Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúðaverð yfir meðallagi Evrópu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu virðist vera komið vel yfir meðallag íbúðaverðs í helstu höfuðborgum Evrópu. Þá býr rífur meirihluti landsmanna í eigin húsnæði ólíkt því sem gerist í Sviss. 29.9.2005 00:01
Huntley dæmdur í 40 ára fangelsi Hæstiréttur Bretlands hefur dæmt Ian Huntley í fjörutíu ára fangelsi fyrir morðið á hinum tíu ára gömlu Jessicu Chapman og Holly Wells. Stúlkurnar hurfu haustið 2002, en illa farin líkin af þeim fundust í skóglendi hálfum mánuði síðar. Fyrrverandi unnusta Huntleys, Maxine Carr, hafði áður fengið þriggja og hálfs árs dóm fyrir að tefja rannsókn málsins. Hún var látin laus í fyrra og fer nú huldu höfði. 29.9.2005 00:01
Byggðir að sökkva vegna hlýnunar Byggðir í Alaska eru hreinlega að sökkva vegna hlýnunar á norðurslóðum og lífverur eru í vanda á svæðinu vegna breytts umhverfis. 29.9.2005 00:01
Reynt áfram að ná samkomulagi Ekki náðist samkomulag fjölda strandríkja við Atlantshaf um skiptingu á kolmunnakvótanum á fundi sem lauk í Reykjavík í gær. Reynt verður áfram til þrautar að ná samkomulagi. 29.9.2005 00:01
Skúta sé enn á Grænlandshafi Talið er að skútan Vamos sem lenti í sjávarháska á þriðjudag þar sem einn áhafnarmeðlimur lést og öðrum var bjargað sé enn á reki á Grænlandshafi. Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar er á eftirlitsflugi á því svæði sem talið er að skútan sé en þó er ekki um eiginlega leit að ræða. Slökkt er á neyðarsendi skútunnar svo illmögulegt er að staðsetja hana nákvæmlega. 29.9.2005 00:01
Fá að snúa aftur til New Orleans Íbúar New Orleans mega fara að snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. 29.9.2005 00:01
Auglýsingar dragi úr sjálfstrausti Þrír af hverjum fjórum foreldrum í norrænu ríkjunum telja að auglýsingar sem beint er til barna og ungmenna veiki sjálfstraust þeirra. 29.9.2005 00:01
Látið verði af tortryggni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að í ljósi þess að umboðsmaður Alþingis sjái ekki forsendu til þess að kanna hæfi hans við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum, sé orðið tímabært að stjórnarandstaðan láti af tortryggni sinni í garð hans og að þau atriði sem umboðsmaður spyrji um séu nú þegar til athugunar í ráðuneytinu. 29.9.2005 00:01
Ekki strengir um lengri veg Háspennustrengir verða aldrei lagðir í jörð um lengri veg þótt vera megi að það verði gert á stuttum köflum, segir forstjóri Hitaveitu Suðurnesja. Bæði er kostnaðurinn of mikill og svo fylgja því ýmis vandamál sem ekki fylgja loftlínum og möstrum. 29.9.2005 00:01
Fiskistofa flytur í Hafnarfjörð Eitt síðasta verk Árna Mathiesen fráfarandi sjávarútvegsráðherra var að flytja Fiskistofu í heimabæ sinn Hafnarfjörð. 29.9.2005 00:01
Skiptiaðstöðu vanti á karlasalerni Á Íslandi er greinilega ekki gert ráð fyrir að karlmenn skipti á börnum á ferðalögum þar sem í ljós hefur komið að aðeins einn söluskáli við þjóðveg eitt býður upp á slíka aðstöðu á karlasnyrtingu, það er veitingaskálinn á Brú í Hrútafirði - og er búið að vera í mörg ár. 29.9.2005 00:01
Seldu til fagfjárfesta í BNA Íslandsbanki gekk í dag frá samningi um skuldabréfaútgáfur fyrir rúmlega 1 milljarð bandaríkjadollara, sem jafngildir um 66 milljörðum íslenskra króna. Um 40% útgáfanna voru seld til bandarískra langtímafjárfesta og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur banki selur skuldabréf til bandarískra fagfjárfesta. 29.9.2005 00:01
Mótmæla uppsögnum á Siglufirði Bæjarráð Siglufjarðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Símans að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Siglufirði og segja upp tveimur starfsmönnum í ályktun sem ráðið sendir frá sér í dag. Þar er bent á að á tímum geti Siglufjörður verið einangraður staður og gríðarlega mikilvægt sé að á staðnum séu aðilar sem geta sinnt fyrirtækjum og einstaklingum varðandi fjarskiptamál. 29.9.2005 00:01
Mæla með viðræðum við Serba Sendimenn á vegum Evrópusambandsins gáfu í dag grænt ljós á að hefja undirbúningsviðræður við Serba og Svarfellinga um inngöngu þeirra í sambandið. Áður en viðræðurnar hefjast verða þó utanríkisráðherrar Evrópusambandslandanna að samþykkja þær en búist er við að þeir geri það á mánudaginn, en þá verða hér um bil liðin fimm ár frá því að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, var komið frá völdum. 29.9.2005 00:01
Samþykktu kjarasamning Nýr kjarasamningur milli SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu og SFH - Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SFR. Talning atkvæða fór fram síðastliðinn mánudag. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var um 56%. Já sögðu 71% en nei sögðu 28%. 29.9.2005 00:01
Kringlan stækkuð Hafist hefur verið handa við byggingu 1.700 fermetra viðbótar við suðurbyggingu Kringlunnar. Í vor opnar verslunin NEXT svokallaða „flaggskipsverslun" á tveimur hæðum í þessu húsnæði en NEXT hefur nú um 1.000 fermetra til umráða í Kringlunni. 29.9.2005 00:01
Wolfgang snýr aftur á flokksþing Walter Wolfgang, öldungurinn sem var hent út af þingi Verkamannaflokksins í Bretlandi í gær fyrir að grípa frammi í fyrir Jack Straw utanríkisráðherra, mætti aftur sigurreifur á ráðstefnuna í dag eftir að bæði Verkamannaflokkurinn og Tony Blair höfðu beðið hann afsökunar. Wolfgang, sem er 82 ára, var hent út af þinginu eftir að hann greip frammi fyrir Straw þegar hann var að verja innrásina í Írak og sagði orð ráðherrans kjaftæði. 29.9.2005 00:01
Þorsteinn J. ráðinn til 365 Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur hafið störf hjá 365 ljósvakamiðlum. Hann mun bæði starfa við þáttinn Ísland í dag og þáttagerð á Fréttastöðinni sem verið er að setja á laggirnar. Þorsteinn starfaði um árabil á Stöð 2 áður en hann sneri sér að heimildamyndagerð og öðrum tengdum verkum. 29.9.2005 00:01
Sakarefni hafa fyrnst Hluti sakarefna í málum Lífeyrissjóðs Austurlands hefur fyrnst í meðförum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á síðustu mánuðum, samkvæmt svörum embættisins til fjögurra sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði Austurlands sem kærðu fyrrverandi stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sjóðsins fyrir ólöglega meðferð á fjármunum sjóðsins. 29.9.2005 00:01
Búist við stormi Búist er við stormi sunnan- og vestan til á landinu í kvöld og miðhálendinu í nótt og á morgun. Einnig má búast við mjög sterkum vindhviðum á stöku stað, svo sem Kjalarnesi, Hafnarfjalli og víða við suðurströndina. Veðurstofan segir ástæðu til að vara ökumenn við sem leið eiga um þessa staði. 29.9.2005 00:01
Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. 29.9.2005 00:01
Biðjast afsökunar á aðild sinni Forráðmenn hollenska lestarkerfisins hafa í fyrsta sinn beðist afsökunar á því að hollenskar lestir skyldu hafa verið notaðar til að flytja gyðinga í útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að um hundrað þúsund gyðingar hafi verið sendir með hollenskum lestum í búðir í Austur-Evrópu en margir þeirra áttu ekki afturkvæmt. 29.9.2005 00:01
Fimm dómarar í Baugsmáli Hæstiréttur hefur þegar hafið skoðun á því hvort frávísun héraðsdóms í Baugsmálinu svokallaða sé réttmæt. Forseti Hæstaréttar hefur ákveðið að fimm dómarar muni dæma í kærumálinu varðandi ákvörðun héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá öllum fjörutíu ákæruliðum í Baugsmálinu svokallaða. 29.9.2005 00:01
Spörkuðu í höfuð manns Aðalmeðferð í máli tveggja tæplega tvítugra manna fór fram í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrr í vikunni. 29.9.2005 00:01
Morgunblaðið birti einkapósta Einkatölvupóstar Össurar Skarphéðinssonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síðum Morgunblaðsins. Blaðið birti jafnframt bréfaskipti Norðurljósa og Landsbankans vegna fjárhagsstöðu Norðurljósa. Ritstjóri Morgunblaðsins hefur undanfarið gagnrýnt Fréttablaðið fyrir að birta tölvupósta manna. </font /></b /> 29.9.2005 00:01
Opið daglega eftir áramót "Sögusagnir um að loka eigi Fjarskiptasafninu við Suðurgötu eru ekki sannar," segir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. 29.9.2005 00:01
Ahtisaari er líklegur Miklar getgátur eru nú uppi um hver mun hreppa Friðarverðlaun Nóbels, en tilkynnt verður um hverjir tilnefndir eru 7. október næstkomandi. 29.9.2005 00:01
Lausn ekki í sjónmáli Ráðið var í 22 stöðugildi starfsmanna leikskóla í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum frá Menntasviði Reykjavíkurborgar. Enn eru um 80 stöður á leikskólunum ómannaðar. Þá fengu um 100 börn pláss á frístundaheimilum í borginni. 29.9.2005 00:01
Kjósa um friðarsamkomulag Íbúðar Norður-Afríkulandsins Alsír kusu í gær um friðarsamkomulag, sem ríkisstjórnin trúir að muni hjálpa landinu við að rétta úr kútnum eftir 13 ára uppreisn heittrúaðra íslamstrúarmanna. Andstæðingar segja hins vegar að samkomulagið muni einungis hvítþvo glæpina sem áttu sér stað á þessum árum. 29.9.2005 00:01
Vill fjórða sæti Örn Sigurðsson arkitekt og formaður Höfuðborgarsamtakanna hefur skilað inn framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Örn sækist þar eftir fjórða til fimmta sæti á lista. Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar stóðu Höfuðborgarsamtökin fyrir sínu eigin framboði og var Örn þá í efsta sæti. 29.9.2005 00:01
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. 29.9.2005 00:01
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. 29.9.2005 00:01
Hlaut afgerandi kosningu Tilnefning John Roberts í stöðu hæstaréttardómara í Bandaríkjunum, var staðfest í öldungadeild Bandaríkjaþings í dag. Ákvörðun Georg Bush um að tilnefna Roberts var mjög umdeild á sínum tíma en hann fékk engu að síður afgerandi kosningu. 29.9.2005 00:01
Fréttin ekki mistök Mikael Torfason, annar af ritstjórum DV, kannast ekki við að frétt blaðsins á mánudag, um að Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Jónína Benediktsdóttir hafi átt í ástarsambandi á sama tíma og þau stóðu í tölvupóstsamskiptum vegna málefna Jóns Geralds Sullenberger hafi verið mistök. 29.9.2005 00:01
Hákon Eydal í sextán ára fangelsi Hákon Eydal var dæmdur til sextán ára fangelsisvistar fyrir morðið á fyrrum sambýliskonu sinni Sri Rahmawati. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Honum ber jafnframt að greiða börnum Sri bætur að upphæð 22 milljónir króna og þriggja og hálfrar milljónar króna sakarkostnað. 29.9.2005 00:01
50 látnir - 100 særðir Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu. 29.9.2005 00:01
Umræðu ekki lokið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir umræðuna um einkavæðinguna og hvernig að henni hafi verið staðið ekki lokið. Halldór Ásgrímsson sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag, að í ljósi þess að umboðsmaður Alþingis sjái ekki forsendu til þess að kanna hæfi hans við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum, sé orðið tímabært að stjórnarandstaðan láti af tortryggni sinni í garð hans. 29.9.2005 00:01
Álykta gegn framboði Íslands? Svo gæti farið að Landsfundur sjálfstæðismanna álykti gegn framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og krefjist þess að framboðið verði dregið til baka. Í drögum að ályktunum fyrir flokksþing Ungra sjálfstæðismanna segir að sambandið vilji að framboð Íslands verði dregið til baka. 29.9.2005 00:01
Gagnrýnir fyrningu Formaður Lögmannafélags Íslands, Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður, segir mjög baglegt ef sakir fyrnist í málum sem til rannsóknar eru hjá yfirvöldum vegna tafa á rannsóknum. Helgi segir það bagalegt fyrir hvort tveggja fórnarlömb brota og ekki síst fyrir meinta sakamenn ef mál fyrnist í meðförum lögreglu, eins og nú sé raunin í máli Lífeyrissjóðs Austurlands. 29.9.2005 00:01
Fatlaðir lyfta á Lækjartorgi Heimsmeistaramótið í aflraunum fatlaðra hefst á Lækjartorgi í dag. Tíu keppendur reyna með sér en íranskir aflraunamenn geta ekki tekið þátt þar sem þeir fengu ekki vegabréfsáritun í tæka tíð. </font /></b /> 29.9.2005 00:01
Fóstur í póstsendingu Lögreglumönnum rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þrjú fóstur fundust í póstsendingu á leið til Miami í gær. </font /> 29.9.2005 00:01
Brjótast milli heimsálfa Í það minnsta tveir létust þegar um sex hundruð manns reyndu að brjóta sér leið til Spánar yfir landamæri Marokkós. 29.9.2005 00:01
Skandall á Bifröst Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur áminnt sex nemendur skólans fyrir að halda úti heimasíðu þar sem dreift var óhróðri um aðra nemendur. Heimasíðunni hafði verið haldið úti um nokkurt skeið og bar heitið skandalar. Þar var aðfinna slúður og fleira um aðra nemendur skólans. Upplýsingafulltrúi skólafélagsins á Bifröst var meðal þeirra sem hélt úti síðunni, og sagði hann af sér í kjölfarið á áminningunni. 29.9.2005 00:01
Fá að snúa til baka Fleiri íbúar New Orleans mega snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. Sum hverfi hafa hreinlega þurrkast út. Íbúar átta tiltekinna póstnúmerasvæða mega vitja heimila sinna snemma í fyrramálið. 29.9.2005 00:01
Huntley-dómur staðfestur Hæstiréttur Bretlands hefur staðfest fjörutíu ára fangelsisdóm yfir Ian Huntley sem myrti vinkonurnar Jessicu Chapman og Holly Wells. 29.9.2005 00:01