Sættust yfir tindabikkju 17. febrúar 2005 00:01
Ein athyglisverðasta frétt vikunnar er án efa að sættir náðust milli Kristins H. Gunnarssonar og hinna ellefu þingmanna Framsóknarflokksins. Þessi sögulegi atburður átti sér stað á veitingastaðnum Við tjörnina en sá stendur við Templarasund, á ská á móti Alþingishúsinu. Íris Emilsdóttir, starfsmaður veitingastaðarins, segist þess fullviss að andrúmsloft staðarins hafi haft sitt að segja um að sættir náðust. "Það er ekki spurning, húsið hafði tvímælalaust sín áhrif enda er svo kósý og notalegt hjá okkur." Í ofanálag eru gardínurnar, sem dregnar voru fyrir glugga salarins sem Framararnir sátu í, prýddar fiðrildum en sem kunnugt er eru fiðrildi tákn um bjartari tíð með blóm í haga. Það er svo greinilegt af orðum Írisar að þingmenn Framsóknarflokksins eru óskagestir hvers veitingamanns. "Þetta er óskaplega kurteist og indælt fólk," segir hún. Flestir fengu þeir sér heitreyktan svartfugl í forrétt og eldsteikta tindabikkju í aðalrétt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fólk nær sáttum við tjörnina, fyrir því hefur Íris vissu. "Það er ekki spurning. Hér hafa til dæmis hjón náð sáttum enda svo mikil rómantík í húsinu." Hvort það hafi haft sín áhrif að nýlega var sett upp málverk eftir Ómar Stefánsson yfir útidyrum staðarins skal ósagt látið en hann er jú nafni hins ötula bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í Kópavogi. Heil sýning á verkum Ómars hefst á veitingastaðnum Við tjörnina í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira