Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 30. október 2026 20:39 Dwayne Lautier-Ogunleye var langatkvæðamestur Valsmanna í leiknum í kvöld og skoraði yfir þrjátíu stig. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Valur vann nauman sigur á Ármanni, 87-84, í fjórðu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Ármenningar voru þrettán stigum undir í hálfleik en náðu að snúa taflinu við og komast yfir í lokaleikhlutanum en Valsmenn höfðu að lokum betur. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur heimamanna með 32 stig. Með sigrinum komst Valur upp í þriðja sæti deildarinnar og hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína. Ármann situr hins vegar áfram á botninum án sigurs. Ármenningar mættu af krafti og létu taplausa heimamenn hafa fyrir hlutunum strax frá upphafi. Lítið skildi liðin að í fyrsta leikhluta og Valur leiddi með tveimur stigum að honum loknum, 23-21. Kristófer Acox skorar hér tvö af sextán stigum sínum.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Valsmenn náðu hins vegar að slíta sig frá gestunum í öðrum leikhluta. Sóknarleikur Ármanns gekk illa í öðrum leikhluta og Valsmenn náðu smám saman að byggja upp forskot. Valur vann annan leikhlutann 29-18 og fór með þrettán stiga forskot inn í hálfleik, 52-39. Ármenningar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og Valsmenn áttu erfitt með að svara. Gestirnir minnkuðu muninn jafnt og þétt og voru aðeins fimm stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 70-65. Ármann hélt áfram á sömu braut og skoraði fyrstu átta stig fjórða leikhlutans. Arnaldur Grímsson kom gestunum yfir með þristi þegar tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum. Valsmenn þurftu að hafa fyrir því að ná aftur tökum á leiknum. Kári Jónsson jafnaði metin þegar lokaleikhlutinn var hálfnaður og liðin skiptust á körfum á kaflanum sem fylgdi. Cedrick Bowen og Valsmenn hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Þegar tvær mínútur voru eftir leiddi Valur með einu stigi, 85-84. Ingvi Þór Guðmundsson tapaði boltanum á ögurstundu þegar ein mínúta var eftir af leiknum og lokaþristur Kinyon Hodges fór ekki niður. Valsmenn héldu því út og lokatölur urðu 87-84. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur Valsmanna með 32 stig, sjö fráköst og þrjár stoðsendingar. Kristófer Acox skoraði 16 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en Pablo Cesar Bertone bætti við 14 stigum og tveimur stoðsendingum. Kinyon Hodges var stigahæstur Ármenninga með 25 stig og tók sex fráköst. Adam Johansson skoraði 18 stig, tók sjö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Kári Jónsson var með 10 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Atvik leiksins Þristur Arnalds Grímssonar sem kom Ármanni yfir snemma í fjórða leikhluta eftir að liðið hafði verið þrettán stigum undir í hálfleik. Gestirnir voru því komnir í góða stöðu en Valsmenn náðu aftur forystunni og höfðu að lokum betur eftir spennandi lokamínútur. Stjörnur og skúrkar Dwayne Lautier-Ogunleye var frábær í liði Vals og dró vagninn í sókninni. Hann skoraði 32 stig og nýtti öll tólf vítaskot sín. Kinyon Hodges var besti leikmaður gestanna með 25 stig. Adam Johansson átti einnig góðan leik með 18 stig, sjö fráköst og fjórar stoðsendingar. Dómarar Dómararnir stóðu sig vel og höfðu engin áhrif á úrslit leiksins. Ekki er hægt að biðja um mikið meira. Stemning og umgjörð Fín mæting var í N1-höllina og stuðningsfólk beggja liða lét sjá sig á pöllunum. Góð stemning var í húsinu og áhorfendur fengu spennandi leik. Kristófer Acox í baráttunni í leiknum í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Það er eins og við hættum bara af því við höldum að þetta sé komið” Kristófer Acox var sáttur með sigur Vals á Ármanni, 87-84, í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld en taldi liðið hafa gert sér óþarflega erfitt fyrir. Valsmenn misstu niður þrettán stiga forskot í síðari hálfleik en náðu að landa sínum fjórða sigri í jafnmörgum leikjum. Kristófer taldi Valsmenn hafa átt góða kafla en þeir hefðu slakað á eftir að hafa náð forskoti. „Við leggjum hart að okkur í að ná góðu forskoti og erum klaufar í að henda þessu frá okkur. Það er eins og við hættum bara af því við höldum að þetta sé komið,“ sagði Kristófer eftir leikinn. Hann sagði liðið ekki geta leyft sér slíkt gegn neinum mótherja í deildinni. „Við erum bara ekki með það nógu gott lið að við getum bara slakað á á móti hvaða liði sem er í deildinni.“ Ármenningar komu af krafti inn í síðari hálfleikinn og náðu að komast yfir í fjórða leikhluta. Kristófer taldi slæmar ákvarðanir í sókninni hafa reynst Valsmönnum dýrar. „Við hættum að spila sókn fannst mér. Við erum að taka léleg skot og þeir eru bara að refsa okkur.” „Þeir eru að setja þrista í hraðaupphlaupum og komast í opin sniðskot og á sama tíma erum við ekki að hitta úr okkar skotum og þá minnkaði forskotið mikið.” Kristófer lét meiðsli á fingri ekki stöðva sig og skoraði 16 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í sigrinum. Spurður um fingurinn sagðist hann ekki vera alveg heill. „Hann er ekkert spes sko, hann er smá bólginn. Ég held þetta sé ekki brotið þannig að ég ákvað að reyna að kýla á þetta.“ Þrátt fyrir að ýmislegt mætti betur fara hjá Val mat Kristófer byrjun tímabilsins sem mjög ásættanlega. Liðið ætti þó enn mikið inni. „Við vitum að þetta er mjög langt tímabil og við vitum líka að þessir sigrar munu telja í lok tímabils þegar lið fara að raða sér upp fyrir úrslitakeppnina og við stefnum að sjálfsögðu að því að fara þangað. Það er bara einn leikur í einu og við förum og hugsum núna um næstu leiki.” Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Frammistöðulega séð þá er maður ekkert í skýjunum” Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ósáttur við frammistöðu sinna manna þrátt fyrir 87-84 sigur á Ármanni í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Valsmenn misstu niður þrettán stiga forskot í síðari hálfleik en náðu að lokum að landa sínum fjórða sigri í jafnmörgum leikjum. „Ánægður að vinna en svona fúlt að hafa sleppt tökunum á leiknum sem við vorum með,“ sagði Finnur eftir leik. Spurður hvernig hann mæti frammistöðu liðsins heilt yfir var svarið afdráttarlaust. „Heilt yfir bara frekar slök.“ Valsmenn hefðu náð áhlaupum hér og þar en heildarframmistaðan hefði ekki verið nógu góð. Finnur vildi þó ekki skrifa viðsnúninginn eingöngu á að Valsmenn hefðu slakað á. „Ármenningarnir gera bara vel. Þeir setja skot og það kemur kraftur í leikmennina og þeir frákasta mjög vel í seinni hálfleik. „Við slökum kannski á og svo þegar áhlaupið kemur hjá þeim þá stífnum við upp.“ Valur hafði unnið alla fjóra leiki sína í deildinni en Finnur taldi úrslitin ekki segja alla söguna um byrjun tímabilsins. „Frammistöðulega séð þá er maður ekkert í skýjunum, við viljum verða betri og þurfum að bæta okkur mikið.“ Hann benti á að sigrarnir fjórir hjálpuðu liðinu ekkert í næsta leik. Aðspurður hvað þyrfti helst að bæta nefndi hann varnarleikinn. „Svona heildstæð varnarframmistaða sérstaklega sko. Mér finnst alltof miklar sveiflur í okkur og mér finnst bara vanta upp á þetta, það er kannski eðlilegt á þessum tíma en maður vill alltaf meira.“ Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til.” Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var svekktur eftir naumt tap gegn Val, 87-84, í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Hann hrósaði þó sínu liði fyrir baráttuna í síðari hálfleik þegar Ármenningar náðu að snúa þrettán stiga mun í forystu. „Ég er náttúrulega bara drullusvekktur sko.“ Ármann var enn án sigurs eftir fjórar umferðir en Steinar sá ýmislegt jákvætt í frammistöðu sinna manna á Hlíðarenda. „Ég vil hrósa liðinu fyrir að koma til baka og taka alvöruleik hérna við Val á þeirra heimavelli.“ Steinar var ósáttur við frákastabaráttu liðsins í fyrri hálfleik og skilaboðin til leikmannanna í hléinu voru skýr. „Þeir voru að slátra okkur í fráköstunum í fyrri hálfleik. Ég bað strákana um eitt verkefni og það var að vinna frákastabaráttuna. Það myndi skila okkur inn í leikinn aftur, sem að það gerði.“ Hann taldi meiri ákefð og baráttu hafa skilað sér í síðari hálfleik. Trú á sigur hefði ein og sér ekki verið nóg. „Það þyrfti að fylgja því eftir með ákefð og baráttu. Það var ekki alveg nógu mikið í fyrri hálfleik en það kom seinna alveg. Þetta er voða einfalt oft.“ Ármenningar komust yfir snemma í fjórða leikhluta en náðu ekki að fylgja því eftir með sigri. Steinar taldi það hafa kostað sitt að þurfa að vinna upp forskot Vals. „Við byrjum ekki nógu vel og við þurfum að koma okkur inn í leikinn og það tekur orku.“ „Ef við hefðum verið allan leikinn af sama krafti og í seinni hálfleik þá hefðum við líklega tekið þetta en Valur er með reynslumikið lið og þeir þarna klára þetta.“ Þrátt fyrir vonbrigðin taldi Steinar leikinn hafa verið skref í rétta átt. „Klárlega. Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til.“ Honum fannst leikmenn hafa sýnt trú á verkefninu þótt á móti hefði blásið. „Við höfum alltaf trú á þessu liði og við viljum að menn í liðinu hafi trú á okkur. Mér fannst það koma þarna í seinni hálfleik.” Steinar taldi þó enn margt þurfa að bæta, sérstaklega í sóknarleiknum. „Samt sé ég alveg ennþá ákveðna hluti sóknarlega þar sem við verðum staðir og getum leyst betur þarna bara kerfin okkar og flæði þar. Þannig að það er fullt sem við þurfum að bæta.“ Körfubolti Bónus-deild karla Valur Ármann