Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útgjöld vaxa hraðar en tekjur Þjóðarútgjöld Íslendinga, sem eru samanlögð einkaneysla hér á landi og fjárfestingar, hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra þótt landsframleiðsla hafi ekki vaxið nema um 2,9 prósent á sama tíma. Útgjöldin hafa því aukist meira en tekjurnar. 13.6.2005 00:01
Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. 13.6.2005 00:01
Verst settir fá enga hjálp Skilyrði geta komið í veg fyrir að ávinningur af skuldaniðurfellingu margra af fátækustu ríkja heims komist til þeirra sem mest þurfa á að halda. "Skilyrði um stjórnhætti, baráttu gegn spillingu og þróun í lýðræðisátt útiloka mörg fátækustu landanna," sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. 13.6.2005 00:01
Skipuleggjendur kölluðu á lögreglu Mótmæli sem náttúruverndarsamtökin Náttúruvaktin stóðu fyrir fyrir utan Nordica hótel í gær vöktu litla hrifningu skipuleggjenda alþjóðlegrar álráðstefnu sem þar fer fram. Fór nærvera um tíu mótmælenda svo mjög fyrir brjóstið á þeim að þess var krafist að lögregla yrði kölluð til. 13.6.2005 00:01
Þungir dómar í fíkniefnamáli Sex hlutu fangelsisdóma vegna fíkniefnasmygls frá Rotterdam í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Dómarnir voru frá hálfu og upp í tvö ár hver. Ung kona var hins vegar sýknuð af ákæru um að hafa móttekið ágóða af fíkniefnabroti. 13.6.2005 00:01
Lambakjötið gæti klárast "Það íslenska lambakjöt sem er í verslunum í dag má segja að sé ekki fyrsta flokks og flestar vænustu steikurnar uppseldar," segir Jóhann Ólafsson, fulltrúi hjá Bændasamtökunum. Nú er grillvertíð landsmanna að sönnu hafin og léleg birgðastaða lambakjöts veldur því að hætta er á að kjötið klárist áður en nýslátrað kemur aftur á markaðinn. 13.6.2005 00:01
Komið í veg fyrir leka Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu var í viðbragðsstöðu þegar Lagarfoss, leiguskip Eimskipafélagsins, lagðist að bryggju við Grundartanga í gærmorgun. Ekkert frekara tjón var þó vegna ammóníaksleka í skipinu eins og óttast var. 13.6.2005 00:01
Hæfi Halldórs ekki á dagskrá Formaður fjárlaganefndar ætlar ekki að taka skýrslu ríkisendurskoðunar um hæfi forsætisráðherra til umræðu á fundi nefndarinnar á morgun. Stjórnarandstaðan segir skjóta skökku við að forsætisráðherra hafi kynnt skýrsluna sjálfur. 13.6.2005 00:01
Þjóðaratkvæðagreiðsla ógild Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort milda eigi lög um gervifrjóvgun, á Ítalíu var ógild vegna ónógrar þátttöku. Kaþólska kirkjan, með Benedikt páfa í broddi fylkingar, barðist hart gegn því að lögunum yrði breytt og hvatti fólk til þess að sitja heima og kjósa ekki. 13.6.2005 00:01
Varúðarráðstafanir á Grundartanga Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar á Grundartanga í morgun þegar Lagarfoss lagðist þar að bryggju eftir að ammóníakleki varð um borð. Talið er að fjögur hundruð og fimmtíu lítrar af efninu hafi lekið úr tanki í flutningagámi. 13.6.2005 00:01
Jackson sýknaður af öllum ákæruatriðum Kviðdómur sýknaði nú fyrir stundu Michael Jackson af öllum ákæruatriðum en Jackson var ákærður fyrir að hafa misnotað 13 ára dreng og gefið honum áfengi. Kviðdómur taldi Michael Jackson saklausan í öllum tíu atriðum ákærunnar. Michael Jackson gengur því frjáls maður úr dómhúsinu í Santa María í Kaliforníu. 13.6.2005 00:01
Hryðjuverkamanna leitað stíft Írakski herinn gerir nú hverja árásina af annarri á stöðvar hryðjuverkamanna. Það er þó ekkert lát á sprengjutilræðum í borgum landsins. 13.6.2005 00:01
Ekki hægt að tryggja sig Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign. 13.6.2005 00:01
Vörubíl ekið á stúlku Vörubíl var ekið á tíu ára stúlku á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar laust eftir hádegið í gær. 13.6.2005 00:01
Enn eitt áfall ESB? Útlit er fyrir að Evrópusambandið sé að verða fyrir enn einu áfallinu, að þessu sinni út af fjárlögum þess. Það eru langtímafjárlög Evrópusambandsins sem nú er deilt um. 13.6.2005 00:01
Halldór ekki vanhæfur Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font /> 13.6.2005 00:01
Skóflustunga að nýrri álmu við ME Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar. 13.6.2005 00:01
Valgerður ber alla ábyrgð Ríkisendurskoðandi segir að Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um sölu Búnaðarbankans árið 2002 þrátt fyrir óbein eignatengsl við kaupendur bankans, S-hópinn. Ríkisendurskoðandi segir ábyrgðina á bankasölunni alfarið á höndum Valgerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráðherra. </font /></b /> 13.6.2005 00:01
Jackson er saklaus Michael Jackson var í gær sýknaður af öllum ákæratriðum um að hafa misnotað þrettán ára gamlan pilt á búgarði sínum snemma árs 2003. Jackson mætti nokkuð seint í dómsalinn og sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn var kveðinn upp. 13.6.2005 00:01
Ný reikisstjarna fundin Bandarískir stjörnufræðingar hafa fundið reikistjörnu sem er sú smæsta sem vitað er um utan okkar sólkerfis. 13.6.2005 00:01
92 farast í flóði í Kína Nú er ljóst að í það minnsta 92 fórust í skyndilegu aurflóði sem féll á barnaskóla í Shalan, Heilongjiang-héraði í Kína á föstudag. 88 þeirra sem létust voru lítil börn sem komust ekki út úr kennslustofu sinni þegar flóðbylgjan skall á skólanum. 13.6.2005 00:01
Aoun kom sá og sigraði Þriðja og næstsíðasta umferð þingkosninganna í Líbanon var haldin í fyrradag. Flokkum maroníta og sjía vegnaði ágætlega en kosið var í austur- og miðhluta landsins. Flokkar sem börðust gegn áhrifum Sýrlandsstjórnar eru með sterk ítök á þessu landsvæði en fyrir fram var búist við því að þeir færu með öruggan sigur af hólmi. 13.6.2005 00:01
Blair og Pútín funda Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sótti Vladimir Pútín, Rússlandsforseta, heim í gær. Niðurfelling skulda þróunarlandanna og umhverfismál voru þar ofarlega á baugi. Í kjölfar fundarins hélt svo Blair til Þýskalands þar sem hann hitti Gerhard Schröder, kanslara. 13.6.2005 00:01
Þeistareykir og Landsvirkjun semja Stjórn Þeistareykja hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Landsvirkjun um orkuöflun fyrir álver á Norð-Austurlandi. 13.6.2005 00:01
Rætt um staðsetningu álvers Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Húsavíkurbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði áttu í gær fund í Reykjavík með starfsmönnum Fjárfestingastofu og Alcoa varðandi staðsetningu nýs álvers á Norðurlandi. 13.6.2005 00:01
Ógnaði fólki með skrúfjárni Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins. 13.6.2005 00:01
Eldur í Breiðholti Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag á sunnudag. 13.6.2005 00:01
Felldu 40 uppreisnarmenn í V-Írak Fjörutíu manns létust í loftárás Bandaríkjahers í Vestur-Írak í gær. Hernaðaryfirvöld segja mennina hafa verið uppreisnarmenn sem ógnuðu óbreyttum borgurum. Á svæðinu, sem er við landamæri Sýrlands, hefur andspyrna uppreisnarmanna verið gríðarleg. Bandaríkjamenn notuðu hvort tveggja flugvélar og þyrlur vð árásina. 12.6.2005 00:01
Á 187 km hraða á Reykjanesi Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjanesbæ í nótt. Fjórir voru kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók var á 187 kílómetra hraða. Tvívegis var lögreglan kölluð að skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu. Í annað skiptið var það vegna stúlku sem sparkaði í bíl þar fyrir utan eftir að hafa verið vísað út. 12.6.2005 00:01
Franskri blaðakonu sleppt í Írak Franskri blaðakonu og íraskum ökumanni hennar hefur verið sleppt úr haldi mannræningja í Írak. Þeirra hefur verið saknað í fimm mánuði. Blaðakonunni Florence Aubenas var ásamt ökumanninum Hussein al-Saadi rænt fyrir utan hótel í Bagdad í byrjun janúar. Í mars sendu mannræningjar myndband af Aubenas sem sýndi hana illa á sig komna og biðja um hjálp. 12.6.2005 00:01
Ekið á unga stúlku í Kvennahlaupi Ekið var á níu ára stúlku sem þátt tók í Kvennahlaupinu í gær. Stúlkan hljóp í veg fyrir bíl á mótum Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar og var bílnum ekið á rólegum hraða að sögn lögreglu. Stúlkan var flutt á slysadeild og er talið að hún sé fótbrotin. Á átjánda þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupinu í gær og var hlaupið á 90 stöðum á landinu. 12.6.2005 00:01
Rólegt á Akureyri í gærkvöld Skemmtanalífið fór vel fram á Akureyri í nótt. Tveir þurftu þó að gista fangageymslur lögreglunnar þar sem þeir gátu ekki greitt reikning sem þeir höfðu stofnað til á veitingastað í bænum. Þeir voru báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru teknir klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi. Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur, tveir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur án réttinda. 12.6.2005 00:01
Lestarslys vegna sprengju á teinum Tólf manneskjur slösuðust í lestarslysi í Rússlandi í morgun. Lestin var á leið frá Tsjetsjeníu til Rússlands. Að sögn lestarstjórans sprakk sprengja á lestarteinunum sem varð þess valdandi að lestin fór út af sporinu. Enginn hefur enn lýst sig ábyrgan fyrir sprengjutilræðinu. 12.6.2005 00:01
Teknir fyrir fíkniefnaneyslu Fjórir voru teknir höndum og færðir á lögrelgustöðina á Ísafirði eftir að bifreið sem þeir voru í var stöðvuð við eftirlit. Mennirnir eru grunaðir um neyslu fíkniefna en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum. 12.6.2005 00:01
Kveikt í þremur ruslagámum Tólf voru teknir fyrir hraðakstur í gærkvöld og nótt í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Sá sem fór hraðast ók á 138 kílómetra hraða. Þá var ungur maður tekinn grunaður um ölvun við akstur. Eins hafði slökkvilið á staðnum í nógu að snúast en kveikt var í þremur ruslagámum á Eyrarbakka, Selfossi og í Grímsnesi. 12.6.2005 00:01
Gruna uppreisnarmenn um tilræði Grunur leikur á að tsjetsjenskir uppreisnarmenn beri ábyrgð á sprengingunni á brautarteinum í Rússlandi í morgun sem varð þess valdandi að farþegalest fór út af sporinu. Fimmtán slösuðust, meðal annars 18 mánaða stúlkubarn sem hlaut alvarleg brunasár. Lestin var á leið frá Tsjetsjeníu til Moskvu. 12.6.2005 00:01
Ammoníakleki í Lagarfossi Ammoníakeiturefni lak úr Lagarfossi, flutningaskipi Eimskips, undan ströndum Skotlands í fyrrinótt. Áhöfnin hafði strax samband við skosku strandgæsluna í Aberdeen og lét vita af óhappinu en skipinu var bannað að halda áfram för sinni til Íslands fyrr en tekist hefði að stöðva lekann. 12.6.2005 00:01
87 börn látin eftir flóð í Kína Björgunarmenn hafa fundið lík 87 barna sem drukknuðu þegar flóðbylgja reið yfir barnaskóla í Heilongjiang-héraði í norðaustur Kína í fyrrakvöld. Fjórir fullorðnir hafa fundist látnir eftir hamfarirnar en fjölda er saknað. Þá eru á þriðja tug á spítala eftir að hafa slasast í flóðinu; enginn þeirra er þó í lífshættu. 12.6.2005 00:01
Ítalir kjósa um frjósemislög Ítalir ganga nú til þjóðaratkvæðagreiðslu til að skera úr um hvort fella eigi úr gildi lög sem setja hömlur á frjósemisaðgerðir. Vatíkanið hefur tekið fullan þátt í kosningaherferðinni. 12.6.2005 00:01
Ryksugur á mannauð landsbyggðar Háskólarnir í Reykjavík virka eins og ryksugur á mannauðinn af landsbyggðinni, segir Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. Hann telur að eina raunhæfa byggðastefnan til framtíðar sé að efla háskóla um landið allt. 12.6.2005 00:01
Sameinast verði um samgöngubætur Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir að landsmenn eigi að sameinast um samgöngubætur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Kjördæmapot komi í veg fyrir að ráðist sé í átak sem dragi verulega úr banaslysum. 12.6.2005 00:01
Bændur langeygir eftir rigningu Þurrt er víða á landinu og er úrkoma síðasta mánuðinn langt undir meðaltali. Bændur á Norðurlandi og víðar eru orðir langeygir eftir rigningu. 12.6.2005 00:01
20 Írakar teknir af lífi Lögregla í Bagdad greindi frá því í dag að hún hefði fundið lík af 20 mönnum sem teknir höfðu verið af lífi á skotæfingasvæði hersins í austurhluta borgarinnar. Líkin fundust á föstudag og samkvæmt lögreglunni virðast þau hafa verið í nokkurn tíma á staðnum þar sem þau fundust. Ekki er ljóst hverjir hinir látnu voru en fólkið hafði verið bundið og skotið í höfuðið af stuttu færi. 12.6.2005 00:01
Kona skipuð ráðherra í Kúveit Kona var í fyrsta sinn skipuð ráðherra í ríkisstjórn Kúveits í dag. Massouma al-Moubarak var skipuð ráðherra skipulagsmála en hún mun einnig stjórna þróunarmálum í stjórnsýslu Kúveits. Moubarak er stjórnmálafræðiprófessor við Kúveitháskóla en hún hefur lengi barist fyrir réttindum kvenna í landinu. Kúveit verður með þessu þriðja landið á Persaflóasvæðinu til að skipa konu í ríkisstjórn. 12.6.2005 00:01
Sprengjutilræði í Suðvestur-Íran Að minnsta kosti átta létust og 36 særðust, þar á meðal konur og börn, þegar fjórar sprengjur sprungu við stjórnarbyggingar í olíubænum Ahvaz í suðvesturhluta Írans í dag. Sprengjurnar sprungu á tveggja klukkustunda tímabili og mistókst sprengjusérfræðingum að aftengja fjórðu sprengjuna eftir að hinar þrjár höfðu sprungið. 12.6.2005 00:01