Fleiri fréttir

64 létust í flóði í Shalan í Kína

Nú er ljóst að 62 börn og tveir fullorðnir létu lífið þegar flóðbylgja skall á barnaskóla í norðaustur Kína í dag. Frá þessu greinir Xinhua-fréttastofan. Flóðbylgjunni fylgdi skriða sem æddi í gegnum bæinn Shalan í Heilongjiang-héraði þar sem skólinn er. Dýpt vatnselgsins var allt að tveir metrar og segja vitni á staðnum að eins metra djúpt vatn sé í nánast öllum bænum.

Felldu verkamenn í rútu

Byssumenn myrtu tíu verkamenn og særðu þrjá þegar þeir skutu á rútu suður af Bagdad í morgun. Rútan var á leið frá bænum Hilla í Suður-Írak til höfuðborgarinnar þegar tveimur bílum var ekið upp að sitthvorri hlið rútunnar og hófu byssumennirnir skothríð í kjölfarið. Ástæður árásarinnar eru ókunnar.

Samið um niðurfellingu skulda

Átta helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um að létta skuldum af fátækust ríkjum Afríku. Samkomulagið náðist á fundi fjármálaráðherra ríkjanna átta í Lundúnum en ekki hafði verið búist við því að af því yrði á næstu dögum. Ekki hefur verið gefið út hvað felst nákvæmlega í samningnum en rætt hefur verið um að undanförnu að fella niður skuldir að andvirði 40 milljarða dollara.

Kom upp um skattsvikahring

Spænska lögreglan hefur leyst upp alþjóðlegan skattsvikahring sem talinn er hafa svikið um 100 milljónir evra, tæplega 8 milljarða króna, út úr skattkerfi nokkurra Evrópulanda. Skattsvikararnir stofnuðu 95 fyrirtæki í sex Evrópusambandsríkjum og Bandaríkjunum sem þóttust selja hvert öðru tölvubúnað en með því fengu fyrirtækin endurgreidda skatta.

Fella niður 2600 milljarða skuldir

Átta helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um að létta skuldum af fátækustu ríkjum Afríku að andvirði 2600 milljarðar króna. Samkomulagið náðist á fundi fjármálaráðherra ríkjanna í Lundúnum í dag en ekki hafði verið búist við því að það næðist á næstu dögum. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, sagði eftir að samningurinn var í höfn að allar skuldir 18 fátækustu ríkja heims yrðu afskrifaðar nær samstundis.

Hátt í 20 þúsund í Kvennahlaupi

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram víða um land í dag. Þetta er í sextánda sinn sem hlaupið fer fram en alls verður hlaupið á 90 stöðum á landinu. Talið er að hátt í 20 þúsund konur á öllum aldri muni taka þátt í hlaupinu en flestir þátttakendur voru í Garðabæ, eða fimm þúsund, en þar hófst hlaupið klukkan tvö.

Bílsprengjuárás á sendiráð Slóvaka

Fjórir særðust þegar tilræðismaður sprengdi sig og pallbíl sinn í loft upp fyrir utan sendiráð Slóvakíu í Bagdad í Írak í dag. Maðurinn hugðist aka upp að sendiráðinu en var stöðvaður við hliðið fyrir utan sendiráðið og í kjölfarið sprengdi hann sig í loft upp. Nokkrir starfsmenn voru í sendiráðinu þegar sprengingin varð en engan þeirra sakaði.

Sýknaður af ákæru um hasssmygl

Héraðsdómur Reykjaness sýknaði síbrotamann af ákæru um tilraun til að smygla hassi til landsins, en það fannst við gegnumlýsingu á farangri hans á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Í skýrslu lögreglunnar í Danmörku segir að maðurinn hafi viðurkennt að hafa ætlað að flytja efnið til Íslands fyrir vin sinn en ekki viljað upplýsa hver það væri.

Svældu risarottu úr hreiðri sínu

Lengsta og þyngsta rotta Danaveldis hefur safnast til feðra sinna, næstum helmingi stærri en meðalrotta. Hún var svæld úr hreiðri sínu undir verslunarmiðstöð í Hillerød á Norður-Sjálandi og reyndist vera 580 grömm á þyngd og 46 sentímetra löng að frátöldum halanum.

Kanna hugsanlegan flugmiðaskatt

Fjármálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims sömdu í dag um það að kanna möguleika á því að koma á sérstökum skatti á flugmiða sem á að renna til hjálparstarfs í Afríku. Ákvörðunin var tekin á fundi ráðherranna í Lundúnum þar sem einnig var ákveðið að fella niður skuldir fátækustu ríkja Afríku.

HR útskrifar 259 nemendur

Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag 259 manns við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu. Í fyrsta sinn úrskrifaði skólinn nemendur með BA-gráðu í lögfræði en alls voru 42 útskrifaðir frá lagadeild, 73 af tölvunarfræðideild og 144 frá viðskiptadeild háskólans.

Rændu gesti á baðströnd í Portúgal

Um fimm hundruð ungmenni hafa valdið óróleika meðal gesta á strönd í nágrenni Lissabon, höfuðborgar Portúgals, með því að fara ránshendi um eigur þeirra. Mikill fjöldi var á Carcavelos-ströndinni í gær þar sem Portúgalir fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum en sú gleði var skammvinn þar sem ungmennin réðust gegn fólkinu og heimtuðu eigur þess.

Útskrift frá KÍ í dag

Kennaraháskóli Íslands brautskráði í fyrsta sinn nemendur með BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði í dag en úrskrift skólans fór fram í íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Tveir voru útskrifaðir með þessa nýju gráðu og eru þeir í hópi 509 kandídata sem fengu afhent prófskírteini á athöfninni í dag.

Rafsanjani nýtur mest fylgis

Rafsanjani, fyrrverandi forseti Írans, nýtur mest fylgis fyrir forsetakosningar sem fram fara í landinu í næstu viku samkvæmt skoðanakönnun fréttastofunnar IRNA sem birt var í dag. 27,1 prósent landsmanna styður Rafsanjani, sem kýs aukin samskipti við Vesturlönd, en á eftir honum kemur annar umbótasinni, Mustafa Moin, með tæplega 19 prósenta fylgi.

Borgaði frænda fyrir að sitja inni

Verkfræðingurinn Rupert Reddi í Suður-Afríku hefur heldur betur komist í heimsfréttirnar en hann hefur verið fangelsaður fyrir að koma sér hjá fangelsisvist. Reddi var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsáras og hóf afplánun árið 2003 að því er fangelsismálayfirvöld héldu. Það kom hins vegar í ljós þegar þrír mánuðir voru liðnir að Ruddi sjálfur gekk laus en hins vegar sat frændi hans inni, en hann fékk greitt fyrir greiðviknina.

Gripinn vegna árásar á ráðherra

Danska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa kveikt í bíl innflytjendaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshoj, aðfararnótt miðvikudags. Eldurinn barst í hús Hvilshoj þar sem hún svaf vært ásamt fjölskyldu sinni en engan sakaði í brunanum. Lögregla komst á sporið eftir að fjölmiðlum barst tölvupóstur frá hópi sem nefnist Grænselöse Beate sem lýsti yfir ábyrgð á tilræðinu.

Saka kennararáð um rógburð

Sjö kennarar við Landakotsskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra deilna sem staðið hafa í skólanum að undanförnu. Þar segir m.a. að aðför fyrrverandi kennararáðs og skólanefndar að skólastjóra, aðstoðarskólastjóra, kennurum og nemendum hafi verið neiðkvæð gagnrýni í óhuggulegasta skilningi þess orðs.

Enn ósamið um fjárhagsaðstoð

Átta helstu iðnríki heims náðu í dag sögulegu samkomulagi um að fella niður skuldir fátækustu ríkja Afríku. Enn er þó eftir að ná samkomulagi um aukna fjárhagsaðstoð.

Veifaði skammbyssu í Bústaðahverfi

Maður, sem veifaði loftskammbyssu utandyra í Bústaðahverfinu, var handtekinn á heimili móður sinnar og færður í fangageymslur í dag.

Ótækt að stofnun skoði eigin verk

Lúðvíki Bergvinssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, finnst ótækt að Ríkisendurskoðandi rannsaki sjálfur meint vanhæfi forsætisráðherra varðandi bankasöluna. Hann segir erfitt fyrir Ríkisendurskoðanda að rannsaka eigin verk.

Barneignir hafi góð áhrif á MS

Það hefur góð áhrif á konur með MS-sjúkdóminn að eignast börn, samkvæmt nýlegum rannsóknum, en lengi var það talið slæmt.

Kettir geymdir í gámi

Tuttugu og einn köttur var fjarlægður úr gámi þar sem þeir voru geymdir við ómannúðlegar aðstæður í þrjár vikur. Þetta er í þriðja sinn sem yfirvöld bregðast við vegna slæms aðbúnaðar kattanna.

Spilar á stórtónleikum í Noregi

Robert Plant, Annie Lennox, Nelson Mandela og Gulli Briem saman við ægifagra náttúru Norður-Noregs. Útkoman getur ekki orðið annað en stórfengleg. Mestu tónleikar í sögu Noregs verða haldnir í kvöld með þátttöku íslensku hljómsveitarinnar Earth Affair.

Ráðist á blaðamenn í Eþíópíu

Vopnaðir lögreglumenn í Eþíópíu réðust í dag á blaðamenn og erindreka fyrir utan heimili eins af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu. Sendiherra Dana, sem er kona, var meðal þeirra sem lögreglumennirnir lögðu hendur á.

Vetnislundi í hringferð um landið

Japanskur vetnislundi hóf hringferð um landið í dag. Vetnislundinn er nokkurs konar þríhjól sem fimm japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku fluttu til landsins til hringferðarinnar. Með ferðinni vilja þeir vekja athygli á vetni sem framtíðarorkugjafa.

Góð þátttaka í Kvennahlaupi

Hátt í tuttugu þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi Íþróttasambands Íslands á yfir níutíu stöðum á landinu í dag. Langflestar eða um fimm þúsund hlupu í Garðabænum.

Átta handteknir

Lögreglan í Afganistan hefur handtekið átta manns sem eru grunuð um að eiga aðild að mannráni á ítalska hjálparstarfsmanninum Clementinu Cantoni.

Fékk betri einkunn en Karl

Vilhjálmur prins hefur útskrifast með meistaragráðu í landafræði. Prinsinn útskrifaðist með afar háa einkunn í faginu og hærri en faðir hans, Karl Bretaprins, fékk á sínum tíma

Aldrei fleiri brautskráðir

Kandídatar voru brautskráðir frá Kennaraháskóla Íslands í gær og hafa aldrei fleiri verið brautskráðir en nú, alls 509 talsins.

Maður vopnaður loftbyssu

Lögreglaní Reykjavík fékk í um þrjúleytið gær tilkynningu um mann, vopnaðan skammbyssu, fyrir utan fjölbýlishús í Austurborginni.

Rógsherferð á hendur Halldóri

"Mér finnst það mjög alvarlegt þegar trúverðugleiki ríkisendurskoðunar er dreginn í efa. Hún var sett á stofn til að Alþingi gæti leitað til hennar og mér sýnist sem viðbrögð stjórnarandstöðunnar séu byggð á einhverju allt öðru en málefnalegri afstöðu," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

Mikilvægt að halda rétt á spilunum

Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, segir að niðurfelling skulda hjá fátækustu ríkjum heims hafi gífurleg áhrif. "Þessi lönd bera mikinn vaxtakostnað og þar af leiðandi hafa tekjur þessara landa fyrst og fremst farið í fjármagnskostnað. Þau hafa ekki náð neinum möguleika á hagvexti, meðal annars vegna þess, en auðvitað geta verið fleiri þættir sem þar hafa áhrif," segir Tryggvi.

Kraftur í allt hjálparstarf

"Það skiptir stórkostlegu máli að losna við þennan skuldabagga og þetta hefur þau áhrif að það færist kraftur í allt hjálparstarf," segir Þórir Guðmundsson hjá Rauða krossi Íslands.

Fögnum niðurfellingu skulda

"Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna. "Þetta hefur ekki bein áhrif á okkar daglega starf því það er nóg af verkefnum sem þarf að vinna. En mér finnst það mikilvægasta í þessu að þeir fjármunir sem verða nú til í þessum löndum fari í uppbyggingu og að ástandinu sé ekki viðhaldið með sóun peninganna í óþarfa hluti."

Loka Kópavogshöfn

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir skipulagstillögur R-listans í Reykjavík gera ráð fyrir því að loka innsiglingunni í Kópavogshöfn. "Menn geta alltaf þvælt eitthvað fram og til baka. Með skipulagshugmyndum R-listans um tengingu yfir á Álftanes verður lokað fyrir allar siglingar inn í Kópavogshöfn," segir Gunnar, sem gefur lítið fyrir nýjustu tillögur R-listans í skipulagsmálum.

Tímamót í sögu fátækustu þjóðanna

Auðugustu ríki heims samþykktu í gær að fella niður 2.600 milljarða skuld átján fátækustu ríkja heims. Enn á þó eftir að semja um frekari þróunaraðstoð og ljúka við viðskiptasamning sem kemur þróunarríkjunum til góða.

Átján þúsund konur tóku þátt

Kvennahlaupið var haldið hátíðlegt í gær með skokki um allt land. Að sögn Ellerts B. Schram, forstjóra ÍSÍ, fór allt vel fram í Garðabæ og konur á öllum aldri hlupu sér til ánægju í sól og blíðu.

Elsti leikskólinn á landsbyggðinni

Starfsfólk, foreldrar og börn á leikskólanum Pálmholti á Akureyri fögnuðu 55 ára afmæli skólans síðastliðinn föstudag en Sigrún Jónsdóttir leikskólastjóri segir að Pálmholt sé elsti starfandi leikskólinn utan höfuðborgarsvæðisins.

Fagnar ákvörðuninni

"Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna.

Neitar að ósamræmi sé í gögnum

Ríkisendurskoðandi segir ekkert ósamræmi í gögnum Ríkisendurskoðunar hvað varðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar í sölu ríkisbankanna. Stofnunin hafi ekki vitað af eignarhlut fjölskyldufyrirtækis Halldórs í Hesteyri fyrr en á fundi fjárlaganefndar 28. apríl, þrátt fyrir að frá því hafi verið skýrt í fréttum í lok árs 2002.

Sátt hefur ekki skapast

Þrátt fyrir að tveir meðlimir stjórnar Landakotsskóla hafi sagt sig frá stjórninni, til að sátt megi skapast um framtíð skólans, sendu sjö kennarar frá sér harðorða yfirlýsingu í gær.

Segist læsa prestinn úti

Sóknarpresturinn Í Garðabæ ætlar ekki að hlíta úrskurði áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Hann segir nefndina og biskup ekki hafa völd til að færa hann til í starfi. Formaður sóknarnefndar íhugar að skipta um skrár í safnaðarheimilinu.

Hæfi Halldórs í rannsókn

Ríkisendurskoðandi rannsakar hvort eignatengsl Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans valdi því að hann hafi verið vanhæfur við sölu á Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson segir verið sé að afla gagna um eignarhluti og atburðarrás.

Helmingur krefst afsagnar stjórnar

Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér þar sem hún vilji ekki veita skólastjóra skólans það vald sem honum beri að hafa samkvæmt grunnskólalögum. Fjölmennur fundur foreldra, kennara og stjórnar Landakotsskóla var haldinn í gærkvöldi og sendu kennarar frá sér yfirlýsingu að honum loknum þar sem þess var krafist að stjórnin segði af sér.

Sjá næstu 50 fréttir