Víðtækt samstarf ÁTVR og Essó 30. nóvember 2004 00:01
Hugsanlegt er að fleiri muni stefna Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í kjölfar þeirra málaferla sem eru í farvatninu í Hveragerði samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Svo virðist sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins kunni að hafa í fleiri tilfellum brotið lög um framkvæmd útboða. Athygli vekur að í öllum þeim tilfellum var samið við fyrirtæki sem leigðu aðstöðu hjá Essó. Það var gert í Vík í Mýrdal, á Kirkjubæjarklaustri og í Þorlákshöfn. Á Höfn í Hornafirði var starfsemi áfengisverslunarinnar nýlega flutt í nýtt húsnæði Essó á staðnum þótt fyrirtækið sjái ekki um reksturinn sjálfan og á Hvolsvellli er áfengisverslunin í sama húsi og bensínstöð Essó. Fréttablaðið ræddi við nokkra sem gerðu tilboð en fengu ekki og sögðu þeir að í þessum tilfellum hefðu tilboðin ekki verið opnuð og því hefði ekki fengist uppgefið hvað fyrirtækin sem fengu reksturinn og leigja hjá Essó buðu. Flestir þeir sem Fréttablaðið ræddi við voru sammála um það að þessi tengsl ÁTVR og Essó væru undarleg. Einn sveitarstjórnarfulltrúi á Suðurlandi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, gekk svo langt að segja að þetta væri í raun ekkert annað en samráð. Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, þvertekur fyrir það að einhver annarleg tengsl séu milli ÁTVR og Essó. "Það að við leggjum markvisst lag okkar við Essó er alveg víðsfjarri," segir Höskuldur. "Við höfum tilhneigingu til að leita eftir einhverjum sem við höldum að haldi velli. Eðli málsins samkvæmt þá lifir bensínafgreiðsla lengur á litlu stöðunum en önnur starfsemi." Þá segir Höskuldur að í Vík, á Kirkjubæjarklaustri og í Þorlákshöfn hafi ekki verið um útboð að ræða. "Ég held við höfum ekki kallað þetta útboð heldur verðkönnun. Þá kynnum við þarfir okkar og skoðum þau boð sem koma og tökum ákvörðun á grundvelli þeirra upplýsinga sem við fáum."
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira