Kerry ausinn lofi á flokksþingi 28. júlí 2004 00:01
John Kerry mun leiða baráttuna gegn hryðjuverkum betur en George Bush, endurvekja von hjá fólkinu í landinu og stuðla að jafnrétti. Þetta segir hver ræðumaðurinn á fætur öðrum á flokksþingi Demókrata, sem nú stendur sem yfir í Boston. Mikill einhugur ríkir á flokksþingi Demókrata og keppist hver ræðumaðurinn á fætur öðrum við að ausa forsetaefnið John Kerry lofi. Meðal þeirra sem stigið hafa í pontu eru fyrrverandi forsetarnir Bill Clinton og Jimmy Carter, Hillary eiginkona Clintons, Ron Reagan, sonur Ronalds, Tereza Heinz Kerry eiginkona Johns og þingmennirnir Ted Kennedy og Barack Obama. Allir hafa þeir farið fögrum orðum um Kerry og lagt sérstaka áherslu á hæfni hans til þess að leiða baráttuna gegn hryðjuverkum. Það kemur kannski ekki á óvart með tilliti til þess hve illa hefur gengið að fá almenning til þess að trúa því að þar geti hann staðið sig betur en núverandi forseti, George Bush. Meðal ræðumanna gærkvöldsins var Teresa Heinz, eiginkona Kerrys, sem sagði mann sinn hafa sýnt það í verki á yngri árum að hann væri tilbúinn að leggja líf sitt að veði fyrir föðurlandið. Þá sagði Barack Osama, þingmaður Demókrata í Illinois, sem margir telja framtíðarforsetaefni, að Kerry hefði aldrei sent unga menn til Íraks án þess að vera þess fullviss að nægur liðsafli væri á staðnum til að sigra og ná fram friði og öryggi. Rétt eins og liðsforinginn Kerry hafi ekki hikað við að leggja líf sitt í hættu fyrir menn sína í Víetnam, muni forsetinn Kerry ekki hika við að nota her sinn til að veita Bandaríkjamönnum frið og öryggi. Ted Kennedy þingmaður í Massachusets tók í sama streng og sagði megin ógn Bandaríkjanna í dag vera fjögur ár í viðbót undir stjórn George Bush. Síðan er bara að bíða og sjá hvort allt hrósið verði til þess að almenningur í Bandaríkjunum átti sig loks á því hver Kerry er, en samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum veit annar hver kjósandi ekki fyrir hvað hann stendur.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira