Upp­gjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna

Andri Már Eggertsson skrifar
Jeremy Pargo var hetja Grindvíkinga í kvöld.
Jeremy Pargo var hetja Grindvíkinga í kvöld. Vísir/Guðmundur

Jeremy Pargo tryggði Grindavík dramatískan 104-103 sigur í framlengdum lokaleik fjórðu umferðar Bónusdeildar karla í körfubolta. Staðan var 94-94 eftir venjulegan leiktíma.

Þetta var annar sigur Grindavíkurliðsins í röð eftir að hafa byrjað veturinn á fjórum tapleikjum. Njarðvíkingar hafa aftur á móti tapað fyrstu fjórum deildarleikjum tímabilsins en þeir hafa aldrei verið jafnnálægt sigri og einmitt í kvöld.

Daniel Mortensen kom inn á völlinn hjá Grindavík í fyrsta sinn á tímabilinu og skoraði fjórtán stig á fyrstu sjö mínútunum. Hann endaði sem stigahæsti leikmaður Grindvíkinga með 26 stig. Pargo var með 18 stig og 10 stoðsendingar. Liðið missti Deandre Kane af velli með fimm villur en tókst að landa sigri þökk sé Pargo og góðum leik Arnórs Tristans Helgasonar í lokin.

Makye Richard skoraði 44 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Njarðvík, þar af var hann með 35 stig í seinni hálfleik. Þetta var stórkostlegur leikur hjá honum. David Okeke lék sinn fyrsta leik í Njarðvíkurbúningnum og skilaði 29 stigum í mjög góðri frammistöðu.

Nýjasti leikmaður Njarðvíkur, David Okeke, var í byrjunarliði liðsins og byrjaði á að gera öll átta stig gestanna á sjö mínútum. Grindvíkingum gekk öllu betur í fyrsta leikhluta en þó var ákveðið orkuleysi sem einkenndi bæði lið. Íslandsmeistararnir voru tíu stigum yfir eftir fyrsta fjórðung 23-13.

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, lét sína menn heyra það eftir fyrsta leikhluta sem heyrðist vel í HS Orku-höllinni. Sá hárblásari skilaði sér og Njarðvík gerði 16 stig á innan við fjórum mínútum sem var þremur stigum meira en í fyrsta leikhluta.

Daniel Mortensen spilaði sínar fyrstu mínútur í vetur og mætti með hvelli. Mortensen skaut ljósin út í öðrum leikhluta og gerði 14 stig á innan við sjö mínútum og klikkaði aðeins á einu skoti. Þökk sé innkomu hans var Grindavík ellefu stigum yfir í hálfleik 52-41.

Undir lok þriðja leikhluta kveiknaði á Makye Richard, leikmanni Njarðvíkur, sem endaði þriðja leikhluta á að setja niður tvo þrista í röð. Makeye gerði síðustu þrettán stig gestanna í leikhlutanum. Staðan var 71-68 þegar farið var í síðustu lotu.

Fjórði leikhluti var æsispennandi. Liðin skiptust á forystu síðustu mínútur leiksins og það var bara spurning hver ætlaði að vera hetjan undir lokin. Makye Richard jafnaði leikinn þegar fimm sekúndur voru eftir. Jóhann Þór átti inni leikhlé og heimamenn fengu tækifæri til þess að klára leikinn en Mirza Bulic kastaði boltanum í hausinn á Deandre Kane og boltinn út af. Grípa þurfti því til framlengingar til að skera úr um sigurvegarann.

Í framlengingunni reyndist Pargo hetja Grindavíkur. Makeye misreiknaði síðan klukkuna og henti boltanum yfir allan völlinn en hefði getað nýtt tímann betur og farið nær. Allt kom fyrir ekki og Grindavík vann 104-103.

Atvik leiksins

Sigurkarfa Pargo var atvik leiksins. Pargo fékk boltann með nokkrar sekúndur eftir á klukkunni, réðist á körfuna og kláraði leikinn. 

Stjörnur og skúrkar 

Daniel Mortensen spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu og var frábær. Mortensen var stigahæstur hjá Grindavík með 26 stig.

Makye Richard og David Okeke fóru á kostum í liði Njarðvíkur og gerðu 73 af 103 stigum Njarðvíkur.

Njarðvík fékk aðeins 6 stig af bekknum á meðan Grindavík fékk 33 sem var ansi mikill munur.

Dómararnir

Dómarar kvöldsins voru Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson og Stefán Kristinsson. Heilt yfir voru þeir flottir í kvöld, í eins jöfnum leik og þetta var komu ekki upp nein vafaatriði sem réðu úrslitum.

Stemning og umgjörð

Það var nokkuð lágstemmt í HS Orku-höllinni í fyrri hálfleik. Miðað við föstudagskvöld og Grindavík að fá Njarðvík í heimsókn. Mætingin var fín en stemningin hefur oft verið meiri. Það breyttist þó með spennunni sem fylgdi í fjórða leikhluta og framlengingunni.

„Engin krísa en þurfum að læra að klára leiki“

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var svekktur eftir leikVísir/Guðmundur

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar svekktur eftir tap kvöldsins.

„Þetta var virkilega sárt. Það var fullt sem við gerðum vel í endurkomunni og við fengum fullt af tækifærum til að klára þetta. Við misstum af tækifærinu í að næla okkur í fyrsta sigur tímabilsins,“ sagði Rúnar eftir leik.

Aðspurður út í atvikið þegar Makye Richard henti boltanum yfir allan völlinn en hefði geta farið nær og náð betra skoti. Rúnar taldi það ekki hafa skipt neinu máli.

„Það eru margir aðrir hlutir sem höfðu meiri áhrif en þetta. Hann hefði mögulega komist tveimur skrefum fram yfir miðju og farið í skot þar en það eru önnur smáatriði heldur en þetta sem ég pæli í.“

Njarðvík hefur tapað öllum fjórum leikjum tímabilsins en Rúnar sagði að það væri ekki krísa hjá félaginu.

„Þú ert góður að reikna. Við vissum að við værum að fara í hörkuleiki og við höfum ekki farið í leik ennþá sem sérfræðingar segja að Njarðvíki eigi að vinna en þetta snýst um að ná í sigra og við höfum fengið tækifæri. Ég ætla ekki að segja að það sé krísa strax en við þurfum að læra að klára leiki,“ sagði Rúnar að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira