Fleiri fréttir

Krefst refsingar og réttindamissis

Ákæra á hendur Gunnari Erni Kristjánssyni, fyrrverandi forstjóra SÍF og fyrrum endurskoðanda Tryggingasjóðs lækna, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gunnar Örn er sakaður um brot á almennum hegningarlögum, lögum um ársreikninga, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um endurskoðendur.

Fjárnám hjá ungu fólki tvöfaldast

Ungu fólki á aldrinum 21-30 ára, sem er á vanskilaskrá, hefur fjölgað talsvert á milli ára 2003 og 2004. Fyrstu fimm mánuði ársins 2003 var samtals 2.331 á vanskilaskrá, en eru 2639 fyrstu fimm mánuði þessa árs. Í þessum aldurshópi hefur árangurslausum fjárnámum fjölgað um 100 prósent, samkvæmt upplýsingum frá Lánstrausti hf.

Hægt að fækka um 100 rúm á LSH

"Við höfum sagt það, að ef við losnum við allar þessar stíflur sem hindra að við getum látið starfsemina á spítalanum fljóta eðlilega á milli þjónustustiga, þá væri hægt að fækka plássum spítalans um 12 - 13%, eða allt að hundrað," sagði Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala háskólasjúkarhúsi.

Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný

Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samkvæmt könnuninni næðu þeir þó ekki meirihluta á þingi ef kosið yrði í dag. Þeir fengju samanlagt 29 þingmenn en hafa nú 34.

60% andvíg ríkisstjórninni

"Þetta er lítil breyting frá því sem verið hefur," segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur um skoðanakönnun Fréttablaðsins á fylgi ríkisstjórnarinnar en tæp 40 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru fylgjandi stjórninni.

Vilja hjálp og bætt samskipti

Bandaríkjamenn hétu því að leggja fram nýja tillögu að lausn deilna um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu í viðræðum sex þjóða um málefnið sem hófst í Peking í gær.

Villtir fasanar færa út kvíarnar

Svo virðist sem villtir fasanar hafi verið að færa út kvíarnar hér á landi en fasönum var sleppt í Hallormsstaðarskóg með leyfi landbúnaðarráðuneytisins fyrir nokkrum árum.

Brotlendingin í rannsókn

Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú tildrög þess að nítján sæta Dornier flugvél frá Íslandsflugi, með tvo flugmenn um borð, magalenti á Siglufjarðarflugvelli laust fyrir klukkan átta í gærkvöld, án þess að nokkurn sakaði.

Snjókoma á hálendinu

Slydda og jafnvel snjókoma var sumstaðar á miðhálendinu í nótt og varð víða alhvítt um tíma. Dæmi eru um að nokkurra sentímetra djúpur snjór hafi fallið á hálendinu, þar sem úrkoma var á annað borð, en ekki er vitað til þess að ferðamenn hafi lent í hrakningum.</font />

66 látnir og 200 særðir

Að minnsta kosti 66 manns eru látnir og yfir 200 eru særðir í árásum sem átt hafa sér stað í nokkrum borgum Íraks í morgun. Af þeim sem hafa fallið dóu í það minnsta fjörutíu og fjórir í röð bílsprengna sem sprungu í borginni Mósúl.

Bretarnir á brott

Breskir hermenn, sem verið hafa í haldi íranskra stjórnvalda, hlutu loksins frelsi í morgun . Viðræður milli breskra og íranskra yfirvalda hófust á ný í morgun, eftir að þeim lauk í gær án þess að tekist hefði að ná samkomulagi um framvindu málsins.

Lögregla beitir mann ofbeldi

Myndbandsupptaka af handtöku bílþjófs hefur vakið hörð viðbrögð í Los Angeles. Á upptökunni sést hvar lögregla króar manninn á stolna bílnum af og hann stekkur út úr bifreiðinni.

Tekin af lista ráðuneytisins

Hafnarstjórn í Grundarfirði hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að Grundarfjarðarhöfn verði tekin út af lista þrettán hafna þar sem hrefnuveiðibátar geta landað.

Síminn höfðar einkamál

Síminn mun höfða einkamál á hendur fjórmenningunum sem hlutu dóm í Landssímamálinu. Fyrirtækið telur dóm héraðsdóms leggja grunn að bótaskyldu þeirra. 

Mikið mannfall í Írak

Tugir manna létust og hundruð særðust í samræmdum árásum skæruliða í borgunum Ramadí, Bakúba og Mósúl í morgun. Meðal fallinna eru að minnsta kosti tveir bandarískir hermenn. Harðir bardagar standa einnig yfir í borginni Fallujah.

Pentagon neitar pyntingum á Saddam

Yfirmenn í Pentagon vísa á bug ásökunum lögfræðings Saddams Hússeins, þess efnis að forsetinn fyrrverandi hafi mátt þola mannréttindabrot í fangavist sinni. Lögfræðingurinn hefur haldið því fram að á Saddam séu nýleg sár og að hann hafi mátt þola pyntingar í líkingu við þær sem átt hafi sér stað í Abu Ghraib fangelsinu.

Mættu ekki í Héraðsdóm

Fresta varð aðalmeðferð í máli tvíburanna Davíðs Bens og Rúnars Bens Maitslands sem fara átti fram í Héraðdómi Reykjavíkur í dag. Menn, sem kallaðir voru til frá Þýskalandi til að bera vitni í málinu, létu ekki sjá sig.

Þjóðarsundrungin aldrei meiri

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, segir George Bush, forseta Bandaríkjanna, hafa klofið þjóðina meira en nokkur annar forseti í sögunni. Gagnrýni Kerrys kemur í kjölfar þess að repúblikanar meinuðu honum að greiða atkvæði í öldungadeild bandaríkjaþings á þriðjudaginn.

Skotfæri úr El Grillo

Síðastliðna tvo daga hafa kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar, ásamt áhöfn varðskips, unnið að því að hreinsa skotfæri og önnur hættuleg sprengiefni úr flaki El Grillo á botni Seyðisfjarðar.

Loðnan fundin

Með samstilltu átaki hnúfubaka, flugmanns og grálúðusjómanna fannst loðnan loksins í gærkvöld, norðaustur af Hornbjargi, og hefur eitt skip þegar fengið góðan afla. Sjómenn og útvegsmenn, og reyndar fleiri sem láta þjóðarhag sig varða, voru orðnir áhygjufullir af því að engin loðna hafði fundist í nokkra mánuði, þrátt fyrir leit.

Engar undanþágur vegna fiskimiða

Íslendingar munu ekki fá undanþágu vegna fiskveiðiauðlinda sinna, komi til þess að þeir gangi í Evrópusambandið. Þetta hefur Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður eftir æðsta manni sjávarútvegsmála hjá sambandinu.  

Tillögur um færslu Hringbrautar

Við upphaf fundar í borgarstjórn Reykjavíkur, sem hófst klukkan 14, afhenti átakshópur Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð tvær tillögur að breytingum á framkvæmdum, sem nú eru hafnar við færslu Hringbrautar.

15 ára piltur fær 2ja mánaða dóm

Fimmtán ára piltur var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

15 ára piltur stunginn til bana

Fimmtán ára breskur drengur var stunginn til bana í verslunarmiðstöð í Fulham, úthverfi Lundúna, í dag. Þrír unglingspiltar sáust flýja frá vettvangi en að sögn lögreglu virðist sem þeir hafi ásælst farsíma drengsins og reynt að ræna honum með fyrrgreindum afleiðingum. Piltarnir eru enn ófundnir.

Verslunarmiðstöð í Fjarðarbyggð

Fyrsta skóflustungan að verslunarmiðstöð í Fjarðabyggð var tekin í gær. Byggingin verður 2.500 fermetrar að stærð og hefur hlotið nafnið „Molinn“.

Nýtt véla- og samgönguminjasafn

Nýtt Véla- og samgönguminjasafn verður opnað í Stóragerði í Óslandshlíð í Skagafirði á laugardag. Á safninu verða meðal annars margs konar bílar frá Ameríku og Evrópu sem sumir hafa verið gerðir upp frá grunni.

Bensínverð hærra á landsbyggðinni

Bensínverð er mun hærra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu þar sem samkeppnin kemur neytendum til góða. Þetta kemur fram í könnun Neytendasamtakanna þar sem verð á 95 oktana bensíni var kannað í 22 sveitarfélögum.

Grænfriðungur féll fyrir Ísafirði

Skip Grænfriðunga, Esperansa, yfirgaf Ísafjörð í gærkvöld og hélt áleiðis til Húsavíkur. Haraldur Tryggvason, sem kominn er af hvalföngurum, fylgdi skipinu úr höfn á gúmmíbáti sínum með fána Grænfriðunga blaktandi við hún.

Hvannadalshnúkur lækkar

Hvannadalshnúkur hefur lækkað um átta metra samkvæmt nýrri mælingu Jöklarannsóknafélags Íslands. Hann mælist nú 2111 metra yfir sjó en hefur hingað til verið skráður 2119 metrar.

Siglingaþekking í andaslitrunum?

Siglingaþekking Íslendinga virðist vera í andaslitrunum. Í maí síðastliðnum var skrifað undir nýjan kjarasamning skipstjórnarmanna á kaupskipum og við atkvæðagreiðslu um samninginn kom í ljós að hugsanlega er um að ræða næst síðasta kjarasamning sem gerður er fyrir þessa atvinnugrein.

Bókhald Landssímans var í ólestri

Bókhald Landssímans var í ólestri, reikningar ekki skráðir fyrr en við greiðslu og margir óstemmdir biðreikningar. Þetta sagði Sveinbjörn Kristjánsson fyrir dómi en í gær fékk hann þungan fangelsisdóm vegna Landssímamálsins.

Aftaka á íslenskri vefsíðu

Myndband sem sýnir uppreisnarmenn í Írak taka gísl af lífi með hrottafengnum hætti var að finna á einni vinsælustu vefsíðu íslenskra unglinga í dag. Umboðsmaður barna gerði athugasemd til lögreglu sem fór fram á að myndbandið yrði fjarlægt.

Tvær sprengjuárásir í Tyrklandi

Að minnsta kosti þrír létust og fimmtán særðust í sprengingu í strætisvagni í Istanbúl í Tyrklandi í dag. Þá særðust þrír í minni sprengingu fyrir utan hótel í Ankara í dag. Árásirnar eru taldar tengjast leiðtogafundi NATO sem verður í Istanbúl í næstu viku. </font />

Samræði við 13 ára stúlku

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag ungan pilt fyrir að hafa haft samræði við þrettán ára stúlku. Pilturinn var fimmtán ára þegar hann framdi brotið.

Lögregluofbeldi næst á myndband

Myndbandsupptaka sem sýnir handtöku bílþjófs hefur vakið hörð viðbrögð í Los Angeles. Á upptökunni sést lögregla reyna að króa manninn af en hann stekkur út úr bílnum og flýr.

Sverðið þunga fær að rísa

Borgarráð hefur gefið leyfi fyrir því að risastóru víkingasverði verði komið fyrir á hringtorginu við Þjóðminjasafnið í hálft ár til að kynna opnun safnsins. Snorri Már Skúlason, kynningarstjóri safnsins, segir vonbrigði að leyfið sé einungis tímabundið.

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 eykst

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 jókst um tæp 50% á tveimur mánuðum í vor. Á því tímabili var fréttatíminn fluttur fram um hálftíma, til klukkan 18:30. Dagbókarkönnun Gallups fyrir maímánuð leiðir þetta í ljós.

Tæplega hundrað týndu lífinu

Komið hefur í ljós 92 létust í árásum í sjálfstjórnarhéraðinu Ingúsetíu í suðurhluta Rússlands aðfaranótt þriðjudags. Þá særðust 120 í árásunum. 67 hinna látnu voru liðsmenn rússneskra öryggissveita.

Fá ekki undanþágu

Bandaríkjamenn hafa gefist upp við að reyna að fá undanþágu fyrir hermenn sína frá því að verða ákærðir fyrir nýjum alþjóðlegum stríðsglæpadómstól, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Óveður geisar í Þýskalandi

Tveir hafa látist og nokkrir slasast í gríðarlegu óveðri sem hefur geisað í Þýskalandi undanfarna tvo daga. Í óveðrinu hafa tré rifnað upp með rótum, fjölmargir bílar skemmst og þök hreinlega fokið af húsum.

Komu Bush mótmælt

Sprengja sprakk fyrir framan hótelið þar sem George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst dvelja er hann sækir Tyrkland heim um helgina. Lögregluþjónn slasaðist alvarlega í sprengingunni, sem ekki er vitað hver ber ábyrgð á.

Lætur ekki undan þrýstingi

Forsætisráðherra Ísraels, Ariel Sharon, segist ekki ætla að láta undan þrýstingi Egypta til þess að hefja viðræður við Palestínumenn á ný. Hann fagnar þó áhuga Egypta á því að vinna að öryggismálum á Gaza-svæðinu eftir fyrirhugað brotthvarf ísraelskra hersveita.

Verkefnisstjórn skipuð

Borgarráð hefur samþykkt að skipa verkefnisstjórn þriggja aðila til að fara með öll málefni tengd menningarminjum í Aðalstræti.

500 skotum verður eytt

Kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa á síðustu tveimur dögum fundið rúmlega 500 skotfæri í flaki El Grillo, sem liggur á botni Seyðisfjarðar.

Sleppt úr haldi Írana

Írönsk stjórnvöld létu átta breska hermenn af hendi í gær en þeir voru teknir höndum eftir að varðbátar þeirra höfðu siglt inn í íranska landhelgi á mánudag. Mennirnir voru keyrðir í breska sendiráðið í Teheran eftir þriggja daga viðræður fulltrúa landanna.

Sjá næstu 50 fréttir