Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja banna kanínur í fuglaeyjum Frjálslyndi flokkurinn ætlar að leggja fram þingmál þar sem gert verður ráð fyrir að lagt verði bann við kanínum í öllum fuglaeyjum umhverfis landið. Þetta kemur fram á heimasíðu Magnúar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns flokksins, þar sem hann vísar meðal annars í skýrslu um kanínupláguna í Heimaey. Þar segir að kanínurnar nagi rætur og grafi út lundaholur sem auki hættu á uppblæstri og jarðvegseyðingu. 14.10.2005 00:01
Íslenskir hjólbarðar <font size="2"> Íslendingar hafa þróað og hannað 38 tommu hjólbarða fyrir íslenskar aðstæður. Dekkin heita AT 4005. Þau eru framleidd í Kína og er fyrsta sendingin komin í sölu hér á landi. </font> 14.10.2005 00:01
Hafa heitið tíu milljörðum Þjóðir heimsins hafa skuldbundið sig til að leggja 165 milljónir dollara, eða rúmum 10 milljörðum króna, til neyðaraðstoðar vegna hamfaranna í Suður-Asíu, að sögn Sameinuðu þjóðanna. 14.10.2005 00:01
Barði þungaða konu með kylfu Kona í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum barði þungaða nágrannakonu sína með hafnaboltakylfu í höfuðið, ók með hana út í skóg og reyndi að skera á kvið hennar til að ná ófæddu barninu út. 17 ára gamall piltur sem leið átti hjá er talinn hafa fælt konuna frá en hann hringdi á lögreglu sem handtók hana. 14.10.2005 00:01
Danir hamstra fuglaflensulyf Ótti við fuglaflensu hefur gripið um sig í Danmörku og greinir danska blaðið <em>Politiken</em> frá því að Danir hamstri nú inflúenslyfið Tamiflu, en fréttir hafa borist af því að fuglaflensan hafi greinst í Evrópu. Þrjú þúsund pakkningar af lyfinu hafa seldust í ágúst og september samkvæmt Apótekarafélagi Danmerkur en á sama tímabili í fyrra var lyfið sent aftur til framleiðenda þar sem það seldist ekki. 14.10.2005 00:01
Ný njósnastofnun sett á fót í BNA Bandaríkjastjórn hefur komið á fótt nýrri njósnastofnun sem samhæfa á allar njósnir í útlöndum. Stofnunin hefur verið nefnd National Clandestine Service, NCS, og heyrir undir CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, en hún mun stjórna öllum njósnaaðgerðum, þar á meðal aðgerðum á vegum alríkislögreglunnar og varnarmálaráðuneytisins. 14.10.2005 00:01
Samsung sektað fyrir verðsamráð Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung hefur verið sektaður um 300 milljónir dollara eða sem nemur rúmum 18 milljörðum íslenskra króna en þeim er gert verðsamráð að sök. Þetta er önnur hæsta sekt sem greidd hefur verið af þessum toga en að baki henni liggur þriggja ára rannsókn. Samsung er stærsti framleiðandi minniskubba fyrir tölvur auk annarra rafeindatækja í heiminum. 14.10.2005 00:01
Rafmagn fór af á Snæfellsnesi Rafmagn fór af Ólafsvík, Hellissandi og Rifi um klukkan hálfþrjú í nótt þegar háspennulína á milli Vegamóta og Ólafsvíkur slitnaði við Ölkeldu. Vinnuflokkar eru á nú á leið á vettvang til að gera við línuna og búist er við að rafmagn verði aftur komið á um hádegi. Dísilvélar eru keyrðar í Ólafsvík og eru raforkunotendur beðnir um að fara sparlega með rafmagn. 14.10.2005 00:01
Hyggjast reisa tjaldborgir Pakistönsk yfirvöld hyggjast koma upp tjaldborgum fyrir hundruð þúsunda manna sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum í landinu fyrir tæpri viku. Tjaldborgunum verið komið upp á fimm stöðum nærri borgunum Islamabad og Rawalpindi og verður mat dreift þar ásamt því sem svæðið verður hitað upp. 14.10.2005 00:01
Khodorkovskí sé við Volgu Rússneski olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovskí hefur verið sendur í fangabúðir í Saratov-héraði við ána Volgu þar sem hann mun afplána átta ára dóm fyrir fjár- og skattsvik. Þetta hefur Interfax-fréttastofan eftir ónefndum heimildarmönnum innan fangelsisins. 14.10.2005 00:01
Forðist beina snertingu við fugla Embætti yfirdýralæknis sendi í dag frá sér leiðbeiningar til ferðamanna um það hvernig þeir skuli haga sér á ferðalögum þar sem fuglaflensa geisar og fuglar og alifuglar eru drepnir í stórum stíl. 14.10.2005 00:01
ESB fundar um fuglaflensu Evrópskir sérfræðingar í fuglaflensu sitja nú á neyðarfundi vegna þeirra frétta sem bárust í gær að fuglaflensans sem greindist í Tyrklandi á dögunum hefði verið af hinum banvæna stofni H5N1 sem dregið hefur yfir 60 manns til dauða í Asíu. 14.10.2005 00:01
Skilorðsdómur fyrir fjárdrátt Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í gær fyrrverandi framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfirðinga í tíu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir fjárdrátt í opinberu starfi. 14.10.2005 00:01
Ný leiðabók hjá SVR Strætó bs. hefur gefið út nýja leiðabók sem tekur gildi frá og með laugardeginum 15. október. Hafa tímatöflur nokkurra leiða verið lagfærðar og aksturstími leiða 12 og 16 lengdur. Með þessum breytingum er komið til móts við ábendingar frá vagnstjórum og farþegum auk þess sem tekið er mið af reynslunni frá því nýja leiðakerfið var tekið í notkun 23. júlí síðastliðinn. 14.10.2005 00:01
Sýslumaður verður tollstjóri Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, hefur óskað eftir því með tilvísun til tilraunaverkefnis um tímabundin vistaskipti ríkisstarfsmanna að taka við störfum hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík, frá 15. október 2005 til 1. maí 2006. Fallist hefur verið á ósk sýslumannsins og honum veitt leyfi frá störfum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. 14.10.2005 00:01
Eggert sækist eftir 7. sæti Eggert Páll Ólason, héraðsdómslögmaður og formaður samtakanna Vinir einkabílsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjöunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. 14.10.2005 00:01
Dæmt í máli stúlkunnar á mánudag Íslenska stúlkan sem handtekin var í maí í Lundúnum fyrir að smygla kókaíni í skónum kom fyrir rétt í Lundúnum í gær og fyrradag. Þar sem stúlkan er sautján ára hefur hún verið vistuð á heimili fyrir börn og unglinga að því er fram kemur í DV í dag. Mál hennar verður dómtekið á mánudag og faðir hennar segir að það séu helmingslíkur á að hún sleppi við refsingu vegna ungs aldurs. 14.10.2005 00:01
SMÍ og FF í hár saman Skólameistarafélag Íslands og Félag framhaldsskólakennara eru komin í hár saman vegna deilna sem verið hafa uppi innan Menntaskólans á Ísafirði. 14.10.2005 00:01
Methiti árið 2005 um allan heim Árið 2005 er annað eða þriðja heitasta ár síðan mælingar hófust. Vísindamenn segja veðurfarið sýna að hlýnun jarðar af völdum manna er vandamál. 14.10.2005 00:01
Engin kona forstjóri skráðu félagi Engin kona er forstjóri í skráðu fyrirtæki í Kauphöll Íslands og konur eru aðeins sjö komma fjögur prósent stjórnarmanna. Nefnd, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði, hefur kynnt tillögur um hvernig fjölga megi konum í stjórnum fyrirtækja. 14.10.2005 00:01
Byssugelt í Haag fyrir stundu Byssugelt heyrðist í Haag í Hollandi fyrir nokkrum mínútum í kjölfar aðgerða lögreglu vegna hryðjuverkaviðvörðunar. Ekki er vitað hver skaut eða hvers vegna. Lögreglumenn umkringdu byggingu þar sem Jan Peter Balkenende forsætisráðherra og fleiri hafa skrifstofur. 14.10.2005 00:01
Eykur eftirlit vegna rjúpnaveiða Lögregla um allt land hyggst auka eftirlit sitt vegna þess að rjúpnaveiðar hefjast á morgun að nýju eftir tveggja ára hlé. Veiðimenn á Vesturlandi eru varaðir við því að á sama tíma og þeir halda til veiða leita bændur fjár. 14.10.2005 00:01
Óveður í Öræfasveit Óveður er komið í Öræfasveit og eru vegfarendur beðnir að fara þar með gát. Hálka og snjókoma eru á Hellisheiði og í nágrenni Selfoss. Hálka eða hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Norðausturlandi og Austurlandi. 14.10.2005 00:01
Fjársöfnun kærð til lögreglu Stígamót hafa kært til lögreglunnar símasöfnun, sem sögð er til stuðnings samtökunum. Stígamót standa ekki fyrir neinni fjársöfnun þessa dagana og vara við slíkum símtölum. 14.10.2005 00:01
Neyðarfundur um fuglaflensu Neyðarfundur um viðbrögð við fuglaflensu verður haldinn í Brüssel í dag. Öruggt þykir að flensan breiðist út um Evrópu næsta vor. Níu eru undir ströngu eftirliti í Tyrklandi vegna ótta við fuglaflensu. Fjörutíu dúfur í eigu þeirra drápust á hálfum mánuði og vaknaði þá grunur um fuglaflensu. Líkurnar á smiti í mannfólk þykja litlar en í kjölfar þess að mannskæði stofn flensunnar fannst í Tyrklandi í gær þykir ástæða til að gera ítrustu varúðarráðstafanir. 14.10.2005 00:01
Útilokaði nánast Samfylkinguna Davíð Oddsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins gerði það eitt af sínum síðustu verkum sem formaður, í setningaræðu sinni á landsfundinum í gær, að nánast útiloka stjórnarmyndun með Samfylkingunni, þegar þar að kemur. 14.10.2005 00:01
Samningur ekki endurnýjaður Stjórn KSÍ hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við þá Loga Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson um þjálfun A-landsliðs karla í knattspyrnu. Þess í stað hefur stjórn KSÍ falið formanni sambandsins að ræða við Eyjólf Sverrisson um að taka við starfinu. 14.10.2005 00:01
Nýtt tímarit um þjóðmál Bókafélagið Ugla hefur hafið útgáfu á nýju tímariti sem heitir Þjóðmál og mun koma út fjórum sinnum. Ritstjóri tímaritsins er Jakob F. Ásgeirsson og samkvæmt ritstjórnargrein hans er Þjóðmálum er ætlað að vera "vettvangur fyrir frjálshuga fólk sem er orðið þreytt á yfirborðslegri og einhliða fjölmiðlun um stjórnmál og menningu". Meðal efnis í 1. hefti má nefna að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skrifar af vettvangi stjórnmálanna. 14.10.2005 00:01
Vaxandi sóknarfæri hjá smábátum Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að smábátarnir eigi vaxandi sóknarfæri vegna þess að togveiðar og fleiri veiðiaðferðir eigi nú undir högg að sækja hjá umhverfisverndarsinnum. 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Hollandi Hollenska lögreglan handtók í dag sjö grunaða hryðjuverkamenn í þremur borgum nú um hádegi. Hópurinn samanstendur af sex körlum og einni konu, en einn karlanna var fyrr á árinu sakfelldur fyrir að skipuleggja hryðjuverkaárás í Hollandi. Lögregla vildi hins vegar ekki greina frá því hvers vegna byssuhvellir hefðu heyrst í einni borganna, Haag, en lögreglumenn umkringdu byggingu þar í borg sem Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, og fleiri hafa skrifstofur. 14.10.2005 00:01
Rove í fjórða sinn fyrir nefnd Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, kom í dag í fjórða sinn fyrir rannsóknarnefnd sem rannsakar það hvernig nafn leyniþjónustumanns hjá CIA var lekið í fjölmiðla árið 2003. Flest bendir til að Rove hafi lekið nafni leyniþjónustukonunnar Valerie Plame og hefur eiginmaður Plame, Joseph Wilson, sakað stjórnvöld um að ljóstra upp nafni hennar til þess að refsa honum fyrir gagnrýni á málflutning stjórnarinnar í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 14.10.2005 00:01
Hafa stöðvað alla mótspyrnu Rússneskir hermenn hafa brotið á bak aftur alla mótspyrnu í borginni Nalstjik í Norður-Kákasus eftir að tsjetsjenskir uppreisnarmenn réðust í gær á lögreglu og opinberar byggingar. Að minnsta kosti 90 féllu í átökunum, flestir þeirra uppreisnarmenn, en rússneskar hersveitir fresluðu í morgun nokkra gísla úr höndum andspyrnumannanna. 14.10.2005 00:01
Sprenging í mosku í Afganistan Múslímaklerkur lést og sextán særðust þegar sprengja sprakk í mosku í Suðaustur-Afganistan í dag. Klerkurinn, Mullah Maulvi Ahmed Khan, var um það bil að hefja bænir þegar sprengjan sprakk, en lögregla á staðnum telur uppreisnarmenn úr röðum talíbana standa á bak við árásina. 14.10.2005 00:01
Hlutur ríkisútgjalda eykst Öll undangengin ár hafa fjárlög íslenska ríkisins gert ráð fyrir myndarlegum afgangi segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. Raunin hefur oftast orðið önnur. Samanburður á rekstrarafgangi fjárlaga og ríkisreikningi síðustu fimm ár sýnir að halli var þrjú ár og að hin tvö var afgangurinn mun minni en að var stefnt. 14.10.2005 00:01
Ríkissaksóknari kemur ekki að máli Bogi Nilsson ríkissaksóknari mun ekki koma að meðferð Baugsmálsins svokallað fyrir hönd ákæruvaldsins, eins og tilkynnt var á dögunum, vegna tengsla sinna við endurskoðunarfyrirtæki Baugs. 14.10.2005 00:01
Vistaskipti sýslumanna Lárus Bjarnason<font face="Courier New">,</font>sýslumaður á Seyðisfirði<font face="Courier New">,</font>hefur óskað eftir því, með tilvísun til tilraunaverkefnis um tímabundin vistaskipti ríkisstarfsmanna<font face="Courier New">,</font>að taka við störfum hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík, frá fimmtánda október nk. til 1. maí 2006. 14.10.2005 00:01
Gæsluvarðhald framlengt Framlengt hefur verið til 25. nóvember gæsluvarðhald yfir pilti sem játað hefur að hafa stungið annan á menningarnótt í Reykjavík í ágúst. Pilturinn er grunaður um að hafa stungið tvo, en vill ekki kannast við nema eina árás. 14.10.2005 00:01
Borgin hótar lögsókn Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir standa af hálfu borgarinnar að farið verði með samráðsmál olíufélaganna fyrir dómstóla fá borgin ekki greiddar bætur.Í gær rann út frestur sem Reykjavíkurborg gaf olíufélögunum til greiðslu bóta vegna verðsamráðs sem þau höfðu í tengslum við tilboðsgerð vegna olíusölu árið 1996. 14.10.2005 00:01
Ríkið borgar Saltkaupum Íslenska ríkið þarf að greiða Saltkaupum ehf. tæplega 9,8 milljónir króna auk 700.000 króna málskostnaðar samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Upphæðin er 4,5 milljónum hærri en kveðið var á um í dómi Héraðsdóms Reykjaness í desember í fyrra. 14.10.2005 00:01
Tíu mánuðir fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að draga sér rúmar 17 milljónir króna á árunum 2002 og 2003. Maðurinn játaði fjárdráttinn, en hann færði upphæðir til skuldar og endurgreiddi í mörgum greiðslum. Hæst varð skuldin rúmar 5 milljónir. Dómurinn var skilorðsbundinn. 14.10.2005 00:01
Óvissa um nýjan vef dómstólanna Anna Mjöll Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Dómstólaráðs, segir ekki hægt að segja til um hvernær ný heimasíða héraðsdómstóla landsins komist í loftið, en búið er að loka þeirri sem fyrir var. Nú er á slóðinni domstolar.is einungis að finna tilkynningu um að ný síða sé væntanleg. 14.10.2005 00:01
Funda eftir helgi Vilhjálmur H. Vilhjálmssson hæstaréttarlögmaður segir að honum hafi ekki enn borist neitt svar um skaðabótakröfu þá, sem Reykjavíkurborg krefst að olíufélögin Ker, Olís og Skeljungur, greiði vegna samráðs sem þau höfðu við tilboðsgerð á vegum borgarinnar árið 1996. 14.10.2005 00:01
Lífeyrissjóður var sýknaður Hæstiréttur féllst ekki á kröfu fyrrum bankastarfsmanns um að breyting á reglugerð um lífeyrisgreiðslur hefði svipt hann áunnum réttindum. Fyrir gildistöku reglugerðar í árslok 1997 var miðað við laun eftirmanns, en vísitölu neysluverðs á eftir. 14.10.2005 00:01
Skuldfært fyrir sekt Skeljungs Hagar, eignarhaldsfélag olíufélagsins Skeljungs, hafa skuldfært hjá sér 250 milljónir króna í ársreikningi síðasta árs vegna sektar fyrir olíusamráð. Allt umfram þá upphæð sækir félagið til fyrri eigenda Skeljungs. 14.10.2005 00:01
Þrotabúskrafa tekin fyrir í dómi Tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær krafa Sparisjóðs Vestfjarða í þrotabú Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, eins sakborninga úr Landssímamálinu. Björn Jóhannesson, lögmaður sparisjóðsins, segir deilt um hvers eðlis krafa sjóðsins sé, en hún sé til komin vegna láns til fyrirtækisins Lífsstíls. 14.10.2005 00:01