Fleiri fréttir

Enn mikil flóð í Kína

Að minnsta kosti 225 manns hafa farist eftir mikil flóð í suðurhluta Kína að undanförnu. Björgunaraðgerðir fara fram bæði dag og nótt en heilu þorpin hafa þurrkast út á svæðinu. Flóðin hafa haft áhrif á yfir 17 milljónir manna og hafa um 140 þúsund heimili eyðilagst vegna þeirra.

Kastaði sprengju inn í skólastofu

Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust er nemandi í japönskum menntaskóla henti flösku sem innihélt sprengjuefni inn í bekkjarstofu skóla síns í morgun. Drengurinn, sem er 18 ára, hefur verið handtekinn. Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp hvers konar efni voru í flöskunni en sjónarvottar segja að um nokkurs konar mólotovkokkteil hafi verið að ræða.

Hæstaréttardómari verður forseti

Eduardo Rodriguez, forseti Hæstarréttar Bólivíu, hefur verið skipaður forseti landsins til bráðabirgða en stefnt er að því að halda forsetakosningar í landinu innan fimm mánaða. Vonast er til að með þessu muni mótmælum í höfuðborg landsins, La Paz, ljúka en almenningur hefur krafist þess að auðlindir landsins verði þjóðnýttar.

Gripnir við hassreykingar

Þrír unglingspiltar voru gripnir glóðvoldir við hassreykingar við Hamraskóla í Grafarvogi á fjórða tímanum í nótt. Þeir voru utan við skólann og stöðvaði lögreglan reykinarnar, málið telst upplýst og var piltunum sleppt eftir skýrslutöku á staðnum.

9 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik

Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í níu mánaða fangelsi í morgun og til að greiða sparisjóðnum liðlega átta milljónir króna fyrir umboðssvik en afgreiðslustjórinn sveik með ýmsum hætti umrædda fjárhæð út úr sparisjóðnum. Hluti fangelsisvistarinnar er skilorðsbundinn þar sem dráttur varð á rannsókn málsins hjá sýslumanninum í Hafnarfirði.

Fjórir sækja um forstjórastarf

Fjórir sækja um starf forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem kemur í stað Samkeppnisstofnunar. Þeir eru Eggert B. Ólafsson héraðsdómslögmaður, Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, Páll E. Halldórsson hag- og rekstrarfræðingur og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Umsóknarfrestur rann út í gær.

Sprengja sprakk í Zaragoza

Sprengja sprakk skammt frá flugvellinum í Zaragoza á Spáni fyrir stundu og er ljóst að hryðjuverkasamtök aðskilnaðarsinna úr röðum Baska, ETA, komu henni fyrir. Áður en sprengjan sprakk barst viðvörun frá ETA. Engar fregnir hafa borist af skemmdum eða mannskaða.

Lýsa vantrausti á Schröder 1. júlí

Vantrausti verður lýst á Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, þann 1. júlí næstkomandi. Það er fyrsta skrefið í átt að þingkosningum í haust en allt bendir til þess að Schröder tapi þeim.

Íhuga að stofna nýjan barnaskóla

Óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga ásamt foreldrum að setja á fót nýjan barnaskóla þar sem séra Hjalti Þorkelsson yrði skólastjóri. Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér.

Handtöku Mladic að vænta

Ríkisstjórn Serbíu veit um felustað Ratkos Mladic, stríðsglæpamanns og yfirmanns hers Bosníu-Serba í borgarastríðinu fyrir áratug. Handtöku er að vænta, samkvæmt fréttum serbneskra fjölmiðla. Þrýstingur á stjórnvöld í Serbíu og Bosníu hefur verið stóraukinn í von um að þau afhendi stríðsglæpamenn.

Stórskemmdu lögreglubíl

Fjórir karlar og ein kona réðust í nótt á lögreglumenn í Hafnarfirði og stórskemmdu lögreglubifreið.

Gleymdist í varðhaldi

Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður frá Gíneu-Bissá sat í 22 daga í fangelsi í Danmörku án þess að eiga að vera þar vegna þess að lögreglan gleymdi honum. Dómari úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í byrjun maí og átti það að renna út þann átjánda þess mánaðar. Honum var hins vegar fyrst slepp í gær, 9. júní, og skýring fangelsismálayfirvalda er sú að danska lögreglan hafi gleymt máli mannsins.

