Fleiri fréttir

Fischer fær ekki ríkisborgararétt

Allsherjarnefnd Alþingis ákvað í morgun að leggja ekki til við Alþingi að svo stöddu að Bobby Fisher skákmeistari fái ríkisborgararétt hér á landi. Ekki ríkti einhugur í nefndinni um þessa niðurstöðu en eftir sem áður stendur það að honum er boðið landvistarleyfi hér á landi.

Sharon ekki ákærður

Engin ákæra verður gefin út á hendur Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vegna spillingarmáls sem allt leit út fyrir að gæti bundið enda á stjórnmálaferil hans.

Meðlimir ETA handteknir

Tveir félagar í aðskilnaðarhreyfingu herskárra Baska, ETA, voru handteknir á Spáni í morgun, skammt frá borginni Valencia. Lögreglan lagði hald á nokkurt magn sprengiefna á sama stað. Talsmaður lögreglunnar greindi frá því að karlmaður og kona væru í haldi og að jafnframt hefðu fundist byssa og skjöl á staðnum.

Vilja afsögn ríkisstjórnarinnar

Vaxandi þrýstingur hefur verið á ríkisstjórn Líbanons um að segja af sér. Stjórnin nýtur stuðnings stjórnvalda í Sýrlandi og hefur óánægja í garð hennar aukist eftir að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Rafik Hariri, var ráðinn af dögum.

Strætisvagn eyðilagðist í eldi

Strætisvagn eyðilagðist í eldi á Sæbraut á móts við gamla Útvarpshúsið á níunda tímanum í morgun en engan sakaði. Vagninn er ekki nema tveggja ára af Scania-gerð og eru 28 álíka vagnar í flota Strætó.

Grunaður um aðild að mannráninu

Tuttugu og fjögurra ára karlmaður hefur verið handtekinn í Kaupmannahöfn að beiðni sænsku lögreglunnar þar sem hann er grunaður um aðild á ráninu á Fabian Bengtsson. Lögreglan í Kaupmannahöfn vill ekki gefa upp af hvaða þjóðerni maðurinn er en segir þó að hann sé hvorki Dani né Svíi. Foreldrar hans búa þó í Danmörku.

Kjarnorkuvopnaeign helsta ógnin

Kjarnorkuvopnaeign Asíuríkja er meðal helstu ógna sem Bandaríkjamenn þurfa að fylgjast með að mati yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hryðjuverk eru áfram ofarlega á lista yfir ógnir.

Fischer: Skelfileg vonbrigði

Allsherjarnefnd Alþingis leggur ekki til að Bobby Fischer fái íslenskan ríkisborgararétt að svo stöddu. Guðmundur G. Þórarinsson, sem er í stuðningshópi Fischers, segir að þetta séu skelfileg vonbrigði.

Væri ekki á leið til lýðræðis

Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis.

Kristinn ekki sigurvegari

Pétur Blöndal alþingismaður er ekki á því að Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hafi, með endurreisn sinni í Framsóknarflokknum, sigrað flokksforystuna að því er fram kom í máli Péturs í þættinum Íslandi í bítið í morgun.

Þyrlan sótti mann fyrir austan

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í hádeginu til að sækja mann austur fyrir fjall sem hafði fengið hjartaáfall. Þyrlan var snör í snúningum og lenti við Landspítalann í Fossvogi korter fyrir tvö þar sem maðurinn gekkst þegar undir aðgerð.

4 látnir í sprengingu í Taílandi

Að minnsta kosti fjórir eru látnir og 40 særðir, sumir lífshættulega, eftir að sprengja sprakk í fjölfarinni götu, nærri vinsælu hóteli, í ferðamannabænum Sungai Kolok í Taílandi fyrir stundu. Forsætisráðherra Taílands var staddur í bænum fyrr í dag en samkvæmt Reuters-fréttastofunni var hann farinn frá Sungai Kolok þegar sprengingin varð.

Viðskipti Íslands og Kína rædd

Ráðstefnan um viðskipti milli Íslands og Kína á vegum Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins og viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands verður haldin á Grand Hótel í næstu viku. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður heiðursgestur ráðstefnunnar.

Yfirmaður allrar leyniþjónustu BNA

George Bush hefur skipað John Negroponte, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sem yfirmann allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Embættið er nýtt af nálinni og er stofnun þess liður í aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að reyna að koma í veg fyrir að atburðirnir þann 11. september 2001 endurtaki sig.

Starfsmaðurinn saklaus af smyglinu

Vegna umfjöllunar DV um fíkniefnasmygl með einu af skipum Eimskips, sem upp komst á síðasta ári, vill félagið koma því á framfæri að starfsmaður þess er ekki viðloðinn málið.

Ævintýri sveitavarga

"Þetta gekk mjög vel og ég varð ekki var við annað en að góður rómur væri gerður að leik okkar," segir Heiðar Sigurðsson, söngvari og hljómborðsleikari hornfirsku hljómsveitarinnar KUSK sem lék um síðustu helgi á þorrablóti Íslendingafélagsins í Stokkhólmi.

Ekki forstjóri Icelandair

Bókmenntafræðingur og kvikmyndagerðarmaður hafa gaman af að vera ruglað saman við nafna sinn, hinn nýráðna forstjóra Icelandair. Sá er hins vegar Ólafsson en ekki Helgason eins og þeir. Skammdegisþreytu er kennt um ruglinginn. </font /></b />

Sættust yfir tindabikkju

Ein athyglisverðasta frétt vikunnar er án efa að sættir náðust milli Kristins H. Gunnarssonar og hinna ellefu þingmanna Framsóknarflokksins. Þessi sögulegi atburður átti sér stað á veitingastaðnum Við tjörnina en sá stendur við Templarasund, á ská á móti Alþingishúsinu.

Pakkið víkur fyrir Óliver

Vegna mikillar aðsóknar verður sýningum Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Óliver haldið áfram út mars en til stóð að hætta þeim í febrúarlok til að koma Pakkinu á móti, næsta verkefni LA, á fjalirnar.

Vilja algert reykingabann

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki.

Gömul fiskiskip seld til Danmerkur

Gömul stálfiskiskip, sem eitt af öðru hafa verið að daga uppi á svonefndum dauðadeildum í höfnum víð um land, eru orðin söluvara til Danmerkur þar sem þau eru rifin í brotajárn og ýmis nýtileg tæki seld úr þeim.

Fagnaðarefni fyrir foreldra

Samþykkt um greiðslur úr ríkissjóði til foreldra langveikra barna eru mikið fagnaðarefni, segir móðir langveiks drengs. Hún hefur barist um árabil fyrir framfærslueyri fyrir son sinn og sig, þar sem hún gat ekki unnið úti vegna veikinda hans. </font /></b />

Í einangrun á Hrafnistu

Íbúi á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði er nú í einangrun, þar sem mosa - skýkingabaktería hefur ræktast í honum. Þetta er annað tilfellið á fáeinum dögum sem bakterían finnst hér á landi. Hún getur valdið alvarlegum sýkingum ef hún nær sér á strik. </font /></b />

Hafi persónuskilríki við álestur

Tillaga um að starfsmenn fyrirtækja, sem þurfa að senda menn til álesturs í híbýli eða aðrar fasteignir, hafi auðkennd persónuskilríki og skilji eftir nafnspjald hjá umráðamanni, er meðal þess sem fram kemur í greinargerð um einkarekna vakt- og öryggisþjónustu og lögregluna.

Bakterían getur verið banvæn

Sjúkrahúsbakterían Mosa, sem ræktast hefur í tveimur mönnum hér á landi á undanförnum dögum, getur reynst banvæn, sé hún algjörlega ónæm fyrir sýklalyfjum.

Ráðinn upplýsingafulltrúi hjá NATO

Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Börk Gunnarsson, kvikmyndagerðarmann og blaðamann, sem upplýsingafulltrúa hjá þjálfunarsveitum Atlantshafsbandalagsins í Írak. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, er Börkur á förum til Ítalíu þar sem hann fer í vikuþjálfun áður en hann tekur við nýja starfinu í Írak.

Áfengisgjald lækkað um 30%

Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis.

Leigði í ósamþykktu húsnæði

<font face="Helv" size="2"> Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar leigði herbergi fyrir skjólstæðinga sína í nokkra mánuði í haust í ósamþykktu húsnæði á svæðinu við suðurhöfnina í bænum en var vísað úr leigu þar sem skjólstæðingunum fylgdu ekkert nema vandræði. </font>

Viðsnúningur á leigumarkaði

Spurn eftir leiguhúsnæði er mun minni en framboðið af því. Þessu valda bætt kjör á fasteignalánamarkaði þannig að fleiri geta keypt sér íbúð en áður. Leiga hefur lítið sem ekkert hækkað síðustu misseri.

Fellur portúgalska ríkisstjórnin?

Portúgalska ríkisstjórnin mun falla í þingkosningunum um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Jafnaðarmannaflokkurinn sem er í stjórnarandstöðu hefur töluvert forskot á sósíaldemókrata, sem leiða ríkisstjórnina, og samkvæmt sumum könnunum myndu jafnaðarmenn ná hreinum meirihluta ef kosið yrði nú.

Sýknaður en lögmaðurinn sektaður

Karlmaður var sýknaður í Hæstarétti í dag af líkamsárás á skemmtistað fyrir tveimur árum. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn til fimm mánaða fangelsisvistar. Héraðsdómur hafði einnig sektað verjanda mannsins, m.a. fyrir að hafa virt ábendingar dómara að vettugi og gert honum upp skoðanir.

Vill meiri þrýsting á Sýrlendinga

Sýrlendingar eru úr takt við önnur ríki í Mið-Austurlöndum, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann lýsti því yfir að hann vildi vinna með öðrum ríkjum að því að þrýsta á Sýrlendinga um að hverfa með her sinn frá Líbanon.

Meiri réttur flugfarþega

Flugfarþegar eiga rétt á tugþúsunda króna greiðslum verði þeir af flugi fyrir verknað flugfélagsins sem þeir eiga bókað flug með. Þetta er hluti af nýjum reglum Evrópusambandsins um réttindi flugfarþega sem tóku gildi í gær.

Þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna

Írak er orðið að þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn sem geta beitt reynslu sinni þaðan til árása annars staðar. Þetta kom fram í máli Porter Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) þegar hann svaraði bandarískum þingmönnum.

Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum

Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum.

Bið eftir stjórnarmyndun

Íraska kjörstjórnin kynnti í gær staðfest úrslit í þingkosningunum en talið er að nokkrar vikur líði áður en ný ríkisstjórn tekur við völdum. Ástæðan er sú að flokkarnir sem sæti eiga á þingi hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forsætisráðherra.

Vatíkanið kennir andasæringar

Háskóli Vatíkansins er farinn að bjóða upp á nýtt námskeið. Hér eftir geta rómversk-kaþólskir klerkar lært hvernig á að særa illa anda úr andsetnu fólki, að því er BBC greindi frá.

Krefjast brottreksturs forsetans

Foreldrar barna sem létu lífið þegar rússneskir hermenn réðust gegn gíslatökumönnum í skóla í Beslan krefjast þess að forseti Norður-Ossetíu verði rekinn. Þau skrifuðu Vladimír Pútín Rússlandsforseta bréf og báðu hann um að reka Alexander Dzasokhov úr embætti forseta Norður-Ossetíu.

Bankarán IRA talið upplýst

Írskir lögreglumenn hafa handtekið sjö einstaklinga sem grunaðir eru um bankarán í Belfast og lagt hald á andvirði um 260 milljóna króna. Írska lýðveldishernum hefur verið kennt um bankaránið og það staðið í vegi fyrir friðarsamkomulagi á Norður-Írlandi.

Hollendingar íhuga kjarnorku á ný

Hollendingar eru á ný farnir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að loka eina kjarnorkuverinu í landinu eða hvort starfrækja eigi það áfram.

Svíi biður umhjálp

Sænskur ríkisborgari, sem haldið er í gíslingu í Írak, bað Karl Gústaf Svíakonung og Jóhannes Pál II páfa um hjálp við að losna lifandi úr gíslingu sinni. Gíslatökumenn tóku hjálparbeiðni mannsins upp á myndband og sendu það til fjölmiðla.

Vilja breytingar á skólastarfi

Fjölmargir skólastjórnendur hafa haft samband við Kennarasamband Íslands með í huga að breyta skólastarfi í grunnskólunum.

Ísaksskóli hækkar laun og gjöld

Tíu kennarar af sextán í Ísaksskóla hafa gert sérsamning um kjör. Kennarasamband Íslands segir samninginn brjóta í bága við lög. Skólastjóri Ísaksskóla segir Kennarasambandið hafa verið með í ráðum. Skólagjöld hækka mest um tæpan þriðjung. </font /></b />

Ólögmæt handtaka á mótmælanda

Íslenska lögreglan var í dag fundin sek um að hafa handtekið karlmann með ólögmætum hætti sumarið 2002 og skert tjáningarfrelsi hans. Ríkinu var gert að greiða manninum bætur. Lögmaður hans telur líklegt að þrír menn sem lögreglan handtók við sama tækifæri fái einnig bætur frá ríkinu.

Víglína í átökum við Bandaríkin

Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin.

Sjá næstu 50 fréttir