr verslunum vegna bleks Milljónir lítra af barnamjólk frá matvælarisanum Nestle hafa verið fjarlægðar úr verslunum eftir að blek fannst í mjólkinni. Stormur í vatnsglasi, segir forstjóri fyrirtækisins. 23.11.2005 21:11
Dómsmálaráðherra ráðstafar einn átta milljónum til mannréttindamála Dómsmálaráðherra verður nú einn að ráðstafa átta milljónum til mannréttindamála eftir breytingar á fjárlagafrumvarpinu í meðförum fjárlaganefndar. Fjórar milljónir á forræði utanríkisráðherra færast á hendur Björns Bjarnasonar. Þingmaður Samfylkingarinnar segir þetta ekki djarfmannlegt af nýjum formanni Sjálfstæðisflokksins. 23.11.2005 21:05
Telur að vextir á íbúðalánum muni lækka þegar nær dregur áramótum Vextir á íbúðalánum lækka aftur þegar nær dregur áramótum, að mati framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn hækkaði vexti sína í morgun. Landsbankinn var fyrstur til að hækka vexti í þessari hrinu fyrir hálfum mánuði, en Sparisjóðirnir og Íslandsbanki fylgdu í kjölfarið í dag. KB-banki er að skoða málið. 23.11.2005 21:03
Ráðherrar sakaðir um að forðasta að svara spurningum um Kárahnjúkavirkjun Ráðherrar voru sakaðir á Alþingi í dag um að svara óþægilegum fyrirspurnum um Kárahnjúkavirkjun ýmist með þvættingi eða alls engu. 23.11.2005 20:45
Vill að Fiskistofa svari Fiskistofa þverbrýtur allar stjórnsýslureglur þegar hún neitar að upplýsa um leigukvótaviðskipti síðasta árs sem námu 9 milljörðum króna. Þetta segir Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins sem hefur óskað eftir því að Sjávarútvegsráðherra reki á eftir stofnuninni að svara. 23.11.2005 20:24
Kertasníkir á leið til Finnlands Kertasníkir millilenti á Reykjavíkurflugvelli í dag en hann er á leið frá Mývatni til Finnlands á jólasýningu. Kertasníkir var í sínu fínasta pússi en íslensku jólasveinarnir eru komnir í nýja búninga. 23.11.2005 20:15
Hersveitir fljótlega frá Írak? Það verður ekki þörf á öllum þeim hersveitum sem eru í Írak miklu lengur að mati Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 23.11.2005 20:00
Eitthvað rortið við íslenkt bankaveldi? Er eitthvað rotið í íslensku bankaveldi spyr Skotlandsbanki í nýlegri greiningu sinni á KB banka. Bankinn taki óþarfa áhættu og spurningar vakni varðandi fjármögnun og eignatengsl. Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Radings gaf hins vegar KB banka hæstu einkunn í dag og segir horfur í rekstrinum stöðugar. 23.11.2005 19:30
Konukot opið allan sólarhringinn Konukot verður framvegis opið allan sólarhringinn. Velferðarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að veita Rauða kross Íslands fé til að svo geti orðið. 23.11.2005 19:10
Leggst gegn hlutlausri úttekt Félagsmálaráðuneyti leggst gegn hlutlausri úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs sem ákveðið var að ráðast í í júní og ber við kostnaði. Ríkisábyrgðarsjóður getur ekki mælt með frekari ríkisábyrgðum vegna sjóðsins meðan engin úttekt liggur fyrir. Skýrsla ríkisendurskoðunar um sjóðinn er væntanleg í næstu viku. 23.11.2005 19:00
Enn eykst skuldabréfaútgáfa erlendra aðila Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum er nú komin yfir hundrað og fimmtán milljarða króna. Deutsche Bank gaf í gær út skuldabréf fyrir um einn milljarð króna og verða þau innleysanleg í september á næsta ári. Hlé hafði verið á útgáfunni síðan ellefta þessa mánaðar. 23.11.2005 15:13
Allir bankarnir nema KB banki hafa hækkað íbúðalánavexti Íslandsbanki hefur hækkað vexti íbúðalána úr 4,15% í 4,35%. Í tilkynningu frá bankanum segir að þetta sé gert vegna hækkana Íbúðalánasjóðs á íbúðalánum sínum. Hækkanirnar taka strax gildi. Þá hafa allir bankarnir nema KB-banki tilkynnt hækkun á vöxtum íbúðalána. Í morgun hækkaði SPRON vexti sína í 4,35% og fyrir nokkru hækkað Landsbankinn sína vexti í 4,45%. 23.11.2005 15:10
Annar drengjanna sem brenndust enn á gjörgæslu Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru að fikta með eldfiman vökva í Grafarvogi á sunndagskvöld er enn á gjörgæsludeild Landspítalans og óvíst hvenær hann losnar þaðan. Honum er haldið sofandi í öndunarvél en hann brann á um 30 prósentum líkamans. 23.11.2005 14:37
5-10 aðilar fá að bjóða í smíði nýs varðskips Farið verður í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Þetta tilkynnti Björn Bjarnason á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í kjölfar forvals verða valdir 5-10 aðilar sem síðan fá að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi. 23.11.2005 14:15
Skilyrðum símapeninga við lagningu Sundabrautar aflétt Vegagerðin er tilbúin að aflétta skilyrðum sem fylgdu símapeningunum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut. Vegagerðin telur nauðsynlegt að skoða allt málið í heild sinni í ljósi ákafra mótmæla íbúasamtaka Grafarvogs og Laugardals. 23.11.2005 14:00
Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári 27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum. 23.11.2005 13:45
Sirleaf lýst sigurvegari í forsetakosningum í Líberíu Ellen Johnson-Sirleaf varð í dag fyrsta konan sem kjörin er þjóðarleiðtogi í Afríkuríki þegar kjörstjórn í Líberíu lýsti hana sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru 8. nóvember síðastliðinn. Sirleaf, sem var áður fjármálráðherra landsins og er menntaður hagfræðingur, bar sigurorð að fyrrverandi knattspyrnuhetjunni George Weah sem hefur haldið því fram að svindlað hafi verið í kosningunum. 23.11.2005 13:30
Vopnaðir menn drápu feðga í Bagdad Vopnaðir menn í einkennisbúningi íraskra hermanna skutu og drápu í nótt sjötugan súnníta og þrjá syni hans á heimili þeirra í Bagdad. Konurnar á heimilinu voru látnar í friði. 23.11.2005 13:15
Ekið á unglinsstúlku við Suðurlandsbraut Ekið var á unglingsstúlku þar sem hún var á gangi við Suðurlandsbraut á tíunda tímanum í morgun. Ekki er ljóst hver aðdragandi slyssins varð en stúlkan slapp vel að sögn lögreglu. Hún var þó flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar reyndust minni háttar. 23.11.2005 13:00
Merkel komin til Parísar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er komin til Parísar. Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn Merkels sem kanslari. Með í för er utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier. Fréttaskýrendur telja ástæðuna fyrir því að París hafi verið fyrir valinu, sem fyrsti áfangastaður hennar sem kanslari, sú að hún hafi viljað styrkja samband þjóðanna tveggja. Merkel heldur áfram til Brussel í dag og endar för sína í London þar sem hún verður á morgun. 23.11.2005 12:50