Fleiri fréttir

Króatía líklega í ESB

Króatía hefur fengið jákvæð viðbrögð við umsókn sinni um inngöngu í Evrópusambandið og munu samningaviðræður um inngönguna hefjast snemma á næsta ári. Romano Prodi, formaður framkvæmdastjórnar sambandsins, lýsti í dag yfir ánægju sinni með að Króatía verði hluti af sameinaðri Evrópu í framtíðinni.

Jarðskjálfti í Kverkfjöllum

Jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð í Kverkfjöllum á Vatnajökli rétt eftir miðnætti í gær. Engir eftirskjálftar hafa mælst á svæðinu.

Uppstokkun í ríkisstjórn Noregs

Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í morgun. Hann kynnti Haraldi Noregskonungi breytingarnar fyrir stundu. Tveir nýir ráðherrar voru kynntir til sögunnar.

Hvalfjarðargöngin opnuð að nýju

Hvalfjarðargöngin hafa verið opnuð að nýju en þeim var lokað um tíuleytið í morgun eftir að bíll með stórt hjólhýsi í eftirdragi, á leið suður göngin, fór utan í vegg neðst í þeim og hjólhýsið valt á hliðina. Ekki urðu slys á fólki en í bílnum voru hollensk hjón á hringferð um landið.

Guðrún Gísladóttir hífð upp?

Búist er við að norska Stórþingið taki í dag afstöðu til tillögu Verkamannaflokksins um að fjölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir verði híft upp og fjarlægt af hafsbotni við Lófóten. Tvö ár eru liðin frá því skipið sökk á svæðinu.

Möl rutt ofan af Ingólfsfjalli

Stórvirk jarðýta heldur áfram að ryðja möl ofan af Ingólfsfjalli í malarnámuna við fjallsræturnar, þrátt fyrir þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá í fyrradag um að þetta sé óheimilt. Að sögn landeiganda, Helga Eggertssonar á Kjarri í Ölfusi, hefur honum ekkert borist um þessa niðurstöðu, hvorki frá stofnuninni né sveitarstjóra Ölfushrepps.

Helga hjartaþega heilsast vel

Helga Einari Harðarsyni, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Gautaborg á mánudag, líður eftir atvikum vel, að sögn móður hans. Hann nýtur góðrar aðhlynningar og er ótrúlega hress.

Parísarhjól í Laugardalinn

Parísarhjól í Laugardalinn og heilsulón á Hellisheiði eru meðal atriða í verkefna- og aðgerðaráætlun Höfuðborgarstofu sem kynnt var í dag. Hugmyndir um útrás íslenskra listamanna voru einnig kynntar sem og nýtt slagorð fyrir borgina og markaðsverkefni.

Námið gjaldfrjálst að hluta

Leikskólanám fimm ára barna verður gjaldfrjálst að hluta, nái tillögur starfshóps um aukna samþættingu leikskóla og grunnskóla í Reykjavík fram að ganga.

Framkvæmdastjóri NATO væntanlegur

Framkvæmdastjóri Atlandstahfsbandalagsins, Jaap De Hoop Scheffe, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Gert er ráð fyrir að hann lendi á Reykjavíkurflugvelli klukkan hálf fimm í dag og haldi þaðan beint til fundar með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Unglingspiltar kveiktu í

Fikt tveggja unglingspilta með eld varð til þess að það kviknaði í verslunarmiðstöðinni Firði í gærkvöld. Þeir höfðu kveikt í rusli við austurgafl Fjarðar með þeim afleiðingum að eldur læstist í klæðningu hússins.

Landsmótin í uppnámi

Landsmót Ungmennafélags Íslands og Unglingalandsmótið, sem haldin verða í Skagafirði í næsta mánuði, eru í uppnámi eftir að dómsmálaráðherra úrskurðaði að sýslumaðurinn á Sauðárkróki hefði heimild til að innheimta tvær og hálfa milljónir króna í sérstakan löggæslukostnað vegna mótanna.

Helgi Einar af gjörgæslu

Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg á mánudag, hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og liggur nú á hjartadeild. Hann er laus úr öndunarvél en að sögn móður Helga, Sigurbjargar Ásgeirsdóttur, líður honum vel eftir atvikum.

Hæstiréttur dæmir konu bætur

Hæstiréttur dæmdi í dag konu 300 þúsund króna bætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu í sambandi við rannsókn á mannsláti í Kópavogi. Hún var handtekin ásamt karlmanni, grunuð um að hafa átt þátt í dauða mannsins.

Hæstiréttur dæmir konu bætur

Hæstiréttur dæmdi í dag konu 300 þúsund króna bætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu í sambandi við rannsókn á mannsláti í Kópavogi. Hún var handtekin ásamt karlmanni, grunuð um að hafa átt þátt í dauða mannsins.

Kynferðisbrotamaður fær 10 mánuði

Kynferðisbrotamaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem þá voru 6 og 7 ára gamlar. Honum er jafnframt gert að greiða hvorri stúlku um sig 300.000 krónur í miskabætur.

Frítt í leikskóla fyrir fimm ára

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að leggja um 100 milljónir á ári í gjaldfrjálst nám fyrir fimm ára börn hluta úr degi. Með því viðurkennir borgin leikskólana sem fyrsta skólastigið, fyrst sveitarfélaga

Unglingar fundu fjölda hasspípa

Unglingar og leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fundu nokkra tugi af hasspípum á svæði austan við Rauðavatn. Fíkniefnalögreglan segir almenning duglegan að láta vita af stöðum sem þessum.

ESB

Mæla með skerðingu heildarafla

Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna telur að skerða verði heildarafla um þrjú prósent í aflareglum og koma í veg fyrir að raunafli fari framúr leyfðum heildarafla. Tillögurnar hafa þegar verið teknar í framkvæmd að hluta til.

Skilorð fyrir slagsmál

24 ára maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás og áfengislagabrot.

Mun færri kjósa utan kjörfundar

Mun færri hafa nýtt sér þann rétt að greiða atkvæði utan kjörfundar, nú þegar átta dagar eru í forsetakosningar, en fyrir forsetakosningarnar árið 1996. Í Reykjavík eru þeir um helmingi færri en norðanmenn eru á svipuðu róli og fyrir síðustu kosningar.

Dæmd til að borga fimm hunda

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nýverið karl og konu til að greiða Hundaræktinni í Dalsmynni á áttunda hundrað þúsund krónur, auk málskostnaðar, vegna fimm hunda sem þau höfðu keypt en ekki greitt fyrir.

Opið hús fyrir sveitunga

Í tilefni flutninga og sex ára afmælis Götusmiðjunnar verður opið hús fyrir alla sveitunga og fagfólk í geiranum við formlega opnun á Akurhóli, fyrrum Gunnarsholti, Rangárþingi-Ytra við Hellu í dag kl.14.

Forseti fagnar ummælum Vigdísar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti segist í viðtali við DV fagna því að Vigdís Finnbogadóttir forveri sinn í forsetaembætti skuli telja málskotsréttinn svo vakandi og sterkan, að hún lýsi því nú yfir að hún hefði beitt honum í Kárahnjúkamálinu.

Fimmtán milljarðar til bænda

Kostnaðurinn af stuðningi við bændur á síðasta ári nam rúmlega 52 þúsund krónum á hvert mannsbarn, að meðaltali. Heildarkostnaðurinn, annars vegar í formi styrkja úr ríkissjóði og hins vegar í formi hærra matvælaverðs, nam rúmum fimmtán milljörðum króna.

Ákvörðun dómsmálaráðuneytis ógild

Hæstiréttur ógilti í dag ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að vísa litháískum morðingja og nauðgara úr landi. Litháinn kom til Íslands seint árið 1999 og fékk dvalarleyfi til febrúarmánaðar 2001. Í ársbyrjun bárust lögreglunni upplýsingar um að maðurinn hefði gerst sekur um alvarleg afbrot í heimalandi sínu.

Aflareglu fiskistofna verði breytt

Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna leggur til að aflareglunni verði breytt og framvegis verði veidd um tuttugu og tvö prósent af áætluðum veiðistofni en það þýðir talsverða skerðingu veiðiheimilda.

Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þremur útlendingum, sem vísa á úr landi, var kærður til Hæstaréttar í dag. Fyrrverandi lögmaður eins þeirra segir yfirvöld með leikaraskap í málinu og standi að sínu mati ólöglega að meðferð þess.

Saddam ekki viðriðinn al-Kaída

George Bush forseti Bandaríkjanna og Dick Cheney varaforseti gera alvarlegar athugasemdir við niðurstöður nefndar um hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september. Þeir mótmæla þeirri skoðun að engin tengsl hafi verið á milli Saddams Hússeins og al-Kaída.

Rússar vöruðu Bandaríkjamenn við

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, lýsti því yfir í dag að rússneska leyniþjónustan hefði varað stjórnvöld í Washington við því að Saddam Hússein hefði skipulagt hryðjuverkaárásir á Bandaríkin, í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001.

Nýtt trúfélag ásatrúarmanna

Jörmundur Ingi fyrrverandi allsherjargoði sótti í dag um leyfi til að stofna nýtt trúfélag ásatrúarmanna. Hann segir fulla ástæðu til að opinber rannsókn verði gerð á fjárreiðum Ásatrúarfélagsins.

Leikskólinn fyrsta skólastigið

Allt stefnir í að leikskólanám fimm ára barna í Reykjavík verði gjaldfrjálst að hluta og leikskólinn viðurkenndur sem fyrsta skólastigið. Kostnaður borgarinnnar vegna þessara breytinga verður um 100 milljónir króna á ári.

Framkvæmdastjóri NATO á landinu

Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, kom til landsins í dag. Hann er þessa stundina á blaðamannafundi að loknum fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra. Hann þiggur kvöldverðarboð hjá forsætisráðherra á Þingvöllum í kvöld en fer af landi brott á morgun.

Möl enn rutt fram af Ingólfsfjalli

Stórvirk jarðýta hélt í morgun áfram að ryðja möl ofan af Ingólfsfjalli í malarnámuna við fjallsræturnar, þótt Skipulagsstofnun hafi úrskurðað í fyrradag að það væri óheimilt.  Landeigendum var sent formlegt bréf í dag þar sem úrskurður Skipulagsstofnunar var kynntur.

Hvalfjarðargöngunum lokað

Loka varð Hvalfjarðargöngum í rúmar tvær klukkustundir fyrir hádegi í dag eftir að hjólhýsi valt í göngunum. Óhappið varð þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í tíu í morgun.

Sterkasti prestur heims

Séra Gunnar Sigurjónsson, prestur í Digraneskirkju, er sterkasti prestur í heimi. Hann sló fyrra heimsmet með því að hnykla vöðvana og lyfta yfir hálfu tonni nú rétt fyrir fréttir.

Ágreiningur innan ESB

Ágreiningur er uppi um hver á að verða næsti formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og eins hvernig endanleg útgáfa nýrrar stjórnarskrár sambandsins á að verða. Forseti Frakklands segir að ekki verði fallist á frekari útþynningu stjórnarskrár sambandsins.

Afhöfðuðu gísl

Hryðjuverkamenn í Sádí-Arabíu afhöfðuðu bandarískan gísl sinn. Skömmu síðar birtu þeir þrjár myndir af afhöggnu höfði hans, á vefnum.

Samið um stjórn Gaza

Palestínustjórn hefur hafið viðræður við herskáar hreyfingar Palestínumanna um það hvernig stjórn á Gaza-svæðinu skuli háttað þegar Ísraelar eru horfnir þaðan á brott.

Forsetinn er ekki bara puntudúkka

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að með því að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar sé hann ekki að gera forsetaembættið pólitískara en áður.

Maður svífur yfir Everest

Ítalski ævintýramaðurinn Angelo D´Arrigo varð í síðasta mánuði fyrstur manna til að fljúga á svifflugu yfir hæsta fjalli heims, Everest-fjall. 

Framkvæmdastjóri NATO býður aðstoð

Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, er staddur hér á landi í tveggja daga heimsókn og fundaði með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í gær.

1Maður svífur yfir Everest

Ítalski ævintýramaðurinn Angelo D´Arrigo varð í síðasta mánuði fyrstur manna til að fljúga á svifflugu yfir hæsta fjalli heims, Everest-fjall. 

Hannes hættir hjá ÍE

Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar lætur af störfum hjá fyrirtækinu til að einbeita sér að starfi stjórnarformanns Flugleiða. Í tilkynningu frá ÍE segir að Hanes muni áfram verða ráðgjafi hjá fyrirtækinu.

Sjá næstu 50 fréttir