Fleiri fréttir

Þingmálin í vetur

Skattalækkanir og niðurskurður verða meðal helstu þingmála á 31. löggjafarþing Íslendinga sem verður sett í dag. Stjórnarandstaðan ætlar líka að ræða um kennararverkfall, Írak, Símann og embættisveitingar.

Ræða geymslubúðir innflytjenda

Dóms- og innanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins koma saman til fundar í dag til að ræða hugmyndir um að koma upp búðum þar sem ólöglegir innflytjendur verða vistaðir meðan fjallað er um mál þeirra. Þýski innanríkisráðherrann, Otto Schily, vill setja slíkar búðir upp í norðanverðri Afríku.

Samstarf stjórnarandstöðu

Stjórnarandstæðingar boða aukna samvinnu á þingi í vetur og ætla flokksformenn að hittast á reglubundnum samráðsfundum.

Mesta mannfall í tvö ár

Nær þrjátíu manns létu lífið í bardögum palestínskra vígamanna og ísraelskra hersveita. Ísraelskar hersveitir brutu sér leið langt inn í Jebaliya flóttamannabúðirnar á Gazaströndinni til að ráðast á palestínska vígamenn sem skutu eldflaugum að ísraelskum landnemabyggðum.

31. löggjafarþingið sett

<font face="Helv"></font> Alþingi verður sett í dag og fjárlagafrumvarp lagt fram, forseti Alþingis kosinn og kosið í helstu nefndir þingsins. Þingsetningin verður með hefðbundnu sniði og hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Að henni lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Mesta breyting síðari ára

Stór hluti þjóðarinnar gengur að kjörborðinu næsta vor til að kjósa um sameiningu sveitarfélaga. Lagt er til að sveitarfélögum fækki úr liðlega eitt hundrað niður í um fjörutíu um leið og tugmilljarða verkefni verði færð frá ríki yfir til sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra segir að gangi tillögurnar eftir verði þetta einhver mesta þjóðfélagsbreyting seinni ára á Íslandi.

Helmingur kennara fylkti liði

Samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaga hittast aftur á morgun eftir sjö klukkustunda fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Formaður Kennarasambandsins segir að þá muni koma í ljós hvort einhverjar glæður hafi kviknað sem hægt verði að blása lífi í.

Samkeppni við Google harðnar

Bóksalinn Amazon opnaði fyrir skömmu nýja leitarvél á slóðinni a9.com. Leitin þar byggist á svipaðri tækni og Google. Viðmótið er einfalt en til viðbótar upplýsingum í textaformi sýnir leitarvél Amazon einnig þær myndir sem vélin finnur á vefnum og geta tengst leitinni.

Allt getur gerst

Allt getur gerst þó að kannanir vestan hafs gefi til kynna að George Bush hafi töluvert forskot á John Kerry í kapphlaupinu um Hvíta húsið. Aðeins þrjú málefni skipta sköpum í baráttunni, að sögn bandarísks sérfræðings í skoðanakönnunum.

Leikskólakennarar líka í viðræðum

Leikskólakennarar standa einnig í kjaraviðræðum við sveitarfélögin en meginkrafa þeirra er að fá sambærileg laun og aðrir kennarar.

Jón Steinar ekki hæfastur

Ráðherra skipaði ekki hæfasta umsækjandann í embætti hæstaréttardómara, að sögn Stefáns Más Stefánssonar, annars þeirra sem dómurinn taldi hæfastan. Þá undirbýr lögmaður Hjördísar Hákonardóttur mál á hendur dómsmálaráðuneytinu.

Rukkari skallaði skuldugan skókóng

Óskar Axel Óskarsson skósali segir handrukkara hafa skallað sig í gær. Tveir vörslusviptingarmenn mættu á skóútsölu Óskars til að ná í 482 skópör sem hann tók úr gámi af svæði Atlantsskipa. Sýslumaður hafði gert fjárnám í skónum vegna 800 þúsund króna skuldar Óskars. Lögregla var kölluð til. </font />

80% drengja hala ólöglega niður

Um áttatíu prósent drengja í tíunda bekk sækja kvikmyndir og tónlist á Netið með samskonar forriti og nú er til rannsóknar hjá lögreglunni vegna meints höfundarréttarstuldar. Einn höfuðpauranna í því máli ákvað að leysa frá skjóðunni til þess að komast hjá gæsluvarðhaldi.

Beitir sér ekki fyrir kennara

Reykjavíkurborg rétt eins og önnur sveitarfélög á við fjárhagsvanda að stríða, segir Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Borgin mun því ekki grípa inn í samningaviðræður kennara og launanefndar sveitarfélaganna. Árni Þór segir fjárhags- og verkfallsvandann óskylda hluti.

Alvarleg mistök skipta bara máli

Kappræðurnar í Bandaríkjunum í kvöld skipta ekki meginmáli í kosningabaráttunni nema því aðeins að frambjóðendurnir geri alvarleg mistök. Þetta segir góðvinur Bush eldri sem staddur er hér á landi. Hann telur að Bush yngri hafi forskot í kosningabaráttunni vegna þess að hann sé einfaldlega viðkunnanlegri en Kerry. 

Máli Hannesar vísað frá

Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær.

Deilendur snúi sjónarmiðum sínum

Ljóst er að menn verða að snúa sjónarmiðum sínum til ef þeir ætla að ná saman, segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari. Góðs viti er að deilendur hafi fundað í sjö og hálfa klukkustund í Karphúsinu í gær.

Sveitarfélögin færri og stærri

Sveitarfélögum á landinu fækkar úr 103 í 39 ef tillögur nefndar á vegum félagsmálaráðuneytisins verða samþykktar. Rúmlega 70% þjóðarinnar býr í þessum sveitarfélögum. Kosið verður um sameiningu átta sveitarfélaga í nóvember en í apríl á næsta ári er fyrirhuguð kosning um sameiningu áttatíu sveitarfélaga.

Þriðjungur í þrot vegna lóðaverðs

Tæpur þriðjungur þeirra verktaka sem fengu úthlutað lóðum í Grafarholti á árunum 1999 til 2002 hafa síðan orðið gjaldþrota. Þetta kom fram í erindi Þorsteins Víglundssonar, forstjóra BM-Vallár, á fundi Samtaka iðnaðarins í gær. Þorsteinn segir að þetta megi rekja til þess fyrirkomulags á úthlutun lóða, en lóðum í Grafarholti var úthlutað eftir útboð.

Skaðleg áhrif á fötluð börn

Verði lengra rof á skólagöngu fatlaðra barna getur það haft varanleg áhrif á færni þeirra, segir Tryggvi Sigurðsson, sviðstjóri á Greiningarstöð ríkisins og doktor í sálfræði; sérfræðingur í fötlun barna.

Skapbráður ráðamaður

Vladimír Meciar, fyrrverandi forsætisráðherra Slóvavíku, réðst í gær á blaðaljósmyndara sem hugðist taka mynd af honum á sjúkrahúsi í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu.

Haldið sofandi í öndunarvél

Átján ára piltur slasaðist alvarlega þegar bifreið sem hann ók skall framan á annarri bifreið Biskupstungnabraut um miðjan dag í gær.

Ætla í hvert einasta hús

"Við erum komin með 700 sjálfboðaliða á skrá en þurfum 2.500 til að ná settu marki. Við ætlum í hvert einasta hús," segir Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi, en á morgun stendur Rauði krossinn fyrir átakinu "Göngum til góðs" þar sem sjálfboðaliðar ganga í hús og safna fjármunum fyrir stríðshrjáð börn.

Skoðanafrelsi undirstaða lýðræðis

Kristinn H. Gunnarsson segir að stjórnmálaflokkur sé því aðeins lýðræðisleg hreyfing að þar ríki skoðanafrelsi. Hann segir skoðanir sínar endurspegla meiningu fjölda flokksmanna og spyr hvers vegna forystu flokksins séu svona mislagðar hendur að hún sé í stríði við sinn eigin flokk í hverju málinu á fætur öðru. </font /></b />

Á samleið með Framsókn

"Mönnum finnst þeir tefla hagsmunum sínum í tvísýnu ef þeir setja fram sjónarmið í umdeildum málum sem eru á annan veg en þann sem forystan hefur gefið upp. Þetta er stóra vandamálið í flokknum," segir Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, um Framsóknarflokkinn.

Blair með hjartakvilla

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands gengst í dag undir meðhöndlun á sjúkrahúsi vegna hjartsláttartruflana sem gerðu vart við sig hjá ráðherranum í gær. Blair tilkynnti sjálfur um veikindi sín í gærkvöldi, skömmu eftir að hann tók þátt í lokaathöfn landsþings Verkamannaflokksins.

Blessun eða bölvun?

Verðmætar náttúruauðlindir skipta sköpum hvernig einstökum ríkjum reiðir af efnahagslega. Margt bendir hins vegar til að því auðugri sem ríki eru af auðlindum þeim mun hættara er þeim við ólgu og átökum. </font /></b />

Hallar undan fæti í lýðræðisumræðu

Einar Pálsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Árborg segir hafa hallað undan fæti í lýðræðislegri umræðu að undanförnu. "Þingflokkurinn hefur gengið mjög hart fram gagnvart Kristni H. Gunnarssyni fyrir að vera ekki á sömu línu og þingflokkurinn," segir Einar.

Nýtt 23 þúsund manna sveitarfélag

Viðræður um nýtt 23 þúsund manna sveitarfélag í Eyjafirði hafa tekið nýja stefnu. Sveitarfélög á svæðinu frá Grenivík til Siglufjarðar hafa samið við Háskólann á Akureyri um að gera hagkvæmnisathugun á sameiningu sveitarfélaganna. Einnig hefur háskólanum verið gert að gera skoðanakönnun á meðal íbúa svæðisins.

Flugfreyjur kanna rétt sinn

Flugfreyjufélag Íslands er nú að kanna lögmæti þess að flugfélagið Iceland Express hefur sagt öllum flugfreyjum félagsins upp, eins og við greindum frá í kvöldfréttum, og hyggst framvegis nýta starfskrafta flugfreyja frá flugrekandanum Astreus sem leggur félaginu til flugmenn.

Dauðadómur yfir tilræðismönnunum

Kveðinn var upp dauðadómur í Yemen í morgun yfir tveimur mönnum sem ákærðir voru fyrir aðild að árásinni á bandaríska tundurspillinn USS Cole. Hryðjuverkaárás þeirra var gerð árið 2000 en sautján bandarískir hermenn létust í sprengingunni.

Leit vegna ólöglegrar dreifingar

Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir.

Olíuverð lækkar aftur

Olíuverð hefur nú aðeins lækkað aftur eftir að hafa náð sögulegu hámarki á olíumarkaði í New York í gær. Verðið á olíudallinum komst hæst upp í 50,47 dollara en það er hæsta verð í tuttugu og eins árs sögu olíumarkaðar í New York. Verðið fór þó aftur niður fyrir fimmtíu dollarana og er komið í 49,90 sent.

Gíslunum fagnað á Ítalíu

Tvær ítalskar konur, sem haldið hefur verið í gíslingu í þrjár vikur í Írak, var mikið fagnað þegar þær komu heim til Ítalíu í gær. Konurnar eru hjálparstarfsmenn og voru þær afhentar Rauða krossinum í Bagdad áður en þær flugu heim til Rómar en þar tóku fjölskyldur þeirra á móti þeim. Báðar konurnar eru við góða heilsu.

Stjórnmálasamband við þrjú smáríki

Geir H. Haarde fjármálaráðherra hefur á síðustu dögum undirritað yfirlýsingar um stofnun stjórnmálasambands fyrir Íslands hönd við þrjú ríki: Gíneu-Bissá, Míkrónesíu og Vanúatú. Geir hefur setið 59. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York undanfarna daga í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra.

Líbía lofar að greiða skaðabætur

Líbíustjórn hefur lofað að greiða fórnarlömbum hryðjuverkasprengingar í Berlín árið 1986 skaðabætur og segist hafa greitt fyrsta hluta þeirra. Lögfræðingar fórnarlambanna kannast hins vegar ekkert við að bætur hafi verið greiddar.

LÍÚ segir þróunina uggvænlega

Landsamband íslenskra útvegsmanna segir þróun á hráolíumarkaði hafa verið uggvænlega undanfarin tvö ár. Verð á hráolíu er nú komið í 50 dollara tunnan og af fréttum að dæma virðast meiri líkur en minni á að verð á hráolíu geti stigið enn frekar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LÍÚ.

Réðst á flugáhöfn með exi

Norður-Afrískur maður gekk berserksgang í norskri flugvél í morgun. Hann réðst á áhöfn og farþega með exi þegar vélin hóf aðflug að flugvellinum í Bodö. Þrír voru fluttir á sjúkrahús með höfuðáverka eftir atganginn en þeir eru ekki alvarlega slasaðir.

Frönskum gíslum sleppt?

Milligöngumenn vonast til að semja um að tveimur frönskum gíslum í Írak verði sleppt fyrir vikulok. Þeir segjast nú einungis bíða þess að bandarískar hersveitir tryggi þeim leið í burtu. Allt annað sé til reiðu.

Fraktskip haldlagt í Sádi-Arabíu

Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa lagt hald á fraktskip sem flutti meira en fimm hundruð riffla og skotfæri til Súdan frá Jemen. Skipið kom inn í landhelgi Sádi-Arabíu fyrir síðustu helgi og var þá stöðvað. Sádar fylgjast vel með skipaumferð frá Jemen þar sem al-Kaída liðar eiga sér bækistöðvar.

Jón Steinar ráðinn

Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að gengið verði frá ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti Hæstaréttardómara síðar í dag. Það mun koma í hlut fjármálaráðherra, sem er settur dómsmálaráðherra í málinu, að skipa í embættið.

Lausnargjald skyggir á gleðina

Sögusagnir um að lausnargjald hafi verið greitt skyggja á gleði Ítala vegna lausnar tveggja þarlendra gísla í Írak. Konurnar störfuðu báðar fyrir samtök tengd UNICEF og var þeim rænt í Bagdad í byrjun þessa mánaðar.

Refsing fyrir að segja skoðun sína

Þingflokkur Framsóknarflokksins útlokaði í gær Kristin H. Gunnarsson, þingmann flokksins, frá öllum fastanefndum Alþingis. Hann segir þetta vera refsingu fyrir að hafa sagt skoðun sína í viðkvæmum málum en ætlar engu að síður að starfa áfram innan flokksins. Honum er lítt gefið um áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf Framsóknar við Sjálfstæðisflokkinn.

Metið á a.m.k. hundruðir milljóna

Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu og handtóku nokkra vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Verðmæti notkunar þess efnis sem um ræðir hleypur a.m.k. á hundruðum milljóna króna.

Náttúruauðlindir bölvun?

Verðmætar náttúruauðlindir skipta sköpum hvernig einstökum ríkjum reiðir af efnahagslega. Margt bendir hins vegar til að því auðugri sem ríki eru af auðlindum þeim mun hættara er þeim við ólgu og átökum.

Sjá næstu 50 fréttir