Rjúpnastofninn vex um 80 prósent

Rjúpnastofninn stækkaði um tæplega 80 prósent milli ára samkvæmt tölum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin vill að veiðar verði takmarkaðar verulega, verði þær leyfðar á annað borð, svo að stofninn haldi áfram að vaxa.

Plássið minnkar í flugvélum

Það er lítið pláss á almennu farrými hjá flestum flugfélögum og miðað við nýjustu breytingar er hætt við að munurinn á farþegaflutningum og hreinum gripaflutningum snarminnki á næstunni.

Átelja seinagang embættis

Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í fangelsi í morgun fyrir að svíkja liðlega átta milljónir króna út úr sparisjóðnum. Hluti refsingarinnar er skilorðsbundinn, þar sem dráttur varð á rannsókn málsins. Dómstólar hafa ítrekað gert athugasemdir við seinagang hjá embættinu.

Segir forsendur leyfis brostnar

Forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa eru brostnar segir Hjörleifur Guttormsson um þann dóm Hæstaréttar að ógilda umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði. Hjörleifur, sem höfðaði málið, segir umhverfisvernd vera sigurvegarann í málinu.

Lögreglumenn semja við ríkið

Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64 prósentum greiddra atkvæða gegn tæpu 31 prósenti. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60 prósent. Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl síðastliðinn.

Halldór á fund Noregskonungs

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Noregi boði Stórþingsins dagana 11.-14. júní þar sem hann hittir meðal annars Harald Noregskonung. Með þingforseta í för verða eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, Jónína Bjartmarz, 2. varaforseti Alþingis, Birgir Ármannsson, 6. varaforseti Alþingis, og Karl M. Kristjánsson, rekstrar- og fjármálastjóri skrifstofu Alþingis.

Fundu lík af 16 Írökum

Lík af 16 Írökum fundust í dag í vesturhluta Íraks en flest bendir til að fólkið hafi verið tekið af lífi. Líkin fundust á tveimur stöðum nærri bænum Qaim í Anbar-héraði og hafði höfuðið verið höggvið af tveimur þeirra. Ekki er vitað hvaðan fólkið er en ólíklegt er talið að um sé að ræða hluta af þeim 22 hermönnum sem uppreisnarmenn rændu í fyrradag þegar hermennirnir héldu frá herstöð í Qaim.

Tjón mest á Suðurlandsvegi

Samfélagskostnaður vegna tjóna á Suðurlandsvegi er mun hærri en á öðrum vegum. Þetta kemur fram í úttekt sem Vinir Hellisheiðar létu gera í samstarfi við tryggingarfélögin. Á blaðamannafundi í dag var kynnt samantekt yfir tjón á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss frá 1990 og þar til í mars í ár og þar kom fram að kostnaðurinn nam fimm milljörðum króna.

Dæmdar bætur vegna vinnuslyss

Ísfélag Vestmannaeyja var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni rúmlega eina milljón króna í skaðabætur. Maðurinn varð fyrir slysi í febrúar í fyrra þegar hann var að vinna við svokallaða brettastöflunarvél sem er hluti af pökkunarvél í hraðfrystihúsi Ísfélagsins. Vélin bilaði með þeim afleiðingum að dragplata gekk út og dró með sér öskjur sem duttu yfir manninn þar sem hann stóð.

Komi ekki að stofnun nýs skóla

Séra Hjalti Þorkelsson, fyrrverandi skólastjóri Landakotsskóla, segist ekki eiga hlut að stofnun nýs grunnskóla sem óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga að setja á laggirnar í samvinnu við foreldra skólabarna. Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar er verið að setja saman undirbúningshóp fyrir stofnun nýs skóla, en kennarar og foreldrar eru ósáttir við ástandið í Landakotsskóla eins og það er, og telja að stjórn skólans sé með aðgerðum sínum að undanförnu að eyðileggja skólastarfið.

Fangelsuð fyrir dýraníðingsskap

Bresk kona var í dag dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir illa meðferð á dýrum, en hún hélt alls 271 gæludýr á heimili sínu. Það blasti við ófögur sjón þegar dýraverndaryfirvöld tóku hús á hinni 55 ára Rosalind Gregson í Preston á Englandi en á heimilinu voru 246 hundar sem flestir voru í búrum sem staflað hafði verið hvert ofan á annað.

Bilun í háspennustreng í Garðabæ

Fyrir stundu varð bilun í háspennustreng í Garðabæ sem veldur því að stór hluti bæjarins er rafmagnslaus. Unnið er að viðgerð.

Víkja sæti úr stjórn skóla

Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar Landakotsskóla sjálfseignarfélags, og Jóhanna Long, ritari stjórnar, hafa ákveðið að víkja sæti úr stjórn félagsins í því skyni að sátt megi skapast um framtíð skólahalds að Landakoti. Í yfirlýsingu sem stjórn skólans sendi frá sér fyrir stundu segir að nýr stjórnarformaður, Björg Thorarensen, prófessor og foreldri, og Þórunn Erhardsdóttir, formaður foreldraráðs, hafi tekið sæti þeirra í stjórninni.

Nýir óháðir aðilar skoði bankasölu

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja það stórpólitísk tíðindi að bankasölumálið hafi komist á svo alvarlegt stig að hæfi sjálfs forsætisráðherra sé dregið í efa. Þeir segja óþægilega stöðu Ríksendurskoðunar í málinu kalla á þá spurningu hvort ekki sé tímabært að fá nýja óháða skoðun á sölu ríkisbankanna.

Rafmagn komið aftur á í Garðabæ

Rafmagn er nú komið á á ný í Garðabæ eftir að rafmagnslaust hafði verið í rúma klukkustund. Grafið var í háspennustreng við Móaflöt sem olli rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins og niður í Smárahverfi í Kópavogi.

Afagengi dæmt fyrir bankarán

Þýskur dómstóll dæmdi í dag þrjá eldri menn í níu til tólf ára fangelsi fyrir fjölmörg bankarán á 16 ára tímabili. Mennirnir hafa gengið undir nafninu afagengið í þýskum fjölmiðlum, en þeir eru á aldrinum 64-74 ára. Þeir rændu alls 14 banka á tímabilinu og höfðu meira en eina milljón evra, um 80 milljónir króna, upp úr krafsinu en þeir notuðu bæði skammbyssur og gervihandsprengjur til þess að hræða bankastarfsmenn.

Cantoni kemur heim

Ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sneri í dag til heimalands síns en henni var í gær sleppt úr haldi mannræningja í Afganistan. Cantoni lenti á Ciampino-flugvelli í Róm nú síðdegis og var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, meðal þeirra sem tóku á móti henni, en heimkoman var sýnd í beinni útsendingu í ítölsku sjónvarpi.

Fellir úrskurð ráðherra úr gildi

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðherra, sem synjað hafði Lilju Sæmundsdóttir um að ættleiða barn frá Kína á þeim forsendum að hún væri of þung. Lilja, sem er 48 ára, er með kennaramenntun og sérkennaramenntun og sótti um að ættleiða barn frá Kína fyrir tveimur árum.

Töldu sig þekkja mann í löggubíl

Lögreglan í Hafnarfirði handtók rétt fyrir hádegi tvo karlmenn og eina konu í húsi í Reykjavík sem eru grunuð um að hafa í félagi við tvo aðra karla, sem handteknir voru í nótt, ráðist á óeinkennisklædda lögreglumenn og stórskemmt ómerkta lögreglubifreið. Árásarmennirnir töldu sig þekkja einhvern í lögreglubílnum sem þeir áttu sökótt við og þess vegna létu þeir til skarar skríða.

Sóknin á safnaðarheimilið

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar, segist ekki geta séð að það sé löglegt að úthýsa sóknarpresti með því að skipta um skrár í safnaðarheimili Garðasóknar. "Það er sóknin sem á safnaðarheimilið, en ekki sóknarnefndin."

Tveir fá styrk til listrannsókna

Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands úthlutaði í gær tveimur styrkjum, báðum að upphæð kr. 400.000. Hrafnhildur Schram listfræðingur fékk annan styrkinn vegna vinnslu bókar um listakonuna Júlíönu Sveinsdóttur. Hinn styrkinn fékk Viktor Smári Sæmundsson forvörður til að stunda rannsóknir á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar.

Velti stolnum bíl með þýfi

Á sjötta tímanum í gærmorgun valt lítil fólksbifreið í Önundarfirði. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni. Hann var fluttur á sjúkrahús en reyndist ekki alvarlega slasaður. Hann er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og ekið henni undir áhrifum lyfja. Hann reyndist vera með útrunnin ökuréttindi.

Kjartan lagður af stað

Kjartan Jakob Hauksson komst loksins af stað frá Reykjafirði eftir hádegi í gær eftir að hafa verið veðurtepptur þar í fjóra daga. Vindur var þó enn nokkur og hann hélt sig nærri landi.

Ekki mat á umhverfisáhrifum í dómi

Alcoa Fjarðarál hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem höfð eru eftir Hjörleifi Guttormssyni í <em>Morgunblaðinu</em> í dag og tengjast umfjöllun um nýfallinn dóm Hæstaréttar, en samkvæmt honum þarf Alcoa að kosta nýtt umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði.

Fjölskyldan segir alla hrædda

Fjölskylda Halldórs Laxness kveðst ekki vera hissa á þeirri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa kæru hennar á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni frá

Hjólreiðalöggur handtóku ökumann

Tveir lögreglumenn á reiðhjólum handtóku í nótt ökumann fyrir utan veitingastað við Laugaveg. Veittu lögreglumennirnir ökumanninum athygli þar sem hann ók bifreið sinni allgreitt niður Laugarveg og stöðvaði fyrir utan veitingastað. Höfðu þeir tal af ökumanninum þar sem hann sat undir stýri bifreiðarinnar. Vaknaði þá grunur um að ökumaður væri ölvaður og var hann því færður á lögreglustöð blóðsýnatöku.

Dýr fari ekki með Norrænu

Yfirdýralæknir áréttar bann við því að flytja lifandi dýr hingað með farþegaskipinu Norrænu. Þau má bara flytja inn um Keflavíkurflugvöll. Gísli Sverrir Halldórsson, dýralæknir inn- og útflutnings, segir reglurnar áréttaðar vegna ótta um að ferðafólk telji að hér gildi reglugerð Evrópusambandslanda um dýrainnflutning og gæludýravegabréf.

Klósettsýning í Tælandi

Tælensk stjórnvöld hafa nú hrundið af stað herferð til að bæta hreinlæti á opinberum salernum landsins. Herferðin er til að bæta almennt ástand klósetta til að mæta alþjóðlegum kröfum vegna klósettaheimssýningarinnar sem haldin verður í Bankok á næsta ári.

Margdæmdur aftur í steininn

29 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnað og umboðssvik. Maðurinn hefur oft verið dæmdur áður fyrir þjófnað.

Afgreiðslustjóri sparisjóðs dæmdur

37 ára gömul kona var fyrir helgi dæmd í níu mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega átta milljóna króna skaðabóta til Sparisjóðs Hafnarfjarðar vegna umboðssvika í störfum sínum fyrir sjóðinn árin 2000 til 2003. Konan starfaði sem afgreiðslustjóri hjá sparisjóðnum.

Sextugur sýknaður af hasssmygli

Sextugur karl var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af ákæru um að hafa reynt að smygla til landsins 304 grömmum af hassi. Efnið fannst í tösku mannsins við gegnumlýsingu á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.

NATO krefst rannsóknar

Norður-Atlantshafsbandalagið hefur krafist alþjóðlegrar rannsóknar á voðaverkunum sem urðu í Andijan í austurhluta Úsbekistan fyrir um mánuði síðan.

Tóku feil og réðust á lögreglumenn

Fjórir karlmenn og ein kona réðust að ómerktum lögreglubíl í Hafnarfirði og skemmdu töluvert skömmu fyrir klukkan eitt á aðfaranótt föstudags. Í bílnum voru tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn við eftirlit. Fólkið fór mannavillt og var handtekið.

Sjá næstu 50 fréttir