Réttarhöldunum sífellt frestað 25. júlí 2004 00:01
Réttarhöldum yfir morðingja hálfíslenskrar konu í Pensacola í Bandaríkjunum hefur verið frestað í áttunda sinn. Lögfræðingar, sem sérhæfa sig í að verja hagsmuni brotaþola, fylgjast grannt með málarekstrinum. Dómarinn samþykkti að fresta réttarhöldunum yfir Sebastian Dexter Young þar sem verjandi hans átti í erfiðleikum með að fá gögn um veru hans í hernum. Young á yfir höfði sér dauðarefsingu fyrir að skjóta fyrrverandi konu sína, Lucelle Mosco, til bana með haglabyssu og særa sextán ára son hennar af fyrra hjónabandi, Jón Atla Júlíusson, lífshættulega með því að skjóta hann og stinga oftsinnis með hnífi. Lucelle Mosco átti íslenska móður. Lögmenn í Bandaríkjunum, sem annast réttargæslu fyrir fórnarlömb glæpa, fylgjast vel með réttarhöldunum í Pensacola og gagnrýna hvað þau dragast á langinn. Morðið var framið í mars í fyrra. Því lengra sem frá líður, þeim mun líklegra er að fólk gleymi, segir Nancy Newland, fyrrverandi formaður Favorhouse sem er þjónustumiðstöð fyrir brotaþola. Hún segir að það sé óþolandi staða fyrir lögfræðinga. Réttarhöldunum hefur áður verið frestað vegna rannsókna á geði sakborningsins en úr þessu verður þeim ekki fram haldið fyrr en um mánaðamótin október/nóvember. Málið vakti mikla athygli í Bandaríkjunum á sínum tíma þar sem Sebastian Dexter Young hafði brotið nálgunarbann sem á hann var sett eftir að hann hafði beitt Lucelle Mosco ýmsu harðræði. Lögreglan var harðlega gagnrýnd fyrir að vernda hana ekki betur og fjölskyldu hennar. Sonur hennar, Jón Atli, fluttist til Íslands eftir árásina. Hægt er að horfa á nýlega frétt bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar WEAR-TV um málið með því að smella á hlekkinn hér að neðan: http://www.weartv.com/news/Stories/July/0714/young.shtml Myndin er af Jóni Atla sem lifði naumlega af árásina.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvort konum var smyglað í sumarbúðir konungsfjölskyldunnar „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira