Fleiri fréttir

Skortur á ánamöðkum vegna veðurblí

Skortur á ánamöðkum vegna veðurblíðu hefur plagað veiðimenn að undanförnu. Ólafur Vigfússon hjá Veiðihorninu segir veiðiveðrið hafa þó skánað mikið í dag og eflaust verði auðveldara að fá maðka fljótlega.

Kynning á framkvæmdum við Hlemm

Kynning á nýju deiliskipulagi og byrjuðum og fyrirhuguðum framkvæmdum í næsta nágrenni Hlemms fer fram í strætóskýlinu á Hlemmi á morgun. Einnig verður flutt sögulegt ágrip svæðisins og nýtt leiðakerfi Strætó bs. kynnt.

Alvarlega slasaður eftir bílveltu

Bíll valt við bæinn Varmalæk í Borgarfirði um miðnætti í gærkvöld. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út. Talið er að bíllinn hafi farið að minnsta kosti eina veltu og að ökumaðurinn hafi ekki verið í belti. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en ekki í lífshættu.

Róleg nótt í borginni

Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri.

Enginn með hreinan meirihluta

Ljóst er að enginn frambjóðandi hefur fengið tilskilin fimmtíu prósent atkvæða í forsetakosningunum í Íran. Frambjóðendur eru sjö. Eftir að búið var að telja tuttugu og tvær milljónir atkvæða af þeim þrjátíu og tveim milljónum sem bárust var Akbar Hashemi Rafsanjani efstur með rúmlega 21% atkvæða.

Vopnað rán í Lyf og heilsu

Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum.

Fengu kosningarétt fyrir 90 árum

Á morgun, þann 19. júní, verða níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi. Kvennasamtök hafa af því tilefni sameinast um hátíðar og baráttudagskrá alla helgina og hefst hún í Hólavallakirkjugarði eftir um það bil hálfa klukkustund. Þar verður þeirra kvenna sem börðust fyrir þessum réttindum minnst og blóm lögð á legsteina þeirra.

Önnur risaflóðbylgja væntanleg?

Vísindamenn eru sannfærðir um að önnur risaflóðbylgja muni dag einn æða yfir Indlandshaf. Þeir vita hins vegar ekki hvenær. Jarðskjálftavirkni hefur aukist verulega umhverfis Indónesíu og það er talið tímaspursmál hvenær hún kemur annarri flóðbylgju af stað.

Björgunarsveit náði í konu

Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Dalvík voru kallaðar út um fimm leytið í gær til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum í Ytri Árdal. Kona í hópnum hafði dottið og ökklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn og fluttu þeir hana í körfu að sjúkrabíl sem beið við veginn.

Rice í Miðausturlöndum

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er komin til Miðausturlanda til þess að reyna að ýta við Ísraelum og Palestínumönnum að standa við skuldbindingar sínar um frið. Rice sagði við fréttamenn að Palestínumenn yrðu að halda vopnahlé sitt sem oft hefur verið rofið undanfarnar vikur.

Tók að sér tvo tígrisunga

Blendingstík hefur tekið að sér tvo Amúr-tígrisunga í Rússlandi eftir að móðir þeirra hafnaði þeim. Tíkin Naída átti hvolp fyrir og hann virðist alveg sætta sig við að sjúga móður sína milli þessara tveggja nýju bræðra.

Grunaðir um nauðgun á 11 ára telpu

Þrír unglingspiltar í Bretlandi hafa verið handteknir vegna gruns um að þeir hafi nauðgað ellefu ára gamalli stúlku. Dagblaðið <em>Daily Mail</em> greinir frá því í dag að drengirnir hafi jafnframt myndað verknaðinn með farsímum sínum.

Fordæma gæsluvarðhaldsúrskurð

Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga fordæmir gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Bretanum Paul Gill vegna mótmælaaðgerða hans og tveggja Íslendinga á Nordica-hóteli 14. júní sl. þar sem hlutaðeigendur slettu skyri á gesti á álráðstefnu. 

Líðan mannsins stöðug

Líðan mannsins sem slasaðist í bílveltu við Varmalæk í Borgarfirði í gær er stöðug. Hann mun gangast undir aðgerð síðar í dag. Ungum manni sem fluttur var á Landspítalann í gær eftir bílslys í Öxnadal sem kostaði tvo vini hans lífið er enn haldið sofandi í öndunarvél.

Naktir Svíar dansandi á Volvobílum

Móðurfyrirtæki Ikea í Svíþjóð hefur skipað útibúum sínum í Þýskalandi að draga til baka auglýsingar sem sýna draugfulla Svía á Jónsmessugleði. Svíar eru saltmóðgaðir út í Þjóðverja vegna auglýsinganna.

Taka gagnrýninni ekki illa

Það sem fyrirtæki leggja til samfélagsins, fyrir utan skatta og skyldur og að fara eftir lögum og reglum, verður að vera á sjálfviljugum grundvelli, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir forsætisráðherra hafa orðað hlutina á sinn hátt í hátíðarræðu sinni í gær og að samtökin hafi ekkert við það að athuga.

Áhersla á uppbyggingu sjávarútvegs

Sérstök áhersla verður lögð á aðstoð við uppbyggingu í sjávarútvegi í þeirri aðstoð sem framundan er á vegum Íslendinga í Srí Lanka. Þróunarsamvinnustofnun hefur unnið að undirbúningi verkefnisins í nokkurn tíma en í næstu viku verður samningur um aðstoðina undirritaður.

Fimmtíu skæruliðar felldir

Bandarískar og írakskar hersveitir héldu í dag áfram stórsókn sinni gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Fimmtíu skæruliðar voru felldir þar í gær.

Árásir í Kúveit í farvatninu?

Utanríkisráðherra Íraks, Hoshiyar Zebari, segist óttast að skæruliðar í landinu ráðist inn í nágrannaríkið Kúveit á næstunni til að fremja þar ódæðisverk í líkingu við þau sem svo tíð hafi verið í Írak undanfarin misseri.

500 þúsund í mótmælagöngu í Madríd

Búist er við allt að hálfri milljón manna í mótmælagöngu í Madríd á Spáni síðdegis í dag. Fólkið ætlar að mótmæla hugmyndum stjórnvalda um að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra. Biskupar rómversk kaþólsku kirkjunnar leiða mótmælin ásamt leiðtogum hins íhaldssama stjórnarandstöðuflokks, Fólksflokksins.

Reikningar opnir vegna víruss

Óprúttnir aðilar eru taldir hafa komist yfir reiknings- og leyninúmer allt að 40 milljóna kreditkortaeigenda í Bandaríkjunum, að því er talsmaður MasterCard-fyrirtækisins þar í landi greinir frá. Þetta orsakast af tölvuvírus sem lætt var inn í gagnakerfi bandarískra kreditkortafyrirtækja og þetta einskorðast því ekki við eigendur korta hjá MasterCard.

Hundar bannaðir í miðbænum?

Útlit er fyrir að innan tíðar verði óheimilt með öllu að fara með hunda um miðbæ Ísafjarðar. Undanþegnir verða hundar sem notaðir eru við löggæslu- og björgunarstörf og aðstoðarhundar sjúkra og blindra einstaklinga.

Uppreisnum svarað af hörku

Ríkisstjórnin í Kirgistan tilkynnti í dag að öllum tilraunum til uppreisnar í landinu yrði svarað af hörku. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að hópur fólks ruddist inn í byggingu sem stjórnin hefur aðsetur sitt í í gær.

Lítill árangur af viðræðunum

Lítið virðist hafa komið út úr viðræðum Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, sem fram fóru í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. Á blaðamannafundi að viðræðunum loknum sagði Rice að Ísraelar og Palestínumenn yrðu að vinna saman að farsælli lausn á brottflutningi herliðs Ísraelsmanna frá Gasa. </font />

Sammála en greinir á um aðferðir

Stjórnarandstaðan er sammála forsætisráðherra um að tímabært sé að stokka upp í stjórnsýslunni. Samfylkingin leggur til fækkun úr þrettán ráðuneytum í níu en Vinstri-grænir telja réttast að hver ríkisstjórn ráði því hvernig starfsfólki og ráðuneytum sé raðað niður hverju sinni.

Sammála um ábyrgð stórfyrirtækja

Í þjóðhátíðarræðu sinni í gær lét Halldór Ásgrímsson í ljós þá skoðun að stórfyrirtæki með góða afkomu ættu að bera samfélagslega ábyrgð og taldi eðlilegt að þau tækju þátt í mikilvægum málum á sviði nýsköpunar, menningar og velferðar. "Þeim ber að nýta hagnað til að byggja upp," sagði Halldór.

Enn í gjörgæslu

Einn unglingspiltanna úr slysinu sem varð í Öxnadal á þjóðhátíðardaginn liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítala-Háskólasjúkrahúss. Honum er haldið sofandi í öndunarvél.

Flaggað í ljósastaur við Kárahnúka

Íslenski fáninn var dreginn upp á ljósastaur utan við skála á Kárahnúkum í tilefni þjóðhátíðar í fyrradag. "Þeir hafa greinilega ekki haft fánastöng á Kárahnúkum," segir Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi um þessa óhefðbundnu flöggun. "Það er ætlast til þess að fáninn sé dreginn upp að húni."

Útiloka ekki frekari framúrkeyrslu

Landbúnaðar- og heilbrigðisráðuneytin gætu aftur farið fram úr fjárlögum á þessu ári. Landbúnaðarráðuneytið fór hlutfallslega mest fram úr en heilbrigðsmálaráðuneytið mest í krónum talið.

Skýrði ekki frá öllum hlutnum

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi síðastliðinn mánudag að hann og fjölskylda hans ættu 25 prósenta hlut í Skinney-Þinganesi. Á fundi fjárlaganefndar þremur dögum síðar kom fram að hlutur fjölskyldunnar í fyrirtækinu er níu prósentustigum hærri, eða 34 prósent.

Þróunaraðstoð í Asíu í fyrsta sinn

Ísland er, í fyrsta skipti, að hefja þróunaraðstoð við land í Asíu en Íslendingar hafa tekið að sér að aðstoða við uppbyggingu sjávarútvegs í Srí Lanka. Einnig er verið að nema land í Mið-Ameríku.

Stelast í gegnum göngin

Verktakinn hefði getað skilað Fáskrúðsfjarðargöngum tilbúnum í síðasta mánuði, ef Vegagerðin hefði greitt flýtifé. Göngin verða því ekki opnuð fyrr en í október. Austfirðingar hafa litla biðlund og stelast í gegn, starfsmönnum til mikillar armæðu.

Tugir skæruliða felldir í Írak

Bandarískir og írakskir hermenn hafa fellt tugi skæruliða og handtekið enn fleiri í stórsókn nálægt sýrlensku landamærunum í dag.

Barátta þvert á flokka

„Þetta er barátta sem gengur þvert á flokka og sem allar konur geta sameinast um,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri við upphaf hátíðahalda í tilefni af því að á morgun eru níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt.

Réttindum samkynhneigðra mótmælt

Nokkur hundruð þúsund manns, undir forystu tuttugu rómversk-kaþólskra biskupa og íhaldssamra andspyrnuleiðtoga, fylltu miðborg Madrídar á laugardag í mótmælum gegn frumvarpi um lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra og réttar þeirra til ættleiðinga.

Sögulegar súdanskar sættir

Súdönsk yfirvöld skrifuðu undir sáttasamning við ein stærstu andspyrnusamtök landsins, Lýðræðisbandalagið, í gær.

Lyfjum stolið í Austurveri

Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki.

Ólæti á Akureyri

Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð.

Þjóðhátíð í skugga umferðarslysa

Umferðin tók sinn toll þessa þjóðhátíðarhelgi. Tveir ungir menn eru látnir og tveir aðrir liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Lögreglan segir marga bílstjóra hafa sýnt stórkostlegt gáleysi á vegunum enda voru margir stöðvaðir fyrir umferðarlagabrot.

Blóðug átök í Belfast

Tugir manna slösuðust í blóðugum átökum í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Óttast er að þetta sé fyrirboði um það sem koma skal í sumar.

Róleg þjóðhátíð

17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga.

Rafsanjani efstur

Enginn frambjóðendanna í írönsku forsetakosningunum fékk hreinan meirihluta og því verður að kjósa aftur á milli þeirra tveggja efstu á föstudaginn kemur. Þetta er í fyrsta sinn í íranskri stjórnmálasögu sem það gerist

Framlög val fyrirtækja og banka

Það sem fyrirtæki leggja í samfélagsleg verkefni umfram skýrar kröfur og skyldur verður að vera á frjálsum grundvelli og ráðast af vilja einstakra fyrirtækja, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Stjórnarformaður KB banka, segir bankana hafa tekið öflugan þátt í vexti og viðgangi þeirra fyrirtækja sem hvað mest hafa vaxið undanfarið í íslensku atvinnulífi.

Erfiðir tímar hjá ESB

Evrópusambandið er komið í einhverja verstu tilvistarkreppu sögu sinnar eftir að leiðtogafundur sambandsins í Brussel fór gjörsamlega út um þúfur. Hvorki náðist sátt um fjárlög sambandsins né það hvernig bjarga mætti stjórnarskrársáttmálanum.

Róstur í Belfast

Til átaka kom í Belfast, höfuðborg Norður-Írlands, í fyrrinótt á milli kaþólikka og mótmælenda. 18 lögreglumenn meiddust í átökunum og ellefu borgarar til viðbótar.

Sjá næstu 50 fréttir