Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Aron Guðmundsson skrifar 18. september 2026 10:32 Freyr Alexandersson hefur verið að gera frábæra hluti í upphafi þjálfaratíðar sinnar með Rosenborg. Hér er hann með aðstoðarþjálfara sínum Jonathan Hartmann. Rosenborg BK Frey Alexanderssyni hefur tekist að snúa gengi Rosenborg við og fá samfélagið í Þrándheimi með sér í lið. Yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu hrósar honum í hástert.
Freyr tók við Rosenborg þegar liðið var í fallsæti en með sjö sigrum í fyrstu níu leikjunum undir hans stjórn í norsku úrvalsdeildinni blasir barátta um Evrópusæti nú við. Besta byrjun hjá þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Staðan í deildinni hefur ekki aðeins batnað. Stemingin í Þrándheimi gagnvart Rosenborg hefur snarbreyst. Mikil aukning hefur verið á áhorfendafjölda á heimaleikjum Rosenborg á hinum sögufræga Lerkendal leikvangi. Trúin er komin aftur hjá stuðningsmönnum liðsins. Liðið og umgjörðin í kringum það hefur tekið nokkur stig upp á við í gæðum eftir komu Íslendingsins. „Maður sér það bara að öllu leyti, fyrst og fremst bara hvernig við spilum,“ segir Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg í samtali við Vísi. „Það passar vel inn í það hver strategían hjá Rosenborg er og passar vel við það hvað stuðningsmenn vilja sjá. Ég held að eitt af fyrstu markmiðunum sem við settum okkur þegar Freyr kemur inn er að spila fótbolta sem stuðningsmenn vilja sjá. Að fá fólk aftur á völlinn. Við erum komin aftur upp í 17-18 þúsund áhorfendur á hverjum heimaleikleik sem er gríðarlega stórt. Fá fólkið aftur með okkur í lið. Það er eitthvað sem var gríðarlega mikilvægur faktor þegar við vorum í þessu ferli að ráða þjálfara á sínum tíma.“ Það hafi verið forgangsmál á sínum tíma í miðjum stormi hjá Rosenborg að fá inn þjálfara sem næði til fólks, fengi það til að vinna saman sem ein heild. „Það er einn af styrkleikum Freys að gera það og fullt hrós á hann fyrir að hafa náð að endurvekja bæinn. Maður fær þau skilaboð úr öllum áttum frá fólki sem var búið að missa aðeins trúna en telur nú að þetta sé hægt. Vonin er komin aftur í bæinn, fólk er byrjað að trúa og ég hef klárlega þá tilfinningu að það sé eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna.“ Eitthvað sem þú lærir ekki í skóla Freyr virðist ná því fullkomna jafnvægi að geta verið alvarlegur í sínu starfi, harður stjóri, en einnig náð að sjá léttu hliðina hjá því fólki sem hann starfar með. „Það er náttúrulega bara það sem ég fann fyrir sem leikmaður undir stjórn Freys, bæði hjá landsliðinu og hjá Lyngby. Þessir leiðtogahæfileikar sem hann hefur. Það er eitthvað sem þú getur ekkert lært um í bók eða skóla. Að hafa tilfinningu fyrir fólki, hvað þessi ákveðni hópur þarf akkúrat núna. Þetta er snúið verkefni. Þú ert í 25 manna hóp og þarft einhvern veginn að halda öllum ánægðum og vera sanngjarn við alla en samt setja kröfur. Ég held að þetta sé klárlega mjög spennandi verkefni fyrir hann líka. Að taka þátt í því að rífa upp þennan gamla risa og koma honum á þann stað sem hann á heima á. Freyr var náttúrulega hjá Brann sem er annar stór klúbbur en kannski ekki með sömu sögu og Rosenborg. Freyr veit allavega mjög vel hvað hann er að fara út í og hvernig á að tækla það, það hefur sýnt sig hingað til.“
Norski boltinn Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira