Fleiri fréttir

Björgunarbátur kallaður út í Eyjum

Björgunarbáturinn Þór frá Vestmannaeyjum var kallaður út klukkan 12.37 til að aðstoða bát sem fengið hafði mikinn sjó um borð við Stóraörn. Þór var kominn að bátnum rúmum stundarfjórðungi síðar og dró hann til hafnar.

Krefjast afsagnar Lahouds forseta

Sigurvegarar nýafstaðinna þingkosninga í Líbanon krefjast þess að Emile Lahoud, forseti landsins, segi starfi sínu lausu. Flokkurinn er andsnúinn Sýrlendingum og forsvarsmenn hans segja Sýrlendinga bera ábyrgð á morðinu á fyrrum leiðtoga kommúnista nú í vikunni.

Þróunarsamvinna við Srí Lanka

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Samningurinn er til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna.

Farþegum fjölgaði um 16,1%

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 16,1% í maí miðað við sama mánuð í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur farþegum Icelandair fjölgað um 11,5% á milli ára, eru nú 484 þúsund en voru 434 þúsund á sama tíma í fyrra.

Engin ástæða til að óttast skort

Lambakjötsbirgðir í landinu eru nægar til að anna eftirspurn þangað til ferskt kjöt kemur aftur á markaðinn í september að mati sérfræðinga hjá Bændasamtökunum og engin ástæða til að óttast skort í sumar.

Ahern og Davíð ræddust við

Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Dermot Ahern, utanríkisráðherra Írlands og sérlegur fullrúi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hittust að máli í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis. Ahern er staddur hér á landi til að ræða við íslensk stjórnvöld um fyrirhugaðar endurbætur á Sameinuðu þjóðunum.

Gæslumenn framtíðarinnar

Heppnir og áhugasamir tíundubekkingar um land allt eru nú sem fyrr varðskipsnemar hjá Landhelgisgæslunni. Á dögunum kom varðskipið Týr í höfn í Reykjavík með sex krakka sem dvalið höfðu um borð í fimmtán daga.

Grunaðir um brot á kosningalögum

Nærri þrjátíu Íranar hafa verið handteknir vegna gruns um brot á kosningalögum í síðustu viku. Mönnunum er flestum gefið að sök að hafa dreift áróðri á geisladiskum og á öðru tölvutæku formi en það er ólöglegt í Íran að hafa uppi órökstuddar dylgjur í pólitískum tilgangi í aðdraganda kosninga. Síðari umferð kosninganna fer fram á morgun.

Gæsluvarðhaldið framlengt

Gæsluvarðhald yfir erlendu pari, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, hefur verið framlengt til 30. júní. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi varðhaldið að kröfu lögreglunnar.

Esso lét undan þrýstingi

Olíufélagið Esso mun að öllum líkindum opna að nýju bensínsölu félagsins í Bjarkarlundi eftir ákafan þrýsting frá íbúum og samtökum á Vestfjörðum.

Fæðingarþunglyndi hjá báðum kynjum

Fæðingarþunglyndi er ekki einungis bundið við konur. Ný bresk rannsókn bendir til þess að karlmenn geti þjáðst af fæðingarþunglyndi, en þó mun sjaldnar en konur. Börn karla sem þjást af slíku þunglyndi eru helmingi líklegri en önnur börn til þess að eiga við hegðunarvanda að stríða.

Samningur við kínverskan háskóla

Háskólinn á Akureyri hefur undirritað samstarfssamning við China University of Political Science and Law í Peking. Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir að samningurinn taki fyrst og fremst til félagsvísinda- og lagadeildar skólans og kveði á um nemenda- og kennaraskipti á komandi misserum.

Dæmdur fyrir 40 ára gamalt morð

Fyrrverandi aðili að Ku Klux Klan samtökunum var dæmdur í sextíu ára fangelsi í dag fyrir að hafa skipulagt morð á þremur mönnum, sem skráðu svarta kjósendur í Missisippi, fyrir fjörutíu árum. Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og var umfjöllunarefni myndarinnar <em>Mississippi Burning</em> sem kom út árið 1988.

Mál F.f. þingfest í dag

Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar.

Stríðið ekki að tapast

Stríðið í Írak er ekki að tapast og Bandaríkjamenn munu halda áfram að berjast gegn uppreisnarmönnum eins lengi og til þarf. Þetta sagði Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra í yfirheyrslum þingnefndar öldungadeildar um stríðið í Írak sem staðið hafa yfir í dag.

Næstdýrast hér á landi

Það er næstdýrast að nota farsíma á Íslandi af Norðurlöndunum. Samkvæmt könnun sem breska greiningarfyrirtækið Teligen gerði nýlega er dýrast að nota farsíma í Noregi í norrænum samanburði en næstdýrast hér á landi.

Stefán Jón formaður borgarráðs

Stefán Jón Hafstein var í dag kjörinn formaður borgarráðs og mun hann gegna embættinu til loka kjörtímabilsins. Hann tekur við af Alfreð Þorsteinssyni sem hefur verið formaður ráðsins frá árinu 2003. Björk Vilhelmsdóttir var kjörinn varaformaður. Stefán Jón var kjörinn í borgarstjórn 2002 og er hann formaður Menntaráðs og Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar.

Ný skattlagning á bíleigendur

Nýupptekin bílastæðisgjöld við Leifsstöð eru að mati Félags íslenskra bifreiðareigenda ekkert annað en nýr skattur á bíleigendur.

Hitabylgja á Ítalíu

Hitabylgja geisar á Ítalíu. Í höfuðborginni Róm hafa sveittir ferðamenn og heimamenn flykkst að hinum fræga Trevi-gosbrunni í þeim tilgangi að kæla sig niður og busla í vatninu. Undanfarna daga hefur hitinn í Róm farið vel yfir 30 gráður og spá veðurfræðingar því að hitabylgjan vari fram í næstu viku. Ungu kynslóðinni finnst gaman að nota tækifærið og busla á meðan þeir eldri kjósa að halda sig í skugganum.

Pólverjarnir með atvinnuleyfi

"Ég er komin með alla pappíra og leyfi og þessir menn eru nú starfandi fyrir mig á löglegan hátt," segir Sverrir Pétur Pétursson, málarameistari og eigandi SPP Málunar ehf.

Engar bætur fyrir kaup í deCode

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði á miðvikudag Landsbanka Íslands af skaðabótakröfu manns sem hélt því fram að bankinn hefði ekki upplýst hann um áhættuna sem því fylgdi að kaupa hlutabréf í deCode Genetics.

Faldi kókaín í brókinni

23 ára gamall maður var dæmdur í 300.000 króna sekt í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en hann var tekinn í nóvember í fyrra á skemmtistað með 0,6 grömm af amfetamíni; í janúarbyrjun ók hann bíl án réttinda og svo aftur fullur mánuði síðar.

Sektir gætu orðið tvöföld vanskil

Vanskil virðisaukaskatts og opinberra gjalda átta fyrirtækja sem tíu einstaklingar tengdir Frjálsri fjölmiðlun eru ákærðir fyrir nema yfir 104 milljónum króna. Að auki eru tveir úr hópnum ákærðir fyrir heimildarlausan yfirdrátt upp á tæpar 24 milljónir króna þegar þeir færðu peninga á milli fyrirtækja.

Tveggja ára dráttur á kæru

27 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir að misnota debetreikning sumarið 2002 þannig að innistæðulaus skuldfærsla nam rúmri hálfri milljón.

Situr inni í eitt og hálft ár

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á þriðjudag var 33 ára gamall maður dæmdur í 18 mánaða fangelsi, áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting yfir honum og einnig gert upptækt bitvopn og tæplega eitt og hálft gramm af amfetamíni sem á honum fannst.

1000 dagar án slysa á Grundartanga

Starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga fögnuðu þeim áfanga í gær að þúsund dagar höfðu liðið án alvarlegra vinnuslysa sem leiddu til fjarveru starfsmanns úr vinnu.

Dufl kom í dragnót

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fóru á björgunarbát út í Aðalbjörgu RE-5 út af Þorlákshöfn á miðvikudagsmorgun vegna torkennilegs hlutar sem kom í dragnót skipsins. Reyndist þetta vera sprengjuefnistunna úr tundurdufli frá síðari heimsstyrjöld.

Sigurður Flosason bæjarlistamaður

Sigurður Flosason var á þjóðhátíðardaginn útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2005. Sigurður er saxófónleikari og tónskáld og þó hann hafi víða komið við í íslenskri tónlist á jazzinn hug hans allan.

Hefur náð tökum á rekstrarvandanum

Menntaskólinn í Kópavogi hefur náð tökum á langvarandi rekstrarhalla sem rekja má allt aftur til ársins 1996 og hefur síðustu ár verið afgangur af rekstri skólans. Þetta kemur fram í greinargerð Ríkisendurskoðunar um fjárlög ársins 2004.

Hús við Grettisgötu brann

Hús við Grettisgötu 54b var alelda þegar slökkviliðsmenn komu að því klukkan rúmlega eitt í fyrrinótt. Að sögn slökkviliðsmanna er það nú líklegast ónýtt. Verið var að endurgera húsið og því bjó enginn í því að sögn lögreglunar í Reykjavík og var það mannlaust þegar atburðirnir áttu sér stað.

Drap kind og faldi

Ökumaður ók yfir kind skammt frá bænum Eyvindarstöðum við Hellisheiði eystri um klukkan tíu í fyrradagsmorgun. Í stað þess að borga sektina sem þessu fylgir fór hann með kindina fjögurra kílómetra leið og faldi hana þar um tuttugu metra frá veginum.

700 neitað í Verzlunarskólanum

Fjórir framhaldsskólar hafa þegar lokið nýskráningum. Metaðsókn var að Verzlunarskólanum og Kvennaskólinn þurfti að vísa frá yfir helmingi umsækjenda. Nýtt rafrænt skráningarkerfi virðist gefa góða raun.

Seltirningar ánægðir

Seltirningar eru mjög ánægðir með þá þjónustu sem bærinn veitir samkvæmt nýrri viðhorfskönnunn Gallups. Þar kemur fram að 85 prósent aðspurðra telja þjónustu bæjarins í heild vera góða og níu af hverjum tíu eru ánægðir með viðmót og framkomu bæjarstarfsmanna.

Tímamótakosningar á Seltjarnarnesi

Niðurstöður kosninganna á Seltjarnarnesi sem fara fram á morgun um skipulagsmál við Suðurströnd og Hrólfsskálamel eru bindandi fyrir bæjarstjórnina. Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir þetta vera tímamót hér á landi þar sem ekki hafi þekkst að stjórnvöld hafi gengið svo langt að leggja skýra valkosti í hendur bæjarbúa og bjóða þeim að taka bindandi ákvörðun um niðurstöðu máls.

Sýndi enga iðrun

Edgar Ray Killen fékk í gær sextíu ára fangelsisdóm, tuttugu ár fyrir hvert mannsdrápanna þriggja sem hann var sakfelldur fyrir á þriðjudag. Killen var talinn hafa leitt hóp Klu Klux Klan-manna sem myrtu þrjá baráttumenn fyrir mannréttindum árið 1964.

Vilja stöðva Ólínu

Félag framhaldsskólakennara hefur lagt fram stjórnsýslukvörtun við menntamálaráðuneytið fyrir hönd Ingibjargar Ingadóttur, enskukennara við Menntaskólann á Ísafirði.

Seltirningar takast harkalega á

Seltirningum gefst á morgun kostur á að kjósa á milli tveggja skipulagstillagna, H- og S-tillögu, um Hrólfsskálamel og Suðurströnd. Munurinn á tillögunum felst aðallega í því að svokölluð H-tillaga gerir ráð fyrir því að knattspyrnuvöllurinn við Suðurströnd verði færður að Hrólfsskálamel, þar sem Ísbjörninn stóð þar til hann var rifinn í fyrra.

Tvö vopnuð rán í röð

Vopnað rán og tilraun til annars slíks voru gerð á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt og í gærdag handtók lögreglan í Reykjavík konu um tvítugt sem grunuð er um ránið en lögreglan vill ekki gefa upp að svo stöddu hvort hún sé einnig grunuð um ránstilraunina.

Meiri lausatök í góðu árferði

Þegar vel árar eru meiri lausatök á fjármálastjórn en ella að mati Davíðs Oddssonar, starfandi forsætisráðherra, sem telur margt til í gagnrýni Ríkisendurskoðunar á framkvæmd fjárlaga.

Refsingar fyrir framúrkeyrslu

Ríkisendurskoðun leggur til að greiðslur til ríkisstofnana sem fara verulega fram úr fjárheimildum verði frystar þar til gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana. Fjármálaráðherra er þessu ósammála.

Vill stöðva greiðslur

Ríkisendurskoðun leggur til í nýrri skýrslu um framkvæmd fjárlaga að fjármálaráðuneytið stöðvi greiðslur til stofnana sem fara yfir fjögurra prósenta mörkin í fjárheimildum eða þar til gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana.

Afgangur en ekki halli

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mótmælir harðlega framsetningu Fréttablaðsins síðastliðinn þriðjudag þar sem sagði í fyrirsögn að ráðuneyti hans hefði farið alls um þrjá miljarða króna fram úr fjárlögum árin 1999 til 2003.

Vill endurnýja ESB frá grunni

Forsætisráðherra Bretlands vill láta endurnýja Evrópusambandið frá grunni. Hann segir slíka endurnýjun tækifæri fyrir ESB til að mæta áskorunum í breyttu alþjóðasamfélagi.

Forseti hafi beitt úreltu ákvæði

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, með sín sérstöku tengsl við Stöð 2, beitti úreltu lagaákvæði í þágu fyrirtækja tengdum Baugi og vann eitthvert mesta skaðaverk sem unnið hefur verið íslenskum almenningi, segir Davíð Oddsson. Pólitíkin hér á landi hafi þannig ekki reynst Jóni Ásgeiri Jóhannessyni illa líkt og skilja megi af viðtali við <em>BBC</em>.

Vildi deyja í haldi mannræningja

Svíinn Ulf Hjertström sem er á sjötugsaldri lenti í klóm mannræningja í Írak og var haldið í tvo mánuði. Hann segir lífsreynsluna hafa verið ömurlega og vildi helst deyja meðan hann var í gíslingu.

Sjá næstu 50 fréttir