Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opið í Bláfjöllum og Skálafelli Opið er í Bláfjöllum í dag frá 10 til 18. Allar lyftur eru opnar nema stólalyftan í Suðurgili en stefnt er að því að hún opni síðar í dag. Veður er mjög gott, norðvestlæg átt um 3 metrar á sekúndu og frost 1 stig. Skíðafæri er hart, enda um unnið harðfenni að ræða. Einnig er opið í Skálafelli frá 10 til 18 í dag. 27.2.2005 00:01
Páfi biður um fyrirbæn „Biðjið fyrir mér.“ Þessi skilaboð bárust frá Jóhannesi Páli páfa fyrir stundu, samkvæmt því sem aðstoðarmenn hans greina frá. 27.2.2005 00:01
Bifröst fékk leyfi frá ráðuneytinu Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur fengið heimild menntamálaráðuneytis til að hefja nýtt grunnám til BA-gráðu í haust þar sem fléttað verður saman heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Námið verður vistað í nýrri háskóladeild, félagsvísinda- og hagfræðideild, og hefur Magnús Árni Magnússon verið ráðinn deildarforseti. 27.2.2005 00:01
Kjarnorkuvopnaáætlun í bígerð? Íranar keyptu upplýsingar af pakistönskum vísindamönnum um hvernig koma ætti af stað kjarnorkuvopnaáætlun, segja rannsóknarmenn Bandaríkjastjórnar. 27.2.2005 00:01
Stöðugur flótti stuðningsmanna ESB Enn er hart tekist á um afstöðu til Evrópusambandsins á flokksþingi Framsóknarflokksins. Stuðningsmenn aðildar eru á stöðugum flótta og hafa andstæðingar náð fram verulegum breytingum frá upphaflegri tillögu að ályktun. Þá stefnir í að Framsóknarflokkurinn álykti að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni. 27.2.2005 00:01
Allar eigur gjörónýtar Mikill eldur kom upp í raðhús við Rjúpufell í Breiðholti í gærkvöld eins og greint var frá á Vísi í morgun. Allar eigur fjögurra manna fjölskyldu sem var nýflutt í húsið urðu eldinum að bráð. Hægt er að hlusta á viðtal við heimilisföðurinn, Hjálmar Diego Haðarson, í hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan. 27.2.2005 00:01
Halldór fékk 81,85% atkvæða Halldór Ásgrímsson var endurkjörinn formaður Framsóknarflokksins á flokksþinginu á öðrum tímanum í dag. 406 fulltrúar á þinginu greiddu honum atkvæði en alls voru atkvæðin 520, þar af tvö ógild og 22 skiluðu auðu. Halldór fékk því 81,85% atkvæða. Ef auðir seðlar eru taldir með fékk formaðurinn 78,4% atkvæða. Guðni Ágústsson var endurkjörinn varaformaður og Siv Friðleifsdóttir var endurkjörin ritari. 27.2.2005 00:01
Ályktun loksins samþykkt Eftir miklar deilur samþykktu Framsóknarmenn loks eftir hádegi ályktun um utanríkismál. Hart var tekist á um Evrópustefnuna. Ályktunin hefur tekið verulegum breytingum frá upphaflegum drögum en stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar hafa margoft þurft að bakka fyrir andstæðingum aðildar. 27.2.2005 00:01
Innanlandsflug áfram í Reykjavík Gert er ráð fyrir að Framsóknarmenn samþykki ályktun um höfuðborgarstefnu þar sem lagt er til að miðstöð innanlandsflugs verði áfram í Reykjavík. Í upphafi þings lá fyrir tillaga um að innanlandsflug til höfuðborgarsvæðisins yrði flutt til Keflavíkur. 27.2.2005 00:01
Mafíuforingi handtekinn Spænska lögreglan hefur handtekið ítalskan mafíuforingja sem talinn er vera lykilmaður í mafíugengi sem staðið hefur fyrir fjölda morða og annarra glæpa í Napóli undanfarna mánuði. Mafíósinn, Raffaele Amato að nafni, var handtekinn þar sem hann var staddur fyrir utan spilavíti í Barcelona í gærkvöldi ásamt fimm meintum meðlimum mafíunnar. 27.2.2005 00:01
Hálfbróðir Saddams handsamaður Íraskar öryggissveitir handtóku í gær hálfbróður Saddam Hussein, Sabawi Ibrahim al-Hassan, en hann er grunaður um að hafa fjármagnað hryðjuverk og skæruhernað í landinu eftir að það var hernumið. 27.2.2005 00:01
Föngunum ekki sleppt Þeim 400 palestínsku föngum sem eru í ísraelskum fangelsum, og átti að sleppa áður en langt um liði, verður ekki gefið frelsi vegna sjálfsmorðsárásarinnar í Tel Aviv á föstudagskvöld sem kostaði fjóra Ísraela lífið. 500 palestínskum föngum sem verið hafa í haldi í Ísrael var sleppt fyrir tæpri viku. 27.2.2005 00:01
Ungir framsóknarmenn fagna Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður fagnar því að ákvörðun hafi verið tekin um endurskoðun á stefnu Framsóknarflokksins í evrópumálum. Félagið segir þetta mikilvægan áfanga í átt að nánara sambandi Íslands við Evrópusambandið, enda líklegt að jákvæð afstaða Framsóknarflokksins þurfi til að Ísland hefji aðildarviðræður. 27.2.2005 00:01
Konungleg heimsókn skyggir á allt Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans, hin ástralska Mary prinsessa, eru í Ástralíu í opinberri heimsókn. Þau fylgdust með siglingakeppni í höfninni í Sydney í dag en heimsóknin skyggir á allt annað í þjóðlífinu þar neðra sem stendur. Fjölmiðlar fylgja þeim hvert fótspor og flennistórar myndir prýða síður helstu dagblaða. 27.2.2005 00:01
Öllum tilraunum Evrópusinna hrint Andstæðingar Evrópusambandsaðildar innan Framsóknarflokksins hrundu öllum tilraunum á flokksþingi til að færa flokkinn nær aðildarumsókn. Þótt sjónarmið Halldórs Ásgrímssonar hefðu þannig orðið undir var hann endurkjörinn formaður Framsóknarflokksins með 78 prósentum atkvæða. 27.2.2005 00:01
Víðtækt samstarf gegn ráðningum Víðtækt samstarf er að hefjast í stjórnkerfinu til að kanna ráðningar byggingafyrirtækja og verktaka á erlendum mönnum í gegnum þjónustusamninga og starfsmannaleigur en í mörgum tilfellum er réttur brotinn á þessum mönnum. 27.2.2005 00:01
Framsóknarflokkurinn stefnulaus? Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, telur ESB-umræðuna hugsanlega skilaboð um breytt stjórnarmynstur á næsta kjörtímabili. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, telur sjálfstæðismenn móta stefnu Framsóknarflokksins í Evrópumálum. </font /></b /> 27.2.2005 00:01
Ilona Wilke til skoðunar Vinnumálastofnun og Ríkislögreglustjóraembættið hafa til skoðunar starfsemi lettnesku konunnar Ilonu Wilke hér á landi. 27.2.2005 00:01
Notum viðurkenndar aðferðir Rósmundur Guðnason, deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands, segir að vísitala neysluverðs mæli öll útgjöld heimilanna og við þessar mælingar séu notaðar alþjóðlega viðurkenndar aðferðir. 27.2.2005 00:01
Orðrómurinn ekki réttur Halldór Ásgrímsson, sem endurkjörinn var formaður Framsóknarflokksins um helgina, finnst vegur sinn innan flokksins ekki hafa minnkað. Hann kannast ekki við það sem sumir framsóknarmenn hafa haldið fram, að formaðurinn hafi tekið einhverja tiltekna einstaklinga að brjósti sér og úthýst öðrum. „Ég kannast við þennan orðróm en hann er einfaldlega ekki réttur,“ segir Halldór. 27.2.2005 00:01
Páfi raddlaus fyrir lífstíð? Óvíst er hvort að Jóhannes Páll páfi verði nokkru sinni fær um að tala á ný. Sérfræðingar telja barkaskurðinn sem gerður var á honum og áhrif Parkinson-veikinnar gera að verkum að hann verði nánast raddlaus. 27.2.2005 00:01
Gæslan kaupir eldsneyti í Færeyjum Íslensku olíufélögin hafa farið svo illa með Landhelgisgæsluna að ákveðið hefur verið að kaupa ekki af þeim eldsneyti, nema brýna nauðsyn beri til. Þetta segir forstjóri Landhelgisgæslunnar sem kaupir nú aðallega eldsneyti frá Færeyjum fyrir flotann og sparar í leiðinni. 27.2.2005 00:01
Vill hitta páfann Fjögurra ára gömul írösk stúlka sem dvelur á sama sjúkrahúsi í Róm og Jóhannes Páll páfi vill hitta hann og þakka honum fyrir að mótmæla stríðinu í Írak. 27.2.2005 00:01
Frelsun fanga frestað Samskipti Ísraela og Palestínumanna hafa snöggkólnað eftir sjálfsmorðssprengjuárás í Tel Aviv á föstudaginn sem kostaði fjögur mannslíf. 27.2.2005 00:01
Gómaður eftir 30 ár Lögregluyfirvöld í Kansas í Bandaríkjunum hafa loks komið raðmorðingjanum BTK á bak við lás og slá, 30 árum eftir að hann framdi sín fyrstu morð. 27.2.2005 00:01
Samið um kjarnorkumál Rússar hafa komist að samkomulagi við Írana í kjarnorkumálum. Rússar munu sjá Írönum fyrir kjarnorkueldsneyti og aðstoða þá við að koma kjarnorkuveri í Bushehr í gang á næsta ári. 27.2.2005 00:01
Framsókn hreyfir við Norðmönnum Forsætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, segir Evrópustefnu Framsóknarflokksins hafa áhrif í Noregi. Í samtali við Fréttablaðið segir Bondevik að Norðmenn fylgist grannt með þróun umræðunnar um Evrópumál á Íslandi. Aðildarviðræður séu á dagskrá Norðmanna í fyrsta lagi 2007. </font /></b /> 27.2.2005 00:01
Tinna fundar með leikurum í dag "Mér finnst aðferðin við þetta rýra gildi okkar sem leikara," segir Brynhildur Guðjónsdóttir, sem er einn þeirra tíu fastráðinna leikara við Þjóðleikhúsið sem hafa stystan starfsaldur og verður sagt upp fyrir vikið. 27.2.2005 00:01
Átakamikið flokksþing Hörð átök voru um stór mál á flokksþingi framsóknarmanna. Mestu deilurnar voru um Evrópumál. Evrópusinnar bökkuðu mikið frá upphaflegum drögum að ályktun en fengu grundvallaratriði í gegn. Formaðurinn segir umboð flokksins skýrt. </font /></b /> 27.2.2005 00:01
Dauðsföll af völdum flensu Grunur leikur á að inflúensan sem gengið hefur yfir landið hafi valdið fleiri dauðsföllum meðal eldri borgara en almennt gerist þegar inflúensa geisar. 27.2.2005 00:01
Flugvöllurinn áfram í Reykjavík Tekist var á um það á flokksþingi framsóknarmanna hvort álykta ætti um það að flytja innanlandsflugið burt úr miðborginni. 27.2.2005 00:01
20 milljóna verðmunur á fasteignum Allt að 20 milljóna króna verðmunur er á fasteignaverði í Reykjanesbæ og stór-Reykjavíkursvæðinu. Sem sagt, hægt er að kaupa tvö góð einbýlishús í Keflavík fyrir eitt í höfuðborginni. 27.2.2005 00:01
Allt brann sem brunnið gat Líðan okkar er eftir aðstæðum, mér og konunni hefur ekki komið dúr á auga eftir þetta," segir Hjálmar Diego Haðarson, heimilisfaðir að Rjúpufelli 22, sem horfði á heimili sitt brenna í fyrrakvöld. "Þetta átti að vera fyrsta nóttin okkar á nýja heimilinu þannig að þetta var eins ömurlegt og hugsast getur," segir Hjálmar, sem ætlaði að flytja inn ásamt konu sinni og tveimur börnum. 27.2.2005 00:01
Kynjakvóti samþykktur Framsóknarmenn samþykktu á flokksþinginu í gær ákvæði um að hlutur hvors kyns skuli ekki vera lægra en 40 prósent við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins, sem og við val á framboðslista. 27.2.2005 00:01
Evrópustefnan sigur fyrir flokkinn Halldór Ásgrímsson segir ályktun flokksþingsins mikil tíðindi og sigur fyrir flokkinn. Í fyrsta sinn hafi verið opnað fyrir aðild að Evrópusambandinu. Hann hafi nú umboð flokksins til að huga að aðildarviðræðum. Það skipti öllu máli. </font /></b /> 27.2.2005 00:01
Mörg fórnarlömb netsvika á Íslandi Vonin um skjótfenginn gróða verður til þess að fjölmargir láta gabba sig á Netinu. Íslensk fórnarlömb netsvindls af ýmsu tagi skipta tugum á hverju ári. 27.2.2005 00:01
Hryðjuverkasveitum verði útrýmt Ariel Sharon vill að Palestínumenn útrými hryðjuverkasveitum í eitt skipti fyrir öll. Annars sér hann engan tilgang í viðræðum og segir Ísraelsmenn þá verða að grípa til aðgerða. Ahmed Queria, forsætisráðherra Palestínu, segir að ef Ísraelsmenn ákveði að slíta sambandi sínu við Palestínumenn sé það þeirra val. 27.2.2005 00:01
Nýja Helgafellið afhent Nýtt 11 þúsund tonna skip Samskipa var afhent stjórn félagsins við hátíðlega athöfn í Hamborg á föstudag að viðstöddum Ólafi Davíðssyni sendiherra og fleiri gestum. Skipið hlaut nafnið Helgafell og leysir af hólmi gamla Helgafellið á siglingaleiðinni milli Íslands og Evrópu. 27.2.2005 00:01
Vopnahléið kvatt Ekki færri en fjórir fórust og sextíu og fimm særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Tel Aviv í gærkvöldi. Sprengingin rauf vopnahlé sem þeir Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sömdu fyrir nokkrum dögum. 26.2.2005 00:01
Titringur meðal leikara Ákvörðun þjóðleikhússtjóra um að segja upp tíu fastráðnum leikurum hefur valdið miklum titringi meðal leikara Þjóðleikhússins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Margir af þeim sem nú hefur verið sagt upp föstu starfi eru þeir leikarar sem bera uppi vinsælustu sýningar hússins. 26.2.2005 00:01
Lækka verð og boða samkeppni Krónan hefur lækkað verð á öllum helstu neysluvörum sínum og gildir það frá og með deginum í dag. Að sögn forsvarsmanna verslunarinnar er þetta gert til að mæta kröfum viðskiptavina um hagstæðara verðlag og virkari samkeppni á matvælamarkaði. 26.2.2005 00:01
Afgreiðsla ályktana að hefjast Almennar umræður standa nú yfir á flokksþingi Framsóknarflokksins en þingfulltrúar komu á ný saman klukkan níu í morgun á Hótel Nordica í Reykjavík. Klukkan ellefu hefjast umræður um afgreiðslu ályktana. Eftir hádegi sitja ráðherrar flokksins fyrir svörum en síðdegis hefjast nefndastörf. 26.2.2005 00:01
Áhlaup bandaríkjahers heldur áfram Áhlaup Bandaríkjahers í Anbar-héraði í Írak heldur áfram en þar hafa uppreisnarmenn komið sér upp bækisstöðvum. Hermenn hundelta uppreisnarmenn eftir ánni Efrat en þeirra hefur þó nánast ekkert orðið vart. 26.2.2005 00:01
Páfi tekur þátt í blessuninni Jóhannes Páll páfi II mun taka þátt í vikulegri blessun á morgun frá herbregisglugga Gemelli-sjúkrahússins þar sem hann dvelur nú, án þess þó að mæla orð frá munni. Aðstoðarmaður hans mun lesa predikunina fyrir hann því páfa er ráðlagt af læknum að hvíla raddböndin á næstunni. 26.2.2005 00:01
Powell: Of fáir hermenn í Írak Fleiri hermenn hefði þurft til að taka á ástandinu að loknum stríðinu í Írak, segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann telur að Bandaríkjastjórn verði að leggja sig fram við að bæta samskiptin við Evrópuríki. 26.2.2005 00:01