Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Aron Guðmundsson skrifar 9. október 2026 20:07 Khaldoon Al Mubarak með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024. Vísir/Getty Tilraun til að ná sátt í máli ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City, í máli sem deildin höfðaði gegn félaginu fyrir umfangsmikil brot á fjárhagsreglum, fór út um þúfur.
Það er Bloomberg sem greinir frá og er þetta í fyrsta sinn sem í ljós kemur að Manchester City og enska úrvalsdeildin hafi átt í sáttaviðræðum. Á þetta að hafa gerst á fyrri stigum málsins. Samkvæmt Bloomberg var þetta leið Manchester City til að reyna milda þær þungu refsingar sem félagið gæti átt yfir höfði sér. Viðræðurnar fóru þó út um þúfur áður en samkomulag náðist. Sátt í málinu hefði falist í því að Manchester City hefði greitt sekt í málinu fremur en að eiga hættu á stigafrádrætti til að mynda eða falli nipur um deild. Viðræðurnar eru sagðar hafa farið fram áður en félagið varð fyrir verulegu bakslagi í málinu en það hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu í málinu. Nú hefur sekt Manchester City í 114 ákærum af 115 verið staðfest og hefur þeim dóni verið áfrýjað. Samningaviðræðurnar, sem ekki hefur verði greint frá áður, sigldu fljótt í strand og Manchester City heldur enn fram sakleysi sínu og hefur áfrýjað dómnum en ljóst þykir að félagið geti átt yfir höfði sér afar þunga refsingu. Brot Manchester City á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar voru ýmis konar. Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City hafi á níu ára tímabili frá 2009/10 til 2017/18: Gert „sýndarsamninga“ (e. sham agreements) (sem gáfu ranga mynd af raunverulegu samkomulagi milli aðila) við fjölda viðskiptafélaga sinna, auk þess að reiða sig á „sýndarsamninga“ við aðra, til að blása upp tekjur félagsins á fölskum forsendum og draga úr kostnaði þess. Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu sinni fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar. Það braut verulega gegn eyðslumörkum bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA. Við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar braut Manchester City ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni (þrjú af fjórum meintum brotum voru staðfest). Manchester City spilar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni eftir að dómur var kveðinn upp á Anfield á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Liverpool.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira