Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikið áfall fyrir Fischer Stuðningsmenn Bobbys Fischers eru sárir og reiðir yfir að allsherjarnefnd Alþingis skuli ekki leggja til að hann fái íslenskan ríkisborgararétt. Sæmundur Pálsson segir að þetta verði mikið áfall fyrir Fischer. 17.2.2005 00:01
Strætisvagn skemmdist í eldsvoða Strætisvagn stórskemmdist í eldsvoða í morgun. Afturhluti vagnsins stóð í björtu báli eftir að eldur kom upp í vélarrúminu. Engir farþegar voru um borð en vagnstjórar fá sérþjálfun í hvernig eigi að bregðast við svona óhöppum. 17.2.2005 00:01
Tveir harðir árekstar Tveir harðir árekstrar urðu með skömmu millibili í gærkvöldi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. 17.2.2005 00:01
16 milljónir í bætur vegna slyss Hæstiréttur hefur dæmt Útgerðarfélag Akureyringa til að greiða fyrrum háseta á Hólmadrangi sextán milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð um borð í skipinu haustið 1999. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. 17.2.2005 00:01
Bætur vegna ólöglegrar handtöku Ríkið hefur verið dæmt til að greiða karlmanni 90 þúsund króna bætur vegna ólöglegrar handtöku í tengslum við heimsókn forseta Kína til Íslands sumarið 2002. 17.2.2005 00:01
Fischer fær ekki ríkisborgararétt Á fundi allsherjarnefndar í gærmorgun var ákveðið að mæla ekki með því við Alþingi að bandaríska skákmanninum Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að svo stöddu. 17.2.2005 00:01
Frumvarp um reykingabann Siv Friðleifsdóttir og þrír aðrir þingmenn lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um að reykingar yrðu alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem og við aðrar menningar- og félagssamkomur. 17.2.2005 00:01
Stöndum okkur verr en Írakar Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á það í umræðum um kosningarnar í Írak á Alþingi í fyrradag að hlutfall kvenna á íraska þinginu væri hærra en á Alþingi Íslendinga. 17.2.2005 00:01
Bað til guðs - fékk skyldusparnað Viðbrögð þeirra sem eiga óvæntan glaðning í formi skyldusparnaðar hjá Íbúðalánasjóði eru oftast gleði blandin. Einn hafði beðið til guðs, af því að bíllinn hans bilaði. Þá datt bréf inn um lúguna hjá honum. Svíi, sem ekki hafði komið til landsins í 18 - 20 ár, eyddi sínum sparnaði á þjóðhátíð. 17.2.2005 00:01
Ræða þarf stöðu trúarlegra skóla Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, hefur viðrað ugmyndir um hvernig breyta megi einkareknum skólum í borginni. Sagði hann meðal annars um Suðurhlíðarskóla, sem rekinn er af aðventistum, að hann væri rekinn á trúarlegum forsendum og ræða þyrfti stöðu borgarinnar gagnvart slíkum skólum. 17.2.2005 00:01
Kristinn H. tekinn í sátt Sættir náðust í gærkvöld milli Kristins H. Gunnarssonar og þingflokks Framsóknarflokksins er Kristni voru boðin að nýju sæti í sjávarútvegsnefnd og umhverfisnefnd, sem hann sat í áður en honum var vikið úr nefndum í haust. 16.2.2005 00:01
Milljónahækkanir í hverjum mánuði Formaður félags fasteignasala þvertekur fyrir að fasteignasalar sjálfir haldi íbúðaverði eins háu og þeim er mögulegt. Dæmi er um að íbúðir hafi hækkað um fjórar milljónir á þremur mánuðum. </font /></b /> 16.2.2005 00:01
Kyoto-sáttmálinn orðinn gildur Kyoto-sáttmálinn um losun gróðurhúsalofttegunda tók loks gildi í nótt, sjö árum eftir að hann var samþykktur. Til þess að sáttmálinn tæki gildi þurfti aðild landa sem bæru samanlagt ábyrgð á losun að minnsta kosti 55% prósenta gróðurhúsalofttegunda heimsins. 16.2.2005 00:01
Kalla sendiherra sinn heim Yfirvöld í Líbanon segja yfirgnæfandi líkur á að morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra, í fyrradag hafi verið sjálfsmorðssprengjuárás. Þrátt fyrir það hafa Bandaríkjamenn kallað sendiherra sinn í Sýrlandi heim í kjölfar árásarinnar. 16.2.2005 00:01
10 mánuðir fyrir röð afbrota Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tuttugu og sjö ára karlmann í tíu mánaða fangelsi og til greiðslu sekta til ýmissa aðilla fyrir óvenju skrautlegan afbrotaferil á skömmum tíma í fyrra. Þeim ferli lauk með því að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í byrjun desember og hefur setið í því síðan. 16.2.2005 00:01
Bílvelta við Kambana Ökumaðaur jeppa slapp ómeiddur þegar jeppinn rann út af Suðurlandsvegi rétt ofan við Kamba í gærkvöldi og valt. Hálka var á vettvangi og skemmdist jeppinn talsvert. 16.2.2005 00:01
Hellisheiðin lokuð Kolvitlaust veður er nú á Hellisheiði og hefur henni verið lokað. Umferðin rétt mjakast áfram og nokkrir bílar hafa farið út af vegum. Innanlandsflug hjá bæði Íslandsflugi og Landsflugi liggur niðri vegna veðurofsans. 16.2.2005 00:01
Snarpur skjálfti nærri Tókýó Tuttugu og átta manns slösuðust í jarðskjálfta upp á 5,4 á Richter sem varð í grennd við Tókýó snemma í morgun. Engar alvarlegar skemmdir urðu í skjálftanum en nokkur truflun varð á lestarsamgöngum og hlutir féllu úr hillum í verslunum og heimahúsum. 16.2.2005 00:01
Rafmagnstruflanir í Borgarfirði Rafmagnstruflanir urðu í Borgarfirði í gærkvöldi vegna bilunar í svonefndri Mýralínu. Starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins fundu bilun í háspennulínunni og þurfti að taka straum af henni á meðan viðgerð fór fram en allt komst í lag síðar um kvöldið. 16.2.2005 00:01
Gefur Magasin falleinkunn Jóhannes Jónsson í Bónus gefur þjónustunni í Magasin du Nord, sem Baugur keypti nýverið, falleinkun í viðtali við <em>Jótlandspóstinn</em> í gær. Þar lýsir Jóhannes því að hann hafi verið staddur í Kaupmannahöfn og vantað ný föt, og auðvitað farið í Magasin. 16.2.2005 00:01
Þúsundir á götum Beirútar Þúsundir manna hafa safnast saman í Beirút, höfuðborg Líbanon, til þess að fylgjast með því þegar líkkista Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, verður flutt í gegnum borgina. Hariri var myrtur í sprengjuárás í fyrradag. Stór hluti þeirra sem safnast hafa saman bera skilti með áletruðum ókvæðisorðum um Sýrlendinga. 16.2.2005 00:01
Langfleygasta farþegavél heims Flugrisinn Boeing afhjúpuðu í gær langfleygustu farþegaflugvél í heimi. Vélin getur ferðast á milli nánast hvaða tveggja borga sem er í heiminum, án þess að millilenda. Þannig verður hægt að ferðast í beinu tuttugu tíma flugi á milli New York og Sidney í Ástralíu svo að dæmi sé tekið. 16.2.2005 00:01
Smástirni fer nærri Jörðu Föstudagurinn þrettándi verður ekki óhappadagur í apríl árið 2029. Þá mun smástirni á stærð við þrjá knattspyrnuvelli fara mjög nærri Jörðinni, án þess þó að rekast á hana. Þetta er mat stjörnufræðinga í Bretlandi. 16.2.2005 00:01
Slæmt ástand á Keflavíkurflugvelli Fjöldi manns bíður um borð í millilandaflugvélum við Flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem flugmenn leggja ekki í hann vegna vinds og blindu á vellinum. Sjálfar brautirnar eru hins vegar í lagi. 16.2.2005 00:01
Munu brátt geta smíðað kjarnavopn Ísraelsstjórn heldur því fram að aðeins sé hálft ár þar til stjórnvöld í Íran verði búin að koma sér upp allri þeirri þekkingu sem þau skortir nú til að smíða kjarnorkuvopn. 16.2.2005 00:01
Barnið komið til foreldra sinna Litla kraftaverkabarnið frá Srí Lanka, sem fannst undir braki skömmu eftir að flóðbylgjan gekk þar á land annan dag jóla, hefur nú loks fengið að fara til foreldra sinna. Níu pör sögðust vera foreldrar barnsins en nú hefur verið skorið úr um málið með DNA-prófi. 16.2.2005 00:01
Danskur ráðherra segir af sér Ráðherra fjölskyldu- og neytendamála í Danmörku sagði af sér í morgun vegna eigin peningavandræða. Ráðherranum, Henriette Kjær, og eiginmanni hennar hafði margoft verið fyrirskipað af dómstóli í Kaupmannahöfn að borga upp vangreitt lán fyrir húsgagnakaupum upp á rúmlega 600 þúsund íslenskar krónur, en aldrei farið eftir því. 16.2.2005 00:01
Hundruð flugfarþega biðu í vélunum Hundruð flugfarþega þurftu að bíða tímunum saman úti í vélum við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli í morgun þar sem vélarnar ýmist komust ekki frá flugstöðinni eða ekki að henni vegna veðurofsa. Allt innanlandsflug lá líka niðri í morgun. 16.2.2005 00:01
Blaðakonan biður sér griða Ræningjar ítölsku blaðakonunnar Giuliöna Sgrena hafa sent frá sér myndband þar sem hún biður sér griða. Sgrena, sem er fimmtíu og sjö ára blaðamaður á ítalska dagblaðinu Il Manifesto, var rænt í Bagdad í byrjun febrúar. 16.2.2005 00:01
Slys á börnum algengari á Íslandi Slys á ungum börnum í heimahúsum eru algengari hér á landi en í nágrannalöndunum. Velferðarsjóður barna á Íslandi hefur látið gera tíu upplýsinga- og fræðslumyndir í því skyni að fækka slysum á börnum. 16.2.2005 00:01
Ágreiningurinn ekki úr sögunni Kristinn H. Gunnarsson segir allan skoðanaágreining ekki úr sögunni þótt hann tæki aftur sæti í sjávarútvegsnefnd og umhverfisnefnd fyrir hönd Framsóknarflokksins. 16.2.2005 00:01
Sýrlensk yfirvöld grunuð um morðið Þúsundir manna fylgdu Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, til grafar í morgun. Líkfylgdin var skipulagslaus og róstusöm og stór hluti syrgjenda hrópaði ókvæðisorð um yfirvöld í Sýrlandi sem eru grunuð um að hafa staðið að baki morðárásinni. 16.2.2005 00:01
Aukin réttindi foreldra Félagsmálaráðherra boðaði rétt fyrir hádegi umfangsmiklar breytingar á réttindum foreldra langveikra barna í fyrirspurnartíma sem nú stendur yfir á Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bar upp fyrirspurnina um þennan rétt foreldra. 16.2.2005 00:01
Skaut sprengju nærri kjarnorkuveri Óþekkt flugvél skaut sprengju á autt svæði utan við borgina Dailam í suðurhluta Írans fyrir stundu. Kjarnorkuver er staðsett skammt frá staðnum þar sem sprengjan lenti en frekari upplýsingar um sprenginguna liggja ekki fyrir að svo stöddu. 16.2.2005 00:01
Millilandaflug komið í fullan gang Millilandaflug er komið í fullan gang á nýjan leik eftir miklar tafir vegna vonskuveðurs í morgun. Allar vélar sem áttu að fara í morgun eru nú farnar, ef undan eru skildar vél sem fara á til Kanaríeyja nú um tvöleytið og flugvél Iceland Express sem fer í loftið eftir tæpa klukkustund. 16.2.2005 00:01
Íranar og Sýrlendingar samstíga Íranar og Sýrlendingar ætla að mynda bandalag gegn hverjum þeim sem ógnar þjóðunum tveimur. Bandaríkjamenn hafa undanfarið lýst yfir óánægju með stjórnarhætti í löndunum og er talið að yfirlýsingin nú sé andsvar þjóðanna við ummælum Bandaríkjamanna undanfarið. 16.2.2005 00:01
170 milljónir fram úr áætlun R-listinn hefur engar haldbærar skýringar á því af hverju kostnaður við landnámsskálann við Aðalstræti hefur farið að minnsta kosti 170 milljónir króna fram úr kostnaðaráætlun. Þetta segir oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavíkurborg. 16.2.2005 00:01
Óvíst um orsök sprengingarinnar Allt er enn á huldu um sprengingu sem greint var frá að hefði orðið nálægt kjarnorkuveri í Íran í morgun. Vitni á staðnum fullyrtu í fyrstu að sprengju hefði verið skotið úr flugvél á autt svæði nærri borginni Dailam í suðurhluta Írans. 16.2.2005 00:01
Ávísað öðrum ólöglegum lyfjum Sjúklingum sem tóku gigtarlyfið Vioxx áður en það var tekið af markaði hér á landi síðastliðið haust var áfram ávísað Cox-lyfjum sem alþjóðlegar lyfjastofnanir hafa einnig varað við. 16.2.2005 00:01
Nýbyggingarnar falli að umhverfinu Þróunarfélag miðborgarinnar fagnar því að lokið sé við deiliskipulag Laugavegar svo að hefjast megi handa við uppbyggingu götunnar. Samtökin leggja ennfremur áherslu á að mikil áhersla verði lögð á að þær nýbyggingar sem rísi í stað eldri húsa við Laugaveg á næstunni verði vel hannaðar og falli sem best að umhverfi sínu. </font /> 16.2.2005 00:01
Bandaríkjamenn segjast saklausir Embættismaður í Íran sagði á fjórða tímanum að ástæða sprengingar sem varð í landinu fyrr í dag sé sú að verið sé að byggja stíflu á svæðinu. Vitni á staðnum fullyrtu í fyrstu að sprengju hefði verið skotið úr flugvél á autt svæði nærri borginni Dailam í suðurhluta Írans. Bandaríkjamenn segjast hvergi hafa komið þarna nærri. 16.2.2005 00:01
Innanlandsflug liggur enn niðri Allt innanlandsflug liggur enn niðri og verður ekkert flogið fyrr en í fyrsta lagi eftir klukkan fimm en þá verður athugað með skilyrði á nýjan leik. Millilandaflug er aftur á móti komið í fullan gang á nýjan leik eftir miklar tafir vegna vonskuveðurs í morgun. 16.2.2005 00:01
Beðið eftir lögmanninum Rannsókn á því hvort fjórir lettneskir starfsmenn GT verktaka séu löglegir í starfi sínu við fólksflutninga á Kárahnjúkum eða ekki er í biðstöðu meðan beðið er eftir því að lögmaður GT verktaka komi úr ferðalagi. 16.2.2005 00:01
Óviðeigandi gagnrýni Formaður Læknafélags Íslands kveðst telja ummæli Ingu J. Arnardóttur, deildarstjóra Tryggingastofnunar, mjög óviðeigandi vegna þess að forsendur gagnrýni hennar á lækna virðist einkum byggjast á fjárhagslegum sjónarmiðum. 16.2.2005 00:01
Læknar mjög meðvitaðir Læknar eru mjög meðvitaðir um hugsanlegar aukaverkanir verkjalyfja í COX - II lyfjaflokknum.</font /> 16.2.2005 00:01
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent