Fleiri fréttir

Vill þjóðskrána til Ísafjarðar

"Þetta smellpassar við stefnu ríkisstjórnarinnar," segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sem vill að Hagstofan flytji starfsemi sína til Ísafjarðar.

Utanbæjargjald leggst af

Sameining takmörkunarsvæða leigubíla á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík og Reykjanesbæ tekur gildi á morgun, samkvæmt auglýsingu samgönguráðuneytisins. Við þetta leggst utanbæjargjald af innan svæðisins, en á daginn var það rúmar 219 krónur á kílómetra. Venjulegt daggjald er tæpar 95 krónur.

Sextán ára fangelsi staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms frá því í mars yfir Hákoni Eydal, banamanni Sri Rahmawati. Hákon skal sæta fangelsi í sextán ár fyrir morð á fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður.

Bakvakt hjá héraðsdómstólunum

Lágmarksstarfsemi er hjá dómstólum landsins vegna árshátíðar Dómstólaráðs sem haldin er í Kaupmannahöfn núna um helgina.

Sextán ára fangelsi staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms frá því í mars yfir Hákoni Eydal, banamanni Sri Rahmawati. Hákon skal sæta fangelsi í sextán ár fyrir morð á fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður.

Vöktu Þorlákshöfn

"Þetta var sérsveit ríkislögreglustjóra sem í daglegu tali er kölluð víkingasveitin," segir Jón F. Bjartmarz, yfirmaður sérsveitarinnar. Kvartanir hafa borist dómsmálaráðuneyti og ríkislögreglustjóra frá íbúum í Þorlákshöfn um hávaðamengun aðfaranótt þriðjudags frá æfingum víkingasveitarinnar. 

Rauf skilorð með skutlinu

Tuttugu og eins árs gamall maður var nýlega dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að aka félaga sínum af vettvangi innbrots í Reykjavík í mars í fyrra og fara með þýfið á heimili sitt í Breiðholti.

Milljarðar í aukinn kostnað

Vatnsagi og misgengi í jarðlögum hefur tafið borun ganga Kárahnjúkavirkjunar. Impregilo og Landsvirkjun semja um viðbótarkostnað vegna verksins. Fyrir dyrum stendur að fylla neðanjarðarhelli af steypu.

Slagurinn um þriðja sætið

Prófkjör Reykjavíkurfélags vinstri grænna verður á morgun. Úrslitin fyrir fyrstu tvö sæti listans eru sögð liggja fyrir, en slagurinn standi um þriðja sætið. Líklegast þykir að baráttan verði milli Gríms Atlasonar, Sóleyjar Tómasdóttur og Þorleifs Gunnlaugssonar.

Dagur útilokar ekki framboð

Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar á miðvikudagskvöld var ákveðið að halda opið stuðningsmannaprófkjör vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík helgina 11.-12. febrúar. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort allir sem lýsa yfir stuðningi við Samfylkingu mega kjósa, eða kosning verði opin öllum.

Sátt um Bílanaustsreit

Borgarráð samþykkti í gær breytingu á deiliskipulagi Bílanaustsreitsins. Vegna deilna við íbúa í nærliggjandi hverfum hefur orðið töf á samþykkt deiliskipulagsins. Nú hefur verið ákveðið, í samráði við íbúa, að um 230-270 íbúðir muni rísa á reitnum.

Heilu hent

Það færist í vöxt að Íslendingar hendi ökufærum bílum. Hringrás við Sundahöfn eyðileggur í hverjum mánuði fjölda bíla sem fólk kemur akandi á. Það kemur kannski á óvart að margir bílanna eru alls ekki bara brotajárn og mjög oft ökufærir.  

Hestasundlaug nauðsyn

Það bráðvantar hestasundlaug hér á landi. Þetta hljómar kannski eins og grín en hestamönnum er dauðans alvara. Reykjavíkurborg mun væntanlega breyta deiliskipulagi í Víðidal svo þar megi gera eina slíka.

Skógareldar í Kaliforníu

Miklir skógareldar geisa nú við Los Angeles. Þrettán hundruð slökkviliðsmönnum gengur lítið sem ekkert að ráða við þá.

Greiðslubyrði hækkar

Íbúðaverð á höfuborgarsvæðinu er vel yfir meðalverði húsnæðis í helstu stórborgum Evrópu. Þriggja herbergja íbúð sem kostaði 16 milljónir í ársbyrjun 2004 kostar tuttugu og þrjár milljónir nú. Greiðslubyrðin hefur hækkað um sautján þúsund krónur á mánuði þrátt fyrir vaxtalækkanir.

Hæstiréttur í Baugsmáli

Forseti hæstaréttar hefur ákveðið hverjir munu sitja í dómnum sem fjallar um Baugsmálið. Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vísaði úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun á öllum ákærum í Baugsmálinu til hæstaréttar í síðustu viku. Forseti hæstaréttar hefur nú ákveðið hvaða fimm dómarar fjalli um málið. Þeir eru: forsetinn sjálfur, Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Skýr skilaboð Umboðsmanns

Forsætisráðherra telur að ákvörðun umboðsmanns Alþingis um að kanna ekki hæfi hans við sölu Búnaðarbankans feli í sér skilaboð til stjórnarandstöðunnar um að grafa stríðsöxina. Hann segir að þau atriði sem umboðsmaður hafi spurt um séu þegar til skoðunar í ráðuneytinu.

Enn vantar hjúkrunarrými

Hjúkrunarheimili með hundrað og tíu rýmum rís í Sogamýrinni á þarnæsta ári. Það hrekkur þó skammt miðað við núverandi biðlista. Heilbrigðisráðherra vill leysa vandann með því að stórbæta heimaþjónustu við aldraða.

Bretum blöskrar óhollustan

Bretum blöskrar óhollustan í grunnskólum landsins og vilja hamborgara og pítsur burt úr mötuneytunum með lögum hið snarasta. Sælgæti, snakk og gos í skólastofunni mun einnig heyra sögunni til

Töf á aðildarsamningum við Tyrki?

Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að samninganefnd Tyrklands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði ekki send til að hefja viðræðurnar nema henni berist fyrst skjalið sem geymir samningsumboð ESB. "Auðvitað er hugsanlegt að viðræðurnar hefjist ekki," sagði hann, en áformað var að þær hæfust á mánudag.

Yfir 60 manns sprengdir í Írak

Þrír sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu í gær nær samtímis bílsprengjur í bæ norður af Bagdad, þar sem flestir íbúar eru sjía-múslimar. Að minnsta kosti sextíu manns létu lífið og um 70 særðust, að því er sjúkrahúslæknir greindi frá. Fimm bandarískir hermenn féllu í sprengingu í bæ í vesturhluta landsins.

Abu Ghraib-myndir skulu afhentar

Aðgangur skal veittur að áður óbirtum ljósmyndum af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Þetta var niðurstaða bandarísks alríkisdómara í New York, en hann gekk þvert á vilja bandarískra stjórnvalda sem segja dreifingu myndanna skaða ímynd Bandaríkjanna.

Lögregla ásökuð um gripdeildir

Talsmenn lögreglunnar í New Orleans greindu frá því í gær að hafin væri rannsókn á því hvað hæft væri í ásökunum um að á annan tug lögreglumanna hefðu gerst sekir um þátttöku í gripdeildum í ringulreiðinni í kjölfar fellibylsins Katrínar.

Kanadaher haldið á horriminni

Kanadíski herinn er "veiklaður" og allt of litlu fjármagni er varið til varna landsins. Þetta er niðurstaða skýrslu sem unnin var á vegum öldungadeildar kanadíska þingsins og birt var í gær.

Kópavogs-kjarasamningur felldur

Félagsmenn í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu í gær kjarasamning sem skrifað var undir þann 20. september. "Við munum hugsa málið um helgina, hvað verður næsta skref, afla verkfallsheimildar eða skjóta málinu aftur til ríkissáttasemjara," segir Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður félagsins.

Ekki ráðinn nýr umboðsmaður

Jónas R. Jónasson hefur sagt upp störfum sem umboðsmaður íslenska hestsins. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mun að líkindum ekki ráða nýjan umboðsmann. Fjármunum verður þá veitt til stofnanna eða félagasamtaka sem vinna að markaðsmálum hestsins.

Greiddi 226 þúsund fyrir fæðingu

Hjónum á Akureyri var gert að greiða tæpar 226 þúsund krónur fyrir fæðingarhjálp á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Konan er frá Filippseyjum og er enn utan almannatryggingakerfisins. Tryggingafélag neitar að greiða kostnaðinn.

Vodafone býður nú Mobile Connect

Og Vodafone hefur hafið sölu á Vodafone Mobile Connect, gagnaflutningskorti, fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Gagnaflutningskortið býr yfir SIM korti sem gerir fartölvunotendum mögulegt að tengjast Netinu þráðlaust, óháð stað og stund. Með þessum hætti getur fólk ávallt haft aðgang að þeim gögnum og hugbúnaði sem á þarf að halda.

Næstæðsti maður al-Qaida drepinn

Bandarískar og íraskar öryggissveitir hafa ráðið annan valdamesta yfirmann innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Bagdad af dögum. Abdullah Abu Azzam er talinn hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðsárása í borginni síðan í apríl sem orðið hafa hundruðum að bana en fimmtíu þúsund dollarar voru settir honum til höfuðs eða rúmlega þrjár milljónir króna.

Baugur undirbýr skaðabótamál

Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson.

Bolli endurkjörinn formaður

Bolli Thoroddsen var í gærkvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, til eins árs. Bolli hlaut 528 atkvæði en mótframbjóðandi hans Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson fékk 458 atkvæði. Tæplega ellefu hundruð félagsmenn greiddu atkvæði á aðalfundinum í gærkvöldi sem Heimdellingar segja þann fjölmennasta í sögu félagsins.

England dæmd í 3 ára fangelsi

Lynndie England, sem í gær var fundin sek um að hafa misþyrmt og niðurlægt íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi. Baðst England afsökunar á framferði sínu eftir að dómurinn var kveðinn upp en sagðist jafnframt hafa gert það að undirlagi þáverandi unnusta síns, sem einnig var hermaður.

Gera við rafmagnsstaura í dag

Starfsmenn RARIK á Vesturlandi bíða þess nú að komast upp á Fróðárheiði í birtingu til þess að gera við rafmangnsstaura sem brotnuðu í veðurofsanum á Snæfellsnesi í gærmorgun. Vegna slæmra veðurskilyrða, ísingar og mikillar veðurhæðar reyndist ekki unnt að gera við bilunina í gær. Á meðan er íbúum í Ólafsvík, á Hellisandi og Rifi séð fyrir rafmagni með dísilvélum.

Vara við flóðum vegna fellibyls

Yfirvöld í Víetnam gáfu í dag út flóðaviðvaranir í kjölfar þess að fellibylurinn Damrey reið yfir norður- og miðhluta landsins. Þegar hafa fimm látist af völdum fellibylsins í landinu. Yfirvöld höfðu komið upp sjóvarnargörðum til þess að reyna að koma í veg fyrir flóð vegna fellibylsins en skörð komu í garðana þannig að það flæddi m.a. yfir hrísgrjónaakra á svæðinu.

Tilbúnir til viðræðna við Taívana

Kínversk stjórnvöld segjast tilbúin hvenær sem er til að hefja viðræður við Taívan um samband þessara tveggja þjóða. Li Wei Yi, talsmaður Kína í málum Taívana, sagði í yfirlýsingu sem stjórnvöld sendu frá sér í gær að mikilvægt væri fyrir báða aðila að gott samkomulag væri þarna á milli og að unnið yrði í því að bæta þau.

Rafmagn fór af Gasaborg eftir árás

Allt rafmagn fór af Gasaborg eftir að Ísraelsher skaut tugum eldflauga á svæðið í gærkvöld skömmu eftir að herskáir Palestínumenn höfðu lofað að hætta árásum en síðan skotið eldflaug á Ísrael.

Kveiktu í gámum í Eyjum

Ungir drengir kveiktu í óvitaskap í tveimur gámum í Vestmannaeyjum í gær með þeim afleiðingum að ýmis búnaður frjálsíþróttafélagsins Óðins, sem var í öðrum gámnum, stórskemmdist. Ekkert tjón varð í hinum gámnum. Drengirnir forðuðu sér en í gærkvöldi kom hið sanna í ljós og var rætt við foreldra drengjanna sem eru fullir iðrunar.

Mannskætt rútuslys í Perú

Að minnsta kosti átján manns létust og 40 slösuðust þegar tvær rútubifreiðar lentu í árekstri á hraðbraut í Perú í gærkvöld. Slysið varð 270 kílómetra suður af höfuðborginni Lima þegar önnur rútan reyndi að fara fram úr bíl en ók þá í veg fyrir aðra rútu sem kom úr gagnstæðri átt.

Dregur úr bjartsýni landsmanna

Nokkuð hefur dregið úr bjartsýni landsmanna á þróun efnahagsmála samkvæmt væntingavísitölu Gallup, mánuði eftir að hún mældist hæst síðan farið var að reikna út vísitöluna í mars árið 2001. Einkum hefur dregið úr bjartsýni fólks á hvernig efnahagurinn verður eftir hálft ár og tiltrú fólks á efnahagslífinu. Eftir sem áður eru þó fleiri bjartsýnir á framtíðina en svartsýnir.

Tekinn af lífi fyrir morð

Alan Matheney var tekinn af lífi í Indiana í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma. Matheney var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni. Morðið framdi hann árið 1989 þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi þar sem hann afplánaði fyrri fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi.

Leituðu músar í flugvél

Heldur óvenjulegur laumufarþegi fannst í flugvél á vegum Qatar Airways þegar verið var að undirbúa flugtak frá flugvellinum í Maníla á dögunum. Einn úr áhöfinni kom þá auga á litla mús sem skaust á milli sæta í farþegarými vélarinnar. Flugstjórinn greip til þess ráðs að skipa öllum 250 farþegunum að fara út út vélinni á meðan reynt var að ná nagdýrinu.

Margir særðir eftir sprengjuárás

<font size="2"> Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við nýliðaskráningu í bænum Tal Afar í Írak rétt í þessu. Árásarmaðurinn lést sjálfur í árásinni og að minnsta kosti sautján manns særðust í árásinni. Engar fréttir hafa enn borist af því að aðrir en árásarmaðurinn hafi farist í árásinni. </font>

Hyggjast banna ruslfæði í skólum

Ruth Kelly, menntamálaráðaherra Bretlands, tilkynnir í dag á þingi Verkamannaflokksins að til standi að banna allt ruslfæði í breskum skólum innan árs í viðleitni til að bæta heilsu breskra barna. Umræða um hollari máltíðir í skólum komst í hámæli í kosningunum í Bretlandi í vor en þá vakti sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver athygli á málinu og hefur hann leitt baráttuna fram til þessa.

Nýr landsstjóri í Kanada

Michaëlle Jean sór í gær embættiseið sem nýr landsstjóri í Kanada en hún er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir þessu embætti. Skipan hennar hefur verið vel tekið víðast hvar í Kanada en var þó ekki óumdeild. Landsstjórinn er fulltrúi Bretadrottningar sem er eiginlegur þjóðhöfðingi Kanada.

Guðmundur bæjarstjóri á Akranesi

Guðmundur Páll Jónsson tekur við starfi bæjarstjóra á Akranesi 1. nóvember næstkomandi, þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í gær. Guðmundur leysir Gísla Gíslason sem verið hefur bæjarstjóri í átján ár af hólmi en Gísli verður hafnarstjóri Faxaflóahafna sem reka hafnirnar í Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi og Grundartanga. Guðmundur Páll hefur setið í bæjarstjórn Akraness fyrir Framsóknarflokkinn frá árinu 1994, síðasta árið sem formaður bæjarstjórnar.

Sjá næstu 50 fréttir