Erlent

200 hafa farist á Filippseyjum

Talið er að meira en tvö hundruð manns hafi farist í aurskriðum og flóðum á Filippseyjum í nótt. Úrhellisrigning hefur verið á þessum slóðum undanfarið. Hjálp hefur ekki borist til nándar nærri allra svæða. Hús, brýr og vegir sópuðust í burtu og þúsundir hafa misst heimili sín. Á myndum má sjá fólk veifa í örvæntingu til björgunarþyrlna. Neyðin er stærst í Quezon-héraði, austur af Manilla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×