Fleiri fréttir Dómari dæmdur fyrir barnaklám Dómari við viðskiptaréttinn í Danmörku var í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa dreift barnaklámi á Netinu. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir að því tilskildu að maðurinn leiti sér meðferðar vegna hneigðar sinnar til barna. 29.11.2004 00:01 Ísland ekki af listanum Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli að endurskoða stuðning sinn við innrásina í Írak. Hún segir ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins í Silfri Egils í gær hafa komið sér á óvart. 29.11.2004 00:01 Efnahagskerfi Úkraínu gæti hrunið Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, segir að efnahagskerfi landsins kunni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins í landinu. Kútsma segir að færi svo yrði hvorki hægt að kenna sér né ríkisstjórn sinni um það, enda sé starfsumhverfi ríkisstjórnarinnar óboðlegt þessa dagana. 29.11.2004 00:01 Rúmlega 70 manns á slysadeildina Fólk er enn að týnast inn á slysadeild vegna slysa af völdum hálkunnar sem verið hefur úti í dag. Kristín Sigurðardóttir, læknir á slysadeildinni, segir að alls hafi komið rúmlega 70 manns á slysadeildina í morgun og þorri þeirra vegna slysa af völdum hálkunnar. 29.11.2004 00:01 Laug ekki að þjóðinni Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, segist ekki hafa logið vísvitandi að spænsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í Madrid í mars þegar hann lýsti því yfir að hryðjuverkasamtök ETA bæru ábyrgð á verknaðinum. 29.11.2004 00:01 Viðræðum lýkur eftir árið 2014 Evrópusambandið getur ekki lokið aðildarviðræðum við Tyrki fyrr en eftir árið 2014. Fyrst þarf að skipuleggja fjármál sambandsins eftir þann tíma og ekki fyrr en að því loknu verður hægt að klára viðræðurnar. 29.11.2004 00:01 Hátt í 20 þúsund borgarar látnir 1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar. 29.11.2004 00:01 Davíð fór mikinn á þinginu Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði að yrðu Íslendingar teknir af lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak nú jafngilti það því að hann færi upp á Landspítalann og segði að hann tæki til baka samþykki sitt fyrir krabbameinsaðgerðinni sem framkvæmd var í sumar. Um afstöðu Samfylkingarinnar í Íraksmálinu sagði Davíð að flokkurinn væri „afturhaldskommatittsflokkur“. 29.11.2004 00:01 Samþykkir nýjar kosningar Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra Úkraínu, segist munu samþykkja nýjar forsetakosningar ef sýnt þyki að brögðum hafi verið beitt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt eldfimt þessa dagana og það var ekki á það bætandi þegar Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, lýsti því yfir í dag að efnahagskerfi landsins kynni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins. 29.11.2004 00:01 Sinfó hefur ekki samþykkt Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur ekki samþykkt að taka þátt í fyrirhuguðum tónleikum söngvarans Placido Domingo hér á landi í mars á næsta ári, eins og ranglega hefur komið fram í umfjöllun um tónleikana. Í yfirlýsingu frá Sinfóníuhljómsveitinni segir að fréttir þess efnis að hljómsveitin muni leika undir á tónleikum söngvarans í Egilshöll eigi ekki við rök að styðjast. 29.11.2004 00:01 Kísilgúrvinnslu við Mývatn lokið 38 ára sögu Kísiliðjunnar í Mývatnssveit lýkur í dag þegar verksmiðjunni verður lokað fyrir fullt og allt. Hún var undirstaða atvinnu- og mannlífs og sumir vörðu nánast allri sinni starfsævi við hana. Óvissa ríkir í Mývatnssveit. </font /></b /> 29.11.2004 00:01 Þrjátíu án atvinnu 46 starfsmenn Kísiliðjunnar í Mývatnssveit missa vinnuna við verksmiðjuna í dag þegar skellt verður í lás í síðasta sinn. Í gær var öll vinnsla stöðvuð og síðustu kísilgúrsekkirnir fluttir til Húsavíkur þaðan sem þeim er siglt út í heim. </font /></b /> 29.11.2004 00:01 Klippt á ævistarfið Kísiliðjunni í Mývatnssveit lokað:
Sjá næstu 50 fréttir
Dómari dæmdur fyrir barnaklám Dómari við viðskiptaréttinn í Danmörku var í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa dreift barnaklámi á Netinu. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir að því tilskildu að maðurinn leiti sér meðferðar vegna hneigðar sinnar til barna. 29.11.2004 00:01
Ísland ekki af listanum Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli að endurskoða stuðning sinn við innrásina í Írak. Hún segir ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins í Silfri Egils í gær hafa komið sér á óvart. 29.11.2004 00:01
Efnahagskerfi Úkraínu gæti hrunið Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, segir að efnahagskerfi landsins kunni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins í landinu. Kútsma segir að færi svo yrði hvorki hægt að kenna sér né ríkisstjórn sinni um það, enda sé starfsumhverfi ríkisstjórnarinnar óboðlegt þessa dagana. 29.11.2004 00:01
Rúmlega 70 manns á slysadeildina Fólk er enn að týnast inn á slysadeild vegna slysa af völdum hálkunnar sem verið hefur úti í dag. Kristín Sigurðardóttir, læknir á slysadeildinni, segir að alls hafi komið rúmlega 70 manns á slysadeildina í morgun og þorri þeirra vegna slysa af völdum hálkunnar. 29.11.2004 00:01
Laug ekki að þjóðinni Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, segist ekki hafa logið vísvitandi að spænsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í Madrid í mars þegar hann lýsti því yfir að hryðjuverkasamtök ETA bæru ábyrgð á verknaðinum. 29.11.2004 00:01
Viðræðum lýkur eftir árið 2014 Evrópusambandið getur ekki lokið aðildarviðræðum við Tyrki fyrr en eftir árið 2014. Fyrst þarf að skipuleggja fjármál sambandsins eftir þann tíma og ekki fyrr en að því loknu verður hægt að klára viðræðurnar. 29.11.2004 00:01
Hátt í 20 þúsund borgarar látnir 1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar. 29.11.2004 00:01
Davíð fór mikinn á þinginu Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði að yrðu Íslendingar teknir af lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak nú jafngilti það því að hann færi upp á Landspítalann og segði að hann tæki til baka samþykki sitt fyrir krabbameinsaðgerðinni sem framkvæmd var í sumar. Um afstöðu Samfylkingarinnar í Íraksmálinu sagði Davíð að flokkurinn væri „afturhaldskommatittsflokkur“. 29.11.2004 00:01
Samþykkir nýjar kosningar Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra Úkraínu, segist munu samþykkja nýjar forsetakosningar ef sýnt þyki að brögðum hafi verið beitt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt eldfimt þessa dagana og það var ekki á það bætandi þegar Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, lýsti því yfir í dag að efnahagskerfi landsins kynni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins. 29.11.2004 00:01
Sinfó hefur ekki samþykkt Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur ekki samþykkt að taka þátt í fyrirhuguðum tónleikum söngvarans Placido Domingo hér á landi í mars á næsta ári, eins og ranglega hefur komið fram í umfjöllun um tónleikana. Í yfirlýsingu frá Sinfóníuhljómsveitinni segir að fréttir þess efnis að hljómsveitin muni leika undir á tónleikum söngvarans í Egilshöll eigi ekki við rök að styðjast. 29.11.2004 00:01
Kísilgúrvinnslu við Mývatn lokið 38 ára sögu Kísiliðjunnar í Mývatnssveit lýkur í dag þegar verksmiðjunni verður lokað fyrir fullt og allt. Hún var undirstaða atvinnu- og mannlífs og sumir vörðu nánast allri sinni starfsævi við hana. Óvissa ríkir í Mývatnssveit. </font /></b /> 29.11.2004 00:01
Þrjátíu án atvinnu 46 starfsmenn Kísiliðjunnar í Mývatnssveit missa vinnuna við verksmiðjuna í dag þegar skellt verður í lás í síðasta sinn. Í gær var öll vinnsla stöðvuð og síðustu kísilgúrsekkirnir fluttir til Húsavíkur þaðan sem þeim er siglt út í heim. </font /></b /> 29.11.2004 00:01
Framkvæmdum frestað Í fjárlagafrumvarpi 2005 er gert ráð fyrir tveggja milljarða króna frestun framkvæmda og eins milljarðs króna lækkun annarra útgjalda ríkissjóðs. 29.11.2004 00:01
Kennarar skulda stórar fjárhæðir Kennarar skulda sveitarfélögunum upp undir 540 milljónir króna eða allt að 50-60 prósent af mánaðarlaunum vegna ofgreiddra launa í september og nóvember. 29.11.2004 00:01
Dalsmynni kærir til umboðsmanns Hundaræktin í Dalsmynni hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna meðferðar Umhverfisstofnunar á málefnum búsins. 29.11.2004 00:01
Skrítin skilaboð Ósennilegt er að grunnskólanum takist að vinna upp átta vikna verkfall í tíunda bekk og mörgum skólamönnum þykir undarlegt að Námsmatsstofnun skuli ekki ætla að breyta samræmdu prófunum til samræmis við það. 29.11.2004 00:01
Eimir eftir af áráttuhegðun Jón Þór Jóhannesson, sex ára einhverfur drengur, glímir enn við eftirhreytur kennaraverkfallsins þótt hann sé byrjaður í skólanum á nýjan leik eftir það. 29.11.2004 00:01
Lengist um eina önn hjá sumum Vinna við samræmdu prófin í tíunda bekk er mjög langt komin og segir Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri yfir samræmdum prófum hjá Námsmatsstofnun, að ekki liggi í loftinu að breyta þeim vegna kennaraverkfallsins. 29.11.2004 00:01
Ríkið hætti verslunarrekstrinum Ríkið á að draga sig úr verslunarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og einnig að hætta sölu tollfrjálsra vara til komufarþega til landsins. Þessar kröfur setja Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) fram í yfirlýsingu sem birt var í dag. 29.11.2004 00:01
Mislæg gatnamót sem fyrst Umferðarþing samþykkti fyrir helgi ályktun um að skora á borgaryfirvöld að beita sér fyrir því að ráðast sem fyrst í byggingu mislægra gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. 29.11.2004 00:01
Uppgjör bóta 42.000 lífeyrisþega Endurreikningur Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum nær til um 42 þúsund lífeyrisþega. Hann varðar heildargreiðslu bótanna fyrir árið 2003, en þær námu þá samtals ríflega 25 milljörðum króna. 29.11.2004 00:01
Ekki mislæg gatnamót Reykjavíkurlistinn ætlar ekki að leggja til að sett verði upp mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, þrátt fyrir áskorun frá Umferðarþingi um að sett verði á fót mislæg gatnamót. Í ályktun Umferðarþings segir að hægt sé að fækka slysum á gatnamótunum um 80-90 prósent með vel hönnuðum mislægum gatnamótum. 29.11.2004 00:01
Einn látinn af alnæmi á árinu Það sem af er þessu ári hafa fimm manns greinst með HIV-smit hér á landi, fjórir karlmenn og ein kona. Þá hafa þrír sjúklingar greinst með alnæmi og einn þeirra látist af völdum sjúkdómsins. 29.11.2004 00:01
Synjun gjafsóknar í bága við lög Afgreiðsla gjafsóknarnefndar og þar með dóms- og kirkjumálaráðuneytisins á gjafsóknarmáli byggðist ekki á lögmætum og málefnalegum forsendum, að áliti Umboðsmanns Alþingis. 29.11.2004 00:01
Egyptar stuðli að friðarviðræðum Stjórnvöld í Egyptalandi segjast vera reiðubúin að reyna að miðla málum í átt til friðar milli Ísraels og og Sýrlands að sögn talsmanns Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands. Mubarak mun hitta forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, í Egyptalandi á morgun og mun hann að sögn viðra umrædda hugmynd við al-Assad á fundinum. 29.11.2004 00:01
Tveir Íslendingar í Írak Tveir Íslendingar fóru til Íraks fyrir mánuði til að sinna friðargæslustörfum á vegum bresks fyrirtækis. Báðir hafa starfað sem lögreglumenn og var annar þeirra nýlega sakfelldur fyrir brot í starfi. Utanríkisráðuneytið hefur engar upplýsingar um veru mannanna í Írak eða hvað þeir eru að gera. 29.11.2004 00:01
Vill leggja hegningarhúsið niður Fangelsismálastofnun leggur til að hegningarhúsið við Skólavörðustíg og kvennafangelsið í Kópavogi verði lagt niður. Eins er talið brýnt að nýtt fangelsi með 55 til 60 klefum rísi á Hólmsheiði. Kemur þetta fram í markmiðum í fangelsismálum sem Fangelsismálastofnun gerði fyrir vinnuhóp dómsmálaráðuneytisins. 29.11.2004 00:01
Rætt við á annan tug manna Rætt hefur verið við á annan tug manna sem lýsing níu ára stúlku, sem rænt var í Kópavogi á miðvikudaginn í síðustu viku, getur átt við. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir á þriðja tug ábendinga hafa borist lögreglunni en engin þeirra hafi leitt til handtöku. 29.11.2004 00:01
Lá á miðjum veginum Maðurinn, sem lést þegar ekið var yfir hann á Eyrarvegi á Selfossi um helgina, lá nánast á miðju vegarins þegar slysið varð. Maðurinn var dökkklæddur og rann klæðnaðurinn saman við svart og blautt malbikið en slagveðurs rigning og myrkur var þegar slysið varð. 29.11.2004 00:01
140 námumenn taldir af Líklegt er talið að 140 námamenn sem sitja fastir inni í kolanámu í Norður-Kína séu allir látnir. Gríðarleg gassprenging varð í námunni í gær þar sem 300 manns unnu. Eitrað gas og reykur hefur hamlað björgunarstörfum og hafa björgunarmenn lagt mesta áherslu á að koma loftræstingu í gang. 29.11.2004 00:01
Byggja þyrfti nýja flugstöð Byggja þyrfti nýja flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugvelli ef nýta ætti völlinn undir innanlandsflug. Skipulagsáætlanir vallarins gera ráð fyrir slíkri byggingu, sem jafnvel gæti tengst járnbraut ef af yrði. 29.11.2004 00:01
Þróunarsjóður gagnist Íslendingum Stjórnvöld hvetja íslensk fyrirtæki til að hefja samstarf við fyrirtæki í nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Með því móti eiga íslensk fyrirtæki möguleika á að ná til sín hluta þess fjár sem Ísland greiðir í þróunarsjóð sambandsins. </font /></b /> 29.11.2004 00:01
Biðraðir á slysadeild Biðraðir mynduðust um tíma á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík í gærmorgun vegna hálkuslysa. Að sögn Kristínar Sigurðardóttur, vakthafandi læknis, var það að megninu til fólk "á besta aldri" á leið til vinnu og í skóla sem áttaði sig ekki á því hversu launhált var. 29.11.2004 00:01
Hræðsla ræður verðhækkunum Hver fata af olíu er tíu til fimmtán dollurum, andvirði 650 til 1.000 króna, dýrari en hún væri ef verðið réðist eingöngu af framleiðslu og eftirspurn, sagði Ali Naimi, olíumálaráðherra Sádi-Arabíu. Hann sagði að drjúgur hluti af verðinu væri til kominn vegna hræðslu manna við hryðjuverk og óróa. 29.11.2004 00:01
Efnahagshrun blasir við Efnahagur Úkraínu er að niðurlotum kominn og þolir ekki til lengdar að þjóðfélagið sé í lamasessi meðan deilt er um hver er réttkjörinn forseti landsins. Þetta sagði Leoníd Kútsjma, fráfarandi forseti Úkraínu. "Fáeinir dagar til viðbótar og fjármálakerfið gæti hrunið eins og spilaborg," sagði hann. 29.11.2004 00:01
Ný byltingarkennd tækni Nýr byltingarkenndur tölvukubbur og örgjörvi verður notaður í nýja heimilismiðlara fyrir breiðbandstengingar og hágæðasjónvarpssendingar sem Sony ætlar að bjóða til sölu árið 2006. 29.11.2004 00:01
Rúandískir hermenn sagðir í Kongó Nokkur þúsund rúandískra hermanna hafa farið yfir landamærin inn í Kongó undanfarið að sögn vestræns sendimanns í Kongó. Mikil spenna hefur ríkt í samskiptum stjórnvalda í Rúanda og Kongó undanfarið, Rúanda sendi her til þátttöku í borgarastríðinu í Kongó fyrir nokkrum árum og óttast Kongóstjórn að Rúanda láti aftur til sín taka. 29.11.2004 00:01
12 ára afganskur drengur drepinn Tólf ára drengur lést þegar bandarískir öryggisverðir skutu inn í hóp þúsund mótmælenda í Afganistan í gær. Bandaríkjaher hefur hert aðgerðir sínar gegn al-Kaída liðum í Afganistan síðastliðnar vikur. 29.11.2004 00:01
Dregið hefur úr hryðjuverkum Dregið hefur úr ofbeldisverkum í Írak eftir árás bandarískra og íraskra hersveita á Falluja, sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks. "Umfang glæpsamlegra aðgerða hefur minnkað og heldur áfram að minnka eftir aðgerðirnar í Falluja," sagði Allawi í sjónvarpsútsendingu þar sem hann svaraði spurningum áhorfenda. 29.11.2004 00:01
Hætta árásum á Ísraela Hamassamtökin hafa hætt árásum á Ísraela fram yfir forsetakosningar Palestínumanna 9. janúar. Þetta sagði Sheik Hassan Yousef, leiðtogi Hamas á Vesturbakkanum. Hann sagði samtökin jafnframt reiðubúin að íhuga formlegt vopnahlé við Ísraela. 29.11.2004 00:01
Mús rændi úr búðarkassa Verslunareigandi í Villach í Austurríki botnaði hvorki upp né niður í því þegar seðlar fóru að hverfa úr búðarkassanum hans. Hann brá því á það ráð að beina öryggismyndavél að búðarkassanum og komst þá að raun um hver þjófurinn var, nefnilega mús sem hafði komið sér fyrir í búðinni. 29.11.2004 00:01
Hinir lugu sagði Aznar "Það voru aðrir en við sem lugu," sagði Jose Maria Aznar, fyrrum forsætisráðherra Spánar, þegar hann bar vitni frammi fyrir þingnefnd sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars. 29.11.2004 00:01
Skattalækkanir þyngja budduna Útreikningar Fréttablaðsins sýna að barnmargar fjölskyldur og tekjuháar koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tekur ekki jafndjúpt í árinni og Geir H. Haarde fjármálaráðherra sem telur að skattalækkanirnar hafi verið rangtúlkaðar í fjölmiðlum. 29.11.2004 00:01
Ráðuneyti birtir ekki stefnu "Við sjáum ekki fram á það að utanríkisráðuneytið geti tekið að sér að birta bandarískum stjórnvöldum stefnuna," segir Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri. 29.11.2004 00:01