Fleiri fréttir

Skuldaaukning upp á 240 milljarða

Heildarútlán bankakerfisins hafa aukist um nær áttahundruð og fimmtíu milljarða króna á einu ári. Sú útlánaaukning jafngildir nær þreföldum fjárlögum íslenska ríkisins.

Akureyri, Ísafjörður, Egilsstaðir

Stýrihópur um framtíðarskiplag í Vatnsmýrinni hefur uppi áform um að halda kynningarfundi á Ísafirði, Akureyri og Egilstöðum um hugsanlegan flutning Reykjavíkurflugvallar. Stefnt er að því að kynna málið fyrir notendum utan höfuðborgarsvæðisins. Fundina stendur til að halda í lok október.

Sekur um samsæri

"Ég hef ekkert gert af mér. Ég er saklaus," sagði repúblíkaninn Tom DeLay á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington í gær. DeLay þurfti að yfirgefa stöðu sína sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði hann sekan um samsæri og lögbrot í fjármögnun á kosningabaráttu.

Fullbrúklegir hlutir látnir liggja

Það eru ekki bara skósmiðir og fatahreinsanir sem sitja uppi með ósótta fullbrúklega hluti - hjá gullsmiðum og saumastofum svigna fataslár og læstar skúffur undan dýru skarti og klæðum sem eigendur hirða ekki um að sækja.

Nýr varafréttastjóri

Þórir Guðmundsson var í gær ráðinn varafréttastjóri Stöðvar 2. Hann mun stýra gæða- og þróunarstarfi á fréttastofunni auk þess að flytja erlendar fréttir.

Vill sérstök viðbrögð

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta í Fréttablaðinu sem byggja á skjölum sem blaðið hefur komist yfir.

Sjálfstæðir leikskólar fullmannaði

"Vandamál við að manna leikskólana okkar eru óþekkt og enginn þeirra hefur staðið frammi fyrir því að þurfa að loka deildum," segir Margrét Pála Ólafsdóttir, formaður Samtaka sjálfstæðra skóla. Samtök sjálfstæðra skóla eru regnhlífarsamtök sjálfstætt rekinna leik- og grunnskóla.

Norðurpóllinn að bráðna?

Nýliðið sumar varð það hlýjasta á norðurpólnum í 400 ár, og ekki hefur verið minni ís á pólnum í heila öld. Ísinn hefur minnkað um 30% síðan árið 1978, og bráðnunin verður sífellt hraðari.

Enn vantar starfsfólk

Foreldrar þurfa bara að standa sína plikt. Þetta voru svörin sem foreldrar barna í leikskólanum Laufskálum í Grafarvogi fengu hjá borgarfulltrúum í gærkvöld.

Háspennulína lögð í jörð

Hitaveita Suðurnesja mun að öllum líkindum grafa rafstreng frá Reykjanesvirkjun í jörðu, en það kostar ríflega fimmfalt meira en að leggja loftlínu. Ástæðan er samkomulag við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands sem höfðu áhyggjur af sjónmengun á svæðinu.

Rúmt tonn af rusli

Frá hverri fimm manna fjölskyldu í Reykjavík kemur rúmt tonn af rusli á hverju ári. Borgaryfirvöld kynntu í dag sérstakt átak sitt í umhverfismálum, eða vitundarvakningu eins og það er kallað.

Bolli endurkjörinn formaður

Bolli Thoroddsen var á þriðjudaginn endurkjörinn formaður Heimdallar á aðalfundi félagsins. Yfir þúsund manns greiddu atkvæði á fundinum, sem mun vera sá fjölmennasti í sögu félagsins.

Einkabílar stærri og kraftmeiri

Einkabílum í Reykjavík hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og mun hraðar en Reykvíkingum. Árið 2004 voru í borginni um 610 bílar á hverja þúsund íbúa, samanborið við 463 bíla árið 1996. "Það eru mörk sem eru miklu nær Norður-Ameríku en Norðurlöndunum," segir Hjalti J. Guðmundsson, yfirmaður Staðardagskrár 21. 

Óttast um bandaríska skútu

Fokker-vél og stóra þyrla Landhelgisgæslunnar voru rétt í þessu að koma á vettvang bandarískrar skútu með tveimur mönnum um borð sem virðist í nauðum stödd í afleitu veðri um 110 sjómílur út af Vestfjörðum á milli Íslands og Grænlands. Sendingar frá neyðarsendi skútunnar fóru að heyrast upp úr klukkan hálfeitt í nótt.

Hafi greitt Jóni 120 milljónir

Forráðamenn Baugs greiddu Jóni Gerald Sullenberger 120 milljónir króna til þess að losna út úr málaferlum sem þeir sjálfir höfðu efnt til í Bandaríkjunum gegn Jóni að því er Styrmir Gunnarsson, ritstjóri <em>Morgunblaðsins</em>, upplýsir í grein um málið i blaðinu í dag.

Losnar hugsanlega úr haldi

Vonir standa til að Aron Pálmi Ágústsson þurfi ekki að dvelja lengur í haldi skilorðsnefndar Texas í bænum Tyler heldur fái að gista hjá bróður fyrrverandi eiginkonu stjúpföður síns sem þar býr. Aron Pálmi var handtekinn í fyrrinótt og ekki leyft að halda áfram ferð sinni til San Antonio með öðru fólki frá heimabæ hans Beaumont.

Fá að snúa aftur til New Orleans

Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, hefur leyft íbúum borgarinnar að snúa aftur til síns heima í kjölfar þess að litlar skemmdir urðu af völdum fellibylsins Rítu, sem fór yfir Texas og Louisiana á laugardag. Á næstu tíu dögum er því búist við að um 180 þúsund manns snúi aftur en yfir hálf milljón manna yfirgaf borgina fyrir fjórum vikum.

Stúlka sem leitað var að fundin

Sautján ára stúlka, sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær, eftir að hafa verið saknað í rúman hálfan mánuð, fannst í heimahúsi í borginni í gær. Ástæða þess að ekki var lýst eftir henni fyrr er að vitað var að hún vildi fara huldu höfði. Hún hefur nú verið vistuð á viðeigandi stofnun.

Hafi hótað Jóhannesi í Bónus

Jónína Benediktsdóttir krafðist þess að Jóhannes Jónsson í Bónus keypti líkamsræktarstöðina Planet Pulse af sér ella myndi hún birta gögn sem hún hefði um Baug að því er fram kemur í <em>Fréttablaðinu</em> í dag. Blaðið birtir tölvupóst sem Jónína sendi Tryggva Jónssyni, þáverandi forstjóra Baugs.

Tveir létust í bruna í Moskvu

Tvær konur létust þegar eldur kom upp í íbúðarblokk í Moskvu í morgun. Alls var 150 manns bjargað úr byggingunni en fjórir voru fluttir á sjúkrahús en eru þó ekki taldir í lífshættu. Ekki er vitað um eldsupptök og er málið í rannsókn.

Óttast að uppskera hafi eyðilagst

Eyfirskir bændur óttast að kornuppskera á um það bil áttatíu hektörum af kornökrum hafi eyðilagst í norðan áhlaupinu, sem er alvarlegt áfall fyrir þessa nýju búbót bænda. Svarfdælskir bændur fara einkum illa út úr þessu, að því er kemur fram á Degi. net, því þreksivélin sem kom þangað í síðustu viku bilaði og komst ekki í lag aftur fyrr en það var orðið um seinann.

Efast um að IRA hafi afvopnast

Þrátt fyrir að staðfest hafi verið að Írski lýðveldisherinn, helstu samtök herskárra aðskilnaðarsinna á Norður-Írlandi, hafi eytt öllum vopnum sínum segist Ian Paisley, leiðtogi sambandssinna á Norður-Írlandi, ekki sannfærður um að búið sé að eyða öllum vopnum samtakanna.

Síðasti ríkisstjórnarfundur Davíðs

Davíð Oddsson lætur af ráðherradómi á ríkisráðsfundi að Bessastöðum í dag. Þetta verður í fyrsta sinn síðan fyrsta stjórn Davíðs tók við völdum 30. apríl 1991 sem hann er ekki ráðherra í ríkisstjórn. Einar K. Guðfinnsson kemur nýr inn í ríkisstjórn og tekur við starfi sjávarútvegsráðherra af Árna Mathiesen sem fer í fjármálaráðuneytið í stað Geirs H. Haarde sem verður utanríkisráðherra.

Skutu fjölmörgum eldflaugum á Gasa

Ísraelskar orustuþotur skutu tugum eldflauga á Gasaströndina í morgun með þeim afleiðingum að fjölmargar byggingar, brýr og vegir eyðilögðust. Ekki er enn vitað hversu margir féllu í árásunum.

Snarpur skjálfti í Perú

Jarðskjálfti upp á 7,5 á richter skók þorp í norðurhluta Perú í gær með þeim afleiðingum að einn lést og að minnsta kosti eitt hundrað heimili eyðilögðust. Skjálftinn fannst víða á landinu og jafnvel í Bogota, höfuðborg landsins, sem er í 1200 kílómetra fjarlægð frá jarðskjálftasvæðinu. Þetta er sterkasti skjálfti í Perú síðan árið 2001 þegar skjálfti upp á 8,1 á Richter reið yfir með þeim afleiðingum að 75 manns týndu lífi.

Snjór farinn á láglendi á Akureyri

Grenjandi rigning hefur verið á Akureyri í nótt og er snjór nú horfinn á láglendi en er enn í fjallshlíðum, meðal annars í Hlíðarfjalli. Þar hefur snjórinn valdið töfum á uppsetningu snjóframleiðslutækja, sem eiga að tryggja að nægilegur skíðasnjór verði í fjallinu þegar það verður opnað skíðafólki 3. desember.

Fellibylurinn Damrey í Víetnam

Fellibylurinn Damrey gekk á land í Víetnam í dag en hann hefur farið niður eftir austurströnd Kína undanfarna sólarhringa. Alls létust níu manns í Kína af völdum fellibylsins, en flestir þeirra urðu undir þegar byggingar eða tré hrundu. Mikill viðbúnaður er í norður- og miðhluta Víetnams vegna fellibylsins og yfirgáfu 300 þúsund manns heimili sín áður en Damrey gekk á land.

Lakari afkoma en stefnt var að

Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var nær fimm milljörðum króna lakari en stefnt var að. Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi en í fjárlögum var gert ráð fyrir tæplega sjö milljarða króna afgangi. Niðurstaðan er þó hagstæðari en árið 2003 þegar rúmra sex milljarða króna halli var á rekstri ríkissjóðs.

Sjö látnir af völdum Rítu

Tala látinna af völdum fellibylsins Rítu er nú komin í sjö en björgunarsveitir fundu lík fimm manna fjölskyldu í íbúð í Beaumont í Texas í gær. Fólkið lést þegar rafall sem var í íbúðinni bilaði í fellibylnum og gaf frá sér eitraðar gufur en fólkið notaði rafalinn þar sem rafmagnslaust hafði orðið í fellibylnum.

Kosningum verður ekki flýtt

Flokkur Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, Likud-flokkurinn, hefur hafnað tillögu um að formaðurinn efni til formannskosninga í nóvember en Sharon hefði þurft að keppa við Benjamin Netanyahu, sem hefur beitt sér fyrir því að formannskosningunum, sem eiga að fara fram í apríl, verði flýtt.

Innanríkisráðherra segir af sér

Innanríkisráðherra Afganistans, Ali Ahmad Jalali, hefur sagt af sér embætti, en það gerði hann í útvarpsviðtali í dag. Jalali, sem er fyrrverandi blaðamaður, sneri aftur til Afganistans árið 2002 eftir fall talibanastjórnarinnar. Hann hafði verið í útlegð í Bandaríkjunum í áratugi og var einn virtasti ráðherrann í ríkisstjórn Afganistans.

Ný hryðjuverkalög í Ástralíu

Ríkisstjórn Ástralíu hefur komist að samkomulagi við ríkisstjóra í landinu um ný hryðjuverkalög til þess að auðvelda stjórnvöldum baráttuna gegn hryðjuverkum. Meðal þess sem kveðið er á um í lögunum er leyfi til handa öryggissveitum Ástralíu til þess að hafa grunaða hryðjuverkamenn í haldi í allt að þrjár vikur án þess að ákæra þá.

Spyr hvort eignatengsl réðu ferð

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, harðlega fyrir að hafa látið hjá líða að fjalla um samráð olíufélaganna þegar hann fékk upplýsingar um það nokkru áður en rannsókn Samkeppnisstofnunar hófst.

Flutningabíll valt við Rauðavatn

Stór vöruflutningabíll valt á Suðurlandsvegi rétt austan við hirngtorgið við Rauðavatn snemma í morgun, en ökumaðaurinn, sem var einn í bílnum, slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en nokkrar tafir hafa verið á umferð vegna umfangs aðgerða við að ná bílnum á réttan kjöl.

Óveður á Snæfellsnesi

Óveður er á sunnanverðu Snæfellsnesi og Fróðárheiði þar sem jafjnframt er krap á vegi. Á Holtavörðuheiði er éljagangur og hálkublettir. Á Vestfjörðum er ófært á Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjalli. Það er verið að moka Klettsháls en þar er bálhvasst. Eins er verið að opna norður í Árneshrepp.

Sprenging á lestarstöð á Spáni

Sprengja sprakk nærri lestarstöð í Anon de Moncayo nærri borginni Zaragoza á norðaustanverðu Spáni í morgun. Engin meiðsl urðu á fólki í sprengingunni en skömmu fyrir hana sendu baskneskir aðskilnaðarsinnar í ETA fjölmiðlum viðvörun. Þetta er önnur sprengingin á fjórum dögum sem ETA stendur fyrir á Spáni.

Einn talinn af eftir sjóslys

Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst með harðfylgi í morgun að bjarga Bandaríkjamanni úr skútu sem var í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands í miklu hvassviðri og haugasjó. Félagi hans, sem var skoskur, féll fyrir borð um miðnætti og er talinn af. Þyrlan er á leið til Rifs, þar sem hún tekur eldsneyti og er væntanleg með Bandaríkjamanninn til Reykjavíkur klukkan ellefu.

Varað við hvassviðri í Búðardal

Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur.

Rafmagnstruflanir á Vesturlandi

Rafmagnslaust er nú í Ólafsvík, á Rifi og Hellissandi eftir að rafmagn fór af Staðarsveitarlínu, Laugagerðislínu og 66 kV línunni Vegamót - Ólafsvík rétt fyrir klukkan níu í morgun. Í tilkynningu frá RARIK á Vesturlandi kemur fram að dísilvélar hafi verið gangstettar í Ólafsvík og þar sem álag er mikið á kerfið er fólk beðið að fara sparlega með rafmagn til þess að ekki þurfi að skammta rafmagn.

Mubarak sver embættiseið

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sór í morgun embættiseið í fimmta sinn. Mubarak, sem er sjötíu og sjö ára, hefur verið forseti síðan 1981 og verður forseti til ársins 2011 sitji hann út kjörtímabilið.

Vill Schröder úr pólitík

Krafa um að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, ætti að láta af baráttu sinni um að halda embættinu, þriðja kjörtímabilið í röð, barst úr heldur óvenjulegri átt í morgun. Hálfbróðir Schröders, Leo Vosseler, segir í viðtali við þýska fjölmiðla að hann vildi óska þess að Schröder væri ekki undir eins miklum þrýstingi og raun ber vitni og að best væri fyrir hann að hætta í stjórnmálum.

Snúa aftur til síns heima í Texas

Íbúar á þeim svæðum í Texas í Bandaríkjunum sem urðu hvað verst úti þegar fellibylurinn Ríta gekk yfir á laugardag eru nú þegar byrjaðir að snúa aftur til síns heima. Litlir bæir og héruð í grennd við ströndina sem liggur að Mexíkóflóa hafa orðið fyrir miklu tjóni, en svo virðist sem borgir og aðrir stórir þéttbýlisstaðir hafi orðið fyrir minni skemmdum en búist var við.

Björguðu manni af skútu í háska

Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst í morgun með harðfylgi, að bjarga manni af skútu í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands, en félagi hans fannst ekki og er talinn af.

Jákvæðar niðurstöður í könnun

Niðurstöður könnunar á skilyrðum fyrir álver í Helguvík hafa reynst jákvæðar eftir því sem fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá Norðuráli, Reykjanesbæ og Hitaveitu Suðurnesja. Fulltrúar þessara aðila undirrituðu í maí síðastliðnum samkomulag um að kanna möguleika á rekstri álvers í Helguvík í landi Reykjanesbæjar.

Hafi borgað sig út úr málaferlum

Forráðamenn Baugs greiddu Jóni Gerald Sullenberger 120 milljónir króna til þess að losna út úr málaferlum sem þeir sjálfir höfðu efnt til í Bandaríkjunum gegn Jóni.

Sjá næstu 50 fréttir