Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ísland tekur við forystu í Eystras Davíð Oddsson ávarpaði í gær fund utanríkisráðherra aðildarríkja Eystrasaltsríkjanna sem stendur yfir í Stettin í Póllandi. Ísland hefur tekið við formennsku í Eystrasaltsráðinu og mun gegna henni í eitt ár. 10.6.2005 00:01
Fimm milljarðar á fimmtán árum Heildarkostnaður samfélagsins vegna tjóna á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss á árunum 1990-2005 er um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Vinir Hellisheiðar héldu á Hótel Selfossi í gær. Meðalkostnaður vegna umferðarslysa á Suðurlandsvegi er rúmlega 5,6 milljónir en kostnaður á sambærilegum vegum annars staðar á landinu er ein og hálf milljón. 10.6.2005 00:01
Færri í nám en vilja Mun færri komast í nám í Háskólanum í Reykjavík og í Bifröst en óska. Yfir eitt þúsund fá ekki skólavist. Rektorinn í Bifröst segir góða þjónustu við nemendur skila árangri. 10.6.2005 00:01
Mikil aðsókn í HHS Aðsókn í nýju námsleiðina HHS á Bifröst hefur farið framar björtustu vonum. Bifröst er fyrsti íslenski háskólinn sem býður upp á námsleiðina hér á landi. 10.6.2005 00:01
Rannsókn sé stórpólitísk tíðindi Stjórnarandstaðan kallar það stórpólitísk tíðindi að Ríkisendurskoðandi dragi í efa hæfi forsætisráðherra þegar tekin var ákvörðun um sölu ríkisbankanna. Formaður Vinstri - grænna segir að það yrði ekki einungis áfellisdómur yfir forsætisráðherra, yrði hann talinn vanhæfur, heldur einnig yfir fyrri störf Ríkisendurskoðunar. 10.6.2005 00:01
Fengu helmingi meiri launahækkun Ráðherrar og þingmenn hafa fengið helmingi meiri launahækkun en aðrir í þjóðfélaginu frá árinu 2003. Þeir hafa fengið yfir tuttugu prósenta launahækkun á sama tíma og laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um tíu prósent. 10.6.2005 00:01
Starfsleyfi Alcoa ekki afturkallað Lögmaður Umhverfisstofnunar segir starfsleyfi Alcoa fyrir álveri í Reyðarfirði ekki verða afturkallað þrátt fyrir dóm Hæstaréttar um að álverið þurfi að fara í umhverfismat. Hjörleifur Guttormsson telur að stöðva þurfi framkvæmdirnar í Reyðarfirði á meðan umhverfisáhrif verði metin. 10.6.2005 00:01
Rökstuðningur ekki fullnægjandi Kona, sem dómsmálaráðuneytið neitaði um að ættleiða barn vegna offitu, vann mál sitt gegn íslenska ríkinu í dag. Dómari taldi rökstuðning dómsmálaráðuneytisins fyrir neitun ekki fullnægjandi. 10.6.2005 00:01
Skagafjarðarlisti ekki aftur fram Samfylkingin í Skagafirði ákvað á félagsfundi 6. júní sl. að við næstu sveitarstjórnarkostningar, sem fram fara 2006 myndi Samfylkingin bjóða fram undir eigin merkjum. Jafnframt samþykkti fundurinn að fela stjórn félagsins að hefja undinbúning að framboði flokksins í næstu sveitarstjórnarkosningu m.a. með að skoða aðferðir við skipan framboðslista, undirbúning málefna og fleiri atriða. 10.6.2005 00:01
Deilt um greiðslur til ESB Eins og stjórnarskrárkreppan sé ekki nóg, deila leiðtogar Evrópusambandsins líka innbyrðis um hve mikið hver eigi að borga til sambandsins. 10.6.2005 00:01
Meðalkostnaður tjóns 5,6 milljónir Kostnaður við tjón á Suðurlandsvegi vegna árekstra á árinu 2003 nam rúmum einum milljarði króna. Meðalkostnaður við hvert tjón sama ár var rúmar 5,6 milljónir króna. 10.6.2005 00:01
Lækningalind opnuð í Bláa lóninu Lækningalind Bláa lónsins var formlega opnuð síðdegis. Aðstaðan á að stórbæta þjónustu við psoriasis-sjúklinga hér á landi. 10.6.2005 00:01
Náðunarnefnd fjallar um Aron Pálma Mál Arons Pálma Ágústsonar hefur verið tekið til meðferðar hjá náðunarnefnd Texas í Bandaríkjunum. Þetta segir Einar S. Einarsson, talsmaður RJF-hópsins, en hópurinn hefur barist fyrir frelsi Arons Pálma úr stofufangelsi í Beaumont í Texas. Náðunarnefndin mun væntanlega taka afstöðu í málinu innan sex mánuða en það er svo ríkisstjórans að taka endanlega afstöðu til náðunarinnar. 10.6.2005 00:01
Efi um Ríkisendurskoðun Ríkisendurskoðun rannsakar nú upplýsingar sem snerta hugsanlegt vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í söluferli ríkisbankanna síðla árs 2002. Gögn sem gáfu tilefni til athugasemda lágu þegar fyrir í minnisblaði ríkisendurskoðunar á fundi hennar með fjárlaganefnd á miðvikudag. 10.6.2005 00:01
Stjórnvöld með minnimáttarkennd Fyrir helgina vann Hjörleifur mál fyrir Hæstarétti sem margir telja að verði fordæmisgefandi fyrir umhverfisvernd og aðild almennings að ákvörðunum sem valdið geta spjöllum á náttúrunni ellegar mengun af mannavöldum. 10.6.2005 00:01
Guðmundur Árni til Svíþjóðar Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður sendiherra Íslands í Svíþjóð í haust samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins. Jafnframt er ákveðið að Svavar Gestsson, núverandi sendiherra í Stokkhólmi, flytjist til Danmerkur. 10.6.2005 00:01
Álversframkvæmdir ekki stöðvaðar Hjörleifur Guttormsson telur að stöðva beri framkvæmdir við álverið í Reyðarfirði á meðan beðið er eftir nýju umhverfismati. Umhverfisstofnun hyggst ekki afturkalla starfsleyfi og Fjarðabyggð mun ekki afturkalla framkvæmdaleyfi og því halda framkvæmdir áfram. 10.6.2005 00:01
Allt að eitt ár í vinnslu Hrönn Pétursdóttir, starfsmanna- og kynningarstjóri hjá Alcoa Fjarðaráli, segir að vinna við nýtt umhverfsimat geti tekið allt að einu ári. 10.6.2005 00:01
Hætt við Dalsbraut Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra þess efnis að hætt verði við lagningu Dalsbrautar, sunnan Þingvallastrætis, en þess í stað verði lagður göngu- og hjólastígur í götustæðið. 10.6.2005 00:01
Gögn ríkisendurskoðunar stangast á Stjórnarandstaðan telur ótækt að Ríkisendurskoðun rannsaki sjálf hvort hennar eigin skýrslur gefi tilefni til vanhæfisathugunar á þætti forsætisráðherra við sölu ríkisbankanna. Gögn embættisins fela í sér misvísandi upplýsingar um þátt félags í eigu ættingja forsætisráðherra í söluferli ríkisbankanna. 10.6.2005 00:01
Flaug burt með lambið Það var ófögur sjón sem blasti við Jóhönnu Kristjánsdóttur sauðfjárbónda við Ísafjarðardjúp á fimmtudag þegar hún varð vitni af því þegar haförn kom aðvífandi, greip með sér um hálfs mánaðar gamalt lamb og flaug burt með það. 10.6.2005 00:01
Hætta borun eftir heitu vatni Borun eftir heitu vatni á Berserkseyri á Snæfellsnesi hefur verið hætt í bili. Borstangir brotnuðu í vinnsluholunni og er búið að reyna í sex vikur að ná þeim upp. 9.6.2005 00:01
Danska lögreglan í vafa Danska lögreglan er ekki sannfærð um að samtök, sem segjast hafa kveikt í bíl ráðherra innflytjendamála í Danmörku í gær, standi að baki verknaðinum. Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að kveikt var í bíl Rikke Hvilshöj en rannsókn lögreglunnar beinist nú að ákveðnum manni sem dæmdur hefur verið fyrir svipað ódæði. 9.6.2005 00:01
Bankarnir mega krefjast gjalds Samkeppnisráð segir bönkum og lánastofnunum heimilt að krefjast gjalds fyrir uppgreiðslu lána. Neytendasamtökin og Alþýðusamband Íslands sendu ráðinu erindi þar sem stofnunin var beðin að skera úr um það hvort slík gjaldtaka samræmdist lögum. 9.6.2005 00:01
Eiga mjög öflug kjarnorkuvopn Norður-Kórea á kjarnorkuvopn, nógu öflug til að verjast Bandaríkjunum. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin ABC fengið staðfest en fréttamenn stöðvarinnar hafa fengið leyfi til að fara til landsins og hyggjast senda þaðan fréttaskýringaröð næstu vikuna. 9.6.2005 00:01
Íbúaþing D-lista í Laugardalnum Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna efnir til íbúaþings í dag klukkan 17 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal</u />. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokksins, setur íbúaþingið og mun kynna hugmyndir um betri borg. 9.6.2005 00:01
Mótmælendur drepnir í Eþíópíu Að minnsta kosti 22 féllu og yfir 40 særðust þegar eþíópískar öryggissveitir skutu á mótmælendur í höfuðborg landsins, Addis Ababa, í morgun en vitni segja mörg fórnarlambanna hafa mótmælt friðsamlega. Mótmælaaðgerðir hafa verið uppi í landinu undanfarna daga í kjölfar birtingar úrslita þingkosninganna sem fram fóru í landinu þann 15. maí. 9.6.2005 00:01
Bílþjófnaður og skemmdarverk Tveir piltar eru nú í haldi lögreglunnar í Reykjavík vegna bílþjófnaðar og skemmdarverka. Þeir voru handteknir á fjórða tímanum í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn í og skemmt nokkra bíla í Höfðahverfi og í framhaldinu stolið einum og ekið honum í sandgryfju Björgunar þar skammt frá. 9.6.2005 00:01
Ætlaði að sprengja upp spítala Hópur fólks sem er sagður tengjast hryðjuverkasamtökunum Al-Qaida ætlaði að sprengja upp spítala og stórmarkaði í Bandaríkjunum. Þetta segir alríkislögreglan þar í landi sem segist þó hafa komið upp um málið eftir að hún handtók 22 ára gamlan mann í síðustu viku sem tengdist hópnum. 9.6.2005 00:01
Fíkniefni ætluð til sölu Lögreglan í Kópavogi handtók tvo menn í bíl upp úr miðnætti í nótt og fannst á þeim töluvert magn fíkniefna. Fíkniefnin voru í sölupakkningum. Mennirnir, sem eru tvítugir, játuðu við yfirheyrslur sinn þátt og telst málið upplýst. 9.6.2005 00:01
Útiloka ekki lokun Guantanamo Bandarísk stjórnvöld útiloka ekki að fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu verði lokað. Rekstur búðanna hefur verið gagnrýndur harkalega en þar eru nú 540 fangar sem sumir hafa setið inni í rúm þrjú ár, án þess að hafa verið ákærðir. 9.6.2005 00:01
Diez verður líklega forseti Í dag mun forseti þingsins í Bólivíu, Hormando Vaca Diez, líklega taka við embætti forseta landsins, mörgum til mikillar gremju, en slæmt ástand ríkir í landinu eftir að mótmælendur úr röðum frumbyggja tóku á sitt vald olíulindir BP og Repsoil í austurhluta landsins. 9.6.2005 00:01
Full grein gerð fyrir lekanum Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra vill að breska ríkisstjórnin geri fulla grein fyrir lekanum sem varð í kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield. Umhverfisráðherra skrifaði Margaret Beckett, hinni bresku starfsystur sinni, bréf vegna þessa. 9.6.2005 00:01
Juncker áhyggjufullur vegna ESB Forsætisráðherra Lúxemborgar, Jean Claude Juncker, hefur miklar áhyggjur af framtíð Evrópusambandsins. Á ráðstefnu sem haldin verður dagana 16.-17. júní átti umræðuefnið upphaflega að snúast um efnahag sambandsins en þar sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins, sem ætti að taka gildi í júlí 2006, ekki alls fyrir löngu verða þau mál í brennidrepli. 9.6.2005 00:01
Brottflutningur frá Gasa löglegur Brottflutningur Ísraelsmanna frá Gasa og fjórum stöðum á Vesturbakkanum er löglegur samkvæmt dómi hæstaréttar Ísraels í dag. Andstaða við brottflutninginn fer þó stigmagnandi meðal almennings í Ísrael. 9.6.2005 00:01
Reykjavík kom best út úr prófunum Nemendur í Reykjavík komu best út úr samræmdu prófunum í tíunda bekk en nemendur í Suðurkjördæmi verst. Prófað var í íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, náttúrufræði og samfélagsfræði. Ekki er hægt að bera saman niðurstöðurnar úr þremur síðasttöldu fögunum þar sem hlutfall nemenda sem þreytti próf í þeim var ólíkt eftir skólum og landshlutum. 9.6.2005 00:01
Sprengjuhótun í dönskum barnaskóla Rýma varð barnaskóla í Kolding í Danmörku í morgun eftir að sprengjuhótun barst. Fjögur hundruð og fjörutíu nemendum og kennurum var samstundis vísað úr byggingunni en leit lögreglu að sprengjunni bar engan árangur. 9.6.2005 00:01
Vilja viðhalda barnakvóta Stjórnvöld í Kína vilja enn viðhalda þeirri umdeildu reglu að hjón eignist aðeins eitt barn, enda hafi það sýnt sig síðustu áratugi að hún skili góðum árangri. Forstjóri nefndar sem fer með fjölskyldumál í landinu, Pan Giiyu, heldur því fram að ef stjórnvöld hefðu ekki gripið til þessa ráðs þá væru Kínverjar nú 300 milljónum fleiri. 9.6.2005 00:01
Tóbaksdómur fer fyrir Hæstarétt Áfrýjað hefur verið til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Japan Tobacco og tóbaksverslunarinnar Bjarkar frá því lok apríl. Í honum var hafnað kröfum um að stilla mætti út tóbaksvörum og um að tóbaksframleiðandinn mætti birta upplýsingar um tóbaksvarning sinn, svo sem um útlitsbreytingar pakkninga eða breytingar á tóbaksblöndun. 9.6.2005 00:01
Bókunar- og sölustarfsemi leigð út Reykjavíkurborg hefur brugðist við úrskurði samkeppnisyfirvalda og leigt út bókunar- og sölustarfsemi Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Reykjavik. Þessi hluti starfseminnar var talinn stangast á við samkeppnislög og var borginni gert að aðskilja þenna hluta rekstursins frá öðrum. 9.6.2005 00:01
Máli Hannesar vísað frá Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið. 9.6.2005 00:01
Keyrði á ofsahraða undir flugvélar Ökumaður fólksbifreiðar setti allt á annan enda á Alþjóðaflugvellinum á Kýpur í dag þegar hann ók bifreiðinni inn á flugbraut vallarins. Starfsmenn í flugturninum komu auga á bifreiðina sem var ekið undir kyrrstæðar farþegaflugvélar á ofsahraða og síðan inn á flugbrautina. Við yfirheyrslu kom í ljós að ökumaðurinn, sem er þrítugur Grikki, var á flótta. 9.6.2005 00:01
Nýtt svið fyrir Þjóðleikhúsið Þjóðleikhúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á nýju sviði Þjóðleikhússins. Sviðið á að heita „Kassinn“ og verður til húsa á jarðhæð íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar að Lindargötu 7. Landsbankinn mun standa straum af kostnaði við uppbyggingu Kassans, svo sem kaupum á nýjum hljóð- og ljósabúnaði. 9.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir skattsvik Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000. 9.6.2005 00:01
Kýr handtekin fyrir manndráp Lögreglan í Ojo-héraði í Nígeríu, skammt frá borginni Lagos, handtók kú eftir að hún hafði drepið rútubílstjóra sem var að létta á sér í vegarkanti og sært nokkra vegfarendur til viðbótar. Kýrin er fagurlega hyrnd og beitti hornunum fyrir sig í einhverri brjálsemi sem kom yfir hana. 9.6.2005 00:01