Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skuldahali fellur á ríkið Ríkissjóður greiðir upp tugmilljóna skuld Tækniháskóla Íslands þegar hann sameinast Háskólanum í Reykjavík um næstu mánaðamót. Þetta bætist við samtals 225 milljóna króna framlag ríkisins til skólans síðustu þrjú ár sem ætlað hefur verið til að greiða niður skuldir hans. 28.6.2005 00:01
Allt falt á Netinu Álfelgur undir bílinn, keramik-brennsluofn og iguana-eðla er meðal þess sem hægt er að kaupa í gegnum Netið þessa dagana. Margir af þessum auglýsingavefjum eru til þess gerðir að koma saman kaupendum og seljendum og því er lítið um að skattur eða önnur gjöld séu greidd af sölulaunum. 28.6.2005 00:01
Undrast áhugaleysi Íslendinga Álverið á Reyðarfirði þarf á næstunni að gera þjónustusamninga fyrir milljarða króna á ári. Talsmenn Alcoa Fjarðaáls undrast að erlend fyrirtæki sýna þessum risaviðskiptum mun meiri áhuga en íslensk. 28.6.2005 00:01
Eru DNA niðurstöður ótraustar? Ungur maður sem sagður var faðir barns sem fæddist í september 1995, og gekkst undir DNA rannsókn sem staðfesti faðernið, var ekki faðir barnsins eins og kom fram í ítarlegri DNA rannsókn sem framkvæmd var átta árum síðar. Maðurinn hafði greitt meðlög með barninu í tæp tíu ár þegar rétt faðerni var staðfest. Fékk þó ekki endurgreitt nema helming greiddra meðlaga. Rétt faðerni hefði ekki komist upp ef móðir barnsins hefði ekki samþykkt og sagt frá niðurstöðum seinni rannsóknarinnar. 28.6.2005 00:01
Sjómaður skarst í andliti Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði var kallað út klukkan hálffimm í nótt til að sækja slasaðan skipverja af bátnum Smáey frá Vestmannaeyjum sem var við veiðar við Suðurströndina. Maðurinn hafði skorist í andliti og þurfti að komast undir læknishendur. 27.6.2005 00:01
Herþyrla brotlenti nærri Bagdad Bandarísk herþyrla brotlenti norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Aðeins tveir voru um borð í þyrlunni en ekki er enn vitað um afdrif þeirra. 27.6.2005 00:01
Íraksstríðið í 10-12 ár enn? Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir 10 til 12 ár geta liðið áður en ró komist á í Írak. Hann staðfesti þó í gær að bandarískir embættismenn í Írak hefðu átt viðræður við leiðtoga uppreisnarmanna í landinu. 27.6.2005 00:01
Yfir 50 tonn af eiturlyfjum brennd Lögreglan í Íran brenndi yfir fimmtíu tonn af eiturlyfjum í gær á degi sem Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst sem alþjóðlegan dag gegn eiturlyfjum. Aðallega var um að ræða heróín og ópíum en þó er ekki nákvæmlega vitað hvernig lögreglunni tókst að komast yfir svo mikið af efnum. 27.6.2005 00:01
Bílvelta í Norðurárdal Ökumaður bíls slasaðist, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hans valt út af þjóðveginum í Norðurárdal í gærkvöldi. Tildrög voru þau að hann hafði misst bílinn út af malbikinu öðru megin og sveigði hann langt inn á veginn aftur, en þá kom bíll á móti þannig að hann sveigði aftur út af til þess að koma í veg fyrir árekstur. Við það valt bíllinn. 27.6.2005 00:01
Óttast tekjumissi fyrir norðan Íbúar Raufarhafnar og sérstaklega Siglufjarðar hafa áhyggjur af tekjumissi ef ekkert verður úr sumarloðnuveiðum eins og útlit er fyrir. Leiðangur nokkura loðnuskipa og hafrannsóknaskips í leit að loðnu að undanförnu bar engan árangur, m.a. vegna hafíss á leitarsvæðinu, en enginn kvóti verður gefinn út án þess að eitthvað finnist. 27.6.2005 00:01
Breytt stefna í innflytjendamálum Hægriflokkurinn Venstre í Danmörku hefur breytt stefnu sinni í innflytjendamálum dálítið. Hann vill ekki fleiri flóttamenn en vill hins vegar að duglegu, vel menntuðu fólki verði gert kleift að koma til landsins. 27.6.2005 00:01
Tveir teknir fyrir hraðakstur Lögreglan í Reykjavík stöðvaði tvo ökumenn í nótt eftir að þeir höfðu mælst á meira en tvöföldum leyfilegum hámarkshraða, Annar mældist á 124 kílómetra hraða og hinn á 132 km hraða þar sem hámarkshraði er í báðum tilvikum 60 kílómetrar. 27.6.2005 00:01
Hefja plútóníumframleiðslu á ný Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið grænt ljós á plútóníumframleiðslu í fyrsta sinn síðan kalda stríðinu lauk. Dagblaðið <em>New York Times</em> greinir frá því að fyrir dyrum standi að framleiða um hundrað og fimmtíu kíló ef efninu á næstu þrjátíu árum. 27.6.2005 00:01
Áfrýjar dómi í hópnauðgunarmáli Mukhtaran Mai, pakistanska konan sem var nauðgað af hópi karlmanna árið 2002 eftir skipun öldungaráðs í þorpinu hennar, áfrýjaði í dag máli sínu til hæstaréttar. Hún segist vonast til að hæstiréttur staðfesti upphaflegan dauðadóm yfir sex mannanna. 27.6.2005 00:01
75 ára afmæli SUS á Þingvöllum Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, ætlar í dag að ávarpa hátíðarstjórnarfund SUS sem haldinn verður á Þingvöllum. Tilefni fundarins er sjötíu og fimm ára afmæli SUS en sambandið var stofnað í Hvannagjá á Þingvöllum 27. júlí árið 1930. 27.6.2005 00:01
Schröder ræðir við Bush Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er kominn til Washington til að ræða við George Bush Bandaríkjaforseta um að Þýskaland fái fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn fer fram í dag en Bandaríkjamenn hafa til þessa hafnað áætlunum Þjóðverja, Japana, Brasilíumanna og Indverja um fast sæti í öryggisráðinu. 27.6.2005 00:01
9 1/2 tíma seinkun á flugi Um níu og hálfs klukkutíma seinkun verður á flugvél Icelandair frá Boston sem átti að lenda á Keflavíkurflugvelli klukkan hálfsjö í morgun. Rót seinkunarinnar liggur í bilun sem varð á laugardagskvöldið í vél sem var á leiðinni til Boston frá Reykjavík. 27.6.2005 00:01
Landssíminn dæmdur í Héraðsdómi Landssíminn var í Héraðsdómi í dag dæmdur til að greiða fyrirtækinu Gullveri rúma milljón króna fyrir afnot af lóð undir fjarskiptamastur í tæp þrjú ár. Lóðin hefur verið í eigu Gullvers síðan maí árið 2001 þegar fyrirtækið keypti hana af ríkinu. 27.6.2005 00:01
Allir nýnemar fá skólavist Allir nýir umsækjendur um vist í framhaldsskólum landsins fá skólavist, þrátt fyrir að aldrei hafi jafnhátt hlutfall árgangs nýnema sótt um. Í fyrra beið fjöldi nýnema í óvissu svo vikum skipti. Nýtt innritunarkerfi er helsta ástæða þess að þetta endurtók sig ekki. 27.6.2005 00:01
SUS 75 ára Samband ungra sjálfstæðismanna var 75 ára í gær og af því tilefni var efnt til hátíðarstjórnarfundar á Þingvöllum. Sambandið var stofnað árið 1930 í Hvannagjá á Þingvöllum og var fyrsti formaðurinn Torfi Hjartarson. 27.6.2005 00:01
Forsætisráðherrar funda Forsætisráðherrar Norðurlandanna komu saman í Danmörku í gær til að sitja árlegan sumarfund forsætisráðherranna. Fundurinn fer fram á Falsled Kro á Fjóni og lýkur honum í dag. 27.6.2005 00:01
Flugskeyti skotið að herþyrlu? Tveir bandarískir hermenn féllu þegar bandarísk herþyrla brotlenti norður af Baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. Vitni segja að flugskeyti hafi verið skotið að vélinni, en það hefur ekki fengist staðfest. Tvímenningarnir voru einir um borð í vélinni.</font /> 27.6.2005 00:01
Yfirgefa ekki Írak í bráð Flest bendir nú til að Bandaríkjamenn séu ekki á leiðinni frá Írak í bráð. Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks sagði í dag útilokað að segja til um hvenær óöldinni í Írak myndi linna og á meðan svo væri færu Bandaríkjamenn ekki neitt. 27.6.2005 00:01
Eðlilegur fréttaflutningur Eiríkur Jónsson, blaðamaður <em>Hér og nú</em>, neitar því að nokkuð sé óeðlilegt við fréttaflutning blaðsins af fjölskyldumálum Bubba Morthens. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist Bubbi ætla að fara í mál við þá sem bæru ábyrgð á forsíðufréttum Hér og Nú. 27.6.2005 00:01
Rafmagnslaust í Vesturbænum Rafmagn fór af Grandahverfi í Vesturbæ Reykjavíkur í gærmorgun. Grafa skemmdi háspennustreng á Hólmaslóð og fór rafmagnið af um hálf tíu leytið. 27.6.2005 00:01
BÍ lýsir yfir vonbrigðum Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir vonbrigðum og áhyggjum yfir því að leggja eigi norræna blaðamannaskólann í Árósum niður. Stjórnin telur ákvörðunina vanhugsaða, enda liggi ekkert fyrir um hvernig starfseminni verði haldið áfram þegar skólinn líði undir lok. 27.6.2005 00:01
Björgunarskip sækir sjómann Maður slasaðist á andliti um borð á bátnum Smáey frá Vestmannaeyjum aðfaranótt mánudags og var fluttur með Ingibjörgu björgunarskipi Landsbjargar til Hafnar í Hornafirði. </font /> 27.6.2005 00:01
Flug til New York í allan vetur Icelandair mun fljúga til New York í áætlunarflugi í allan vetur en undanfarin tvö ár hefur félagið gert hlé á flugi sínu í nokkrar vikur yfir háveturinn. Icelandair mun hins vegar ekki bjóða upp á flug til og frá Minneapolis í um tvo mánuði í vetur, á tímabilinu frá 9. janúar til 13. mars 2006. 27.6.2005 00:01
Regnbogabörn fordæma fjölmiðla Samtökin Regnbogabörn fordæma þá fjölmiðla sem hafa það að markmiði sínu að meiða æru þjóðþekktra einstaklinga í landinu og telja að það komi engum að gagni og allir tapi. Yfirlýsingin kemur í kjölfar viðtals við Bubba Morthens í fréttum Stöðvar 2 í gær. 27.6.2005 00:01
Milljarðar í fangelsisbyggingar Fangelsi fyrir rúma þrjá milljarða króna eru að rísa í Írak. Bandaríkjamenn fjármagna gerð fangelsanna sem ætlað er að hýsa þær þúsundir uppreisnarmanna sem búið er að handtaka í landinu. 27.6.2005 00:01
Tímamót í Skagafirði Fjölmiðlafundur verður haldinn á morgun vegna undirritunar samkomulags um uppbyggingu menningarhúsa í Skagafirði. Í tilkynningu segir að þetta séu merk tímamót í menningarlífi Skagfirðinga og muni styrkja það kraftmikla menningarstarf sem fram fer í Miðgarði og víðar í Skagafirði. 27.6.2005 00:01
Fólk vill nóg pláss Samhliða háu fasteignaverði í Reykjavík hefur orðið miki hækkun á jörðum í kring um borgina. Magnús Leópoldsson, fasteignasali telur jafnvel jarðaverð hafi hækkað meira en almennt fasteignaverð, en erfitt sé að draga heildstæðar ályktanir af verði á jörðum því þar spili margt inn í og þurfi að meta hvert tilfelli fyrir sig. 27.6.2005 00:01
Bann við boðorðunum tíu Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað um að dómshús skuli héðan af ekki hafa boðorðin tíu til sýnis. Dómshúsin sem um ræddi voru í fylkinu Kentucky og taldi dómurinn að trúarleg merking boðorðanna þar væri svo mikil að hún gengi gegn stjórnarskrárreglu um aðskilnað ríkis og kirkju. 27.6.2005 00:01
Skáldsaga Saddams bönnuð Jórdanir hafa bannað útgáfu á nýrri skáldsögu eftir Saddam Hussein. Yfirvöld óttast að bókin, sem fjallar um araba sem vinnur sigur yfir erlendum aðkomumanni, gæti haft skaðleg áhrif á samskipti Jórdaníu við nýja valdhafa í Írak. 27.6.2005 00:01
Sjónvarpið í farsímann Farsímaeigendum í Kína gefst nú kostur á að horfa á sjónvarpsþátt sem er gerður fyrir farsíma. Þátturinn heitir Stefnumót og fjallar um tvo mótorhjólakappa sem reyna að vinna hylli sömu konunnar. Hver þáttur er fimm mínútur á lengd og er hægt að horfa á hann í sérstökum farsímum gegn vægu gjaldi. 27.6.2005 00:01
Samkynhneigðir ganga í Jerúsalem Gay Pride-gangan verður farin í Jerúsalem þrátt fyrir að borgarstjórinn þar hafi bannað hana. 27.6.2005 00:01
Klæðskiptingar í Indónesíu Tíu íslamskir öfgamenn reyndu að stöðva fegurðarsamkeppni indónesískra klæðskiptinga. Fegurðarsamkeppnin var haldin í næturklúbbi í Djakarta og var hún rétt hafin þegar tímenningar ruddust inn og létu illum látum. 27.6.2005 00:01
Níutíu menntaskólanemar í haldi Ekkert hefur heyrst frá tæplega hundrað menntaskólanemum í Nepal síðan þeim var rænt af byltingarsinnum fyrir fimm dögum. 27.6.2005 00:01
Forseti Filippseyja segist saklaus Mikil mótmæli hafa verið á Filippseyjum að undanförnu gegn Gloriu Arroyo, forseta landsins, en hún er sökuð um að hafa staðið að kosningasvindli. 27.6.2005 00:01
Frjókornaofnæmi blossar upp Frjókornaofnæmi blossar nú upp í kjölfar hlýinda og vætu undanfarinna daga, að sögn Dóru Lúðvíksdóttur sérfræðings í lungna- og ofnæmissjúkdómum. 27.6.2005 00:01
Málssókn undirbúin af krafti Unnið er hörðum höndum að því að undirbúa málssókn nokkurra manna, sem eiga og reka fasteigasölur, á hendur ríkinu, að sögn Halldórs Backmans héraðsdómslögmanns. 27.6.2005 00:01
Varúð gegn spánarsnigli Full ástæða er til að óttast að spánarsnigillinn illræmdi hafi þegar numið land hér. Hann er mjög stór, étur allt sem fyrir verður og skilur eftir sviðna jörð. Tveir sniglar hafa fundist hér, annar í Vesturbænum en hinn í Ártúnsholti. 27.6.2005 00:01
Laxness-málið kært til hæstaréttar Lögmaður Auðar Laxness hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Um er að ræða mál sem Auður höfðaði á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor þar sem hann var sakaður um að hafa ekki notað tilvísanir með réttum hætti í bókum sínum um Halldór Laxness, auk þess sem hann hefði notað verk Halldórs sjálfs of frjálslega. 27.6.2005 00:01
Fimm námumenn létust í Úkraínu Fimm námumenn létu lífið og að minnsta kosti þrír slösuðust illa í sprengingu í kolanámu í Lviv-héraði í Úkraínu í gær. Sprengingin varð vegna metangass og voru 56 námumenn að störfum þegar hún varð á 550 metra dýpi. 27.6.2005 00:01
Tilboð RÚV og 365 samþykkt Póst- og fjarskiptastofnun hefur gengið að tilboðum Ríkisútvarpsins og 365 ljósvakamiðla í UHF-tíðnir fyrir stafrænt sjónvarp á landsvísu. Tíu rásir voru boðnar út til útsendinga samkvæmt DVB-T staðli og rann tilboðsfrestur út 31. maí. Einungis þessi tvö fyrirtæki lögðu fram tilboð. 27.6.2005 00:01