Fleiri fréttir

Geta greint smit mun fyrr en áður

Vísindamenn í Hong Kong segjast hafa þróað aðferð til að greina fuglaflensusmit í mönnum mun fyrr en áður. Nú sé hægt að greina það á fáeinum klukkustundum en gömlu prófin voru þess eðlis að það tók nokkra daga og upp í viku að greina smit.

Tveir slösuðust í sprengingu

Tveir slösuðust og eins er saknað eftir sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi. "Við leitum að eiganda íbúðarinnar, við vitum ekki hvort hann var heima hjá sér þegar sprengingin varð," sagði Björn Pihlblad, talsmaður lögreglunnar.

Einn stjóri yfir allar stofnanir

Bandaríkjaþing hefur samþykkt víðtækustu breytingar á yfirstjórn og starfsemi njósna- og lögreglustofnanna Bandaríkjanna frá stofnun bandarísku leyniþjónustunnar CIA skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldar.

Bandaríkin styrkja Palestínumenn

Bandaríkjastjórn hyggst veita Palestínumönnum tuttugu milljónir Bandaríkjadala í styrk vegna slæmrar fjárhagsstöðu palestínsku þjóðarinnar. Talsmaður innan Bandaríkjastjórnar segir að þetta verði vonandi til þess að fleiri þjóðir fylgi í kjölfarið.

Saumuðu að Rumsfeld

Bandarískir hermenn í Kúveit sem hlýddu á ræðu á ræðu Donalds Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, áður en þeir héldu af stað til Íraks saumuðu að ráðherranum í fyrirspurnum og voru auðheyrilega ósáttir við eitt og annað sem tengist því hvernig hernaðaraðgerðum er háttað í Írak þó að þeir hafi ekki sett sig upp á móti stríðinu sjálfu. 

Helmingsstækkun á BUGL

Nú hillir undir að hafin verði bygging húsnæðis fyrir geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga, að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar, yfirlæknis á barna- og unglingageðdeildnni við Dalbraut. Er það í fyrsta skipti í Íslandssögunni sem húsnæði er byggt hér á landi beinlínis fyrir þá þjónustu.

Dregið úr völdum forseta

Úkraínska þingið samþykkti í gær að draga úr völdum forsetans og ruddi þar með úr vegi einni hindrun í deilum stjórnar og stjórnarandstöðu um framtíð Úkraínu og framkvæmd forsetakosninganna 26. desember. Þingið samþykkti einnig að víkja yfirkjörstjórn landsins frá og skipa aðra í hennar stað til að sjá um framkvæmd kosninganna.

Geta gift sig fjórtán ára

Drengir og stúlkur í rússneska héraðinu Oriol geta gengið í hjónaband fjórtán ára. Annars staðar í Rússlandi getur fólk gengið í hjónaband frá átján ára aldri en þingmenn á þingi héraðsins samþykktu nýlega löggjöf þar sem giftingaraldur er fjórum árum lægri en annars staðar í landinu.

Fuglaflensa í fleiri dýrategundir

Nýjustu rannsóknir benda til þess að fuglaflensuveiran sé að færa út kvíarnar. Hún er farin að leggjast á spendýr af kattakyni. Eitt tilfelli um smit milli manna hefur verið tilkynnt frá Taílandi, en það hefur ekki fengist staðfest. </font /></b />

Fékk verðlaun ársins

Íslenska fyrirtækið 3-Plus fékk verðlaun ársins hjá Mattel, stærsta leikfangafyrirtæki í heimi. 3-Plus framleiðir og markaðssetur þroskaleikfang á vegum Fisher Price í Bandaríkjunum og Evrópu.

Gagnrýnir viðbrögð yfirvalda

Bóndi á næsta bæ við Sjónarhól þar sem þrjú hross drápust úr miltisbrandi gagnrýnir starfshætti yfirvalda. Honum var ráðlagt af öðrum bónda að verða sér úti um sýklalyf eftir að hafa snert eitt hræið. Grafa sem var notuð við að urða eitt hrossanna er nú austur í Þingvallasveit.

Tækifæri til að gera betur

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur að íslenskir unglingar komi ágætlega út úr niðurstöðum Pisa-könnunarinnar í stærðfræði, lestri og náttúruvísindum.

Dæmdur fyrir tvær líkamsárásir

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan mann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Þá var maðurinn einnig dæmdur til greiðslu 260 þúsund króna sektar og ökuleyfissviptingar í þrjú fyrir að keyra ítrekað undir áhrifum áfengis.</font />

Launamunur upprættur á 2-3 árum?

Árni Magnússon félagsmálaráðherra telur mögulegt að uppræta launamun kynjanna hjá hinu opinbera á næstu tveimur til þremur árum.

Dæmdir fyrir morð á 5 ára stúlku

Sjö rússneskir unglingspiltar voru í dag dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir að myrða fimm ára gamla stúlku af sígaunaættum. Þessi hroðalegi atburður átti sér stað í St. Pétursborg í september sl. þegar piltarnir réðust að hópi sígaunastúlkna, vopnaðir öxum, hnífum, járnrörum og keðjum.

Íslensk hrefna í hitabeltinu

Íslensk hrefna er nú stödd í hitabeltinu samkvæmt frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar. Þann 17. nóvember bárust merki um gervitungl frá hrefnu sem merkt hafði verið í Faxaflóa 27. ágúst og voru það fyrstu upplýsingarnar sem bárust frá því dýri. Hrefnan var þá stödd yfir Mið-Atlantshafshryggnum, um 500 sjómílur vestur af Norður-Spáni.

Annir við leyfisveitingu

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir mikilli aukningu í útgáfu tóbakssöluleyfa á næsta ári. Undanfarin ár hefur hún gefið út um 40 leyfi á ári, en á næsta ári er reiknað með að þau verði 200.

Elding slær út Grindavík

Eldingu sem sló niður í tengivirki við stjórnstöð Hitaveitu Suðurnesja í Grindavík varð þess valdandi að rafmagnslaust varð í bænum um hálft tíu leytið í gær. Einn íbúi Grindavíkur sagði að miklar sprengingar hafi orðið þegar eldingunni laust niður.  

Kærir olíufélag

Tæplega þrjátíu einstaklingar hafa haft samband við Neytendasamtökin og lýst yfir áhuga á þátttöku í skaðabótamáli gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs.

Vilja fá veiðileyfagjaldið

Sveitastjórar átta sjávarbyggða hafa lagt til við þingmenn og ráðherra að veiðigjald á kvóta renni til byggðanna og skuldir þeirra í félagslegu íbúðakerfinu verði afskrifaðar. Þeir hittu formenn þingflokkanna, Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Árna Magnússon félagsmálaráðherra að máli í gær og óskuðu eftir viðræðum við ríkisvaldið um tillögurnar.

Skuldir eiga að lækka

Í fjárhagáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár er gert fyrir lækkun skulda borgarsjóðs og engum nýjum langtímalánum. Oddviti sjálfstæðismanna segir helst líta út fyrir að óskhyggja ráði ferðinni í áætlunum borgarinnar.

Styrkur hækkaður

Digital Ísland truflaði útsendingar Ríkissjónvarpssins og Skjás Eins, þegar útsendingar hófust.

Vinna hafin að skipulagi Vatnsmýri

Vinna að heildarskipulagi Vatnsmýrar er að hefjast aftur eftir um tveggja ára hlé. Skipulagsnefnd Reykjavíkur hefur skipað stýrihóp til að halda utan um skipulagið.

Einn handtekinn

Einn maður var handtekinn í fyrrakvöld vegna húsbrots í Fossvogi í síðustu viku. Hann gaf sig ekki fram til skýrslutöku og brá lögreglan þá á það ráð að handtaka manninn. Hann gisti í fangageymslu lögreglunnar yfir nótt.

Þrjú hross drápust úr miltisbrandi

Þrjú hross hafa drepist úr miltisbrandi á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Bærinn hefur verið girtur af og öllum sem komið hafa nálægt hrossunum gefin sýklalyf. Miltisbrandur er bráðdrepandi baktería.

Gert upp milli útgerða

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gagnrýnir á vefsíðu að úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa sé í höndum sveitarfélaganna sjálfra en ekki sjávarútvegsráðuneytisins.

Rannsaka Öskju enn

Rannsókn vegna skemmda á nýlegu náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, Öskju, stendur enn yfir. Niðurstöðu rannsóknarinnar var að vænta í september.

Óvissa um orsök sprengingarinnar

Algjör óvissa er um hvað olli kröftugri sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi í nótt. Lögregla segir að maðurinn sem bjó í íbúðinni þar sem sprengingin varð sé grunaður um að hafa stolið bókum fyrir margar milljónir króna af konunglega bókasafninu í Stokkhólmi.

Trygg framtíð Orkubúsins

Starfsemi Orkubús Vestfjarða verður frekar efld en að dregið verði úr henni og störfum fækkað ef breytingar verða á rekstrinum.

Varað við Viagra-geli

Lyfjaeftirlitið varar við nýrri tegund af Víagra í gelformi sem er ætlað til áts og er gott á bragðið. Lyfinu hefur verið dreift til kynningar á skemmtistöðum. Gelið er ekki á skrá hjá lyfjaeftirlitinu og því trúlega flutt ólöglega til landsins. Í hjálpartækjaverslunum kannast menn ekki við þetta nýja sælgæti sem veldur aukinni stinningu karlmanna.

Skaðabótamál í undirbúningi

Bæði einstaklingar og fyrirtæki undirbúa skaðabótamál á hendur olíufélögunum vegna meints verðsamráðs. Lögfræðingur, sem tekið hefur málið að sér fyrir Neytendasamtökin, segir hvern þann sem getur sýnt fram á að hann hafi átt viðskipti við félögin geta látið reyna á rétt sinn.

Vitnisburður breyttist fyrir dómi

Börkur Birgisson neitar nær öllum sakargiftum í málatilbúnaði á hendur honum. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa reynt að drepa mann með öxi á veitingastaðnum A. Hansen í ágúst síðastliðnum. Hann játar á sig brot á vopnalögum.

Framleiðsla kísildufts úr sögunni

Hugmyndir um framleiðslu kísildufts á Mývatni eru endanlega úr sögunni eftir að Promeks, fyrirtækið sem þróaði aðferð við vinnslu þess, fór fram á gjaldþrotaskipti í gær.

Nauðganir vopn í stríðsátökum

Friðargæsluliðar og starfsmenn hjálparsamtaka sem ráðnir eru til að vernda almenna borgara hafa misnotað stúlkur og konur sem þeir áttu að vernda, segir meðal annars í nýútkominni skýrslu Amnesty International. Samtökin standa nú fyrir herferð til að stöðva ofbeldi gegn konum.

Stakk mann með skærum

Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkmasárásir og frelsissviptingu í október í fyrra. Hann sótti annan mann í vinnuna og fór með hann nauðugan í bíl, dró hann á hárinu út úr bílnum, sparkaði ítrekað í höfuð hans og stakk hann með skærum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Samgöngur til Eyja í lamasessi

Samgöngur til Vestmannaeyja eru í lamasessi og þær þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar segir Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins. Samgönguráðherra segir að niðurstöðu um hugsanlega hafnargerð í Bakkafjöru sé að vænta eftir tvö ár.

Staða krónunnar óheppileg

Sterk staða krónunnar er óheppileg fyrir þjóðarbúið þegar á heildina er litið að mati Samtaka atvinnulífsins. Launahækkanir opinberra starfsmanna eru langt umfram þróun á almennum vinnumarkaði og greiðsluafgangur ríkissjóðs er of lítill.

Sigurinn vís í Úkraínu

Sigurinn er vís að mati stjórnarandstöðunnar í Úkraínu eftir að þing landsins samþykkti lög sem tryggja að þjóðin geti valið sér forseta á ný.

Kennt verði alla virka daga

Menntamálaráðherra segir mikilvægt að kennt verði alla virka daga í grunnskólum landsins til að bæta fyrir nær átta vikna hlé sem varð á kennslu meðan á verkfalli grunnskólakennara stóð.  Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag.

Flugfélög sýna Íslandi áhuga

Erlend flugfélög hafa verið að skoða möguleikann á að hefja áætlunarflug til Íslands að sögn Höskuldar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Leifsstöðvar. Aðeins tvö flugfélög eru með áætlunarflug til og frá landinu: Icelandair og Iceland Express.

Hætti að reykja og gekk Kínamúrinn

Huldar Breiðfjörð ákvað að ganga Kínamúrinn allan vegna þess að hann hætti að reykja. Hann skrifaði bók um gönguförina og fólkið sem hann kynntist. Hann segist ekki enn vera búinn að átta sig á Kína.

Beckham-hjónin í stórum hlutverkum

David Beckham og Victoria spúsa hans eru án efa átrúnaðargoð en líkast til hafa þau aldrei verið nær guðsímyndinni en einmitt nú. Páfagarði mislíkar stórlega hlutverk þeirra hjóna í fæðingu Krists.

Uppsafnaðar skuldir gamla skólans

Stjórnendur Tækniháskóla Íslands segja bága fjárhagsstöðu skólans tilkomna vegna uppsafnaðra skulda gamla Tækniskólans sem fallið hafi á herðar Tækniháskólans þegar hann var stofnaður um mitt ár 2002. Í frumvarpi til laga um afnám Tækniháskólans segir að skólinn hafi verið rekinn með halla frá því að hann var stofnaður um mitt ár 2002.

Miltisbrandur á Vatnsleysuströnd

Þrjú hross hafa á undanförnum dögum drepist úr miltisbrandi á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd og fjórða hrossinu á bænum hefur verið lógað að því er segir í tilkynningu frá yfirdýralækni og sóttvarnalækni. Sýkinga í fólki sem hefur komist í snertingu við dýrin hefur ekki orðið vart. Ekki er vitað hvernig smitið barst í hrossin en það er í rannsókn.

Fór á Vog eftir yfirheyrslur

Ungi maðurinn, sem framdi rán í tveimur söluturnum í Vesturborginni með skömmu millibili í fyrrakvöld og var handtekinn með þýfið á sér, fór í vímuefnameðferð á Vog að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Hann hafði einmitt útskrifað sig sjálfur þaðan í fyrrakvöld, skömmu áður en hann framdi ránin.

Sjá næstu 50 fréttir