Erlent

Viðræður um nýja stjórn

Viðræður eru hafnar um nýja stjórn í Ísrael, samsteypustjórn Líkúdflokks Ariels Sharons og Verkamannaflokksins, sem er í stjórnarandstöðu. Þessi nýja stjórn sem er í burðarliðnum er sammála um að eftirláta Palestínumönnum Gasasvæðið, og flytja á brott þaðan alla Ísraelsmenn. Eitt stærsta málið í deilum Palestínumanna og Ísraela eru landnemabyggðir gyðinga inni á svæðum Palestínumanna. Á Gazasvæðinu búa um átta þúsund gyðingar innan um eina og hálfa milljón Palestínumanna, undir öflugri hervernd ísraelskra hersveita. Ariel Sharon, forsætisráðherra, hefur ekki haft stuðning meirihluta þingmanna við fyrirætlanir sýnar um að brottflutning frá Gaza. Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, styður hinsvegar brottflutning, og fékk Sharon heimild hjá eigin flokki, Likud-flokknum, til að mynda þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. Viðræður hófust í dag og vonir um frið á svæðinu hafa glæðst um leið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×