Innlent

Mesta breyting síðari ára

Stór hluti þjóðarinnar gengur að kjörborðinu næsta vor til að kjósa um sameiningu sveitarfélaga. Lagt er til að sveitarfélögum fækki úr liðlega eitt hundrað niður í um fjörutíu um leið og tugmilljarða verkefni verði færð frá ríki yfir til sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra segir að gangi tillögurnar eftir verði þetta einhver mesta þjóðfélagsbreyting seinni ára á Íslandi. Félagsmálaráðherra og verkefnisstjórn um eflingu sveitarstjórnarstigsins kynntu tillögurnar nú síðdegis en samkvæmt þeim munu íbúar í áttatíu sveitarfélögum, sem telja samtals 213 þúsund manns eða 73 prósent þjóðarinnar, kjósa um sameiningu við önnur sveitarfélög þann 23. apríl næstkomandi. Það er aðeins í fjórtán sveitarfélögum sem engin tillaga er gerð um sameiningu en meðal þeirra eru Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Akranes og Vestmannaeyjar. Íbúar Reykjavíkur munu hins vegar kjósa um sameiningu við Kjósarhrepp og Garðbæingar um sameiningu við Bessastaðahrepp. Lagt er til að Suðurnes verði gerð að einu sveitarfélagi, Snæfellsnes verði allt sameinað í eitt, norðanverðir Vestfirðir sameinist, Eyjafjörður verði eitt sveitarfélag, Ölfus og Flói renni saman í eitt, þar með Selfoss og Hveragerði, og uppsveitir Árnessýslu verði eitt sveitarfélag svo nokkrar tillögur séu nefndar. Um leið er lagt til að verkefni sem kosta 20-30 milljarða á ári verði færð frá ríki til sveitarfélaga. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að gangi tillögurnar eftir verði þetta einhver mesta þjóðfélagsbreyting seinni ára á Íslandi. Hann segir sveitarfélögin eflast mjög við þetta en í breytingunum felist að þau taki að sér þjónustu við fatlaða, ákveðna þætti heilbrigðisþjónustunnar, öldrunarþjónustu, ákveðna þætti þjónustu á sviði vinnumála og fleira í þeim dúr. „Við höfum látið okkur detta í hug að til gæti orðið eitthvað sem héti velferðarstofa sveitarfélaganna þar sem íbúar gætu sótt þjónustu á þessum sviðum á einn stað,“ segir félagsmálaráðherra. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarstjórnarmenn munu fara yfir þessar tillögur næstu tvo mánuði og koma með ábendingar að því loknu. Hann segir ekki víst að endanleg tillaga verði nákvæmlega með sama hætti og var kynnt á fundinum í dag. Félagsmálaráðherra hvetur íbúa sveitarfélaganna til að kynna sér tillögurnar því það skipti miklu máli. Þetta sé jú gert til þess að auka þjónustuna við fólkið í landinu. 


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×