Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2026 13:30 Erling Haaland skoraði tvö og var nálægt þrennunni í dag. Getty/James Gill Erling Haaland var í essinu sínu í 3-2 sigri Manchester City á Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og skoraði tvö mörk. Hann var hins vegar sviptur þrennu og haltraði meiddur af velli í leikslok. Óvíst er hvers eðlis meiðsli Haalands eru en af svip hans að dæma gæti hann nú þurft að vera frá keppni í einhvern tíma. Phil Foden kom City yfir á 19. mínútu en Daizen Maeda jafnaði metin strax í kjölfarið eftir að hafa farið illa með Marc Guehi. Haaland kom City yfir á nýjan leik og jók muninn á 69. mínútu. Hann virtist svo hafa fullkomnað þrennuna en Enzo Fernandez var dæmdur rangstæður í aðdragandanum, eftir skoðun á myndbandi. Gestirnir hleyptu mikilli spennu í leikinn í lokin með marki Zian Flemming úr vítaspyrnu en komust ekki nær. City hefur því unnið alla sjö leiki sína til þessa og er nú með sex stiga forskot á Arsenal á toppnum en Arsenal á leik til góða. Enski boltinn Fótbolti Manchester City Ipswich Town FC