Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gagnaöflun í gangi Talið er næsta víst að Mjöll-Frigg muni leggja inn nýja starfsleyfisumsókn fyrir starfsemi sína við Vesturvör á Kársnesi í Kópavogi um leið og tilskilinna gagna hefur verið aflað, að því er heimildarmenn blaðsins, kunnugir fyrirtækinu, herma. 30.11.2004 00:01
Starfa fyrir breskt fyrirtæki Íslendingarnir tveir sem fóru til starfa í Írak fyrir mánuði voru í þjálfun í Bretlandi í sumar. Þeir sinna öryggisgæslu á vegum bresks fyrirtækis en slík störf geta verið mjög hættuleg. 30.11.2004 00:01
Leitartól ógnar gagnaöryggi Leitartól sem vefleitarvélin Google býður fólki að nota við gagnaleit á tölvum sínum er talin draga úr gagnaöryggi. Hægt er að hlaða niður litlu forriti á vef Google sem leitar að skjölum á tölvum notenda og heldur skrá yfir skjölin og innihald þeirra á vísum stað á harða drifinu. 30.11.2004 00:01
Heilbrigðiskerfið í ólestri Íraska heilbrigðiskerfið er í ólestri og er ástandið mun verra en það var fyrir innrásina í Írak að sögn bresku læknasamtakanna Medact. Mikill skortur er á lyfjum og þjálfuðu heilbrigðisstarfsfólki, hreinlæti er ábótavant á sjúkrahúsum og mikið vantar upp á að mæðrum og börnum sé veitt öll nauðsynleg þjónusta. 30.11.2004 00:01
Aukin bjartsýni á samkomulag Aukin bjartsýni ríkir nú um að samkomulag náist á milli harðlínuflokka mótmælenda og kaþólikka um myndun nýrrar heimastjórnar á Norður-Írlandi. Enn á eftir að leysa ýmis vandamál en talið er að samkomulag geti náðst fyrir jól. 30.11.2004 00:01
Flugvélin rann út af flugbrautinni Í það minnsta 31 lét lífið og 61 slasaðist þegar farþegaflugvél rann út af hálli flugbraut á Javaeyju í Indónesíu í lendingu. Rúmlega 150 manns voru um borð í flugvélinni. Þrjátíu og sjö voru alvarlega slasaðir, að sögn eins yfirmanna flugvallarins. 30.11.2004 00:01
Fyrrverandi forstjóri SÍF sýknaður Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri SÍF, var í dag sýknaður af öllum ákærum um brot í starfi sem endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna á síðasta áratug. 30.11.2004 00:01
Hátt í 400 létust í aurskrið Í það minnsta 340 manns létust og 150 til viðbótar er saknað eftir að óveður gekk yfir Filippseyjar. Flóð og aurskriður steyptust yfir bæina Real, Infanta og Nakar skömmu fyrir miðnætti í fyrrinótt og grófu marga íbúa lifandi. 30.11.2004 00:01
Milljónir lögðu niður störf Milljónir ítalskra launþega fóru í verkfall í gær til að mótmæla efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Verkfallið er það fimmta á hálfu þriðja ári sem boðað er til í mótmælaskyni við stefnu ríkisstjórnar Silvios Berlusconi. 30.11.2004 00:01
Hvalkjöt aftur í skólamötuneytin Hvalkjöt verður á borðum japanskra skólabarna á ný í fyrsta sinn í rúma tvo áratugi. Skólayfirvöld í Wakayama hafa ákveðið að skólamötuneyti bjóði börnum á tveimur lægstu skólastigunum upp á hvalkjöt tvisvar í mánuði frá og með byrjun næsta árs.<font face="Helv"></font> 30.11.2004 00:01
Berjast gegn uppreisnarmönnum Rúandaher mun grípa til vopna gegn uppreisnarmönnum í Kongó í hvert skipti sem þess gerist þörf, sagði Paul Kagame, forseti Rúanda. Orðrómur er uppi um að nokkur þúsund rúandískra hermanna séu þegar komin yfir landamærin að Kongó en það hefur ekki fengist staðfest. 30.11.2004 00:01
Bæjarstjórinn komi úr Framsókn Líklegt er að framsóknarmenn í bæjarstjórn Kópavogs fari fram á að embætti bæjarstjóra haldist í þeirra röðum þangað til í júní þegar Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tekur við starfinu. 30.11.2004 00:01
Deilan í Úkraínu harðnar Deilur stríðandi fylkinga í Úkraínu hörðnuðu heldur í gær þegar talsmaður stjórnarandstöðuleiðtogans Viktor Júsjenkó lýsti því yfir að stjórnarandstæðingar væru hættir samningaviðræðum við Viktor Janúkovitsj, forsætisráðherra, og samherja hans um lausn deilunnar. 30.11.2004 00:01
22 yfirheyrðir vegna barnsráns Lögreglan í Kópavogi hefur enn ekki haft uppi á manninum sem í síðustu viku nam níu ára telpu á brott úr miðbæ Kópavogs, ók með hana upp á Mosfellsheiði og skildi hana þar eftir. Lögreglan hefur yfirheyrt 22 karla á þrítugsaldri í tengslum við málið en þeir hafa allir verið hreinsaðir af grun um að vera viðriðnir það. 30.11.2004 00:01
Tölvur sem skilja íslensku Lokið hefur verið við gerð fyrsta íslenska talgreinisins. Í fréttatilkynningu kemur fram að Hjal sé hugbúnaður sem geri tölvum kleift að skilja talað íslenskt mál, til dæmis í gegnum síma. 30.11.2004 00:01
Skilar 340 milljónum í ríkissjóð Alþingi hefur hækkað áfengisgjald á sterkt vín og tóbaksgjald um sjö prósent. Í frumvarpi fjármálaráðherra segir að hækkunin sé í samræmi við forsendur tekjuáætlunar fjárlagafrumvarps. Þingmenn Samfylkingar segja ríkisstjórnina nú vera búna að fjármagna skattalækkanir næsta árs. 30.11.2004 00:01
ÁTVR stefnt vegna Essó samnings Verið er að undirbúa málsókn á hendur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í Hveragerði vegna brots á lögum um útboð. Tilboðin voru aldrei opnuð. Á Suðurlandi eru áfengisverslanir nær undantekningalaust í húsnæði Essó. 30.11.2004 00:01
Víðtækt samstarf ÁTVR og Essó Á Suðurlandi eru áfengisverslanir nær undantekningarlaust á bensínstöðvum Essó. Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins segir engin annarleg tengsl vera milli ÁTVR og Essó. 30.11.2004 00:01
Náttúruverndarsinnar fengu sitt Kísilverksmiðjunni við Mývatn var lokað í dag. Tugir starfsmanna standa eftir atvinnulausir og gætu þurft að hrökklast úr byggðarlaginu. Sveitarstjóri Skútustaðahrepps segir að rekja megi ástæðu lokunarinnar til þrýstings náttúruverndarsinna. 30.11.2004 00:01
Heitt vatn í Þórsmörk Heitt vatn er fundið í Þórsmörk. Boranir hafa skilað þeim árangri að nú renna tveir og hálfur lítri á sekúndu af 40 stiga heitu vatni upp úr borholu í Húsadal og er talið að með virkjun holunnar geti hún skilað 50-60 stiga heitu vatni. 30.11.2004 00:01
Gengu í skrokk á barnaníðingi Einhver hataðasti maður seinni ára á Íslandi, Steingrímur Njálsson, mætti í gær í Héraðsdóm Reykjavíkur. Þar bar Steingrímur vitni í máli þar sem hann sjálfur situr í sæti fórnarlambs. 30.11.2004 00:01
200 hafa farist á Filippseyjum Talið er að meira en tvö hundruð manns hafi farist í aurskriðum og flóðum á Filippseyjum í nótt. Úrhellisrigning hefur verið á þessum slóðum undanfarið. Hjálp hefur ekki borist til nándar nærri allra svæða. 30.11.2004 00:01
Mikil fjölgun gjaldþrota Greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa tvöfölduðust á árunum 2001 til 2003, eftir því sem fram kemur í álitsgerð sem Vinnumálastofnun og stjórn Ábyrgðasjóðs launa létu taka saman. Þar kemur fram að útlit sé fyrir að útgjöld sjóðsins muni nema um 800 milljónum króna á þessu ári. 30.11.2004 00:01
Heitt vatn í Húsadal Um síðustu helgi var lokið við að bora rúmlega kílómetra djúpa holu í Húsadal í Þórsmörk. Borun á þeim stað hafði fyrir fjórum árum gefið fyrirheit um jarðhita. Holan gefur í sjálfrennsli um tvo og hálfan lítra á sekúndu af um 40°C heitu vatni. 30.11.2004 00:01
Sjálfstæðismenn sitja hjá Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar kom á mánudag í fyrsta sinn saman aftur, eftir endurnýjað stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þar samþykktu framsóknarmenn að setja á fót þriggja manna vinnuhóp til að útfæra nánari gögn varðandi framtíð Húsabakkaskóla. Sjálfstæðismenn sátu hjá við afgreiðslu málsins. 30.11.2004 00:01
Erilsamur lokadagur Þórólfur Árnason, fráfarandi borgarstjóri, segist sáttari nú en nokkru sinni áður við þá ákvörðun sína að hætta sem borgarstjóri. Síðasti dagur hans í stóli borgarstjóra var í gær. Hans síðasta embættisverk var undirritun samnings um stofnun Sjóminjasafns Reykjavíkur. 30.11.2004 00:01
Sjálfstæði fréttastofanna Útvarpsráð afréð á fundi í gær að ráðið yrði í stöðu fréttastjóra útvarps. Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs, hafði mælst til að ekki yrði ráðið í stöðuna heldur yrði hann yfirfréttastjóri beggja. 30.11.2004 00:01
Grefur undan samstarfi Mannréttindastofnun Abo-háskóla í Finnlandi hefur sent áskorun til Alþingis þar sem áhyggjum er lýst yfir tillögum meirihluta fjárlaganefndar um að fella niður styrk til Mannréttindaskrifstofu Íslands. 30.11.2004 00:01
Hækkun leikskólagjalda frestað Hækkun leikskólagjalda fyrir sambúðarfólk þar sem annað foreldri er í námi verður frestað samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans höfðu samþykkt að frá og með áramótum myndi þessi hópur greiða jafnhá leikskólagjöld og sambúðarfólk þar sem báðir eru á vinnumarkaði. Við það hefðu gjöldin hækkað um 42 prósent. 30.11.2004 00:01
Íhugar meiðyrðamál Fyrrverandi endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna var sýknaður í Hérðasdómi Reykjavíkur í gær. Hann var sakaður um að hafa vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi. 30.11.2004 00:01
Pyntingar staðreynd við Guantanamo Pyntingar á föngum viðgangast í fangelsi Bandaríkjastjórnar við Guantanamo-flóa og aðstæður þar eru hryllilegar segir rannsóknarblaðamaðurinn David Rose sem skrifað hefur bók um málið. Alþjóða Rauði krossinn tekur undir ásakanir hans í trúnaðarskýrslu til Bandaríkjastjórnar. 30.11.2004 00:01
Segja stórfé borgað með Línu.neti Sjálfstæðismenn segja Orkuveituna hafa borgað nærri 600 milljónir með Línu.neti. "Gott ef satt væri," segir Og Vodafone. 30.11.2004 00:01
Ríkið kaupi Reykjavíkurborg út Viðræður hafa staðið yfir undanfarnar vikur sem miða að því að ríkissjóður kaupi meðeigendur sína, fyrst og fremst Reykjavíkurborg út úr Landsvirkjun. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra skýrði frá viðræðunum á þingflokksfundum stjórnarflokkanna í gær. 30.11.2004 00:01
Ráðherra opinberaði kunnáttuleysi Davíð Oddsson utanríkisráðherra opinberaði kunnáttuleysi sitt í umræðum um Írak á Alþingi í gær segir formaður Samfylkingarinnar. Hann segir ummæli utanríkisráðherra, um að hvergi væru stjórnvöld að íhuga að láta fjarlægja sig af lista hinna staðföstu og viljugu þjóða, heimskuleg. 30.11.2004 00:01
Guðni á bráðadeild með kviðverki Guðni Ágústsson var fluttur í síðust viku í snarhasti á bráðamóttöku Landsspítalans með nístandi verki í kviðarholi. Landbúnaðarráðherrann var lagður inn og skurðaðgerð undirbúin. Sem fyrir kraftaverk hurfu kviðverkirnir. "Kvalinn eins og ég væri að fæða barn," segir Guðni við DV. 29.11.2004 00:01
Slökkviliðið kallað að 22 Slökkviliðsmenn og -bílar frá fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendir að veitingahúsinu við Laugaveg 22 laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi eftir að tilkynning hafði borist um að reyk legði upp af húsinu. 29.11.2004 00:01
Gasleki á norskum olíuborpalli Hátt í tvöhundruð starfsmenn á norska olíuborpallinum Snorra-A í Norðursjó voru fluttir í land í gærkvöldi og í nótt vegna gasleka undir pallinum. Olíuframleiðslu hefur verið hætt tímabundið á pallinum en þrjátíu og sex menn eru enn um borð og vinna hörðum höndum við að ná tökum á gaslekanum. 29.11.2004 00:01
Harður jarðskálfti í Japan Harður jarðskálfti upp á 7,1 stig á Richter varð í Japan í gærkvöldi. Að minnsta kosti átta manns slösuðust í skjálftanum. Upptökin voru á japönsku eyjunni Hokkaido og skall flóðbylgja á eyjunni í kjölfar skjálftans. 29.11.2004 00:01
14 teknir fyrir ölvunarakstur Fjórtán ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík um helgina vegna ölvunar sem þykir vel í meira lagi. Frá föstudagskvöldi og fram á sunnnudagskvöld voru hátt í 700 bílar stöðvaðir og var þetta afrakstur þess átaks lögreglunnar. 29.11.2004 00:01
Jafnaðarmannaflokkurinn vann Adrian Nastase, forsætisráðherra Rúmeníu, hefur lýst yfir sigri Jafnaðarmannaflokksins í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Útgönguspár benda til þess að flokkurinn hafi unnið meira fylgi en miðflokkur stjórnarandstöðunnar. Rúmenski jafnaðarmannaflokkurinn er arftaki kommúnistaflokks Ceausecu, fyrrverandi forseta landsins. 29.11.2004 00:01
Maðurinn enn ófundinn Þrátt fyrir mikla eftirgrennslan er maðurinn sem rændi níu ára stúlku í Kópavogi í síðustu viku ófundinn. Lögreglan hefur fengið margar vísbendingar en engin þeirra hefur enn leitt til handtöku. Stúlkan telur að maðurinn sé um tvítugt, krúnurakaður og með skeggtopp neðan við neðri vör. 29.11.2004 00:01
Launhált í Reykjavík í morgun Biðraðir mynduðust um tíma í morgun á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss í Reykjavík vegna hálkuslysa. Að sögn vakthafandi læknis var það að megninu til fólk "á besta aldri" á leið til vinnu og í skóla sem sem áttaði sig ekki á hversu launhált var. 29.11.2004 00:01
Ferðum Herjólfs fækkað Bæjarstjórn Vestmannaeyja á í viðræðum við Vegagerðina og Samskip um ferðatíðni Herjólfs þar sem ferðum hans verður fækkað úr ellefu í átta á viku nú um mánaðamótin. Á sama tíma hættir Eimskip strandsiglingum en Mánafoss hefur komið við í Eyjum vikulega. 29.11.2004 00:01
Tekinn réttindalaus tvisvar í nótt Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði réttindalausan ökumann tvisvar í nótt með tæplega fimmtán mínútna millibili og var bíllinn þá tekinn af honum. Í fyrra skiptið fékk farþegi með ökuréttindi að aka bílnum áfram en í síðara skiptið var brotlegi ökumaðurinn einn á ferð og þarf nú að leita að einhverjum með réttindi til að leysa bílinn út. 29.11.2004 00:01
Ríkið borgar fyrir hundafóður Grænlenskir sleðahundar í bænum Kvannak sitja nú að gnægtaborði í boði grænlensku landsstjórnarinnar því sá óvenjulegi ríkisstyrkur hefur verið tekinn upp að veiðimenn fá nú endurgreiddan kostnað vegna kaupa á hundafóðri. 29.11.2004 00:01