Fleiri fréttir

Bæjarstjórn styður sameiningu

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir stuðningi sínum við sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandarhrepps í kosningum 8. október í tilkynningu sem hún sendir frá sér í dag. Þá hvetur bæjarstjórnin íbúa í Hafnarfirði til að kynna sér vel þær upplýsingar sem liggja fyrir og jafnframt að taka þátt í kosningunum.

Birgja sig upp af fuglaflensulyfi

Yfirvöld á Taílandi hafa komið sér upp miklum birgðum af lyfinu Tamiflu sem er eina þekkta lyfið sem hægt er að nota gegn fuglaflensu í mönnum. Með þessu vilja stjórnvöld vera við öllu búin ef veikin verður að faraldri í landinu, en fuglaflensa greindist í fólki í landinu á síðasta ári.

Viðræður hefjast á ný í Þýskalandi

Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtog Kristilegra demókrata, hefja í dag aftur viðræður um myndun samsteypustjórnar í Þýskalandi í kjölfar kosninga til þýska sambandsþingsins 18. september síðastliðinn. Viðræður hófust í síðustu viku en upp úr þeim slitnaði þar sem bæði Merkel og Schröder gerðu bæði tilkall til kanslaraembættisins, en fylkingar þeirra fengu svipað fylgi í kosningunum.

Þórhallur ráðinn til Sjónvarpsins

Þórhallur Gunnarsson hefur verið ráðinn ritstjóri nýs dægurmálaþáttar í Sjónvarpinu sem hefur haft vinnuheitið Opið hús og verður á dagskrá á eftir kvöldfréttum. Þórhallur, sem hefur unnið við Ísland í dag á Stöð 2 undanfarin misseri, kemur í stað Loga Bergmanns Eiðssonar sem flutti sig yfir á Stöð 2 í gær.

Barin fyrir að kvarta undan látum

Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði kvartað undan partílátum og næturhávaða aðfararnótt sunnudags.

Hrossadeyfilyf notað sem dóp

Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því.

Bregðist við fréttum Fréttablaðs

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta <em>Fréttablaðsins</em> sem byggja á tölvupóstum sem það hefur komist yfir. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Sturla segir í bréfi sem hann hefur ritað stofnuninni að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóti ríkrar verndar í stjórnarskrá og fjarskiptalögum.

Ekki einhugur um sameiningu

Bæði bæjarstjórn Hafnarfjarðar og hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps hvetja íbúa sína til að taka þátt í kosningum um sameiningu þessara sveitarfélaga 8. október. Ekki ríkir þó einhugur um væntanlega sameiningu hjá hreppsnefnd Vatnleysustrandarhrepps.

Óvíst hvort skútu verður bjargað

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reyna á að bjarga skútunni Vamos sem nú rekur stjórnlaust í vonskuveðri um 160-170 kílómetra frá Straumnesi norðvestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæslunni sagði að vonskuveður væri á þessu svæði sem er innan grænlenskrar lögsögu en þó innan leitar- og björgunarsvæðis Landhelgisgæslunnar.

Írakar reiðir vegna dóms

Reiði braust út meðal almennings í Írak þegar kunnugt varð að Lynndie England fengi aðeins þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma og niðurlægja írakska fanga í Abu Ghraib fangelsinu.

Hryllingssögur hafi verið ýktar

Komið hefur í ljós að hryllingssögur frá New Orleans í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna voru orðum auknar eða jafnvel uppspuni frá rótum. Þetta þykir áfall fyrir bandaríska fjölmiðla.

Útlit fyrir metár í laxveiði

Flest bendir til þess að laxveiðin í ár nemi um það bil 55 þúsund löxum, sem er rösklega tvö þúsund löxum meira en metárið 1978.

Athuga ástæðu til rannsóknar

Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins.

Járnaldarfrú finnst í Danmörku

1600 ára gamalt lík af konu fannst í Taastrup í Danmörku á mánudag. Konan, sem hefur nú hlotið hefur nafnið Járnaldarfrúin, hefur að líkindum verið öldruð þegar hún lést, en líkið hefur varðveist mjög vel. Það sama gildir um dýrindis perluklæði hennar og skartgripi sem þykja benda til að hún hafi verið af háum stigum.

Loka skóla vegna Danmerkurferðar

Skólastarf liggur niðri í Nesskóla á Neskaupstað fram á þriðjudag meðan skólastjóri og flestir kennarar fara í fræðslu- og skemmtiferð til Esbjerg í Danmörku. Ólafur H. Sigurðsson skólastjóri segir tilganginn með ferðinni tvíþættan, annars vegar að kynna sér skólastarfið í Esbjerg, hins vegar sé þetta í og með skemmtiferð fyrir kennarana.

Ekki meiri vöruskiptahalli í 10 ár

Gríðarlegur innflutningur og gengi krónunnar hefur leitt til þess að Íslendingum hefur tekist að slá nýtt met í vöruskiptahalla við útlönd sé miðað við undanfarin tíu ár.

Sigríður Anna samstarfsráðherra

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra er orðin samstarfsráðherra Norðurlanda og tekur við því starfi af Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fyrsta verkefni Sigríðar Önnu verður að funda með samstarfsráðherrum Norðurlandanna vegna Norðurlandaráðsþings sem haldið verður í Reykjavík undir lok næsta mánaðar.

Tafir á umferð í Svínadal

Lögreglan í Búðardal segir að töluverðar tafir verði á umferð um Svínadal í Dalasýslu fram eftir degi þar sem verið er að ná upp fjárflutningabíl sem valt þar í gær. Vegfarendum er bent á nota veginn um Fellsströnd í staðinn.

Ráðist á hersveitir í Kabúl

Níu létust og 27 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás á afganskar hersveitir í Kabúl fyrir stundu. Ekki hafa enn borist fregnir af því hver ber ábyrgð á árásinni. Hermennirnir sátu í rútu á leið frá þjálfunarbúðum í útjarðri borgarinnar. Þrjár aðrar rútur skemmdust í sprengingunni.

Vill kosningabandalag á Ísafirði

Vinstri - grænir á Ísafirði vilja bjóða fram sameiginlegan lista með Samfylkingunni og Frjálslynda flokknum við bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður Vinstri - grænna á Ísafirði, segir það mat Vinstri - grænna að sameiginlegt framboð hefði möguleika á að ná meirihluta í bæjarstjórn, en í dag mynda Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur meirihluta í bæjarstjórn.

Geir hættir í stjórnarskrárnefnd

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur að ósk Geirs H. Haarde leyst hann undan skyldum sínum í stjórnarskrárnefnd. Í stað Geirs tekur Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sæti í stjórnarskrárnefndinni. Geir tók í gær við starfi utanríkisráðherra þegar Davíð Oddsson hætti í ríkisstjórn eftir fjórtán ára ráðherratíð.

Skortur á skiptiborðum á salernum

Einungis einn söluskáli við þjóðveg eitt býður upp á aðstöðu til umönnunnar ungbarna á karlasnyrtingu. Þetta kemur fram í könnun sem Jafnréttisráð og félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri stóðu að á nýliðnu sumri.

Fordæmir vinnubrögð lögreglu

Femínistafélag Íslands átelur vinnubrögð lögreglunnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. 

Skoðar ekki hæfi Halldórs

Umboðsmaður Alþingis segist ekki ætla að skoða að eigin frumkvæði hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra vegna sölu ríkisins á Búnaðarbankanum. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi höfðu sent umboðsmanni erindi þar sem hann var hvattur til að kanna hæfi Halldórs í tengslum við sölu bankans.

Enga óhollustu í breskum skólum

Nemendur í breskum skólum mun innan árs aðeins vera borinn á borð hollur matur í skólamötuneytum. Banna á allan fituríkan mat, saltan og sykraðan í mötuneytum í enskum skólum og jafnframt alla sjálfsala sem selja gos og sælgæti.

Talíbanar lýsa yfir ábyrgð

Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem gerð var á afganskar hersveitir í Kabúl í dag. Níu létust og tuttugu og sjö særðust í árásinni.

Ketamín einnig notað hér á landi

Ketamín, staðdeyfilyf fyrir hesta sem Sky-sjónvarpsstöðin greindi í dag frá að sé notað á breskum næturklúbbum sem vímugjafi, hefur borist hingað til lands á síðustu árum í nokkrum mæli að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík

Hyggjast hraða stjórnarmyndun

Kazimierz Marcinkiewicz, sem væntanlega verður næsti forsætisráðherra Póllands, hét því í gær að mynda "sterka og stöðuga" ríkisstjórn, er hægriflokkarnir tveir sem unnu nýafstaðnar þingkosningar settu sig í stellingar til að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Þórir ráðinn varafréttastjóri

Þórir Guðmundsson hefur verið ráðinn varafréttastjóri Stöðvar 2. Þórir var meðal fyrstu starfsmanna fréttastofu Stöðvar 2 þegar hún hóf starfsemi fyrir 19 árum. Hann vann fyrir Alþjóða Rauða krossinn í tæp fjögur ár en síðustu sex ár hefur hann verið yfirmaður útbreiðslusviðs Rauða kross Íslands.

Þreifingar í Þýskalandi

Aðstoðarmenn Gerhards Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands úr Jafnaðarmannaflokknum, og Angelu Merkel, formanns Kristilegra demókrata, sýndu engin merki um vilja til málamiðlunar í deilunni um það hvort þeirra ætti að verða kanslari er forystumenn beggja flokka settust niður í gær til að halda áfram þreifingum um hugsanlegt stjórnarsamstarf.

Ellilífeyrisþega varpað á dyr

Ellilífeyrisþega var kastað út af flokksþingi Verkamannaflokksins í Bretlandi, eftir að hafa kallað fram í ræðu Jack Straw utanríkisráðherra.

Hótelherbergjum fjölgar um 38%

Hótelherbergjum í Reykjavík mun fjölga um rúmlega 800 á næstu fjórum árum, ef fram heldur sem horfir, eða um þrjátíu og átta prósent. Þar vegur þyngst 400 herbergja fimm stjörnu hótel sem gert er ráð fyrir að opni árið 2009 í tengslum við nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið.

Harka gegn Hamas

Ísraelsher hélt áfram hernaðaraðgerðum sínum í gær gegn herskáum Palestínumönnum. Ísraelar segja hörkuna nauðsynlega en Hamas telur að verið sé að veikja samtökin í pólitísku tilliti.

Sjálfsmorðssprengja í Kabúl

Sjálfsmorðsprengjumaður á mótorhjóli sprengdi vítisvél sína fyrir utan þjálfunarbúðir hermanna í Kabúl í gær með þeim afleiðingum að níu létust og 28 særðust.

Varar við auknu ofbeldi í Írak

George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við auknu ofbeldi í Írak á næstunni, eða þar til kosið yrði um nýja stjórnarskrá landsins. Sex fórust og þrjátíu særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við skráningarstöð írakska hersins við landamæri Sýrlands í dag.

Kona framdi sjálfsmorðsárás

Ung kona, dulbúin sem karlmaður, framdi sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tal Afar í norðanverðu Írak í gær.

Ýkjur einkenndu fréttaflutninginn

Heimsbyggðin fylltist óhug eftir að hafa heyrt fréttaflutning af afleiðingum fellibylsins Katrínar. Nú er hins vegar að koma í ljós að fréttirnar voru í mörgum tilvikum meira í ætt við tröllasögur en raunverulegar lýsingar á því sem gerðist.

Lynndie fékk þriggja ára dóm

Herréttur í Texas dæmdi í fyrrakvöld Lynndie England í þriggja ára fangelsi fyrir að niðurlægja og misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.

Damrey veldur meiri usla

Tólf lágu í valnum eftir að fellibylurinn Damrey fór yfir Víetnam í gær. Alls hafa 46 látist af völdum óveðursins í Suðaustur-Asíu.

Rangfærslur í fréttum

Danska útvarpsréttarnefndin hefur áminnt ríkisreknu sjónvarpsstöðina TV2 fyrir að birta fréttir um glæpagengi innflytjenda sem beinlínis voru byggðar á rangfærslum.

Tekinn af lífi

Yfirvöld í Indiana tóku í fyrrinótt Alan Matheney af lífi með eitursprautu en hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni árið 1989.

Kornakrar fallnir víða um land

Kornakrar féllu víðast á Norðurlandi og nokkuð á Vesturlandi í hretinu síðustu daga. Bændur stefna þó að því að reyna að þreskja það fyrir því, þó það taki mun meiri tíma. Tíðarfarið hefur verið erfitt fyrir kornbændur í þessum landshlutum í sumar.

Sjötug kona beitt ofbeldi

Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum aðfarafótt sunnudags eftir að hafa kvartað undan hávaða hjá nágrönnum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er atburðarásin óljós, en konan virðist hafa bankað upp á í íbúðinni fyrir ofan hennar og gert athugasemdir við gleðskapinn.

Ágreiningur á Álftanesi

Bæjarstjórn Álftaness greinir á um þá fyrirætlan að leigja undir aðstöðu frá Hjúkrunarheimilinu Eir, en það er nú að fara að byggja öryggisíbúðir og þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Innan bæjarfélagsins er í skoðun að það leigi húsnæði sem tengist þessum byggingum af Eir til fjörutíu ára og noti undir stjórnsýslu og bókasafn.

Yfirfullur Landsspítali

"Það er mjög erfitt ástand um þessar mundir því við stjórnum ekki aðstreymi sjúklinga," segir Magnús Pétursson, forstjóri Landsspítala-Háskólasjúkrahúss. "Bæði er verið að taka á móti bráðveiku fólki en líka fólki sem hefur verið á biðlistum. Þetta er háannatími og það leiðir til þess að spítalinn er yfirfullur og rúmlega það."

Sjá næstu 50 fréttir