Eldra fólki í auknum mæli sagt upp 12. desember 2004 00:01
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir æ algengara að roskið fólk sé rekið úr vinnu skömmu áður en það fer á eftirlaun í nafni hagræðingar. Sterk tengsl eru milli ástands á vinnumarkaði og örorku, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í Læknablaðinu. Meginástæða þess að öryrkjum fjölgaði mikið á árunum 1996 til 2002 var talin vera breytt örorkumat auk aðstæðna á vinnumarkaði. Ný rannsókn sem átti að að rannsaka vægi hvors þáttar um sig hrekur þetta og sýnir fram á að breyttar aðstæður á vinnumarkaði, einkum aukið atvinnuleysi og aukið álag á vinnustað, veldur mestu um þessa fjölgun. Sterkt tölfræðilegt samband er milli þróunar atvinnuleysis og örorku samkvæmt rannsókninni. Þeir sem búa við skerta færni vegna heilsubrests eru líklegir til að hrökklast fyrr úr vinnu en aðrir þegar kreppir að á vinnumarkaði og sækja þá um örorkubætur. Rannsóknir sýna einnig að heilsufar versnar og dánartíðni eykst í kjölfar tímabila með miklu og langvarandi atvinnuleysi. Ögmundur segir þetta koma heim og saman við fullyrðingar Öryrkjabandalagsins og verkalýðshreyfingarinnar að það sé samhengi á milli atvinnuleysis og nýgengis örorku. Ögmundur Jónasson segir ljóst að fólk reyni að halda vinnu í lengstu lög og stjórnvöldum beri að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda atvinnuleysi niðri og koma í veg fyrir að það sé viðvarandi eins og ástandið sé núna. Hann segir hörkuna á vinnustöðum meiri en áður og fautar í forstjórastólum komist upp með meira en áður. Þeir sem hafi skerta starffsgetu séu fyrst látnir fjúka. Hann segir að það hefði ekki gerst fyrir 20 árum að fólk sem á 2-3 ár eftir í starfi hafi verið látið fjúka vegna hagræðingar, en slíkt eigi sér í auknum mæli stað nú.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira