Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Gunnar Berg Stefánsson skrifar 17. október 2026 16:13 KR-ingar enda í næstefsta sæti Bestu deildarinnar. Anton/Vísir KR tryggði sér annað sætið í Bestu deild karla með dramatískum 3-2 sigri á Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. KR-ingar komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu metin eftir hlé áður en Gabríel Hrannar Eyjólfsson tryggði gestunum sigurinn á 89. mínútu. Galdur Guðmundsson og Ástbjörn Þórðarson skoruðu mörk KR í fyrri hálfleik áður en Stefan Alexander Ljubicic og Dagur Ingi Valsson jöfnuðu fyrir Keflavík í þeim síðari. KR-ingar með yfirhöndina í fyrri hálfleik KR-ingar byrjuðu betur og komust yfir strax á áttundu mínútu. Eftir gott spil gestanna barst boltinn inn í vítateig Keflvíkinga þar sem Eiður Gauti Sæbjörnsson kom honum til hliðar á Gald Guðmundsson sem skoraði af stuttu færi. Gestirnir héldu áfram að sækja og á 29. mínútu tvöfölduðu þeir forystuna. Aron Sigurðarson kom boltanum út á Gald hægra megin sem sendi góða fyrirgjöf inn í teiginn. Þar kom Ástbjörn Þórðarson á ferðinni og skoraði viðstöðulaust. KR-ingar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fengu fleiri tækifæri til að bæta við mörkum. Galdur átti meðal annars góða tilraun eftir lagleg tilþrif en Ásgeir Orri Magnússon varði vel í marki Keflavíkur. Heimamenn áttu hins vegar erfitt með að skapa sér færi og KR fór með verðskuldaða 2-0 forystu inn í hálfleikinn. Eiður Orri breytti leiknum á örfáum mínútum Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerði tvær breytingar í hálfleik þegar Eiður Orri Ragnarsson og Frans Elvarsson komu inn á. Breytingarnar skiluðu sér strax. Á 49. mínútu, rúmum þremur mínútum eftir að hann kom inn á, renndi Eiður Orri boltanum í gegnum vörn KR á Stefan Alexander Ljubicic sem kláraði færið vel og minnkaði muninn í 1-2. Aðeins tveimur mínútum síðar var Eiður Orri aftur á ferðinni. Hann fékk boltann úti á vinstri vængnum og sendi fast fyrir markið þar sem Dagur Ingi Valsson kastaði sér á knöttinn og jafnaði metin í 2-2. Keflvíkingar voru allt annað lið eftir hlé og fengu góð færi til að komast yfir. Dagur Ingi fékk meðal annars frábært tækifæri eftir að Axel Ingi hljóp nánast upp allan völlinn og renndi boltanum fyrir markið. Dagur skaut hins vegar beint á Halldór Snæ Georgsson sem varði vel. KR-ingar fengu einnig sín tækifæri. Aron Sigurðarson átti meðal annars skalla rétt fram hjá marki Keflavíkur og Eiður Gauti Sæbjörnsson átti góðan skalla sem Ásgeir Orri varði glæsilega. Gabríel Hrannar tryggði KR sigurinn Leikurinn varð sífellt opnari eftir því sem leið á og bæði lið freistuðu þess að knýja fram sigurmarkið. Þegar allt stefndi í að liðin myndu skipta stigunum á milli slógu KR-ingar til á 89. mínútu. Arnór Ingvi Traustason sendi þá boltann inn í vítateig Keflvíkinga þar sem Gabríel Hrannar Eyjólfsson kom á fleygiferð og þrumaði boltanum í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og KR-ingar fögnuðu mikilvægum sigri sem tryggði þeim annað sætið í deildinni. Sigurinn var jafnframt sá fyrsti hjá liðinu á náttúrulegu grasi í deildinni á tímabilinu. Keflvíkingar þurftu hins vegar að sætta sig við svekkjandi tap í síðasta heimaleik sínum á tímabilinu. Atvik leiksins Innkoma Eiðs Orra Ragnarssonar í hálfleik var vendipunktur leiksins. Keflvíkingar komu til baka úr 0-2 í 2-2 á örfáum mínútum og gjörbreyttu leiknum. KR-ingar áttu þó síðasta orðið þegar Gabríel Hrannar Eyjólfsson tryggði þeim sigurinn á 89. mínútu. Stjörnur og skúrkar Gabríel Hrannar Eyjólfsson var maður stundarinnar hjá KR-ingum og Arnór Ingvi Traustason átti stóran þátt í sigrinum gegn liði Viktors Árna, bróður síns. Hjá Keflavík var Eiður Orri Ragnarsson áberandi eftir að hann kom inn á í hálfleik. Hann gaf sóknarleik heimamanna nýtt líf og átti stóran þátt í endurkomu þeirra. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, fær svo sérstakt hrós fyrir að hafa loksins stýrt sínum mönnum til sigurs á náttúrulegu grasi í deildinni á tímabilinu. Enginn sérstakur skúrkur stóð upp úr í þessum fjöruga leik, þótt KR-ingar hafi gert sér óþarflega erfitt fyrir með því að missa niður tveggja marka forystu. Dómarinn Helgi Mikael Jónasson var aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar voru Antoníus Bjarki Halldórsson og Guðni Freyr Ingvason. Helgi Mikael leyfði leiknum að fljóta vel og flautaði ekki að óþörfu. Þó voru nokkur atvik þar sem hann hefði að mínu mati mátt dæma aukaspyrnu. Stemning og umgjörð Það var kalt, blautt og vindasamt á HS Orku-vellinum í Keflavík þar sem heimamenn léku sinn síðasta heimaleik á tímabilinu. Veðrið setti nokkurn svip á leikinn, sérstaklega í upphafi þegar boltinn fór títt út af vellinum. Heldur fámennt var í stúkunni en stemningin ágæt þrátt fyrir kuldann og rokið. Áhorfendur fengu þó sannarlega dramatík fyrir sinn snúð þegar Keflvíkingar unnu upp tveggja marka forskot áður en KR-ingar tryggðu sér sigurinn undir lokin. Viðtöl Lagði upp bæði mörkin eftir innkomuna: „Ég kom og gerði það bara“ Eiður Orri lét heldur betur til sín taka þegar hann kom inn á sem varamaður í hálfleik í 3-2 tapi Keflavíkur gegn KR í Bestu deild karla í dag. Hann lagði upp bæði mörk Keflvíkinga sem unnu upp tveggja marka forskot gestanna áður en KR tryggði sér sigurinn undir lok leiks. Eiður Orri kom inn á í hálfleik og segir fyrirmælin frá Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, hafa verið skýr. „Hann sagði mér að koma inn á vinstri kantinn og komast strax inn í leikinn, fá boltann og ég gerði það bara og lagði upp tvö á fyrstu átta mínútunum eða eitthvað.“ Keflvíkingar náðu að jafna metin í 2-2 en Gabríel Hrannar Eyjólfsson skoraði sigurmark KR á 89. mínútu. „Þetta var mjög svekkjandi. Við vorum búnir að komast í nokkrar góðar stöður þar sem við hefðum getað klárað færin okkar betur,“ sagði Eiður Orri. Eiður Orri gengur til liðs við Víking eftir tímabilið og hlakkar til nýrrar áskorunar. „Ég er mjög spenntur að fara í nýtt lið en að sama skapi leiðinlegt að fara, þetta er mjög skemmtilegur hópur en ég er bara mjög spenntur.“ Aðspurður hversu mörgum mörkum Víkingar mættu búast við frá honum á næsta tímabili var hann með skýrt markmið. „Ég ætla að segja tíu mörk,“ sagði Eiður Orri. Óskar Hrafn: „Mjög ánægður með karakterinn í liðinu“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með karakter sinna manna eftir dramatískan 3-2 sigur á Keflavík í Bestu deild karla í dag. KR-ingar misstu niður tveggja marka forskot en tryggðu sér sigurinn með marki á 89. mínútu. „Mér fannst við vera með mikla yfirburði allan fyrri hálfleikinn,“ sagði Óskar, en viðurkenndi að Keflvíkingar hefðu komið sterkir til leiks eftir hlé. „Þeir byrja af krafti og við vorum ekki alveg tilbúnir,“ sagði Óskar um upphaf síðari hálfleiks, þar sem Keflavík skoraði tvö mörk á skömmum tíma. Þjálfarinn var þó sérstaklega ánægður með viðbrögð sinna manna eftir jöfnunarmarkið og hrósaði liðinu fyrir að ná að knýja fram sigur við erfiðar aðstæður. „Ég er mjög ánægður með karakterinn í liðinu,“ sagði Óskar. Haraldur: „Ætli jafntefli hefði ekki verið sanngjarnt“ Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var svekktur eftir 3-2 tap sinna manna gegn KR í Bestu deild karla í dag. Keflvíkingar unnu upp tveggja marka forskot gestanna en fengu á sig sigurmark undir lok leiks. Keflvíkingar áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en mættu mun ákveðnari til leiks eftir hlé. Haraldur gerði tvær breytingar í hálfleik og annar þeirra sem komu inn á, Eiður Orri Ragnarsson, lagði upp bæði mörk heimamanna. Haraldur var ánægður með viðbrögð sinna manna í síðari hálfleik en svekktur yfir því að hafa ekki náð að fylgja endurkomunni eftir. Aðspurður hvort honum fyndist Keflvíkingar hafa átt meira skilið úr leiknum svaraði hann: „Nei, nei, ætli sanngjarnt hefði ekki verið jafntefli úr þessum leik.“ Þetta var síðasti heimaleikur Keflvíkinga á tímabilinu en liðið hefur þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í efstu deild. Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla KR Keflavík ÍF