Skráningargjöldin hækkuð 10. desember 2004 00:01
Frumvarp menntamálaráðherra, um að hækka skrásetningargjöld ríkisháskólanna, var samþykkt á Alþingi í dag. Skattalækkunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar verður afgreitt í kvöld en að fundi loknum fara þingmenn í jólaleyfi. Samfylkingin sakaði ríkisstjórnina um að keyra ýmis mál í gegn í dag sem hækkuðu þjónustugjöld og fjármögnuðu þannig skattalækkanir ríkisstjórnarinnar. Þannig var samþykkt í dag að hækka bifreiðagjöld og aukatekjur ríkissjóðs svo sem vegna útgáfu ökuskírteina og vegabréfa. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, sagði að best væri að lýsa aðferð ríkisstjórnarinnar þannig að leiðin til þess að lækka skattin lægi í því að hækka hann áður. Stærsta mál dagsins sem þingmenn afgreiða fyrir þetta jólaleyfi er skattalækkunarfrumvarpið, en annað umdeilt mál var frumvarp um hækkuð skrásetningargjöld í háskólanámi sem eiga að skila 140 milljónum. Það var samþykkt, en þau Kristinn H. Gunnarsson og Dagný Jónsdóttir úr Framsóknarflokki sátu þó hjá. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna, sagði Sjálfstæðisflokkinn verða ágengt eins og venjulega. Þó að ekki væri verið að setja á skólagjöld beinlínis, væri augljós að Framsóknarflokkurinn væri að beygja sig undir vilja Sjálfstæðismanna. Litla íhaldið væri að lúta í gras fyrir stóra íhaldinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði að ríkið væri stöðugt að auka framlög sín til háskólanna. Hún sagði ekki á dagskrá að taka upp skólagjöld í grunnnámi háskólana. Þarna væri hinsvegar um skráningargjöld að ræða. Hún kallaði Samfylkinguna stóra afturhaldið og vinstri græna litla afturhaldið. Hún sagðist mótmæla því að um dulbúin skólagjöld væri að ræða. Um væri að ræða skráningargjöld sem meðal annars hefðu verið við lýði í stjórnartíð Alþýðubandalags.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira