Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hærra gjald í sund í Kópavogi Aðgangseyri fyrir fullorðna í Sundlaug Kópavogs hækkar um tæpan þriðjung, úr 220 krónum í 280. 19.12.2004 00:01
Hættulegt liðagigtarlyf Varað er við lyfinu Celebra, sem notað er við liðagigt, þar sem það eykur líkurnar á kransæðastílfu og heilablóðfalli. Landlæknir ráðleggur fólki sem notar lyfið að ræða við lækninn sinn. 19.12.2004 00:01
Orkuveitan vill víðtækari leyfi Orkuveita Reykjavíkur hefur óskað eftir svörum Skipulagsstofnunar um hvort sjö boranir til rannsóknar á Hellisheiði þurfi umhverfismat. Fjórar þeirra eru á nýju svæði. 19.12.2004 00:01
Málshöfðun í farvatninu Gremja og reiði ríkja í garð hafnfirskra bæjaryfirvalda, sem fyrr á árinu ákváðu að fela einkafyrirtæki að annast ræstingar stofnana bæjarins. 19.12.2004 00:01
Skeljungur skammist sín Ungir jafnaðarmenn skora á Skeljung að skammast sín fyrir það sem kallað er í ályktun ósvífnar hótanir í garð Kópavogsbæjar. Skeljungur gerði athugasemdir við að Atlantsolíu væri úthlutað lóð að Dalbraut í Kópavogi, við hlið bensínstöðvar Skeljungs, og sendi Kópavogsbæ erindi þess efnis. 19.12.2004 00:01
Varað við gitgarlyfi Komið hefur í ljós að neysla gigtarlyfsins Celebra geti stuðlað að kransæðastíflu og heilablóðfalli. Langtímarannsóknum á lyfinu hefur verið hætt og ráðleggur Landlæknisembættið fólki sem notar það að ræða málin við lækni sinn í næstu heimsókn. 19.12.2004 00:01
62 liggja í valnum eftir daginn Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð. 19.12.2004 00:01
Jafnvel flogið beint til Japan Sæmundur Pálsson heldur hugsanlega til Japan í dag til að fylgja Bobby Fischer til Íslands. Til greina kemur að fljúga beint til Tókýó og leigja til þess einkaþotu enda flugleiðin löng og hefðbundið farþegaflug tímafrekt. 19.12.2004 00:01
Hansína er nýi bæjarstjórinn Hansína Á. Björgvinsdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Kópavogi á fyrsta vinnudegi á nýju ári. Hún þurfti góðan umhugsunarfrest áður en hún ákvað að takast á við verkefnið. "Það hafði aldrei hvarflað að mér að þurfa að kljást við þetta verkefni," segir hún. </font /></b /> 19.12.2004 00:01
Ungbarnasund styrkir börnin Ungbarnasund styrkir börnin og eflir skynfæri þeirra og jafnvægi, segir Snorri Magnússon sem kennt hefur ungbarnasund í fjórtán ár. Barnalæknar hér á landi telja óvarlegt að fullyrða að ungbarnasund skaði ónæmiskerfi barnanna, eins og gert er í sænskri rannsókn. 19.12.2004 00:01
Misjafn erfðabreytileiki Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar sýnir að sterk tengsl eru milli búsetu og erfðabreytileika. Kári Stefánsson segir niðurstöðurnar mikilvægar og þær megi nota til að hanna tilraunir til að einangra erfðamengi og kortleggja ákveðna sjúkdóma. </font /></b /> 19.12.2004 00:01
Bush maður ársins í annað sinn Bandaríska tímaritið Time hefur útnefnt George W. Bush Bandaríkjaforseta mann ársins og segir hann hafa mótað stjórnmálin upp á nýtt með endurkjöri sínu fyrr á árinu. 19.12.2004 00:01
Tugþúsundir mörgæsa í lífshættu Tugþúsundir mörgæsaunga á Suðurskautslandinu gætu orðið hungurmorða á næstu vikum vegna risaísjaka sem lokar af veiðisvæði foreldra þeirra. Ísjakinn er þrjú þúsund ferkílómetrar, sá stærsti sem menn hafa séð. Vísindamenn telja að unganna bíði aðeins dauði. Í ísjakanum er jafnmikið vatn og rennur um ána Níl á áttatíu árum. 19.12.2004 00:01
Segja Musharraf svíkja loforð Um það bil fjögur þúsund manns mótmæltu á götum Rawalpindi í Pakistan fyrirætlunum Pervez Musharraf forseta um að sitja áfram sem yfirmaður heraflans, en hann hafði áður lofað að láta af stjórn hans nú í árslok. 19.12.2004 00:01
Hrottaleg morð í Frakklandi Tvær hjúkrunarkonur voru myrtar á hrottafenginn hátt á geðsjúkrahúsi í borginni Pau í Suður-Frakklandi á laugardag. Önnur konan var skorin á háls en hin var hálshöggvin og höfuð hennar sett upp á sjónvarpstæki, samkvæmt því sem kemur fram á vef BBC. Málið hefur vakið mikinn óhug um allt Frakkland. 19.12.2004 00:01
Fyrsta vélin með íslenskt leyfi Fyrsta Dornier 228 flugvélin með íslenskt rekstrarleyfi hefur hafið flug. Ungur Grindvíkingur starfrækir vélina og ætlar að herja á Skotlandsmarkað. Hann segir það vel koma til greina að reka slíka vél hér á landi innan skamms, ef vel gengur. 19.12.2004 00:01
Yukos selt á 600 miljarða Óþekkt fyrirtæki sem nefnist Baikalfinansgroup keypti Yuganskeneftegaz, dótturfyrirtæki rússneska olíufyrirtækisins Yukos, á uppboði í gær. Kaupverðið var tæplega 600 milljarðar króna og fara peningarnir upp í skattskuldir Yukos sem sagðar eru nema 1.800 milljörðum króna. 19.12.2004 00:01
Tugir létust í Najaf og Karbala Mesta mannfall á einum degi í Írak í nokkra mánuði varð í gær þegar tvær sprengjur sprungu í helgustu borgum sjíamúslima. Þrír starfsmenn kosninganefndar voru skotnir til bana. Myndband með tíu íröskum gíslum sýnt. 19.12.2004 00:01
Ríkisstjórnin kynnt á næstu dögum Hamid Karzai, forseti Afganistan, segist ætla að kynna nýja ríkisstjórn landsins á næstu dögum. 19.12.2004 00:01
Rumsfeld skrifaði ekki ættingjum Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir að skrifa ekki persónulega undir bréf sem send eru fjölskyldum fallinna hermanna. Rumsfeld lét sérstaka vél skrifa undir bréfin. 19.12.2004 00:01
Rúrí stefnir íslenska ríkinu Listakonan Rúrí hefur stefnt íslenska ríkinu og kristnihátíðarnefnd vegna ágreinings um bótaskyldu vegna útilistaverks sem skemmdist á kristnihátíð árið 2000. Bótaskyldan byggist á lagaákvæðum í Jónsbók frá árinu 1281. Málið hefur verið tekið fyrir í héraðsdómi. 19.12.2004 00:01
Atlantsskip styrkir veik börn Fyrirtækið Atlantsskip hefur ákveðið að veita Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna styrk í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina sinna. 19.12.2004 00:01
Montaði sig af barninu Lisa Montgomery var á föstudag kærð fyrir að hafa kyrkt konu til bana og rænt barni hennar úr móðurkviði. Barnið er við góða heilsu. Montgomery og maður hennar gengu um með barnið á veitingastað og montuðu sig af því nokkrum tímum áður en þau voru handtekin. 19.12.2004 00:01
Milljarða bætur fyrir ruslpósts Dómstóll í Iowa hefur dæmt þrjú fyrirtæki til þess að greiða netþjónustufyrirtæki 63 milljarða króna í skaðabætur fyrir ruslpóst sem þau sendu. 19.12.2004 00:01
Eldsvoði í ferju Eldur braust út í ferju sem flutti nokkur hundruð manns frá Sikiley til meginlands Ítalíu. Ferjan var dregin til baka til hafnar. 19.12.2004 00:01
170 fangar látnir lausir Ísraelsk stjórnvöld munu láta 170 palestínska fanga lausa úr fangelsi á næstu dögum. Ástæðan er samkomulag stjórnarinnar og egypska forsetans Hosni Mubarak. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði ákvörðunina vera "góðverk" og sýna "mikla vináttu" í garð egypska forsetans. 19.12.2004 00:01
Tómir kjörstaðir í Turkmenistan Kjörstaðir í Turkmenistan voru nánast tómir þegar kosið var á þing í landinu. Yfirvöld brugðu á það ráð að ganga í hús til þess að fá fólk til að kjósa. 19.12.2004 00:01
Vélsleðamenn skullu saman á stökki Tveir menn, hvor á sínum vélsleðanum, skullu saman í stökki sem varð til þess að annar slasaðist alvarlega. Mennirnir voru að leika sér að stökkva yfir veginn yfir á Hauganes í Eyjafirði þegar sleðar þeirra skullu saman. 19.12.2004 00:01
Ekki samið fyrir jól Tónlistarkennarar og sveitarfélögin ná ekki samkomulagi um kjör kennaranna fyrir jól eins og stefnt var að. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður Félags tónlistarkennara, segir launaliðinn taka sinn tíma. Menn séu ekki sömu skoðunar hvað hann varði. 19.12.2004 00:01
Brýnt að nýtt fangelsi rísi Margrét Frímannsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, gagnrýnir þá tilhögun að grunaðir einstaklingar sem dæmdir eru til gæsluvarðhalds þurfi að dvelja með dæmdum föngum á Litla-Hrauni. 19.12.2004 00:01
Óvenjumargir í varðhaldi Nítján sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um alvarlega glæpi. Það er óvenju margt að mati lögreglu og eins eru mörg alvarleg afbrot orsök þess. Reyndar hefur árið allt verið annasamt og að meðaltali hafa tíu til fjórtán einstaklingar verið í gæsluvarðhaldi í einu. 18.12.2004 00:01
Bin Laden hvetur til árása í Írak Osama bin Laden hvetur fylgismenn sína og skæruliða til að beina athygli sinni að Írak og árásum á olíuleiðslur og -vinnslustöðvar við Persaflóa, samkvæmt afriti af ávarpi hans sem birtist á vefsíðu á Netinu. Bin Laden segir árásir af því tagi vera öflugasta vopnið gegn Bandaríkjunum því þannig megi veikja þau efnahagslega. 18.12.2004 00:01
Fjöldaslagsmál í miðborginni Slegist var úti á götu í miðborg Reykjavíkur snemma í morgun. Dyravörður á veitingahúsi við Tryggvagötu lét lögreglu vita af slagsmálum laust fyrir klukkan sex í morgun. Þegar lögregla kom að voru tveir menn að slást fyrir utan Glaumbar og aðrir tveir voru að slást úti á miðri götunni. 18.12.2004 00:01
Umdeild hryðjuverkalög í Rússlandi Ný hryðjuverkalög voru í gærkvöldi samþykkt í rússneska þinginu. Margir þingmenn og mannréttindafrömuðir líta svo á að lögin grafi undan grundvallarréttindum almennings. Lögin heimila meðal annars einskonar neyðarástand vegna hryðjuverkaógnar og gefa stjórnvöldum heimild til að hlera síma, stöðva fólk á götu og leita á því, banna mótmæli og fleira í þeim dúr. 18.12.2004 00:01
Höggva eigið tré í Heiðmörk Skógræktarfélag Reykjavíkur býður félagsmönnum að velja og höggva eigið tré í Heiðmörk í dag. Þar verður haldin jólatrjáahátíð á tjaldsvæðinu í Hjalladal milli klukkan ellefu og þrjú en leyft verður að höggva stafafuru. 18.12.2004 00:01
Skíðasvæði Ísfirðinga opið í dag Skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal verður opnað í dag í fyrsta skipti á þessum vetri. Opnað var nú klukkan ellefu og verður opið til þrjú á svigsvæðinu og á svipuðum tíma á göngusvæðinu. Frábært færi er á staðnum, fimm stiga frost og blíða, léttskýjað og bæði leiðir og brautir troðnar. 18.12.2004 00:01
Skemmdi bíl á háskólalóðinni Sautján ára piltur dundaði sér við það í ölæði á háskólalóðinni laust fyrir klukkan sjö í morgun að skemma bíl sem þar stóð. Öryggisvörður sá til hans þar sem hann var að brjóta bílrúðu og kallaði til lögreglu. Piltur var handtekinn og settur í fangageymslu og er þess nú beðið að hann verði skýrsluhæfur, eins og það var orðað. 18.12.2004 00:01
Jafngildir innrás á eyna Stjórnvöld á Taívan hafa töluverðar áhyggjur af svokölluðum aðskilnaðarlögum sem kínversk stjórnvöld hafa samþykkt. Lögin fjalla um að aðskilnaður á milli Kína og Taívan, sem Kínverjar telja hluta Kína, komi ekki til greina. Taívanar segja þetta jafngilda heimild til innrásar á eyna. 18.12.2004 00:01
Skíðasvæði Siglfirðinga opið í dag Skíðasvæði Siglfirðinga verður opnað í dag. Þar snjóaði mikið í fyrrinótt og einnig í gær og er nú kominn þar mikill og góður snjór. Skíðasvæðið verður opnað klukkan eitt og haft opið fram eftir degi. 18.12.2004 00:01
Leynifangelsi á Guantanamo Bandaríska leyniþjónustan CIA heldur föngum í leynifangelsi í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu. Þeir fangar njóta enn minni réttinda en aðrir fangar þar og óljóst er hvað fer fram í fangelsinu. 18.12.2004 00:01
Bæturnar hækka um 3,5% Bætur almannatrygginga hækka um 3,5% um áramótin samkvæmt reglugerð sem heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra hefur undirritað. Þá hækka frítekjumörk um 5%. Félagsmálaráðherra hefur og ákveðið að hækka atvinnuleysisbætur um 3% frá 1. janúar, sem og fæðingarstyrk og lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, einnig um 3%. 18.12.2004 00:01
Ákærunni haldið til streitu? Bandaríkjamenn virðast ætla að halda ákæru á hendur Bobby Fischer til streitu miðað við orð talsmanns utanríkisráðuneytisins í Washington í gær. 18.12.2004 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hamragili voru opnuð í morgun. Friðjón Árnason, staðgengill forstöðumanns skíðasvæðisins í Bláfjöllum, segir tvær diskalyftur opnar í Suðurgili og færið sé gott því eftir harðfenni undafarið hafi þunnur snjór fallið í nótt og brekkurnar því mjúkar. Veðurblíðan er svo ekki til að skemma fyrir. 18.12.2004 00:01
Annað ávarp bin Ladens í vikunni Osama bin Laden hvetur fylgismenn sína og skæruliða til að beina athygli sinni að Írak og árásum á olíuleiðslur og -vinnslustöðvar við Persaflóa, því það valdi Bandaríkjunum mestum skaða. Bin Laden hefur nú sent frá sér tvö ávörp í vikunni til að hvetja skæruliða og hryðjuverkamenn til dáða. 18.12.2004 00:01
Tyrkir trójuhestur öfgamanna Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbíu, segir að hugsanleg innganga Tyrkja í Evrópusambandið sé trójuhestur íslamskra öfgamanna. Með aðild þeirra opnist fjölmargar leiðir fyrir hryðjuverkamenn að fremja hryðjuverk í Evrópu og segir Gaddafi að nú hlakki í Osama bin Laden. Þetta kom fram í viðtali við leiðtogann á ítölsku sjónvarpsstöðinni RAI í morgun. 18.12.2004 00:01