Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglumenn í lífshættu Kona á fertugsaldri stofnaði lífi og limum tveggja lögregluþjóna í hættu þegar hún ók tvívegis á bíl þeirra á fullri ferð í Reykjavík í gærkvöldi og stakk svo af. Báðir lögreglumennirnir meiddust og lögreglubíllinn, sem var nýr, sterkbyggður Volvo, varð óökufær eftir ósköpin. 7.12.2004 00:01
Blair styður Annan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst stuðningi við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Bandarísk þingnefnd hefur gagnrýnt Annan harðlega og krafist þess að hann segi af sér. 7.12.2004 00:01
Ótti Rússa ástæðulaus segir Powell Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ótti Rússa við að Bandaríkjamenn séu að seilast til áhrifa í Úkraínu sé ástæðulaus. Powell sagði að Úkraínumenn eigi skilið heiðarlegar kosningar og að þeir þurfi ekki að velja á milli austurs og vesturs. 7.12.2004 00:01
Fjórðungur kvótans til Vestfjarða 3200 tonna byggðakvóta var úthlutað í gær. Rúmur fjórðungur alls byggðakvótans fer til Vestfjarða. Eins og oft áður var ný aðferð notuð við úthlutun byggðakvótans í ár. Sá háttur var hafður á að sveitarfélögin óskuðu eftir byggðakvóta og urðu bæði að uppfylla viss skilyrði og færa rök fyrir þörfinni. 7.12.2004 00:01
Litlar vangaveltur um breytingar Stjórnarandstaðan virðist lítið hafa velt fyrir sér hugsanlegum breytingum á stjórnarskránni en forsætisráðherra óskaði tilnefninga í stjórnarskrárnefnd í gær. Þingmaður Samfylkingar segir að tryggja verði, hér eftir sem hingað til, að hægt sé að bera undir þjóðina ákvarðanir Alþingis. 7.12.2004 00:01
Ökumaðurinn líklega fundinn Lögreglan í Keflavík telur sig vera búna að finna manninn sem ók niður konu í Sandgerði fyrir tæpri viku og stakk af. Konan var á leið heim til sín að loknum vinnudegi þegar ekið var á hana á Strandgötu. Hún slasaðist talsvert, var rænulítil þegar að var komið og var hún flutt á slysadeild Landspítalans og síðan lögð inn á spítalann. 7.12.2004 00:01
Síðasti öruggi skiladagur á morgun Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólakort til landa utan Evrópu er morgundagurinn, miðvikudagurinn 8. desember, samkvæmt tilkynningu Íslandspósts. Viku síðar, eða miðvikudaginn 15. september, þarf að skila síðustu kortunum sem eiga að fara til Evrópulanda. 7.12.2004 00:01
Menntun foreldra áhrif á námsgetu Menntun foreldra er meðal þeirra þátta sem hefur áhrif á námsgetu nemenda. Íslenskar stúlkur eru mun betri en piltar í stærðfræði samkvæmt alþjóðlegri könnun, ólíkt því sem þekkist annars staðar. 7.12.2004 00:01
Farþegum fjölgaði um rúm 20% Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 20% í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 89 þúsund farþegum í fyrra í rúma 107 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 20% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 25%. 7.12.2004 00:01
Smokkur í nöfnum Kóreumanna Heilbrigðisyfirvöld í Suður-Kóreu hafa hætt við að reyna að finna kóreskt orð yfir smokka. Kóreumenn hafa um áratuga skeið notað engilsaxneska orðið <em>condom</em> yfir smokka. Heilbrigðisnefnd sem berst gegn alnæmi fékk þá snjöllu hugmynd að finna kóreskt orð yfir þetta þarfaþing og lýsti eftir hugmyndum. 7.12.2004 00:01
200 milljónir verða til skiptanna Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn fær um 200 milljónir íslenskra króna í fjárveitingu á næsta ári. Þá mun stjórn sjóðsins leggja áherslu á að styrkja framleiðslu og dreifingu á hljóð- og myndverkum af miklum gæðum, ýta undir samstarf norrænna kvikmyndagerðarmanna og styrkja framleiðslu og dreifingu á gæðakvikmyndum fyrir börn, að því er segir í tilkynningu. 7.12.2004 00:01
Áskorun frá Þjóðverjum Þýska mannréttindastofnunin hefur sent Alþingi áskorun þess efnis að ekki verði hætt fjárstuðningi við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Segir meðal annars að þýska mannréttindastofnunin hafi af því þungar áhyggjur að fjárskortur myndi hamla starfi mannréttindaskrifstofunnar. 7.12.2004 00:01
Barghouti íhugar að hætta við Marwan Barghouti, herskár leiðtogi úr röðum Palestínumanna og frambjóðandi í forsetakosningum í Palestínu, íhugar að hætta við framboð. Barghouti situr í fangelsi í Ísrael en hann var sakfelldur fyrir fimm morð. Hann er hins vegar mjög vinsæll meðal Palestínumanna, einkum yngri, herskárri Palestínumanna. 7.12.2004 00:01
Bandaríkin og Rússland deila Ágreiningur Bandaríkjanna og Rússlands kom í veg fyrir að niðurstaða fengist um kosningaeftirlit á fundi utanríkisráðherra Samtaka um öryggi og samvinnu í Evrópu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir Vesturlönd leggja annan mælikvarða á kosningar í fyrrverandi Sovétlýðveldum en heima hjá sér. 7.12.2004 00:01
Norrænt sendiráð í Páfagarði? Ætlar sænska ríkisstjórnin að hafa frumkvæði að því að setja upp sendiráð með öðrum norrænum ríkjum í Páfagarði? Sænski þingmaðurinn Agne Hansson vildi fá svar við þessu í fyrirspurnartíma í sænska þinginu. Vegna sparnaðaraðgerða lögðu Svíar niður sendiráð sitt í Páfagarði á árinu 2001. 7.12.2004 00:01
Nafn piltsins sem lést Pilturinn sem lést í húsbrunanum á Sauðárkróki á laugardag hét Elvar Fannar Þorvaldsson og var 21 árs gamall. Hann var til heimilis í húsinu sem brann að Bárustíg 14. Elvar var ókvæntur og barnlaus. 7.12.2004 00:01
Dæmdur í 15 mánaða fangelsi Tvítugur karlmaður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tólf mánuðir eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Málsatvik eru þau að árásarmaðurinn stakk annan mann fjórum sinnum með hnífi, í áflogum utan við skemmtistaðinn Broadway, svo af hlutust fjögur 2-8 sentímetra djúp sár. 7.12.2004 00:01
Kosningar í Írak ekki mögulegar Pútín Rússlandsforseti segist ekki getað ímyndað sér hvernig kosningar eiga að geta heppnast í Írak eða hvernig frjálsar kosningar eigi að fara fram í hersetnu landi. Hann sagði þetta á fundi með Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, í Moskvu fyrir stundu. 7.12.2004 00:01
Eldur í íbúð á Kleppsvegi Eldur kviknaði í íbúð á Kleppsvegi á fjórða tímanum. Eldurinn reyndist loga í feiti í potti og upp á innréttingu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og vinnur slökkviliðið nú að reykræstingu. Einn íbúi var fluttur á slysadeild. 7.12.2004 00:01
Þúsundasti hermaðurinn fallinn Þúsundasti bandaríski hermaðurinn er fallinn í átökum í Írak samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hersetuliðinu. Hann féll þegar skotárás var gerð á hersveit hans sem var í eftirlitsferð. Alls hafa hátt í þrettán hundruð hermenn týnt lífi í Írak, þar af dágóður hluti í slysum af ýmsu tagi. 7.12.2004 00:01
1420 hitaeininga skrímslisborgari Aðdáendur misgeðslegra skyndibita geta nú glaðst því bandaríska skyndibitakeðjan Hardee´s hefur kynnt nýjan borgara sem heitir hvorki meira né minna en „Monster Thickburger“, sem réttast væri að nefna „Skrímslisborgara“. Ástæða þessarar girnilegu nafngiftar er augljós: borgarinn inniheldur hundrað og sjö grömm af fitu og er heilar 1420 kalóríur. 7.12.2004 00:01
Fjölmenni við útför Sigurðar Útför Sigurðar Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogi, var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Fjölmenni var við útförina, þar á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. 7.12.2004 00:01
Ætlaði að drepa dreng úti á götu Maður undir áhrifum eiturlyfja hélt hnífi að hálsi níu ára drengs í fjórar klukkustundir í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Maðurinn, sem er fjörutíu og fimm ára gamall byggingaverkamaður, virtist skyndilega missa stjórn á sér, greip níu ára dreng sem var á leið heim úr skólanum og hélt stórum, hárbeittum hníf að hálsi hans. 7.12.2004 00:01
Láta rannsaka kosningarnar Demókrataflokkurinn hefur ákveðið að hefja rannsókn á því hvernig staðið var að framkvæmd bandarísku forsetakosninganna í Ohio, en niðurstaðan þar réði úrslitum um að repúblikaninn George W. Bush bar sigurorð af demókratanum John Kerry. 7.12.2004 00:01
Svartsýni um framtíð Írak Ástandið í Írak fer versnandi og óvíst hvort það batnar nokkuð í náinni framtíð. Þetta er mat fyrrum stöðvarstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA í skeyti sem hann sendi yfirmönnum sínum seint í síðasta mánuði, skömmu áður en hann lét af embætti. Þessu greindi dagblaðið The New York Times frá í gær. 7.12.2004 00:01
Ærðist og keyrði bræður niður Kona keyrði tvo bræður á táningsaldri niður og reyndi að keyra yfir þann þriðja eftir að golfbolti sem þeir voru að leika sér með á bílastæði verslunarmiðstöðvar í Flórída lenti á bíl hennar. 7.12.2004 00:01
Fann leyniskjöl á víðavangi Breskur vörubílstjóri stóð skyndilega uppi með allar upplýsingar um öryggisviðbúnað vegna komu Pervez Musharraf, forseta Pakistan, til London þegar hann fann möppu á götu í London. Dagblaðið Daily Mirror greindi frá þessu í gær eftir að maðurinn sem fann skjölin kom þeim til blaðsins. 7.12.2004 00:01
Vilja nýja rannsókn á Estoniaslysi Eistneskir stjórnmálamenn kröfðust þess að ný rannsókn yrði hafin á atburðunum sem leiddu til þess að ferjan Estonia sökk árið 1994. Kröfuna settu þeir fram eftir að upplýst var að ferjan hefði skömmu fyrir sjóferðina örlagaríku verið notuð til að flytja sovésk hergögn. 7.12.2004 00:01
Tilræðið var sjálfsmorðstilraun Tilræðið við Jacques Chirac Frakklandsforseta á þjóðhátíðardegi Frakka 2002 var líklega frekar tilraun til sjálfsmorðs en tilraun til að ráða forsetann af dögum. Þetta sagði lögreglumaðurinn Florence Adam á öðrum degi réttarhalda yfir Maxime Brunerie sem dró upp riffil og skaut að bílnum sem flutti forsetann. 7.12.2004 00:01
Bitinn tvisvar sama dag Norðmaður á fertugsaldri var fluttur tvívegis á sjúkrahús sama daginn, í bæði skiptin eftir að hafa verið bitinn af snákum. Báðir voru snákarnir hluti af gæludýrasafni mannsins. 7.12.2004 00:01
Nýr kafli í sögu Afganistans "Erfið og myrk fortíð er nú að baki og í dag hefjum við nýjan kafla í sögu okkar, í anda vinskapar við alþjóðasamfélagið," sagði Hamid Karzai, þegar hann hafði svarið embættiseið sem fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans. 7.12.2004 00:01
Deilt um þingsköp Stjórnarandstæðingar deildu hart á fundarstjórn Birgis Ármannssonar, varaforseta Alþingis í umræðum um Írak í gær. 7.12.2004 00:01
Deilt um Írak Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna gagnrýndi Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra harkalega í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær. Tilefnið var að Halldór hefði fullyrt í umræðuþætti í sjónvarpi að innrásin í Írak hefði verið rædd í utanríkisnefnd og á Alþingi. 7.12.2004 00:01
La Scala opnað að nýju La Scala í Mílanó var opnað í dag eftir þriggja ára viðgerð, breytingar og endurbætur sem kostuðu yfir fjóra milljarða króna. Breytingarnar voru mjög umdeildar, svo ekki sé meira sagt. Það var meira að segja rifist um hvort ætti að pússa ljósakrónurnar eða ekki. 7.12.2004 00:01
Norðmenn æfir yfir skólakönnuninni Tæpur helmingur norsku þjóðarinnar, eða 47 prósent, telur að norski menntamálaráðherrann hafi staðið sig illa í starfi þar sem henni hafi ekki tekist að bæta árangurinn í norskum grunnskóla og þekking barnanna fari versnandi. Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkisstjórnina harkalega. </font /></b /> 7.12.2004 00:01
Stefni biskupi vegna skipunar Séra Sigríður Guðmarsdóttir hefur stefnt biskupi Íslands. Hún telur að málefnaleg sjónarmið hafi ekki ráðið við skipun í embætti sendiráðsprests í Lundúnum. Biskup hafi beitt sér í málinu þrátt fyrir vanhæfi sitt. </font /></b /> 7.12.2004 00:01
Matur í hálft ár Fyrir svipaða upphæð og nemur ávinningnum af skattabreytingunum ætti barnlaus einstaklingur með 150 þúsund í tekjur á mánuði að geta keypt mat í tæplega hálft ár. 7.12.2004 00:01
Hélt pilt í gíslingu tímunum saman Maður undir áhrifum fíkniefna tók níu ára dreng í gíslingu, hélt hníf að hálsi hans og hélt piltinum föngnum í fjóra klukkutíma á götu fyrir utan skóla drengsins í Bangkok snemma í gærmorgun. 7.12.2004 00:01
Nýtt íþróttahús á Hólmavík Nýtt íþróttahús hefur verið tekið í notkun á Hólmavík. Formlegri athöfn var frestað fram í janúar vegna anna heimamanna, segir Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps. 7.12.2004 00:01
Flugmönnum fjölgar hjá Icelandair Icelandair hefur ráðið um fjörutíu flugmenn af 150 sem sóttu um störf hjá fyrirtækinu. Flugmönnum fyrirtækisins fjölgar í um 250 við ráðninguna eða um tuttugu prósent. 7.12.2004 00:01
Sjálfstæði Alþingis verði tryggt Stjórnarandstöðuflokkarnir leggja mikla áherslu á að sjálfstæði Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu verði tryggt við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Níu fulltrúar stjórnmálaflokkanna verða í stjórnarskrárnefndinni en nefndinni til fulltingis verður hópur sérfræðinga. 7.12.2004 00:01
Einelti á ábyrgð starfsmanna Fimmtán prósent starfsmanna útibúa banka og sparisjóða hafa orðið fyrir áreiti í starfi. Átta prósent þeirra fyrir einelti. Þetta er niðurstaða rannsóknar Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur félagsfræðings og Kristins Tómassonar yfirlæknis hjá Vinnueftirlitinu. 7.12.2004 00:01
Umhverfisráðuneytið virti ekki lög Úthlutun umhverfisráðherra á fé úr veiðikortasjóði til rjúpnarannsókna eftir ársbyrjun 2003 var ekki í samræmi við ákvæði laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. 7.12.2004 00:01
Karzai sór embættiseið Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans sór embættiseið í dag. Forsetinn, Hamid Karzai, sór íslam hollustu að viðstöddum varaforseta Bandaríkjanna og miklum fjölda erlendra gesta. 7.12.2004 00:01
Ráðherra sakaður um ósannindi Formaður Vinstri-grænna ræddi Íraksmálin enn og aftur í upphafi þingfundar í dag. Hann sakaði forsætisráðherra um ósannindi í sjónvarpsviðtali í gær þar sem Íraksmálin bar á góma. 7.12.2004 00:01