Magnað mark dugði fyrir sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bruno Guimaraes skoraði eftir hælsendingu Declans Rice. Þeir glöddust mjög í kjölfarið.
Bruno Guimaraes skoraði eftir hælsendingu Declans Rice. Þeir glöddust mjög í kjölfarið. Getty

Arsenal vann 2-1 endurkomusigur á Leeds á Emirates-vellinum í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Magnað sigurmark skipti sköpum í dag.

Markalaust var eftir bragðdaufan fyrri hálfleik í Lundúnum í dag og Arsenal hreint ekki líklegt til árangurs. Leeds hafði haldið liðinu í skefjum stærstan part og komst svo óvænt yfir þegar tíu mínútur voru liðnar á síðari hálfleik þegar bakvörðurinn James Justin skoraði af stuttu færi eftir snarpa sókn.

Það virtist vekja Arsenal-menn til lífsins og Ítalinn Riccardo Calafiori skoraði sitt annað mark á tímabilinu sjö mínútum síðar þegar Ben White skallaði boltann fyrir hann og sá ítalski kom höfðinu í boltann og hann komst yfir línuna.

Átta mínútum eftir það, á 70. mínútu, áttu Arsenal-menn stórkostlegt spil utan teigs, einnar snertingar bolti þar sem þónokkrir leikmenn komu við sögu. Það endaði með laglegri hælsendingu Declan Rice fyrir fætur Bruno Guimaraes sem kom boltanum í netið.

Það frábæra mark dugði Arsenal fyrir 2-1 sigri liðsins og það jafnar topplið Manchester City að stigum á toppnum með 15 stig. City á leik inni við Liverpool á Anfield á morgun.

Leeds er með níu stig í fimmta sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira