Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byrjað að telja atkvæði Talning er loks hafin á atkvæðum sem greidd voru í afgönsku forsetakosningunum um síðustu helgi. Talningin hefst fimm dögum eftir kosningar og fjórum dögum eftir að talning atkvæða átti að hefjast, en fresta þurfti henni vegna þess að erfiðlega gekk að safna kjörkössum saman. 14.10.2004 00:01
Ætterni konungs vafa orpið Ætterni Haralds Noregskonungs er í vafa eftir að virtur norskur fræðimaður greindi frá því að faðir hans, Ólafur V Noregskonungur, sem tók við embætti af Hákoni, fyrsta konungi Noregs, hefði hugsanlega ekki verið sonur Hákonar. 14.10.2004 00:01
Töluverð kennsla á Vestfjörðum Það eru ekki allir grunnskólanemendur án kennslu því stundakennarar eru ekki í verkfalli og kenna því enn. Í sumum skólum fá nemendur töluverða kennslu, eins og til dæmis á Suðureyri. 14.10.2004 00:01
Tíu ára bið á enda Kúrdíski mannréttindafrömuðurinn Leyla Zana veitti í gær viðtöku mannréttindaverðlaunum þings Evrópusambandsins. Þetta gerði hún tíu árum eftir að þingið heiðraði hana en mestallan þann tíma hefur hún setið í fangelsi í Tyrklandi fyrir baráttu sína fyrir auknum réttindum Kúrda í Tyrklandi. 14.10.2004 00:01
Kerry hafði betur en Bush John Kerry, forsetaefni demókrata, virðist hafa komist heldur betur frá þriðju og síðustu kappræðum forsetaefna stóru flokkanna en George W. Bush Bandaríkjaforseti. Hann hafði mun betur í tveimur könnunum sem birtar voru eftir kappræðurnar og sjónarmun betur í þeirri þriðju. 14.10.2004 00:01
Flugbátur í hnattferð á Íslandi Flugbátur sem er á leið umhverfis jörðina lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Hann er þriggja hreyfla af gerðinni Dornier DO 24. Flugbátar af þessari tegund flugu fyrst árið 1939 og voru einkum notaðir til leitar og björgunar. 14.10.2004 00:01
Vígahundar bannaðir í borginni Atvik eins og það sem átti sér stað í Breiðholti síðasta föstudag þegar tveir stórir hundar, Rottweiler og Doberman, rifu kött í sig geta væntanlega ekki átt sér stað í framtíðinni ef hugmyndir sem nú eru uppi innan borgarkerfisins verða að veruleika 14.10.2004 00:01
Hættara við krabbameini Fólk sem notar farsíma í tíu ár eða lengur á frekar á hættu en aðrir að þjást af góðkynja krabbameini þeim megin á höfðinu sem það heldur á símanum. Þetta kemur fram í nýrri sænskri rannsókn. 14.10.2004 00:01
Á uppboð þrátt fyrir samkomulag Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að tollstjórinn í Reykjavík hafi gert mistök þegar hann auglýsti uppboð á eign vegna vangoldinna fasteignagjalda. 14.10.2004 00:01
Heimili rýmd vegna skógarelda Tæplega áttatíu heimili hafa verið rýmd í Napa- og Yolosýslu í Kaliforníu vegna skógarelda sem hafa geysað á um 15 þúsund hektara svæði norðaustur af San Francisco. 14.10.2004 00:01
Kjalnesingar átelja seinagang Íbúasamtök Kjalarness átelja þann seinagang sem orðið hefur í lagningu Sundabrautar. Til að flýta fyrir framkvæmdum leggja íbúasamtökin til að byrjað verði á framkvæmdum á Kjalarnesi. 14.10.2004 00:01
Barnabætur breytast ekki Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ekki sé gert ráð fyrir að barnabætur verði hækkaðar á næsta ári. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, segir að forsætisráðherrann hafi síðast í fyrradag boðað slíka hækkun 2005. Alþýðusambandið segist undrandi á afstöðu Halldórs. 13.10.2004 00:01
Olíuverðið aftur niður Verðið á olíufatinu lækkaði aftur niður í 52 dollara og 51 sent við lokun á olíumarkaði í New York í gær eftir að hafa náð 54 dollurum fyrr um daginn. Allsherjarverkfall sem nú er í Nígeríu, fimmta stærsta olíuframleiðanda innan OPEC-samtakanna, er ein aðal ástæða hækkunarinnar að undanförnu. 13.10.2004 00:01
Ræðir við samninganefndir í dag Ríkissáttasemjari mun í dag ræða við samninganefndir í kennaradeilunni, hvora í sínu lagi, og að þeim viðræðum loknum ræðst hvort hann telur ástæðu til að boða til formlegs samningafundar. Hvorugur deilenda hefur gefið nokkrar tilslakanir í skyn eftir að ríkissáttasemjari sló viðræðum á frest á sunnudag eftir árangurslaus fundarhöld. 13.10.2004 00:01
Fjöldagrafir finnast í Írak Líkamsleifar að minnsta kosti eitt hundrað manna, þar á meðal barna, hafa fundist í fjöldagröfum nálægt þorpinu Hatra í Norður-Írak. Grafirnar eru taldar sanna ofsóknir gegn Kúrdum sem drepnir voru í þúsunda tali í valdatíð Saddams Husseins í lok níunda áratugarins. 13.10.2004 00:01
Pétur mikli enn við landið Skipherrann á rússneska beitiskipinu Pétri mikla stóð ekki við þau orð sín við Landhelgisgæsluna í fyrradag að hann myndi halda frá landinu undir kvöld í gær. Klukkan tíu í gærkvöldi lá skipið enn fyrir akkerum út af Þistilfirði, ásamt fjórum öðrum herskipum. 13.10.2004 00:01
Lokakappræður Kerry og Bush Lokakappræður forsetaframbjóðendanna George Bush og Johns Kerrys verða háðar í Arizona í Bandaríkjunum í kvöld. Innanríkismál eiga að vera í brennidepli. Þetta verða þriðju og jafnframt síðustu kappræður þeirra fyrir kosningarnar og vilja sumir sérfræðingar meina að þær muni ekki skipta meginmáli í baráttunni. 13.10.2004 00:01
Eldur í Hábergi Töluverðar skemmdir urðu á nótaskipinu Hábergi þegar eldur kom upp í skipinu er það var í slipp í Póllandi í fyrradag. Engan sakaði en eldurinn kviknaði í íbúðum skipverja. 13.10.2004 00:01
Bílar skullu saman í Garði Minnstu munaði að slys hlytist af í gærkvöldi þegar ölvaður ökumaður ók þvers og kruss um veginn á leið heim til sín suður í Garði. Þegar bíll kom á móti honum tókst honum ekki að halda sig á sínum vegarhelmingi þannig að hliðar bílanna skullu saman og speglar og hliðarrúður brotnuðu. 13.10.2004 00:01
Handtekinn tvær nætur í röð Lögreglumenn handtóku í nótt tæplega tvítugan mann á vettvangi þar sem hann hafði brotist inn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það væri vart í frásögu færandi ef sami maðurinn hefði ekki líka verið handtekinn við innbrot á sama stað og um svipað leyti í fyrrinótt. 13.10.2004 00:01
Rússarnir ræddir í nefndinni Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkismálaráðuneytinu, var kallaður á fund utanríkismálanefndar Alþingis sem hófst klukkan ellefu til að skýra samskipti ráðuneytisins við rússnesk stjórnvöld vegna rússnesku herskipanna á Þistilfjarðargrunni. 13.10.2004 00:01
Draga Írana til ábyrgðar Draga verður Írana til ábyrgðar fyrir kjarnorkuáætlun sína. Þetta segir Richard Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og segir bandarísk stjórnvöld fús að kanna hvort viðskiptaþvinganir á vegum Sameinuðu þjóðanna gætu verið réttu viðbrögðin. 13.10.2004 00:01
Glæpir gegn mannkyni staðfestir? Fjöldagröf fannst í norðurhluta Íraks og er talið að þar sé að finna hundruð og jafnvel þúsundir líka. Sum þeirra eru af börnum sem halda á leikföngunum sínum. Líklegt er talið að þetta leiði til þess að Saddam Hússein verði sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni. 13.10.2004 00:01
Styðja Þjóðverjar Íraksstríðið? Breyting virðist hafa orðið á afstöðu þýskra stjórnvalda til stríðsreksturs í Írak, þó að Gerhard Schröder kanslari þvertaki fyrir það. Peter Struck, varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði í viðtalið við þarlent dagblaði í gær að til greina kæmi að Þjóðverjar sendu hersveitir til Íraks, yrði breyting á ástandinu þar. 13.10.2004 00:01
Sólbakur landaði í morgun Engar mótmælaaðgerðir voru á bryggjunni á Akureyri í morgun þegar löndun hófst úr togaranum Sólbaki en hann kom til hafnar klukkan átta. Forysta sjómannasamtakanna segist hlíta lögbanni á mótmælaaðgerðir sem sýslumaðurinn á Akureyri féllst á í gær, að beiðni útgerðarfélags Sólbaks. 13.10.2004 00:01
Óbreytt staða í kennaradeilu Samninganefnd kennara mætti til ríkissáttasemjara í morgun en samninganefnd sveitarfélaga hittir hann eftir hádegi. Finnbogi Sigurðsson, formaður samninganefndar kennara, segist ekki vilja ræða niðurstöðu fundarins sem hafi staðið í stutta stund. Farið hafi verið yfir stöðuna sem sé óbreytt. 13.10.2004 00:01
Spennan magnast um þjóðarblómið Nú fara að verða síðustu forvöð fyrir landsmenn að segja álit sitt á því hvert skuli verða þjóðarblóm Íslendinga. Frestur til að velja þjóðarblómið rennur út á föstudag, þann 15. október, eða eftir tvo daga. 13.10.2004 00:01
Fylgið nákvæmlega jafnmikið Fylgi George Bush og Johns Kerrys er nákvæmlega jafnmikið samkvæmt nýjustu könnunum og því gætir mikillar spennu fyrir síðustu kappræður þeirra í kvöld. Þær eru síðasta stóra tækifæri frambjóðendanna til að sannfæra sjö prósent kjósenda, sem enn eru óákveðin. 13.10.2004 00:01
Íbúum landsins fækkar Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega á síðastliðnum þremur mánuðum og þónokkuð margir Íslendingar ætla að freista gæfunnar í útlöndum. Fækkunin á höfuðborgarsvæðinu nam samanlagt um áttatíu og átta manns. Þá virðast þónokkrir sjá betri tækifæri í útlöndum en hér á landi því 365 Íslendingar fluttu úr landi umfram þá sem fluttu til landsins. 13.10.2004 00:01
Verða í fjóra daga til viðbótar Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar ætla rússnesku herskipin að vera á svæðinu út af Þistilfirði í fjóra daga til viðbótar. Þau fylktu aftur liði út af firðinum í nótt. 13.10.2004 00:01
Guggan máluð í felulitum Ísfirsku útgerðarfeðgarnir Ásgeir Gubjartssson og Guðbjartur Ásgeirsson ætla að mála nýjustu Gugguna sína í felulitum, eins og vestfirskir smábátasjómenn orða það. 13.10.2004 00:01
Fimm handteknir vegna morðsins Breska lögreglan hefur handtekið fimm manns vegna morðsins á hinni 14 ára gömlu Danielle Beccan í Nottingham á föstudag. Hún var skotin úr bíl á ferð og hefur morðið vakið mikinn óhug meðal almennings á Bretlandi. 13.10.2004 00:01
Framsókn stoppar matarskattslækkun Flokkar sem fengu 82% atkvæða í kosningum eru fylgjandi lægri matarskatti. Framsókn er á móti og útlit fyrir að málið sofni á þingi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir þó að lækkun komi til greina ef "svigrúm" gefist. </font /></b /> 13.10.2004 00:01
Steingrímur krefst upplýsinga Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna krafðist þess á fundi utanríkismálanefndar í gær að íslensk stjórnvöld skýrðu nefndinni frá því hvaða samtöl og eða bréfaskriftir áttu sér stað á milli íslenskra ráðuneyta og erlendra ríkisstjórna áður en ákvörðun var tekin um að Ísland yrði á lista yfir "hinar viljugu þjóðir" sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak. 13.10.2004 00:01
Óréttlát stimpilgjöld Margret Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar lagði fram fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi í gær þar sem hún spurði um álit ráðherrans á lækkun eða afnámi stimpilgjalda. Í máli þingmannsins kom fram að Samfylkingin teldi að almenningur nyti ekki vaxtalækkunar á húsnæðislánum sem skyldi vegna "óréttlátrar skattlagningar í formi stimpilgjalda". 13.10.2004 00:01
Rússar létu vita Rússar skýrðu frá því herskip yrðu að æfingum undan Íslandsströndum. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins skýrði utanríkismálanefnd frá því í gær. 13.10.2004 00:01
18 ára kaupi bjór og léttvín Tuttugu og þrír alþingismenn úr öllum stjórnmálaflokkum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að áfengiskaupaaldur verði lækkaður úr 20 ár í 18 en þó aðeins þegar um léttvín eða bjór er að ræða 13.10.2004 00:01
Finninn fljúgandi ákærður Finninn Matti Nykänen, sigursælasti skíðastökkvari sögunnar, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps í sumarbústað norður af Helsinki. Skíðastökkvarinn á yfir höfði sér allt að níu ára fangelsi verði hann fundinn sekur. 13.10.2004 00:01
Ekker saknæmt við dauðsfall Krufning hefur leitt í ljós að Christer Pettersson, meintur morðingi Olofs Palme, lést af völdum höfuðáverka sem hann hlaut er hann fékk flog að lokinni mikilli áfengisdrykkju og datt á höfuðið. 13.10.2004 00:01
IRA-maður handtekinn Lögreglan á Spáni tilkynnti í gær að hún hefði handtekið meðlim Írska lýðveldishersins (IRA) sem eftirlýstur var fyrir sprengjutilræði sem varð breskum herforingja að bana. 13.10.2004 00:01
Finnar lokuðu vefsvæði skæruliða Finnsk stjórnvöld lokuðu í gær vefsvæði sem helgað var málstað tsjetsjenskra skæruliða, og uppskáru í kjölfarið hrós frá stjórnvöldum í Moskvu. 13.10.2004 00:01
Lögregla skaut vinningshafa Maður sem féll fyrir skotum lögreglu í ólátum sem urðu fyrir utan íþróttaleikvang á sunnudag var einn af þrettán vinningshöfum sem deildu með sér risalottópotti fyrir fjórum árum. 13.10.2004 00:01
Samningafundur eftir helgi Samninganefndir sveitarfélaganna og kennara hafa verið boðaðar til fundar hjá Ríkissáttasemjara á mánudag. Þetta var ákveðið eftir óformlega fundi í gær. Eftir viðræður við samninganefndirnar, sitt í hvoru lagi, þótti sáttasemjara ekki ástæða til að boða fund fyrr. 13.10.2004 00:01
Verkalýðsfélög deila um gjöld Óánægja er meðal félagsmanna í Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis sem vinna á Keflavíkurflugvelli, því vinnuveitandi þeirra greiðir félagsgjöld þeirra til Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. 13.10.2004 00:01
Nemendur fá ekki greiddar bætur Nemendur í Menntaskólanum á Ísafirði sem búsettir eru á heimavist skólans fá ekki greiddar húsaleigubætur, þó svo að lögheimili þeirra séu víðs fjarri skólanum. 13.10.2004 00:01