Fleiri fréttir

Stjórnarherinn kallaður frá Darfur

Stjórnvöld í Súdan hafa byrjað að kalla herlið sitt frá Darfur-héraði. Deilendur fengu í gær sólarhringsfrest til að leggja niður vopn en friðarviðræður fara fram í Nígeríu. Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið deilendum frest til áramóta til að ná friðarsamkomulagi.

Hjón spara 40 þúsund ári

Hjón með meðaltekjur í Reykjavík spara sér fjörutíu þúsund króna útsvarsgreiðslur á ári með því að flytja lögheimili sitt yfir á Seltjarnarnes eða í Garðabæ. Þeir Reykvíkingar sem vilja flýja skattana gera þó enn betur með því að flytja á Hvalfjarðarströnd en þannig má lækka útsvarið um 120 þúsund krónur á ári.

2300 ára gömul múmía finnst

Tuttugu og þriggja alda múmía fannst nýverið í Mexíkó. Múmínan er af ungri stúlku og er hluti klæða hennar, hárs og fleira enn að finna í þurrum og köldum helli hátt uppi í fjöllum þar sem múmían fannst. Ólíkt því sem gert var í Egyptalandi þornaði og skorpnaði lík stúlkunnar vegna umhverfisaðstæðna en var ekki meðhöndlað sérstaklega.

Óska líklega eftir framsali

Yfirvöld í Washington áréttuðu í gær að Bobby Fischer væri eftirlýstur og virðist sem þar hyggist menn óska eftir framsali. Bandarísk yfirvöld hafa hingað til þagað þunnu hljóði vegna boðs Íslendinga um dvalarleyfi fyrir Bobby Fischer. Þar vofir yfir honum fangelsisvist þar sem hann rauf, að mati Bandaríkjamanna, viðskiptabann við Júgóslavíu þegar hann tefldi þar árið 1992.

Barni rænt úr móðurkviði

Ung kona í Bandaríkjunum var myrt á fimmtudaginn og ófæddu barni hennar rænt úr móðurkviði. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum, enda grimmdin nánast ólýsanleg.

Undanþágan gegn stefnu stjórnvalda

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður segir það geðþóttaákvörðun, sem fari þvert gegn stefnu stjórnvalda, að veita Bobby Fischer undanþágu um dvalarleyfi hér á landi. Honum líst illa á framtíðina fái útlendingar ekki að koma inn í landið eða dvelja í því, nema með undantekningum.

Sæmundur reiðubúinn til brottfarar

Olíufélagið Skeljungur hefur ákveðið að standa straum af ferðalagi Sæmundar Pálssonar til að fylgja Bobby Fischer hingað til lands. Sæmundur er klár í slaginn og bíður þess eins að Fishcer verði látinn laus. Hann segist vona að vinur sinn geti lifað venjulegu fjölskyldulífi á Íslandi ásamt japanskri unnustu sinni.

Styttri afgreiðslutími í Danmörku

Algengt er að verslanir í Árósum í Danmörku séu opnar til klukkan sjö eða átta síðustu kvöldin fyrir jól. Allt er lokað á aðfangadag og eitt kvöld í nóvember er opið til miðnættis vegna jólainnkaupa.

Ný og öflug músagildra

Ný tegund músagildru, sem hönnuð var í Súðavík, hefur reynst svo öflug að dæmi eru um að yfir þrjú hundruð mýs hafi veiðst í hana á tveimur mánuðum.

Hundabaðhús í Breiðholti

Hundabaðhús var opnað á bílaþvottastöð Löðurs við Stekkjabakka í Breiðholti í dag. Það er sagt vera það fyrsta sinnar tegundar í Evrópu. Á þessari nýju bílaþvottastöð er sérrými, helgað hundum, eða einskonar hundabaðhús.

Alþingismenn hætt komnir í flugi

Farþegar í flugvél British Airways voru hætt komnir þegar öryggi í flugstjórnarklefa brann yfir. Fjármálaráðherra Íslands var um borð í vélinni ásamt fimm þingismönnum og starfsmönnum utanríkisráðuneytisins.

Dansverk um sjálfsmorð frú Kohls

Þjóðverjar hafa óneitanlega sérstakar aðferðir til að takast á við söguna og nýjasta dæmið um það má berja augum í leikhúsi í Bonn. Þar er nú sýnt verk um sjálfsmorð eiginkonu Helmuts Kohls, fyrrverandi kanslara Þýskalands.

Sá að flugfreyjur voru óstyrkar

"Hver maður á sitt skapadægur og það var greinilega ekki komið að okkur," segir Gunnar I. Birgisson, alþingismaður sem staddur var um borð í flugvél British Airways þegar reykur kom upp í flugstjórnarklefanum.

Eftirlitslaus partí alltof mörg

Fjórir unglingar voru handteknir í heimahúsi í Breiðholti aðfaranótt laugardags, en nágrannar höfðu kvartað yfir háreysti og ólátum í þeim. Í ljós kom að unglingar á grunnskólaaldri voru eftirlitslausir í húsinu og var áfengisneysla mikil.

Kröfugerð ríkisins líklega kærð

"Þetta kemur mér á óvart í ljósi hæstaréttardómsins sem féll í haust," segir Rúnar Þórarinsson, oddviti sveitarstjórnar í Öxarfjarðarhreppi, um kröfugerð ríkisins um þjóðlendur á Norðausturlandi

Efnavopna Ali yfirheyrður

Ali Hassan al-Majid, fyrrverandi hershöfðingi og náfrændi Saddams Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var leiddur fyrir dómara í gær og spurður spjörunum úr. Yfirheyrslan var hluti af rannsókn á stríðsglæpum al-Majids, sem er betur þekktur sem efnavopna-Ali.

Bandaríkjamenn kunna að krefjast framsals Fischers

Lögfræðingar bandaríska dómsmálaráðuneytisins eru að kynna sér stöðuna sem upp er komin vegna boðs stjórnvalda hér um landvistarleyfi handa Bobby Fischer. Stjórnvöld hér ráðfærðu sig ekki við yfirvöld vestra áður en ákvörðunin var tekin. </font /></b />

Hundrað snúa ekki afturúr jólafríi

Um það bil hundrað portúgalskir verkamenn frá Kárahnjúkum, úr 250 manna hópi Impregilo sem sendur var heim í jólafrí í fyrradag, snúa ekki aftur til starfa við virkjanasvæðið.

Kaupin á verkum Sigmunds einsdæmi

Listfræðingar segja 18 milljóna króna kaup forsætisráðuneytisins á verkum teiknarans Sigmunds ekkert fordæmi eiga sér í listasögu Íslendinga. Fjárhæðin er nærri tvöföld árleg fjárveiting Listasafns Íslands til listaverkakaupa. </font /></b />

Fischer kom Íslandi á kortið

Bobby Fischer kom Íslandi á kortið, samkvæmt heimasíðu BBC. Þar er þeirri spurningu velt upp af hverju Íslendingar hafi kosið að bjóða ofsóknarbrjáluðum einsetumanni með afar öfgakenndar skoðanir landvistarleyfi. Það sé nánast óskiljanlegt í ljósi þess að það gæti komið við kauninn á Bandaríkjamönnum sem væru óneitanlega afar öflugir óvinir.

Mannfall í áhlaupi Ísraelshers

Tveir Palestínumenn féllu í morgun í áhlaupi Ísraelshers á Gasa-ströndina. Sjö særðust en fjöldi heimila var jafnaður við jörðu. Áhlaupið stendur enn yfir að sögn talsmanna Ísraelshers en tilgangurinn er að finna þá staði sem notaðir hafa verið sem felustaður árásarmanna sem skjóta flugskeytum og sprengjum á landnemabyggðir á Gasa-ströndinni.

Tankbíll valt á Kringlumýrarbraut

Ökumaður slapp ómeiddur þegar stór tankbíll, hlaðinn þurrum sandi, valt þegar hann var að komast yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í gærkvöldi. Bíllinn valt út fyrir veginn og tók olía og glussi að leka úr honum. Stóreflis krani var kallaður á vettvang til að ná bílnum á réttan kjöl og urðu nokkrar tafir á umferð á meðan.

Hjól flutningabíls losnuðu undan

Ökumaður og þrjú börn sluppu ómeidd þegar tvö hjól losnuðu undan flutningabíl á Vesturlandsvegi skammt frá Grundartanga í gærkvöldi og þeyttust á bílinn sem þau voru í. Ökumaður flutningabílsins náði að halda stjórn á bíl sínum eftir atvikið en bíllinn sem maðurinn og börnin voru í skemmdist svo mikið að hann var óökufær.

Skuldirnar lækki um 750 milljónir

Gert er ráð fyrir að greiða skuldir Reykjavíkurborgar niður um 750 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar sem afgreidd var á fundi borgarstjórnar sem stóð til klukkan hálfþrjú í nótt.

Rétt náði inn til lendingar

Flugmaður á eins hreyfils lítilli flugvél í ferjuflugi rétt náði inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi eftir að bensíndæla bilaði í vélinni. Flugmaðurinn, sem var einn í vélinni, sendi út neyðarkall þegar vélin var um 80 sjómílur vestur af Keflavík og voru þyrla Landhelgisgæslunnar og flugvél Flugmálastjórnar þegar kallaðar út.

Tyrkir láta ESB bíða

Tyrkir ætla að láta ráðamenn innan Evrópusambandsins bíða eftir svari við því hvort að Tyrkir gangist inn á þá skilmála sem settir voru fyrir aðildarviðræðum sem til stendur að hefjist í október á næsta ári. Króötum var í morgun einnig boðið að ganga til viðræðna við Evrópusambandið um aðild.

Rumsfeld rekinn?

Donald Rumsfeld verður ekki langlífur í embætti, fái félagar hans í Repúblíkanaflokknum einhverju ráðið. Bæði þingmenn og þungavigtarmenn í flokknum gagnrýna Rumsfeld og segja hann ótrúverðugan. Í þessu felst óbein gagnrýni á stefnu og störf Bush forseta.

Mikið um slys og óhöpp

Mikið var um slys og óhöpp í umferðinni í gærkvöldi en enginn slasaðist alvarlega þótt stundum hafi staðið tæpt. Sex manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans.

Leynifangelsi á Guantanamo

Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur haldið föngum, sem taldir eru sérstaklega mikilvægir, í leynifangelsi í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu samkvæmt fréttum <em>Washington Post</em> í morgun. Leyniþjónustan lét byggja sérstaka leynideild innan fangelsisins á Kúbu á þessu ári. Er það sérstaklega girt af með gaddavír og flóðlýst.

Eignir Júkos verða seldar

Helstu eignir rússneska olíufyrirtækisins Júkos verða seldar á næstunni, samkvæmt því sem rússnesk yfirvöld greindu frá í morgun, þrátt fyrir að bandarískur dómstóll hafi í gær sett lögbann á sölu eigna félagsins í nokkra daga.

Fischer vill flytjast til Íslands

Bobby Fischer vill flytjast til Íslands og japönsk unnusta hans líka, en hún segist ákaflega hrifin af jarðböðum og fiski. Fjölmargar hindranir standa þó í vegi fyrir Fischer og óljóst hvernig hægt er að ryðja þeim úr vegi.

Sund getur valdið astma

Börn sem eru mikið í sundi eru líklegri en önnur börn til að fá astma samkvæmt rannsókn sænskra sérfræðinga. Þeir vara sérstaklega við ungbarnasundi þar sem klórinn geti skaðað ónæmiskerfi barnanna.

Samkomulag ekki í augnsýn

Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga áttu klukkustundarlangan fund hjá ríkissáttasemjara í morgun og hefur annar fundur verið boðaður klukkan tvö. Lítið þokaðist í samkomulagsátt í morgun. Engar tillögur til lausnar kjaradeilu leikskólakennara hafa enn verið kynntar en deilendur hafa rætt saman um ýmis atriði sem snerta helstu kröfur.

Georg næsti forstjóri Gæslunnar?

Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, er meðal þeirra sem sóttu um embætti forstjóra Landhelgisgæslu Íslands en umsóknarfrestur rann út þann 15. desember. Níu sóttu um embættið.

Samkomulag í höfn

Stjórnvöld í Tyrklandi náðu fyrir stundu samkomulagi við Evrópusambandið um kröfu sambandsins um að Tyrkir viðurkenni stjórn Kýpur-Grikkja á Kýpur, áður en þeir hefji aðildarviðræður við ESB. Tyrkir vilja ganga í sambandið en höfðu fyrirfram lýst því yfir að þeir gætu ekki sætt sig við ýmis skilyrði sem rædd voru þar sem þau væru ósanngjörn og niðurlægjandi.

Brot Fischers fyrnt

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að bandarísk yfirvöld hafi ekki gert formlegar athugasemdir við ákvörðun Íslendinga um að veita skákmeistaranum Bobby Fischer dvalarleyfi hér á landi. Ef taflmennska Fischers hefði verið brot á viðskiptabanninu á Júgóslavíu væri það brot fyrnt samkvæmt íslenskum lögum segir utanríkisráðherra. 

Léttlestarkerfi ekki raunhæft

Léttlestarkerfi er ekki raunhæfur kostur á höfuðborgarsvæðinu við óbreyttar aðstæður, segir Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar. Sjálfstæðismenn telja eðlilegra að efla stórlega vannýtt strætisvagnakerfi þar sem sætanýtingin sé aðeins um 10 prósent.

Hörð skilyrði fyrir viðræðum

Hörð skilyrði eru fyrir viðræðum Evrópusambandsins við Tyrki um aðild. Tyrkir eru fúlir og enn er þjarkað um skilyrðin. Innan sambandsins er heldur ekki eining um hugsanlega aðild Tyrklands.

Gaul var ekki sökkt

Útilokað er að sovéskur kafbátur hafi sökkt breska togaranum Gaul sem sökk út af ströndum Noregs árið 1974. Togaranum var illa við haldið og því fór sem fór. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar sem kynnti niðurstöður sínar í morgun.

Snarpur skjálfti nálægt Drangey

Jarðskjálfti sem mældist 2,9 á Richter varð rétt fyrir klukkan eitt í dag, tuttugu og þrjá kílómetra norðnorðaustur af Drangey í Skagafirði. Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki óvenjulegt að skjálftar verði út af mynni Skagafjarðar en engin sérstök skjálftavirkni hefur verið á svæðinu.

Atvinnuleysisbætur hækka 1. janúar

Atvinnuleysisbætur verða hækkaðar um áramótin ásamt hámarksábyrgð úr Ábyrgðarsjóði launa, fæðingarstyrk og lágmarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun en samkvæmt breytingunum verða hámarksbætur atvinnuleysistrygginga 4.219 krónur á dag.

Níu létust í fangauppreisn

Að minnsta kosti níu létust þegar nokkrir fangar reyndu að sleppa úr fangelsi í Kabúl, höfuðbog Afganistans, í dag. Fimm hinna látnu voru lögreglumenn og fangaverðir. Þetta er haft eftir yfirmanni lögreglunnar í Kabúl.

Ótrúlegur seinagangur

Félagsmönnum Lyfjafræðingafélags Íslands finnst "ótrúlegur seinagangur" í málarekstri vegna ráðningar forstöðumanns lyfjasviðs á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, að sögn Ingunnar Björnsdóttur framkvæmdastjóra félagsins.

Á annað hundrað bænda til útlanda

Á annað hundrað íslenskra bænda verður á faraldsfæti í byrjun næsta árs. Hin árlega ferð bænda á Agrómek-landbúnaðarsýninguna í Danmörku verður farin í seinni hluta janúar og önnur fagferð bænda er ráðgerð um miðjan febrúar, þá til Nýja-Sjálands.

Allt gjafasæði keypt frá Danmörku

Allt gjafasæði sem notað er til tæknifrjóvgunar hér er keypt frá dönskum sæðisbanka. Skammturinn kostar 12 - 14.000 krónur kominn hingað til lands. Þetta fyrirkomulag flýtir meðferðinni um hálft ár. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir