Al-Kaída hótar Evrópuþjóðum 21. júlí 2004 00:01
Hryðjuverkamenn úr röðum al-Kaída, sem starfa í Evrópu og fara þar huldu höfði, hafa hótað Búlgaríu og Póllandi árásum, dragi ríkin ekki herlið sitt frá Írak. Hótunin fannst á vefsíðu sem ekki hefur verið notuð af hryðjuverkamönnum áður og hópurinn er óþekktur. Hótunin var undirrituð: „Al-Kaída samtökin í Evrópu.“ Talsmenn samtakanna segja að árásirnar verði sambærilegar þeim sem gerðar voru á New York og Madríd. Hópurinn segist vera í aðstöðu til þess að gera árásir hvenær sem er. Pólski varnarmálaráðherrann, Janusz Zemke segir að pólsk stjórnvöld bíði eftir nánari upplýsingum frá leyniþjónustunni og nágrannaríkjum sínum í Evrópu. Hann segist engar upplýsingar hafa að svo stöddu að hryðjuverkjamenn hyggist gera árásir á pólskar borgir. Í yfirlýsingu frá búlgörskum stjórnvöldum segir einnig að ekkert bendi til þess að hryðjuverkamenn undirbúi árásir í Búlgaríu. 270 búlgarskir hermenn eru í Írak og stjórnvöld segja að þeir fari hvergi.. Þó nokkrar hótanir hafa verið á Internetinu að undanförnu í tengslum við hernámið í Írak en flestar hótanirnar eru taldar vera gabb. Hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al-Zargawi, sem tengist al-Kaída, hefur reyndar hótað Japönum árásum dragi þeir ekki her sinn til baka. Um 500 japanskir hermenn eru í Írak. Tvö þúsund Pólverjar eru í Írak en stjórnvöld í Póllandi hafa ákveðið að draga þúsund þeirra út úr landinu og senda þá þess í stað til Afganistans þar sem þeir verða undir stjórn NATO. Óttast er að brotthvarf filippseyska hersins frá Írak hafi virkað sem olía á eldinn í baráttunni við hryðjuverkamenn. Þeir kunni nú að álíta sem svo að hægt sé að sannfæra fleiri ríki um að draga sig út úr Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira